Morgunblaðið - 08.09.1960, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.09.1960, Blaðsíða 18
18 MORGVISBL AÐ1Ð Fimmtudagur 8. sept 1960 Stangarstökk. l)Don Bragg, Bandar. 4,70,' (Olym- píumet), 2) Ronald Morris, Bandar. 4.60, 3) Eeles Landström, Finnlandi 4,55, 4) Ronald Gjus, Puerto Rico, 4,55, 5) Malcher Þýzkal. 4,50, 6) Sutin- en, Finnl. og Petreuko, Rússl. 4,50. 50 km kappganga. l)Donald Thompson, Bretl. 4 klst. 25 mín. 30 sek., 2) John Ljunggren, Svíþj. 4:25.47, 3) Abdom Pamich, Italía 4:27.55, 4 Aleksander Stjerbina, Rússl. 4:31.44, 5) Thomas McCasson, Bretl. 4:33.03, 6) Alex Oakley, Kanada 4:33.08. Kringlukasta karla. 1) Alfred Oertr, Bandar. 59,18 m, (Olympíumet), 2) Richard Bebka, Bandar. 58,02, 3) Richard Cochram, Bandar. 57,16, 4) Joseif Szecsenyi, Ungverjal. 55,79, 5) Edmund Piatkow ski, Póll. 55,12, 6) Viktor Kompneiets, Rússl. 55,06. 800 m hlaup kvenna. 1) Ljudmila Lisenko, Rússl. 2 mín. ©4,3 (Olympíumet og sama og heims- met), 2) Brenda Jones, Astralíu 2.04,4, 3) Ursula Donath, Þýzkal. 2.05,6, 4) Veronika Kummerfeldt, Þýzkal. 2.05,9, 5) Antje Gleichfeld, Þýzkal. 2.06,5, 6) Joy Jordan, Bretl. 2.07,8. Lyftliigar. Bantamvfgt. 1) Charlés T. Vinci, Bandar. 345 kg (jafnt heimsmeti), 2) Yoshinobu Miyake, Jápan 337,5 kg. 3) Esmail Elm Khan, Persfu 330, 4) Shigeo Kogure, Japan 322,5, 5) Marian Jan- kowski, Póól. 322,5, 6) Irme Fowdi, Ungvl. 320. SIGLINGAR Drekar. 1) Konstantin prins, Grikkl. 6409 *tig, 2) Italia 6151, 3) Argentína 5674, 4) Noregur 5403, 5) Kanada 5177, 6) Danmörk 4567. Stjörnusnekkjur. 1) Rússland 7619 stig, 2) Porugal 6665. 3) Bandar. 6269, 4) Italía 6047, 5) Sviss 5716, 6) Bahama 5282. Finnskar snekkjur. 1) Paul Élvström, Danm. 8171 stig, 2) Chuchelov, Rússl. 6469, 3) Nels Belgíu 5837, 4) Astríalía, 5) Brazilía, 6) Nýja SJáland. Fljúgandi Hollendíngur. 1) Noregur 6774 stig, 2) Danmörk 5991, 3) Þýzkaland 5882, 4) Ródesía 5792, 5) Hólland 5452, 6) Rússland 5123. 5,5 m snekkja 1) Bandar-íkin 6900 stig, 2) Dan- mörk 5678,* 3) Sviss 5127. HNEFALEIltAR (Þar tíðkast að 3. og 4. maður fá báöir bronzpening að verð launum). - Fluguvigt 1) Gyula Torok, Ungverjal., 2) Serg- ei Sivko, Rússl 3. K. Tanabe, Japan. 4. A. Elguindí, Arabalýðv. ‘I: Bantamvigt 1) Oleg Gregorjev, Rússl. 2) Zampar ini, Italíu, 3. O. Taylor, Astralíu. 4) B. Bendic, Póllandi. “ Fjaðurvigt 1) Francésco Musso, Italíu. 2) Jerzy Adamski, Póllandi. 3) William Meyers, S-Afr. 4) Jorma Limmonen, Finnl. Léttvigt ' 1) Pazdzipn, Póllandi. 2) Lopololo, Italíu. 3) Mc Taggart, Bretl. 4) Laud oni'o, Argentínu. Xétt-veltivigt 1> Nemecek, Tékkóslóv. 2) Quartey, Ghana. 3) Daniels, Bandar. 4) Kasprz yk; Póll. i; : Teltivigt 1) Benvenuti, Italíu. 2) Radonjak, Rússl. 3) Drogosa, Póll. 4) Jim Lioyd, Bretl. »: Létt-millivigt. 1> McCIure, Bandar. 2) Bossi, Italíu. 3) W. Fisher, Bretl. 4) B. Lagutin, Rússl. ' Millivigt 1> Edward Crook, Bandar. 2) T. Wala sek, Póll. 3) I. Monea, Rúmeníu. 4) Feolanov, Rússl. Léttþungavigt 1) Cassiusf Clay, Bandar. 2) Z. Pietrzy kowski, Póll. 3) Tony Madigam, Astr. 4) piulio Saraudi, Italíu. < Þungavigt 1> Fr. Piccoli, Italiu. 2) Daan Bekker, S-Afrík ’. 3) G. Siegmund, Þýzkal. 4) J. Nemer, Tékkósl. Dani vann fjórða Ol-gull í siglingu 1 GÆR lauk keppni í siglingum á Olympíuleikunum, en þaer fóru fram á hinum fagurbláa Napólí- flóa. Siglingar skiptust í fimm greinar, eftir stærð bátanna, 5,5 m snekkjur, Dreka, Stjörnu- snekkjur, Finnskar snekkjur og Fljúgandi Hollendinga. Danir urðu sigursælastir í sigl ingunum. Þeir unnu ein gull- verðlaun og tvenn silfurverð- laun. Rússar unnu ein gull og Rússnesk stúlka vann ein- vígið í 800 m hl. kvenna AJfred Oerter varð í annað sinn Ólympíumeistari, og bætti met sitt frá 1956 um 2.82 metra. RÓM, 7. sept.: — Úrslitin í 800 metra hlaupi kvenna urðu ein- vígi milli rússnesku stúlkunnar Ljúdmila Sjevkova og áströlsku stúlknanna Brenda Jones og Dixie Willis, sem daginn áður hafði sett nýtt Ólympíumet 2.05,9 min. Keppnin var geysiihörð allt frá byrjun. Heimemetihafinn, hin rússneska Sjevkova tók forustuna og hélt henni helming leiðarinn- ar, en þá fór ástralska stúlkan Dixie Willis fram úr henni. Hún hljóp mjög hratt og virtist ætia að tryggja sér sigurinn nógu snemma. Willis var fyrst er hlaup ararnir komu út úr síðustu beygj- unni, en er rússneska stúlkan náði henni á beinu brautinni var Willis komin það innarlega að hún sté út I kant hlaupabrautar- innar og varð að hætta hlaupinu. Ástralska stúlkan Brenda Jones 'hafði fylgt þeim fast eftir og í þann mund sem Willis hætti hlaupinu komst Jones upp að hlið inni á rússnesku stúlkunni, sem vann með því að kasta sér fram. Náði hún 1/10 úr sek. betri tíma en Jones. Tíminn var 2.04.3 min., — enn nýtt Ólympíumet og jaf.rt heimsmetinu. Þýzku stúlkurnar komu á óvart Bronsið í þessu mikla og örlaga ríka hlaupi hlaut þýzk stúlka Ur- sula Donatih, sem hafði þó ekki nokkurt tækifæri til að blanda sér í hið harða einvígi um fyrsfu sætin. Tími Ursulu var 2.05,6 mín. — Þýzkar stúlkur komu einnig á óvart með að hreppa 4. og 5. sæt- ið. í 6. sætinu varð enska stúlkan J. Jordan á 2.07,8 mín. Fjórði þrefaldi sigur Bandaríkjanna í kringlu HEIMSMETIÐ í kringlukasti hékk á bláþræði í gær í keppninni á Olympíuleikun- um. Það vantaði aðeins nokkra sentimetra upp á að hinum hávaxna Bandaríkja- manni, A1 Oerter, tækist að hnekkja því. Hann kastaði 59,18 m og hnekkti þar með þriggja daga gömlu Olympíu- meti sem hann setti sjálfur í undankcppni, 58,43. Þetta varð þrefaldur sigur fyrir Bandaríkjamenn, sá fjórði í röðinni á þessum leikum. Aður höfðu þeir unnið þrefaldan sigur í kúluvarpi, 400 m grindahlaupi og 110 m grindahlaupi. Bandaríkjamaðurinn Babka hafði forustu í kringlukastinu allt aftur í næst síðustu umferð. Þá náði Oerter hinu glæsilega kasti. Rússinn Kompanjak var þriðji í röðinni, þar til í þriðju umferð. Þá varð hann að láta sér lynda' að bæði Bandaríkja- maðurinn Cochran og Ungverj- inn Szecsenyi færu fram úr hon- um. Rússinn gat ekki að gert og loks í síðustu umferð fór Pól- verjinn Piatkowski einnig fram úr honum. aðalsfólks og vai krónprinsinum fagnað ákaflega. Norðmenn gátu tekið þátt í þeim fagnaðarlát- um, því að Haraldur krónprins Norðmanna er trúlofaður systur Konstantins. ein silfur og Bandaríkjamenn ein gull og ein bronz. Yfirburðir Elvströms. Sérstaklega var sigur Danans Poul Elvström á Finnasnekkju glæsilegur. í öllum siglingagreinunum var keppt sjö daga í röð og var árangur bátanna lagður saman í lokin. Elvström var svo langt á undan næstæ keppinaut sin- um, Rússanum Chuchelov eftir sjötta daginn, að Rússinn hefði ekki komizt upp fyrir hann, þótt Elvström sleppti síðustu keppn- inni. Hann sleppti henni þó ekki heldur varð hann einnig fyrst- ur í henni og 1700 stigum á und an Rússanum, sem náði í silfur- verðlaunin. Þetta er í fjórða sinn í röð, sem Elvström vinnur siglingu á Finnasnekkju á Olympíuleikum. Hann vann gullverðlaunin í þeirri grein bæði í London, Hels ingfors og Melbourne. Og í nær öllum siglingunum í ár hafði hann auðsjáanlega yfirburði yf- ir keppinauta sína. Norðmenn fá gull. Norðurlandabúar náðu gull- verðlaunum í annarri grein sigl inga, Fljúgandi Hollendingi, en það eru glæsilegustu og stærstu seglskipin, sem verið hafa á Napoli-flóa. Norðmönnum var umhugað að sýna í þeirri grein, að þeir væru siglingaþjóð. Peder Lunde og Björn Bergvall sigruðu þar, einnig með yfir- burðum, um 800 stigum yfir Danmörku, sem vann silfurverð iauin. Konstantin fagnað. En mesta athygli hefur það þó e. t. v. vakið, að Konstantin krónprins Grikklands varð sig- urvegari í Dreka-siglingu. Sigl- Gaiardoni slasast ÓVINSÆLASTI maðurinn á allri ítalíu er ónafngreindur bifreiðaeigandi, sem varð það á, að opna bílhurð sína á götu í Milano. Svo illa vildi til, að þjóð- hetja ítala, hjólreiðakapp- inn Sante Gaiardoni var á leiðinni heim til sín á hjóli eftir götunni. Hann ók á miklum hraða á bílhurðina og slasaðist illa. Varð þegar í stað að flytja hann á sjúkrahús. Keppni í boðhlaup- unum tvísýn í dag UNDANRÁSIR í 4x100 metra boðhlaupi karla fóru fram 1 Róm í gær og gaf riðlakeppnin og tím- arnir glögga mynd af hinni hörðu og tvísýnu keppni, sem búast má við í úrslitunum, sem fram fara í dag. Eftir úrslitunum í gær má reikna með geysispennandi keppni milli bandarísku sveitar- arir.nar og þeirrar þýzku. í keppninni í gær fékk þýzka sveitin beztan tíma, 39,5 sek., sem er sami timi og heimsmetið. Sveitin hafði þó enga keppni, því aðrir í þeim riðli urðu Grikkir á 41.6 sek. Svipaða sögu er að segja um bandarísku sveitina, sem vann sinn riðil keppnislaust á 39.7 sek. Önnur var sveit Kanada á 42.1 sek. Þrjár sveitir dæmdar úr leik í boðhlaupinu voru þrjár sveit- ir dæmdar úr leik. Pólska sveitin varð önnur í riðlinum með Þýzka- landi, en var dæmd úr leik. í öðr- um riðlj var sveit Uganda dæmd úr leik og í fjórða riðli sveit Frakka. Eftir keppnina í gær eru því líkur á að sveit ítala vinm brons- ið, þar sem hún fékk beztan tíma í 2. riðli, 40.0 sek., því varla hefir ítalska sveitin nokkra von með silfur eða gull. í riðli ítala varð sveit Nigeríu önnur. í hlaupinu vann ítalski hlauprainn Berruti frábært af- rek. Hann hljóp síðasta sprettinn í sveit ítalanna og fékk Keflið á eftir Nigeríumanninum. En „gler augnaspiætthlauparinn" náði Ni- geríumanninum og kastaði sér á snúruna 1/10 úr sek. á undan honum. Sveitirnar, sem keppa í undan úrslitunum í dag eru: Bretland, Rússland, Sviss, ítalía, Nigería, Venezuela, Þýzkaland, Grikk- land, Pakistan, Bandaríkin, Kanada og Japan. — ¥ — UNDANÚRSLITIN í 4x400 m. boðhlaupi karla, sem fram fóru QQP í gær í Róm gáfu til kynna að ekki er síður að búast við harðri keppni þar en í 4x100 m hlaup- inu. Aðal keppnin í þessu hlaupi verður á milli Bandaríkjanna, Þýzkalands og S-Afríku, en búast má við að brezka sveitin reyni af megni að komast í verðlaunasæti S-Afríka bezta tímann. í undanúrslitakeppninni í gær fékk S-Afríkusveitin bezta tím- ann 3.06,4 og var sveitin vel á undan sveit Þýzkalands, en þess er að gæta að Karl Kaufmann, sem hljóp endasprettinn í þýzku sveitinni, tók augsýnilega ekki á sínu bezta, heldur hljóp aðeins upp á að tryggja sveitinni áfram hald í keppninni. Bretar urðu þriðju. Þannig var það einnig me3 sveit Bandaríkjanna. Otis Davis hljóp síðasta sprettinn og var svo langt á undan næsta keppi- naut sínum að hann „lallaði“ næstum í mark. Vlndíur og Sviss voru örugg í 2. og 3. sæti. Þrjár fyrstu sveitir úr hvorum riðli verða í úrslitunum í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.