Morgunblaðið - 20.05.1960, Blaðsíða 12
12
MORGVNRT. 4 ÐIÐ
Föstudagur 20. mai 1960
TTtg.: H.f Arvakur Reykjavik
rramkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
. Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Asknftargjald £r. 45.00 á mánuði innanlands^
1 lausasölu kr. 3.00 eintákið.
VERJENDUR
HROKANS
■OROKI og steigurlæti fer
öllum mönnum illa. —
Hrokafull framkoma er held-
ur ekki líkleg til þess að
verða nokkrum manni eða
málefni að gagni. Þvert á
móti er slík framkoma vís-
asti vegurinn til þess að spilla
■öllu samkomulagi og koma í
veg fyrir lausn hinna þýðing-
armestu mála.
Þetta mun vera skoðun
allra venjulegra manna. En
kommúnistar hafa allt aðra
afstöðu til slíkrar framkomu.
Þjóðviljinn, málgagn ís-
lenzkra kommúnista, hefur
t. d. tekið að sér það hlutverk
að verja hinn einstæða hroka-
gikkshátt Nikita Krúsjeffs á
Parísarfundinum. Kommún-
istablaðið skrifar í gær heila
forystugrein, þar sem lagt er
kapp á að sanna það, að
framkoma forsætisráðherra
Sovétríkjanna hafi í öllu ver-
ið eðlileg og sjálfsögð. Vegna
2>ess að Bandaríkin höfðu
fyrir rúmum hálfum mánuði
sent flugvél inn yfir Sovét-
ríkin, telur blað íslenzkra
kommúnista að ekkert hafi
verið eðlilegra en að Krúsjeff
kæmi í veg fyrir allan árang-
ur af Parísarfundinum!
Til æsinga og illinda
Þessa ákvörðun tók for-
sætisráðherra Sovétríkjanna,
þrátt fyrir það að Banda-
ríkjaforseti hafði lýst því yf-
ir, að slíku könnunarflugi
mundi hætt. En Krúsjeff
vildi halda áfram að nota það
sem tilefni til áframhaldandi
æsinga og illinda. Hann varð-
aði ekkert um það, þótt
milljónir manna hefðu bund-
ið miklar vonir við fund
æðstu manna og jafnvel álitið
að þar gætináðstsamkomulag
um mjög þýðingarmikil mal,
útrýming kalda stríðsins og
eflingu heimsfriðarins.
Það hefur enn einu sinni
sannazt, að íslenzkir komm
únistar dansa jafnan þegar
á reynir á línunni frá
Moskvu. Þeir eiga enga
sjálfstæða skoðun. Það er
helgasta skylda ritstjóra
Þjóðviljans að hlýða
hverju kalli frá Moskvu.
Þungt áfall
Sú staðreynd blasir nú við
augum allra sjáandi manna,
að heimsfriðurinn hefur orðið
fyrir þungu áfalli af hálfu
forráðamanna Sovétríkjanna.
Klukkan hefur í raun og
veru verið færð til baka mörg
ár aftur í tímann. Uggur og
óvissa setur nú í vaxandi
mæli svip sinn á ástandið í
alþjóðamálum. Hinn skelfi-
Iegi skuggi styrjaldaróttans
vofir á ný yfir þjóðunum.
VEÐDEILDIN
UTAN UR HEIMI
Leið sú sem rússneska geimskipið fer iiggur yfir Washington, London og París.
Rússneskt geimskip á
fiugi yfir New York
|- FYRRADAG samþykkti
•■■ Alþingi tillögu frá þing-
mönnum Sjálfstæðisflokksins
tim eflingu veðdeildar Bún-
aðarbankans. Tillaga þessi er
svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora
á ríkisstjórnina að láta rann-
saka fjárþörf veðdeildar
Búnaðarbanka íslands og
undirbúa tillögur um, hvern-
ig tryggja megi veðdeildinni
starfsgrundvöll með það fyr-
ir augum, að hún geti gegnt
hlutverki sínu fyrir landbún-
aðinn á viðhlítandi hátt“.
Flutningsmenn þessarar til
lögu voru fimm þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, þeir
Jónas G. Rafnar, Jónas Pét-
ursson, Magnús Jónsson,
Bjartmar Guðmundsson og
Sigurður Ágústsson.
Illa búið að veðdeildinni
Jónas G. Rafnar, alþingis-
maður, var framsögumaður
fjárveitingarnefndar í þessu
máli. Benti hann á að í reynd-
inni hefði verið mjög illa bú-
ið að veðdeild Búnaðarbank-
ans á undanförnum árum.
Hún hefði sáralítið getað
lánað miðað við hina miklu
þörf, sem fyrir hendi hefði
verið. Þetta getuleysi hefði að
sjálfsögðu komið mjög hart
niður á bændastéttinni.
Þessi ummæli Jónasar
Rafnars eiga vissulega við
fyllstu rök að styðjast. Veð-
deild Búnaðarbankans hefur
frá upphafi verið févana. —
Eins og verðlagi er nú orðið
háttað í landinu, má segja, að
það sé miklum erfiðleikum
bundið fyrir unga menn í
sveitum landsins að hefja bú-
skap, kaupa jarðir, bústofn
og verkfæri til þess að geta
rekið nýtízkubúskap. Mjög
brýna nauðsyn ber til þess að
úr þessu verði V»tf á næstu
árum.
EINS og kunnugt er af frétt-
um, sendu Rússar sl. sunnu-
dag á Ioft geimskip, sem veg-
ur 4.540 kg, og er langstærsti
gervihnöttur sem komizt hef-
ur á braut umhverfis jörðu.
Hver hringferð tekur skipið
91 mínútu og fer það í 315—
380 km hæð. í skipinu er
klefi þar sem komið er fyrir
dúkku, sem er að stærð,
þyngd og lögun eins og mað-
ur. Hjá dúkkuniai eru ýmis
tæki, svo sem súrefnisgeym-
ar, sendistöð, stjórntæki eld-
flaugarinnar, matvæli og
vatn. í nefi geimskipsins eru
einnig ýmis rannsóknartæki,
og samkvæmt fréttum frá
Moskvu hafa öll tækin reynzt
vel og miklar upplýsingar
borizt, m. a. um áhrif þau er
dúkkan verður fyrir í ferð-
inni.
Moskvuútvarpið segir að þeg-
ar nauðsynlegar uppiýsingar
hafi fengizt frá geimskipinu,
verði klefinn, sem vegur 2 Vi
tonn, losaður frá skipinu með
merkjaskeyti, og mun hann
brenna upp er hann kemur aft-
ur inn í gufuhvolfið. Ekki er ætl
unin að reyna að ná honum aft-
ur til jarðar. E]jki hafa Rússar
gefið neinar upplýsingar varð-
andi eldflaugina sem flutti geim
skipið upp í himingeiminn, en
j segjast hinsvegar munu senda
mörg slík skip á næstunni.
Dúkka eða maður?
Geimskipið hefur að sjálf-
sögðu vakið umtal og umhugsun
um allan heim. Fulltrúar Banda-
ríkjanna hafa til dæmis bent á
það í sambandi við ásökun Krú-
sjeffs í þeirra garð um njósna-
flugið yfir Rússlandi, að geim-
skipið fari á 91 mínútu fresti yf-
ir Bandaríkin, Bretland og
. Frakkland. Þá halda ýmsir vis-
| indamenn því fram, bæði í
| Bandaríkjunum og víðar, að
• það sé bara af varúð að Rússar
J segi að dúkka sé í geimskipinu.
j Ef þeim takist að ná því til jarð
! ar, komi í ljós að maður sé um
I borð. Ef hinsvegar að skipið
! brenni upp í gufuhvolfinu, hafi
það verið dúkka!
Eldflaugin agn fyrir U-2
Tveim dögum áður en geim-
skipið var sent á loft, skýrði
Washington-fréttaritari brezka
stórbiaðsins Daily Express frá
(því að samkvæmt upplýsingum
. í Washington væri mikið um að
1 vera á eldflaugastöðvum Rússa
hjá Tyura Tam við Aralvatn.
Hefðu U-2 flugvélar tekið
myndir af svæðinu og séð þar
eldflaug, sem var 200 fet (rúml.
60 metrar) á lengd. Var álitið að
U-2 flugvélin, sem skotin var
niður, hafi átt að afla nánari
upplýsinga um eldflaugina. —
Herma fréttir í Washington að
Rússar hafi viljandi leyft Banda-
ríkjunum að frétta af eldflaug-
inni til þess að þeir sendu
njósnaflugvél yfir landamærin.
U-2 vélin, sem skotin var niður,
hafi orðið fyrir vélbilun og því
orðið rússneskum orustuþotum
að bráð.
Heppilegur tími
En hvað sem því líður, breytir
ekkert þeirri staðreynd að Rúss-
ar hafa enn sýnt það að þeir eru
komnir lengra en Bandaríkja-
menn á sviði öflugra eldflauga.
Ekki er að efa það að þeim mis-
tejcst oft, og er það þá ekki aug-
lýst. En þeim hefur tekizt sér-
staklega vel að velja timann fyr-
ir geimskot sín. Hinn 2. janúar
í fyrra skutu þeir á loft eld-
flaug, sem fór fram hjá tungl-
inu. Tveim dögum síðar kom
Mikoyan í heimsókn til Banda-
ríkjanna.
Hinn 13. september sl. lenti
Lunik á tunglinu. Krúsjeff kom
í opinbera heimsókn til Was-
hington tveim dögum seinna. Og
svo núna senda þeir geimskip á
loft kvöldið áður en toppfundur-
inn átti að hefjast í París.
Samanburður
Til samanburðar á þeim gervi-
hnöttum Bandaríkjamanna og
Rússa, sem komizt hafa á braut
umhverfis jörðu eða sól, birtist
hér listi yfir þá:
Rússl. : „Sputnik 1“ 4. okt. 1957,
þyngd 83 kíló.
Rússl. : „Sputnik 2“ 3. nóv. 1957,
þyngd 508 kíló.
U.S.A.: „Könnuður 1“ 31. janúar
1958, þyngd 14 kíló.
U.S.A.: „Framvörður 1“ 17. marz
1958, þyngd 2 kíló.
U.S.A.: „Könnuður 111“ 26. marz
1958, þyngd 14 kíló.
Rússl. : „Sputnik 3“ 15. maí 1958,
þyngd 1325 kíló.
U.S.A.: „Könnuður IV“ 26. júlí
1958, þyngd 20 kíló.
U.S.A.: „Atlas“ 19. des. 1958,
þyngd 3855 kíló (með
eldflaug).
Rússl. : „Lunik 1“ 2. jan. 1959,
þyngd 1500 kíló.
U.S.A.: „Framvörður 11“ 17,- feb.
1959, þyngd 10 kíló.
U.S.A.: „Frumherji IV“ 3. marz
1959, þyngd 7 kíló.
U.S.A.: „Könnuður Vl“ 7. ágúst
1959.
Rússl. : ..Lunik 2“ 12. sept. 1959,
þyngd 390 kíló.
U.S.A.: „Framvörður 111“ 18,
sept. 1959.
Rússl. : „Lunik 3“ 4. okt. 1959,
þyngd 278 kíló.
U.S.A.: „Könnuður VII“ 13. okt.
1959.
U.S.A.: „Frumherji Vl“ 11 marz
1960.
U.S.A.: „Thiros 1“ 1. apríl 1960.
U.S.A.: „Transit lb“ 13. april
1960, þyngd 119 kíló.
Rússl. : „Sputnik 4“ 15. maí 1960,
þyngd 4540 kíló.
Bcndoríkjaför fyrir beztu ritgerð
DAGBLAÐIÐ New York Herald
Tribune mun á næsta ári eins
og að undanförnu bjóða fram-
haldsskólanemendum frá ýmsum
Bretland vill veita viðtöku
ótakmörkuðum fjölda sjúkra og
bæklaðra flóttamanna fyrir milli
göngu Flóttamannahjálpar S.þ.
Hin endanlega tala þeirra veltur
aðeins á því, hve mörgum flótta-
mönnum ýmsar stofnanir, bæjar-
félög, félagasamtök og einstakl-
ingar vilja taka á móti. Dr. A. R.
Linds, forstjóri Flóttamanna-
hjálparinnar, sagði að þessi
ákvörðun Breta væri „einstæð".
Bretar hafa fyrr á yfirstandandi
flóttamannaári tekið á móti 210
sjúkum flóttamnnpum Qfi skyMu-
liði þeirra.
löndum, einum frá hverju landi, í
þriggja mánaða kynnisför til
Bandaríkjanna, og greiðir blaðið
fargjöld og kostnað við dvölina
vestra (janúar — marz 1961).
Þátttakendur verða valdir með
hliðsjón af ritgerðasamkeppni,
og er ritgerðarefnið á íslandi að
þessu sinni: „Gildi persónulegra
kynna fyrir sambúð þjóða“. —
Lengd ritgerðarinnar skal vera
4—5 vélritaðar síður.
Þátttaka í samkeppninni er
heimil öllum framhaldsskóla-
nemendum, sem verða 16 ára fyr-
ir 1. janúar 1961, en ekki 19 ára
fyrir 30. júní það ár, eru íslenzk-
ir ríkisborgarar og hafa góða
kunnáttu í ensku.
Ritgerðirnar, sem eiga að vera
á ensku, skulu hafa borizt mennta
málaráðuneytinu fyrir 15. sept.
næst komandi.
(Frá menntamálaráðuneytinu).