Morgunblaðið - 30.09.1960, Side 6

Morgunblaðið - 30.09.1960, Side 6
MORGUNBLAÐ1Ð Fostudagur 5f> gept. IftðO Enn um Hesfeyrarkirkju BISKUP landsins hefur tal- að. Álit hans á þeirri ráð- stöfun að rífa Hesteyrar- kirkju og flytja til Súðavíkur við ísafjarðardjúp er nú orð- ið opinbert. í grein biskups í Morgunblaðinu 20. sept. kem- ur í Ijós, að ekkert samráð var haft við nokkurn þeirra, er hlut áttu að máli. Engrar afsökunar er beiðzt á slíku fljótræði. Álit prófastsins á ísafirði, sr. Sigurður Kristjáns sonar, var eitt látið nægja. Þess þótti ekki þörf að kynna sér málið betur. Þeir beita alræðis- valdi sínu — prófastur og bisk- up — og við fyrrverandi og nú- verandi Sléttuhreppingar hljót- um að fyllast lotningu og þakk- látssemi, þegar við hugsum um björgunarstarf þessara mætu manna. Tilfinningar þeirra, sem komn ir eru á gamals aldur og eiga þá ósk heitasta að fá að hvíla í kirkjugarði meðal ættingja og vina eru fótum troðnar, og ítrek aðar óskir þeirra einskis virtar. Og svo segir biskup orðrétt í grein sinni: „Ég skil það vel. að ræktarsömum mönnum, sem eiga helgar minningar bundnar við þessa kirkju á sínum fyrri stað, sé þetta viðkvæmt mál“. Hér er talað um helgar minningar. Er það þá skoðun biskups, að til þessara helgu mínninga eigi ekki að taka nokkurt minnsta tillit? Er það í samræmi við Guðs lög? Biskup talar um ömurleg af- drif, sem kirkjunni hefðu verið búin á Hesteyri Hér er talað lítt af kunnugieika, enda hefur biskup aldrei þangað komið og heimildarmaður hans sennilega sami og áður. Á hverju sumri hefur verið lit ið eftir kirkjunni og það lag- fært, sem þurfa þótti. Auk þess ber og að geta þess, að kirkjan var mjög vel járnvaiin og efni- viður í alla staði hinn bezti og ófúinn. svo að engin hætta var á hinum ömurlegu afdrifum í ná inni framtíð. ★ Það er mál flestra, að átthaga- tryggð hafi fremur aukizt held- ur en hitt. Fjölmennt Átchaga- fé’ag Sléttuhrepps er starfandi hér í Reykjavík. Þar hafði kom- i« til tals m. a. að fara til Hest- eyiar og mála kirkjuna upp að nýju. En við erum láti-i losna við þá fyrirhöfn af einskærri góðvild, til þess að annað byggð ar’ag geti á ódýran hátt notfæi’t sér handverk annarra, komið sér upp kirkju á annarra kostn- að og með því móti losnað að miklu leyti við þann kostnað, sem önnur byggðarlög verða fyrir við smíði kirkjubygginga. — Súðvíkingar geta hrósað' happi yfir því, að eiga svo góða samverkamenn. — Á hverju ári er hárri upphæð varið til kirkna á landi okkar. Hversu há skyldi upphæðin vera t. d. til SkálhoUs kirkju? Það mætti gjarnan hug- leiða það, hvort nytsemin sé í samræmi við þá fjárupphæð sem til hennar hefur verið varið. Biskup hefur staðið framarlega Hesteyrarkirkja. í hópi þeirra manna, sem barizt hafa fyrir endurreisn hennar sem veglegs minnismerkis á hin- um þjóðlega stað, — og er það vel. En minnisvarði okkar Sléttu- hreppinga, sem fengið hefur að vera í friði í 61 ár, handaverk fyrirrennara og okkar sjálfra, er rifinn til grunna, til þess að annað byggðarlag megi góðs af njóta. Eða er það ef til vill ætlun forstöðUmanna verksins að láta rífa kirkjuna á Hesteyri, líkt og í Skálholti, til þess að beita sér fyrir smíði annarrar og glæsi- legri steinkirkju, er fái staðið um aldur og ævi. — Það var betra að taka lamb fátæka mannsins en þess rika, og það var betra að hafa ekki of hátt um það. Kirkjan á Hesteyri var byggð árið 1899. Hún var mjög stór á þeirra tíma mælikvarða og rúrn- aði rúmlega 100 manns. Norð- menn sáu um útvegun á vö’.áu efni til kirkjubyggingarinnar. Árið 1928 fóru fram gagngerar endurbætur yzt sem innst og kirkjan var sannarlega sómi sveitar sinnar. Hún var að ö’lu leyti eign safnaðarins án nokk- urra opinberra styrkja. Biskup vísar til laga til að rétt læta málstað sinn. Er við þekkj- um þess svo mörg dæmi, að lög eru ekki einhlít. Lagabreytingar eiga sér stað á hverjum tíma og sum lög eru jafnvel orðin úrelt, áður en þau koma til fram- kvæmda. Það gæti þess vegna verið, að lagabókstafurinn, sem biskup vísar til sé ekki hið eina rétta í þessu máli. f upphafi greinar sinnar ’.im Hesteyrarkirkju getur biskup þess, að nokkurs misskilnings gæti í greinum tveggja Hest- eyringa, sem höfðu um máiið skrifað. Þennan misskilning seg- ist hann vilja reyna að leiðrétca. Það skyldi ekki vera, að mis- skilningurinn væri hjá öðrum aðilum? Hvaðan hefur biskup upplýsingar sínar? Hann talar um sveitina, sem verið hefur í eyði í hálfan annan áratug. Er hér rétt með farið? Lítum á staðreyndir. Síðasti ábúandinn á Hesteyri, Sölvi, Betúelsson flutt- ist til Bolungarvíkur 1. nóvem- ber 1952. Samkvæmt okkar útreikningi verða það átta ár hinn 1. nóvem- ber nk. Þetta skyldi biskup at- huga, áður en hann reynir að leiðrétta misskilning annarra. Aðeins átta érum eftir að byggð hefur flutzt frá Hesteyri er kirkjunni með velþóknun við- komandi aðila svipt af grunni til brottflutnings. Slíks munu fá eða engin dæmi. Engin vissa er heldur fyrir því, að byggð eigi ekki eftir að færast aftur í Sléttuhrepp innan tiðar. Ef svo yrði, myndi þá biskup og pró- fastur verða forgöngumenn um að rífa kirkjuna á nýjan leik. Að þessu sinni í Súðavík, til þess að flytja hana aftur til Hesteyrar til sinna réttu og einu eigenda? ★ íslervdingar líta á handri'tin sem sína eign, þott þau eitt sinn hafi verið flutt ti! Danmerkur. Á sama hátt lítum við sóknarbörn Hesteyrarkirkju á þennan helgi- dóm sem okkar lögmætu eign, þrátt fyrir flutning hennar til hins hrörnandi Súðavíkurþorps, þar sem íbúum hefur fækkað, eins og víða annars staðar. En Súðvíkingum er nokkur vorkunn. Þeir vita, að allt efni til bygginga hefur stórlega hækkað undanfarið — en er víst, að gleðin yfir lambi fá- tæka mannsins verði óskipc? Þess ber að geta. að fyrir nokkrum árum var þess farið á leit við viðkomandi kirkjuj'fir- völd þ. e. a. s. prófast og bisknp, að kirkjan fengi að standa. Þessu til staðfestingar eru bréf dagsett 14. október 1952 og 27. september 1953. Svar núverandi biskups við þessari málaleit.un hefur nú fengizt á mjög svo skýr an hátt í samráði við prófastinn á ísafirði, sr. Sigurð Kristjáns- son. ★ Níunda boðorðið er á þessa leið: „ÞÚ SKALT EIGI GIRN- AST HÚS NÁL'NGA ÞÍNS.“ Hvað er það? Svar: „Vér eigum •JE^JiúgeturJesið • • • Köttur hljóp yfir götuna, bifreiðarstjóri dró úr ferð og næsti bíll á eftir lenti aftan á bílnum hans með miklu bramli. Þetta gerðist á einni umferðargötunni hér í bæn- um um hádegið um daginn, þegar umferðin er mest á daginn og bílarnir í samfelldri röð svo langt sem augað eyg- ir. — Og alltaf er að fréttast um árekstra, sem verða með þess- um hætti. Menn storskemma bifreiðir sínar af því að þeir aka svo nálægt bílnum á und an, að þeir hafa ekkert svig- rúm til að bjarga honum frá árekstri, ef hinn verður af ein hverjum ástæðum að draga úr ferð. Fyrir nokkrum dög- um var frá því skýrt í blöð- unum að fjorir bílar hefðu rekizt saman með þessum hætti. Fyrir nokkrum árum settu sumir Bandaríkjamenn skilti aftan á bílana sína, og á því stóð: „Ef þú getur lesið þetta, þá ertu kominn of nálægt!“ Þetta var ágæt aðvörun til bif reiðarstjórans á eftir. Enda er það óþarfa glannaskapur að aka svona þétt. Bifreið kemst ekkert hraðar áfram þó hún sé aðeins hálfum metra á eft- ir þeirri, sem á undan fer. í því efni er alveg eins gott að fjarlægðin sé 1—2 metrar. • Skipti á smápen- ingurn í sunnudagsblaðinu síðasta var sagt frá manni ,sem ekki gat fengið smápeningum sín- um skipt í banka eða hjá rík- isféhirði af því hann hafði þá ekki búntaða. Ríkisféhirð- ir hefur nú skýrt Velvakanda frá því, að hann sé fús til að skipta þessum peningum fyrir manninn. Sá háttur er hafður á um þetta, að yfirleitt er mönn- um gert að skyldu að koma með smápeningana búntaða, til að spara féhirði vinnu. Þeir sem koma með mikið af slík- um smápeningum eru yfir- leitt frá stórum fyrirtækjum og koma oft og reglulega. — Aftur á móti sagði ríkisfé- hirðir, að ef gjaldkerinn sæi að hér væri um einstakling að ræða, sem aðeins kæmi einu sinni, og þá ekki með alltof stóra upphæð, þá væri FERDIIMAND að óttast og elska Guð, svo að vér eigi sækjumst eftir arfi eða húsi náunga vors með vélum, né drögum oss það með YFIR- VARPI RÉTTINDA, heldur styðjum hann og styrkjum að halda því.“ Á þennan hátt eru skýringar Lúthers á níunda boðorðinu. Hér eru það lög Guðs sem tala, ekki manna lög. Viðkomandi að- ilar mættu gjarnan athuga það. áður en næsta björgunarafrt k verður unnið. Að lokum tvær spurningar til prófasts og bisk- ups: Er það rétt, að altaristaflan úr Hesteyrarkirkju, sem flutt var til Isafjarðar, hafi stórlega skemmzt vegna vanhirðu og trassaskapar? Er það ætlun kirkjuyfirvald- anna að veita af enn meiri rausn með því að gefa Súðvíkingum eignir Hesteyrarkirkju, þ. e. kirkjugripi og peninga í sjoði? Við mótmælum allir í nafni sóknarbarna Hesteyrarkirkju, Birgir G-. Albertsson, Bjarni Guð mundsson, Eiríkur Benjamínss., Guðmundur Guðmundsson Guð- mundur J. Guðmundsson, Guðni Jónsson, Hans Hilaríusson, Hil- aríus Haraldsson. Hjálmar Gísla son, Jón S. Guðjónsson, Jón Guðnason, Kristinn Gíslason, Sigurjón Hilaríusson, Reidai G. Albertsson. ♦--------------------------♦ RABAT, Marokr.ó, 20. sept. — (Reuter) — Mohammed V. kon- ungur hefur skipað son sinn, Moulay Hassan, formann sendi- nefndar Marokkó hjá San em- uðu þjóðunum, og gefið honum skrifleg fyrirmæli um að lsggja fram á allsherjarþinginu beiðni um að samtökin grípi þegar i stað í taumana í Algier málinu. Skuli þau gera sér far um að komast að skjótri nið irstoðu til lausnar Algier deilunp.i og koma til móts við óskir bjóðarinnar, svo að friður geti haldizt í þe=s- um hluta heims. ♦—-------------------------♦ venjan að búnta peningana og telja þá fyrir hann. Hér hefði því verið um misskiln- ing að ræða. — Gjaldkerinn hefði ekki áttað sig á að hér væri um eitt slíkt undanteKn ingartilfelli að ræða. • Illa til hafðar umhárið Kona skrifar: — Kæri Vel- vakandi! Nú get ég ekki leng ur orða bundizt. Ég var að koma frá því að kaupa mjólk í mjólkurbúðmni þar sem ég verzla daglega, og ofbýður mér alveg að sjá ungu stúlk- urnar, sem eru þar við af- greiðsluna. Það er oft skipt um stúlk- ur í búðinni og þær eru flest- ar svo illa til hafðar um hár- ið. að því verður ekki lýst með fallegum orðum. Hár- tjásurnar lafa niður fyrir and litið og sumar verða jafnvel að hrista til höfuðið svo þær geti séð. Þessar aðfinnslur eru ekkl röfl úr mér einni, heldur hef ég heyrt margar konur kvarta undan þessu. Svo á að heita að afgeiðslustúlkurnar séu með kappa, en ég held að hann sé ekki notaður eins og til er ætlazt, því sumar ungu stúlkurnar sem þarna af- greiða, tylla honum lauslega á hvirfilinn. Eldri konurnar, sem vinna í þessari búð, eru þokkalega til hafðar. Ég geri ekki ráð fyrir að þessi mjólkurbúð sé neitt eins dæmi. En mér er spúrn: Á ekki að líta eftir svona lög- uðu? Og það er allt annað en lystugt að sjá stúlkurnar bogra yfir skyrinu með hár- lubbann lafandi í allar áttir. —Húsmóðir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.