Morgunblaðið - 17.07.1960, Qupperneq 17
Sunnudagur 17. júlí 1960
MORCVISBl AÐIÐ
17
Styiktariélug vangeiinna
einir til happdrættis
Hefur umboðsmenn um land allt
EINS og auglýst hefir verið í
blöðum og útvarpi undanfarið,
hefir Styrktarfélag vangefinna
efnt til happdrættis í fjáröflunar-
skyni, til þess að koma í fram-
kvæmd áhugamálum sínum til
hagsbóta fyrir vangefið fólk á
landinu. Má þar nefna byggingu
dagheimilis í Reykjavík, bygg-
ingu starfsmannahúss við Kópa-
vogshæli, sem þegar er hafin
fyrir nokkru og vonir standa til
að á þessu ári verði hafizt handa
um byggingu nýs hælis fyrir van-
gefna að Skálatúni í Mosfells-
sveit. Til þessara framkvæmda
þarf mikið fé, og er happdrætti
Styrktarfélagsins einn liður í fjár
öflun til þessara framkvæmda.
Happadrættið er þannig skipu
lagt, að bifreiðaeigendur um land
allt eiga þess kost að kaupa einn
happdrættismíða á númer bif-
reiða sinna. Miðinn kostar kr.
100,00 og vinningar eru að verð-
mæti 320 þús. kr. Aðalvinningur
er Opel Kapitan de Luxe sex
manna bifreið, að verðmætí kr.
250 þúsund. Aðrir vinningar 9
talsins eru að verðmæti kr. 70
þúsund. Ákveðið er að dráttur
fari fram 1. nóv. n.k.
1 Reykjavík eru happdrættis-
miðarnir afgreiddir á skrifstofu
félagsins á Skólavörðustíg 18,
símar 15941 og 24651. Ennfnemur
má panta miða á öllum benzín-
afgreiðslum í Reykjavík. Happ-
drættismiðarnir verða sendir
heim til þeirra er pantanir hafa
gert.
Úti á landi hefir Styrktarfélag-
ið umboðsmenn á þessum stöð-
um: Akureyri: Frú Björg Bene-
diktsdóttir, Bjarkarstíg 1. — Ól-
afsfjörður: Frú Ragna Pálsdóttir,
verzl. Lín. — Siglufjörður: Frk.
Kristín Hannesdóttir, bóksali. —
Húsavík: Frú Þóra Hallgríms-
dóttir. — Reyðarfjörður: Sigurð-
ur Sveinsson, bifreiðaeftirlitsm.
— Neskaupstað: Pétur Waldorff,
kaupm. — Vík í Mýrdal: Oddur
Sigurbergsson, kaupfélstj. — Sel-
foss: Grímur Thórarensen. —
Hvolsvöllur: Magnús Kristjáns-.
son, kaupfélstj. — Vestmanna-
eyjar: Már Frímannsson, bifreiða
eftirlitsm. — Kópavogur: Sigurð-
Ur Ólafsson, Bræðratungu 47. —
Hafnarfjörður: Frú Lilja Bjarna-
dóttir, Hraunkambi 7. — Kefla-
vík: Haukur H. Magnússon, Faxa
braut 22. — Keflavíkurflugvöll-
ur: Þórður Halldórsson, póstm.
— Akranes: He’lgi Júlíusson, úr-
smiður. — Borgarnes: Þórleifur
Grönfeldt, verzlm. — Búðardal:
Frú Kristjana Ágústsdóttir. —
Framhald á bls. 23
★
Það hcfur komið fram
áður, að svertingjarnir eru
Belgum síður en svo þakk-
látir fyrir athafnir þeirra í
Afríkulöndum. Þeir gátu
jafnvel ekki stillt sig um,
á sjálfan frelsisdaginn, 30.
júní sl., að móðga Baldvin
Belgíukonung, þegar hann
kom til Leopoldville að af-
henda innfæddum sjálf-
stæðið. Voru þessar mynd-
ir, sem hér birtast, teknar
við það tækifæri, þegar
svertingi einn gekk að bif-
reið konungsins og svipti
hann heiðurskorða sínum.
Skömmu síðar hlýddi
konungur á ræðu Lum-
umba forsætisráðherra og
er mælt að hann hafi roðn-
að í annað skipti, er hann
heyrði þessi orð af tungu
hins ofstækisfulla svert-
ingjaleiðtoga:
★
„Við höfum kynnzt háðs-
glósum, móðgunum og
höggum, sem við urðum að
þola, morgun, miðjan dag
og að næturlagi, vegna
þess, að við vorum negrar.
Launin, sem svörtum
mönnum voru greidd,
nægðu ekki til að seðja
hungrið, fyrir klæðum né
sómasamlegu húsnæði.
Hver getur gleymt af-
tökusveitunum, sem svo
margir bræðra okkar féllu
fyrir?“
Fyrsta myndin sýnir
svertingjann ganga að bif-
reið Baldvins konungs, eng
inn varð til að hindra för
svertingjans. í bifreiðinni
standa þeir hlið við hlið,
Baldin konungur og Kasa-
vuhu, forseti Kongó-lýð-
veldisins.
Stóra myndin sýnir, þeg-
ar svertinginn er búinn að
hrifsa sverðið, sem lá í sæt-
inu fyrir aftan konunginn.
Hann sveiflaði því yfir
sér og hrópar hástöfum:
„Sjálfstæði! Sjálfstæði!“
Á þriðju myndinni ræðst
stálhjálmuð lögreglan að
óeirðaseggnum. Toguðust
þeir á í hálfa mínútu um
sverðið og börðu þrjótinn
loks niður. Á sverðið sést
vinstra megin á myndinni.
Á síðustu myndinni hef-
ur konungur fengið sverð
sitt aftur. Hann hafði horft
hljóður á, en roðnaði lítið
eitt í kinnum. Eftir þetta
hélt hann fast í sverðið.
Baldvin sviptur
sverði sínu
SVO virðist sem svertingj-
arnir í Kongó ætli nú að
fengnu sjálfstæði að losa
sig fyrir fullt og allt við
Belgíumenn. Er hvítum
mönnum ekki lengur vært
í landinu og ríkir hefndar-
hugur meðal svertingja
eftir 80 ára nýlendustjórn
Belga þar.