Morgunblaðið - 08.09.1960, Síða 8

Morgunblaðið - 08.09.1960, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 8. sept_ 1960 EINS og skýrt hefir verið frá lauk aðaliundi Stéttarsam- bands bænda að Bifröst í Borgarfirði sl. þriðjudags- kvöld. Formaður samtakanna Sverrir Gíslason bóndi í Hvammi upplýsti að ekki hefði komið til uppsagnar á verðlagsgrundvellinum og um þessar mundir stæðu yfir samræðufundir innan 6 m. nefndarinnar um hvert útsölu verð yrði á landbúnaðarvör- um. Samkomulagi væri næstum náð. Það hefir tekizt að semja um 1210 kr. hækkun á grundvellin- tun vegna vaxtahækkana. Þá hefir hagstofustjóri reiknað út hækkanir á öðrum rekstrarlið- um ,svo sem fóðurbæti, áburði, flutningskostnaði, viðhaldi fast- einga o.fl. Þessar breytingar valda heildarhækkun á verðlags grundvellinum, er nema 7,55%. Vegna þess að hægt var að semja um vaxtahækkunina sér- staklega var verðlagsgrundvell- inum ekki sagt upp. Á þessu stigi málsins er ekki hægt að segja nákvæmlega um hverjar verði hækkanir á útsölu- verði landbún'aðarvara af völd- um þessarar hækkunar á verð- lagsgrundvellinum, en væntan- lega verður það hægt innan skamms. Á Stéttarsambandsfundinum urðu allharðar umræður um verðlagsgrundvöllinn og stóðu þeir Sverrir Gíslason, Einar Olafsson í Lækjarhvammi og Sveinn Tryggvason, framkvsy. Framleiðsluráðs í andsvörum fyrir gerðum Framleiðsluráfes og stjórnar samtakanna. Fundurinn gerði ýmsar samþykktir í þess- um málum og fleirum og birtast þær hér í heild. FRAMLEIÐSLUNEFND: Kornrækt. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 skorar á næsta Al- þingi að samþykkja frumvarp það til laga um kornrækt, sem lá fyrir síðasta þingi ,en hlaut ekki afgreiðslu. Afurðalán út á kartöflur Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 skorar á bankana að lána afurðavíxla út á kartöflur eins og aðrar framleiðsluvörur, enda séu kartöflurnar metnar og komnar í tryggar geymslur. Mjólkurbú. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 skorar á Alþingi að stórauka framlög á fjárlögum til stofnunar mjólkurbúa, á þeim stöðum, sem skilyrði hafa til aukinnar mjólkurframleiðslu, en takmörkuð til fjölgunar sauðfjár. VERÐLAGSNEFND: Verðlagsgrundvöllurinn. Aðalfúndur Stéttarsambands bænda haldinn að Bifröst 1960 telur að verðlagsgrundvöllur sá sem nú gildir sé algerlega óvið- undandi og þurfi því bráðrar og gagngerðar endurskoðunar við. Meginorsakir fyrir því, að ekki hefur tekizt að fá byggðan upp verðlagsgrundvöll ,sem bændur telja viðhlítandi, telur fundurinn vera ófullkomin og ótraust gögn, sem verðlagsnefnd hefur í hönd- um. Því ályktar fundurinn að fela stjórn Stéttarsamb. að að hefja nú þegar aihliða endurbætur um öflun gagna, til að byggja upp nýjan verðlagsgrundvöll, sem tryggi bændum þau lífskjör, sem þeim eru ætluð að lögum. Stjórn sambandsins beiti sér fyrir því í Framleiðsluráði að samin verði og staðfest reglugerð um hvernig sá verðlagsgrund- völlur skuli gerður. Leggur fundurinn ríka áherzlu á að ekkert sé til sparað af hálfu Stéttarsamb. að afla sem traust- astra gagna í þessu efni og ítrek- ar fyrri óskir um að Stéttarsamb ráði vel menntaðan og dugandi mann til að vinna að þessum mál um með stjórn sambandsins. VERÐLAGSNEFND. Fullt grundvallarverð. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 ítrekar fyrri álykt- anir sínar um það að tryggt verði að bændur fái að fullu grund- vallarverðið, með öruggri verð- lagningu og. eftirliti um verð- skráninguna sé framfylgt. Þá felur fundurinn stjórn sam- bandsins að taka til athugunar hvort fært sé að tryggja að þessu marki verði náð með því, að vanti á verðið eitthvert ár, verði það tekið sem gjaldliður í verðlags- grundvellinum næsta ár á eftir. Verðhlutföll mjólkur- og sauð- f járafurða. Þar sem skýrsla nefndar þeirr ar, sem rannsakað hefir verð- hlutföll mjólkur- og sauðfjáraf- urða bendir ótvírætt á það, að tekjur sauðfjárframleiðenda séu minni en þeirra, sem hafa hvort tveggja, kjötframleiðslu og mjólk urframleiðslu, til sölu, skorar fundurinn á Framleiðsluráð að gera alvarlega tilraun til að ráða bót á þessu misræmi, þannig að afkomumöguleikar landbúnaðar- ins verði sem jafnastir í landinu, m.a. með breyttri verðskráningu. Borgun við afhendingu. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 telur nauðsyn á að breytt verði um fyrirkomulag við útborgun á verði framleiðsluvara landbúnaðarins, þannig að bænd- ur geti fengið mikinn hluta verðs ins, ekki minna en 90% útborgað við afhendingu vörunnar. Til þess að þessu marki verði náð telur fundurinn nauðsynlegt að verzlunarfélögum og mjólkur búum verði tryggt rekstursfé til þessara hluta og að kostnaður við það og áhætta við sölu vörunnar verði tekin í dreifingarkostnað- inum við ákvörðun hans. ALLSHER J ARNEFND: Búf jártryggingar. Út af erindi Hafsteins Péturs- sonar um búfjártryggingar og sjóðstofnun í því sambandi lýsir fundurinn yfir því, að hann telur ekki tímabært að taka afstöðu í málinu þar sem það sé nú að til hlutan Búnaðarþings í athugun hjá stjórn Búnaðarfélags íslands. Raforkumál. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 ítrekar samþykkt sína frá síðasta aðalfundi, þar sem skorað er á raforkumála- stjórn rikisins að hraða sem auð ið er rafvæðingu dreifbýlisins að beita sér jafnframt fyrir því, að .raforkan verði seld sama verði til allra landsmanna. Þá verði ennfremur séð fyrir nægum hagkvæmum lánum úr raforkusjóði til þess að þau býli sem ekki fá rafmagn frá sam- veitum á næstunni, geti komið sér upp einkastöðvum. 12 mílna landhelgi. Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn í Bifröst 5. og 6.. sept. 1960 lýsir fullúm stuðningi við ákvörðunina um 12 mílna landhelgi íslands, og skorar á stjórnarvöldin að kvika í engu frá einróma samþykktum Alþing is og halda á málinu með festu og einurð. Áfengisvarnir. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 skorar á stjórn sam- bandsins að vinna að því við A1 þingi og ríkisstjórn að stóraukn ar verði áfengisvarnir í sveitum landsins. M.a. með því að veita áfengisvarnarráði aukið fjár- magn til að starfa með. Jafn- framt að nú þegar verði staðfest ar þær löggæzlusamþykktir hér aðanna, sem enn eru óstaðfestar. Ennfremur að þau sýslufélög, sem þess óska geti fengið full- komna lögreglubíla til afnota við störf löggæzlumanna. Gæðamat á fóðurvörum. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 skorar eindregið á stjórn sambandsins að hafa sam vinnu við stjórn B. í. um að framkvæmt verði öruggt gæða- mat á öllum þeim fóðurvörum, sem seldar eru innanlands. Söluskattur. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1960 skorar á stjórn sam- bandsins að vinna að pví við A1 þingi og ríkisstjórn að Ræktunar sambönd og búnaðarfélög verði undanþegin söluskatti af þeirri þjónustu, sem þau veita bænd- um landsins. Ennfremur verði innflutningur landbúnaðarvéla látinn njóta sömu kjara í þessu efni eins og skip og veiðarfæri. Benzínskattur . Vegna þess hve rekstur land- búnaðarvéla, sem knúnar eru með benzínvélum er orðinn ó. hagstæður í samanburði við rekstur dieselknuinna véla, skor ar aðalfundur Ssb.b. 1960 á stjórn sambandsins að beita sér fyrir því, við ríkisstjórnina að tollur sá, sem lagður var á ben- zín samkvæmt lögum frá síð- asta Alþingi verði að fullu end- urgreiddur af því benzíni, sem notað er til reksturs landbúnað- arvéla. Fjárveiting til Vélasjóðs. Aðalf. St.b. 1960 skorar á Alþ. og ríkisstjórn að taka nú þegar upp nægjanlega fjárveitingu til Vélasjóðs ríkisins og ræktunar- sambandanna, svo ekki komi til þess að algjör stöðvun verði á ræktun landsins þar sem að úti •lokað er að hægt sé að öðrum kosti að endurnýja hin kostn- aðarsömu og stórvirku tæki til frumvinnslu landsins. Efling ræktunar- og byggingar- sjóðs. Aðalf. St.b. 1960 skorar á AI- þingi og ríkisstjórn að gera eft- irtaldar ráðstafanir svo Bygginga sjóður og Ræktunarsj. Búnb. ísl. geti hér eftir ekki síður en hing- að til sinnt því hlutverki sínu að veita lán til ræktunar, bygg- inga og vélvæðingar hjá bænd- um, ásamt því að séð verði fyr- ir nægjanlegum lánum til vinnslustöðva landbúnaðarins s. s. mjólkurbúa, sláturhúsa og frytstihúsa. 1. að lækka útlánsvexti af stofnlánum landbúnaðarins í það horf, sem áður var og gildandi löggjöf mælir fyrir um. 2. Að ríkissjóður taki að sér greiðslu hinna erlendu lána, sem sjóðirnir hafa fengið. 3. Að útvega, inanlands eða utan það fjármagn. sem þörf er á, svo uppbygging og framleiðsla landbúnaðarihs haldi áfram með eðlilegum hætti. Aukið lánsfé til Veðdeildar. Aðalf. St.b. 1960 skorar á stjórn sambandsins að vinna að því við Alþingi og ríkisstjórn að aukið verði lánsfé Veðdeildar Búnaðar bankans svo unnt verði að sinna brýnni þörf lána til bænda og nemi hámarksupphæð lánanna eigi minna en kr. 100 þúsund á býli. Ennfremur að veitt lán til bústofnsaukningar og bættur verði hagur þeirra bænda, sem erfiðasta aðstöðu eiga til að stækka búin með því: 1. Að veita þeim uppeldis- styrk á búfé. 2. Að stórauka lán til bygg- inga. 3. Að þeim verði tryggt ör- uggt vegasamband. Vaxtahækkun aflétt. Aðalf. Stf. b. 1960 telur aS efnahagsráðstafanir þær, sem gerðar voru sl. vetur komi mjög hart niður á bændastéttinni. Felur fundurinn því stjóm Stéttarsambandsins að vinna ötul lega að því við Alþingi og ríki* Framhald á bls. 19. Sendisveinn Duglegur sendisveinn óskast Kexverksmiðjan Frón hf. Skúlagötu 28 Noluð húsgögn — Gólfteppi Svefnherbergishúsgögn úr hnotu. — Fataskápur með stórum spegli. — Tvö rúm. — Tvö náttborð. — Snyrtiborð með þrísettum spegli. — Tveir stólar. GÓLFTEPPI 270x360 og 270x330, óslitin — Dívan Borðstofuborð og 4 stólar og buffet með spegli. — Nýtízku svefnherbergishúsgögn — Snyrtiborð með stórum spegli — 2 ná,ttborð — Herrakommóða og stóll. — Til sýnis og sölu í kvöld kl. 8i—10 í Bröttu- götu 6, 1. hæð. Bónusútborgun í kvöld milli kl. 5—7. Ha'kkanir á líftryggingum á sama tíma. Vátryggingarskrifstofa SIGFÚSAK SIGHVATSSONAR H.F.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.