Morgunblaðið - 17.07.1960, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 17. júlí 1960
SL. miðvikudag sagði brezk-
ur bókaútgáfustarfsmaður frá
því í viðtali við Mbl. að ein-
hver mesta' sölubókin, af nýút-
komnum bókum í Bretlandi,
væri ,,Born Free“, sem kom
út hjá Collins útgáfunni. Og
hér birtum við myndir af sögu
hetjunni Elsu. Á minni mynd-
inni er hún í faðmlögum við
höfund bókarinnar, Joe Adam
son.
Elsa er sem sagt Ijómandi
falleg fjögurra ára gömul
ljónynja frá Kenya, en hún
hefur lifað dálítið óvenjulegu
Ijónalífi. Æfintýrið byrjaði 1.
febrúar 1956.
Dýrin voru vinir hennar
George Adamson og veiði-
vörður á veiðisvæði einu í
Kenya fundu þennan morgun
slóð eftir Ijónynju, sem dag-
inn áður hafði drepið innfædd
an mann. Þeir eltu hana og
skutu. Skammt frá fundu þeir
svo bæli hennar og þrjá unga.
Þeír fóru með þá heim. Tveir
voru sendir í dýragarð í Hol-
landi en Elsa litla varð eftir
hjá Adamsonhjónunum, sem
brátt máttu ekki til þess
hugsa að senda hana frá sér.
Fyrstu þrjú árin lifði Elsa
rólegu lífi sem nokkurs kon-
ar veiðihundur. Húsbændur
hennar dekruðu við hana og
hún lét sér nægja að sækja
bráðina. Hún drap aldrei,
hafði ekki lært það. Öll dýrin
voru vinir hennar, einkum
gíraffarnir sextíu, sem héldu
sig í nánd við húsið. Einustu
óvinirnir voru ljónin, kyn-
bræður hennar, og fílarnir,
sem voru hræddir um ungana
sína fyrir henni.
Elsa varð stærðar ljón, vó
sem þurfti að iœra hjá
mönnum að vera villidýr
140 kg, og fékk stórhættulegar
tennur og klær. En hún vissi
það bara ekki ennþá. Hún fór
með Adamson í allar veiði-
ferðir og hjálpaði til við að
rekja slóð villidýranna, sem
höfðu drepið innfædda menn
og þorpsfólkið óttaðist. Stund
um fór hún með niður á strönd
ina og lá í sólinni, og á ferða-
lögum lá hún uppi á þakinu
á Eandrover-jeppanum.
Lærði að lifa sjálfstæðu lífi
En um vorið fór að bera á
óróa og augaóstyrk hjá ljón-
ynjunni, svo það fór að verða
erfitt að hemja hana. Adam-
son hjónin ákváðu þá að
sleppa henni aftur í sitt rétta
umhverfi. En þá kom vanda-
málið. Elsa kunni ekki að
drepa sér til matar. Það varð
að kenna henni að sundurlima
bráðina, yfirvinna særða bráð,
og að lokum að ráðast að dýr-
unum, þeim að óvörum. Og
það urðu „foreldrar“ hennar,
Georg og Joe Adamson auð-
vitað að gera. Það tók langan
tíma. Smám saman lærði hún
að vinna fljótt á þeim, og dag
nokkurn stökk hún á naut úti
í á og vann á því. Þá loks var
Elsa fær um að lifa sjálfstæðu
lífi í frumskógi Kenýu.
En þó Elsa sé aftur orðin að
blóðþyrstu villidýri, er ekki
strikað yfir allt hennar upp-
eldi hjá mönnunum. í fyrstu
kom hún oft í heimsókn og
loks með þrjá nýfædda ljóns-
unga, til að sýna fósturforeldr-
unum afkvæmi sín.
Elsa orðin fræg
Meðan Elsa bjó hjá Adam-
son-hjónunum tók Joe Adam-
son margar myndir af henni
og stuttar kvikmyndir. Hún
skrifaði einnig bók um Elsu,
Ijónynjuna, sem þurfti að læra
hjá mönnunum að vera villi-
dýr, til að geta lifað í skóg-
inum.
Bókin kom út og Elsa varð
fræg. Myndirnar af henni
hafa birzt í blöðum um allan
heim, og kvikmyndin verið
sýnd í London. Þegar fram-
kvæmdastjóri eins af stórir
bandarísku kvikmyndafélög-
unum frétti af Elsu, vildi hann
fá hana og bauð í hana háa
upphæð. Það væri ekki ónýtt
fyrir kvikmyndafélag að hafa
svo góðum og þægum leikara
á að skipa í ljónahlutverkin.
En Adamsons hjónin höfnuðu
borðinu. Elsa, fósturdóttir
þeirra væri enginn sirkus
gripur, sögðu þau og hún
skyldi fá að lifa hamingju-
sömu lífi í sínu rétta um-
hverfi.
Bsf.
FRAMTAK
Tvær íbúðir lausar í húsi 2. byggingarflokks
Bsf. FRAMTAKS að Sólheimum 25.
íbúðirnar eru 3ja herbergja- Stærði þeirra
er 84 ferm., fyrir utan sameign, sem er nál.
20 ferm.
Hverri íbúð fylgja tvær geymslur, vanalega
á sömu hæð og íbúðin og köld geymsla í kjall-
ara.
Hverri íbúð fylgir hlutur í: leikherbergi
barna, tómstundasal unglinga, barnavagna-
geymslu, reiðhjólageymslu, vélþvottahúsi,
samkomusal, og húsvarðaríbúð.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins að Sól-
heimum 32 í dag og næstu daga frá kl. 17 til
19 — síntí 35240.