Morgunblaðið - 17.07.1960, Page 12
12
r MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 17. júlí 1960
tTtg.: H.f. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, simi 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
„SÉR GREFUR
GRÖF ÞÓTT
GRAFI"
A LKUNNA er, að Fram-
sóknarílokkurinn hefur
frá upphafi verið meginstoð
þess haftaskipulags, þvingana
og ofstjórnar, sem hrjáð hef-
ur íslenzkt þjóðfélag allt frá
því að sá flokkur komst til
valda, á 4. áratug aldarinnar.
Kerfi það. sem þannig hef-
ur verið byggt upp, hefur
beinzt að pví að skapa Fram-
.sóknarflokknum og fyrir-
tækjum hans sérréttindaað-
stöðu í þjóðfélaginu og gera
öðru atvinnulífi sem erfiðast
fyrir um samkeppni. Skal
ekki langt farið út í þá sálma,
því að öllum er kunnugt um
•ótakmörkuð fjárfestingar-
leyfi samvinnufélaganna,
skattfríðindi þeirra, sívaxandi
hlutdeild í heildarinnflutn-
ingsleyfum meðan þau voru
við líái o. s. frv.
} Af þessum sökum hefði
mátt ætla að samvinnufélög-
unum hefði reynzt róðurinn
auðveldur og þau hefðu í
skjóli forréttindanna getað
eflzt svo, að því marki Fram-
sóknarmanna yrði náð að úti-
loka samkeppni, án þess að
fara út fyrir ramma haftalög-
gjafarinnar.
Nú er hinsvegar að koma á
dagínu, að fjarri fer því að
samvinnumenn hafi talið hina
lögboðnu forréttindaaðstöðu
nægilega og hafa því gripið
til ólöglegra aðgerða til að
styrkja sinn hag. Olíumálið
svonefnda hefur nú tekið þá
stefnu, að héðan í frá mun
það vafalaust nefnt „SÍS-mál-
ið“. Liggur í loftinu að hafin
sé rannsókn á gjaldeyrissvik-
um Sambandsins og marg-
háttuðu misferli, þótt rann-
sóknardómararnir hafi enn
ekki talið tímabært að birta
greinargerð um rannsóknina.
Nú vita það allir menn, að
í ýmsu tilliti hefur verið erf-
itt að umgangast heiðarlega
sérhverja þá löggjöf, sem hér
hefur verið tildrað upp. Munu
þeir vera margir, sem hand-
leikið hafa punds- eða dollara
seðil, sem smogið hefur fram
hjá lögunum, ef þeir hafa ætl-
að að bregða sér út fyrir
landssteinana. Þannig eru
vissulega fleiri en Sambands-
mennirnir brotlegir við gjald-
eyrislöggjöfina. Löggjafinn
hefur líka beinlínis neytt
menn til þess, þegar þeim
hefur verið meinað um nauð-
synlegasta farareyri. En slík-
um stórafbrotum, sem nú eru
að koma á daginn, höfðu
menn ekki búizt við.
En athyglisverðast við
þetta mál er það, að einmitt
þeir, sem löggjöfin átti að
vernda og efla, skyldu snið-
ganga hana svo hrapallega og
ekki láta sér nægja vernd
hennar. Verður vart komizt
hjá því að álykta sem svo, að
þessir menn hafi verið farnir
að taka forréttindin sem svo
sjálfsagðan hlut, að þegar þau
ekki væru lögboðin, þá gætu
þeir sjálfir tekið sér þann
rétt, sem þeim sýndist. Og að
svo miklu leyti, sem lögin,
sem þeim voru sett til vernd-
ar, komu iila við þá sjálfa,
hlyti að leiða af eðli löggjaf-
arinnar, að ekki teldist sér-
lega saknæmt, þó að þeir snið-
gengju hana.
Einhvern veginn hefur það
farið svo, að einkafyrirtæki
hafa staðið af sér þær ofsókn-
ir, sem á hendur þeim hafa
veri^ hafnar. Þannig hafa
fyrirætlanir Framsóknar-
manna og þeirra annarra, sem
megináherziu hafa lagt í að
lama heilbrigt einkaframtak,
ekki heppnazt. Hinsvegar sit-
ur sjálfur forréttindaaðilinn
fastur í því neti, sem hann
svo vandlega hafði riðið og
ætlað til að granda öðrum.
Þetta er sú sorgarsaga
Framsóknarflokksins, sem
ekki verður að fullu skráð í
dag, en væntanlega á næstu
mánuðum og árum. Fyrir þá,
sem af hugsjónaeldi börðust
fyrir samvinnuhreyfinguna
og Framsóknarflokkinn á upp
vaxtarárum þeirra, hlýtur
þetta að vera mikið áfall. Fyr
ir hina, sem förinni hafa
stýrt, ætti það að geta orðið
góður skóli. Að minnsta kosti
verður í lengstu lög að vona
að þeim auðnist að draga af
því réttar ályktanir, þegar
enn sannast hið fornkveðna,
að
„sér grefur gröf þótt grafi“.
UTAN UR HEIMI
„Leonardo da Vinci"
siglir milli heimsálfanna
Hið glœsilega ítalska skip kemur
í stað „Andrea Doria"
HIÐ glæsilega farþegaskip
ítölsku-línunnar, Leonardo da
Vinci, sem smíðað hefur ver-
ið í stað hins eftirminnilega
skips, „Andrea Doria“, er um
þessar mundir rétt að ljúka
„jómfrúferð“ sinni, en skipið
mun verða í förum milli
Italíu og Bandaríkjanna, þ. e.
Genova og New York, með
viðkomu í nokkrum höfnum
við Miðjarðarhaf.
Stærð skipsins
„Leonardo da Vinci“ tekur
1326 farþega, en það er 33 þús-
und lestir að stærð, 770 feta
langt og gengur með 23 sjómílna
hraða.
Farþegarými skipsins er skipt
niður í þrennt; klefar eru alls
524 talsins, um 30 salir eru í
skipinu, þar á meðal kapella og
kvikmyndahús, auk 5 sundlauga.
Glæsilega búið
Allur frágangur skipsins er
hinn glæsilegasti og víða um
skipið getur að líta listaverk
ýmissa núlifandi ítalskra lista-
manna. Af hinum fullkomna út-
búnaði skipsins má geta sjón-
varps í farþegaklefum, sem gerir
farþegum m. a. kleift að fylgjast
með atburðum, sem eru að ger-
ast annars staðar í skipinu,
þannig geta t d. mæður fylgzt
með leik barna sinna í leikstof-
um skipsins, og tónlistarunnend-
ur geta fylgzt með tónleikum og
notið þeirra svo sem nútíma
tækni frekast leyfir. Einnig eru
í skipinu fjarritvélar og talsími
til öryggis og þæginda. Loks
skal nefnd fullkomin eimingar-
stöð, sem framleitt getur 155,500
gallon af vatni, en það er nægi-
legt fyrir alit vatnskerfi skipsins.
AF öllum tegundum mann-
greinarálits og kynþáttarígs
er sú skaðlegust og fyrirlitleg
ust sem á sér stað á vettvangi
menntunar, sagði Rene Ma-
heu, aðstoðarforstjóri Menn-
ingar- og vísindastofnunar
SÞ (UNESCO).
Hann var að tala til tækni-
legra og lögfræðilegra sérfræð-
inga frá 35 löndum sem kvaddir
höfðu verið saman til ráðstefnu
í aðalstöðvum stofnunarinnar. —
Ráðstefnan hófst 13. júní og stóð
yfir rúmar 2 vikur. Hún gerði
drög að alþjóðlegum sáttmála
um algert jafnrétti til skóla-
göngu.
Mikið í húfi
Maheu lagði áherzlu á hið al-
varlega verkefni sem sérfræðing-
unum væri lagt á herðar og benti
í því sambandi á, að kynþátta-
rígur og manngreinarálit í skól-
um væri lífshættulegt, bæði ein-
staklingum og þjóðfélaginu, því
Skírt eftir uppfinningamanninum
„Leonardo da Vinci“ hefur
verið gefið nafn eftir hinum
fræga ítalska lista- og uppfinn-
FJÁRSÖFNUN Alþjóðlega
flóttamannaársins hefur gef-
ið ákaflega mikið í aðra hönd
í mörgum löndum, en þörf-
inni er enn ekki fullnægt,
segir forstjóri Flóttamanna-
hjálpar SÞ, Auguste R. Lindt.
í húfi væri sjálf mótun æsku-
mannsins.
— Manngreinarálit á þessu
sviði leiðir af sér afdrifaríkan
klofning, sagði Maheu, sem hefur
áhrif á val heillar kynslóðar,
ekki aðeins nú heldur og í fram-
tíðinni, val milli frelsis og þræl-
dóms, milli jafnréttis og ofstækis,
milli bræðraiags og óslökkvandi
haturs. Á vettvangi uppeldis og
menntunar birtist manngreinar-
álitið auk þess í sínu auvirðileg-
asta og ógeðslegasta formi, því
þar eru það fyrst og fremst
börnin sem verða fórnarlömb.
Augljós mannréttindi
— Þrátt íyrir þetta verða stöð-
ugt milljónir varnarlausra æsku-
manna að þola þessa niðurlæg-
ingu — og því miður í æ ríkara
mæli. Og það er enn til fólk,
sem ekki aöeins reynir að skýra
þetta ástand, heldur líka afsakar
það. Þessi íáðstefna er kvödd
saman til að koma í veg fyrir
það, að menn geti í framtíðinni
skotið sér undan að viðurkenna
augljós mannréttindi.
ingamanni, sem uppi var á 16.
öld og m. a. átti hugmyndina að
hjólaskipunum. — Eins og mönn-
um er enn í fersku minni, sökk
„Andrea Doria“ eftir árekstur
við sænska farþegaskipið „Stock-
holm í júlí-mánuði 1956.
Til að hægt verði að leggja
niður fyrir lok þessa árs þær
búðir, sem flóttamenn hafa
búið í yfir áratug, er enn
þörf á 2 milljónum dollara, og
til ýmissa annarra fram-
kvæmda skortir 3 milljónir
dollara til viðbótar.
Góður árangur af söfnuninni
Forstjórinn lýsir því yfir með
mikilli ánægju, að fjársöfnunin,
m. a. á Norðurlöndum, hafi borið
mjög góðan árangur. Bretar hafa
fjórfaldað þá upphæð, sem þeir
höfðu í öndverðu einsett sér að
safna. — En þetta má ekki koma
mönnum til að halda að frekari
söfnun sé ónauðsýnleg, segir
Lindt. Til dæmis höfðu verið ráð-
gerðar sérstakar ráðstafanir til
að hjálpa flóttafólki í Túnis og
Marokkó — og til þessarar hjálp-
ar einnár var þörf á 3 milljónum
dollara.
Þörfin er mikii
Því fer fjarri að þessu fé hafi
verið safnað, og í stað þess að
fara inn á nýjar brautir í hjálp-
inni við flóttamenn, svo sem
heilsuvemd, menntun og tækni-
þjálfun, eins og gert hafði verið
ráð fyrir, hafa menn verið nauð-
beygðir til að nota það fé, sem
safnazt hefur, til að halda lífinu
í flóttafólkinu.
— Ef menn fá ekki nú þegar
rétta mynd af ástandinu, er
hætta á að áhuginn minnki
vegna þess að almenningur
álykti sem svo, að árangurinn
sem náðst hefur sé nægilegur. Ef
svo færi yrði sjálfur árangurinn
til hindrunar frekari viðleitni
við að halda hjálpinni áfram og
auka hana. Þess vegna heiti ég á
alla að láta ekki staðar numið í
viðleitninni, sagði Auguste Lindt
að lokum.
Sáttmáli um jafn-
rétti til menntunar
A vettvangi uppeldis og menntunar
er manngreinarálit verst
„Leonardo da Vinci“.
Frá Sameinuðu Jbjóðunum:
Mikilvœg aðsfoð
við flóttafólk
Enn er Jbó Jbörf fyrir mikið fé