Morgunblaðið - 30.09.1960, Page 11
Föstudagur 30. sept. 196u
MORGVmtJ. AÐIÐ
11
Sveinn Sveinsson trá Fossi:
Til hvers eru
presfar að tóna?
ER EKKI eðlilegt að maður
spyrji, til hvers prestar séu að
tóna, fyrst sumir prestar messa
meira að segja í útvarpið án þess
að tóna. En það má segja þeim
prestum til hróss, sem það gjöra,
að það sýnir sómatilíinningu
þeirra að vera ekki að tóna, ef
þeir geta það ekki, heldur lesa
upp, þótt þeim beri að tóna
eftir þeim venjum, sem hér
tíðkast. En þetta sýnir, að tónið
er óþarft við messugjörðir. Og
því er ekki að ieyna að það er
og hefur víst alltaf verið meira
og minna af prestum, sem eiga
mjög erfitt með tónið, en koma
sér þó ekki að pví að lesa bara
upp. f>ví er ekki að neita að
tónið er skemmtilegt hjá ein-
staka presti, en það virðist ekki
vera neitt trúaratriði í fram-
kvæmd og engin skylda fynr
presta,
Ég er alltaf að sjá það betur
og betur að hér þarf að breyta
til, og það hefðu prestarnir
sjálfir fyrir löngu átt að gjöra á
sinum stærri fundum. En betra
er seint en aldrei segir máltæk-
ið, og svo er með það eins og j
margt annað sem horfir til bóta |
með nýjum aðgerðum.
Mín skoðun ex sú, að venju- j
legar messur ættu að breytast j
þannig, að presturinn þurfi ekki ,
að vera fyrir altari nema við há- (
tíðleg tækifæri, en haldi ræðu
sína í prédikunarstólnum, eins
„Og det blev
og venja er, og láti syngja sálma
á undan og eftir ræðu sinni. —
Þessi breyting mundi stytta mess
una verulega. en það er einmitt
það sem nútíðarandinn vill og
hefði m. a. þá þýðingu: 1) að
guðfræðingum fjölgaði svo, að
öll prestaköll í landinu, sem
búin eru að vera árum saman
prestlaus, fengju presta, með
góðri aðbúð frá ríkinu. Þeir
gætu þá líka verið barnakenn-
arar, ef þeir vildu, svo sem lög
mæla fyrir, enda er líka mikil
þörf á því í sveitum. 2) Að
þær kirkjur, sem árum saman
eru búnar að vera hálftómar við
messur, eins og víða er talað
um, myndu breytast þannig að
þær yrðu þettskipaðar við
hverja messu, eftir fólksfjölda
í hverri sókn, í bæjum og sveit-
um, og að lokum í sjálfri Reykja
vik.
í þriðja lagi skal ég nú reyna
að skýra þessar skoðanir mínar
dálítið betur. Það þýðir ekki rð
bjóða fólki nú á tímum í trú-
málum það, sem þótti gott og
gilt á dögum Hallgríms Péturs-
sonar og Brynjólfs biskups
í Skálholti, eða meistara Jóns
Vídalíns, svo að eitthvað sé
nefnt. Það þýðir ekki að berja
höfðinu við steininn, tímarnir
breytast og mennirnir verða að
haga sér eftir þvi. Annað er ekki
hægt, ef vel á að fara. Hraöinn
er mikill og fólkið gefur sér ekki
tíma til að sitja undir guðsþjón-
ústum,sem eru lengdar að óþörfu
með ýmsu því, sem ekki kernur
trúmálum við, eins og áður er
tekið fram í þessari grein og
fólkið trúir nú ekki á lengur.
Þetta vita prestarnir sjálfir
manna bezt og ef messunum
yrði snúið upp í fyrirlestra, sem
prestarnir héldu í kirkjum sín-
um, ekki of langa, en gagnorða
og kröftuga um trúmál og góða
hegðun fólksins, trúi ég því að
þessi aðferð yrði miklu happa-
sælli fyrir safnaðarlífið í land-
inu, því kirkjur og prestar þurfa
að starfa að trúmálum á ýmsan
veg, eins og kunnugt er, svo sem
að skíra, ferma og jarða.
Takið eftir
Óska eftir sambandi við menn, sem geta tekið að
sér að skrá frásagnir af slys og svaðilförum íslenzk-
um fyrr og síðar. Einnig að kaupa tilbúin handrit
nú þegar. Tiib. merkt: „Vel borgað —- 1731“ sendist
Mbl. fyrir miðvikud.
Hession og hósgagnoborði
fyrirliggjandi.
morgen64 --
*
Ö. V. Jóhannsson & Co.
Fiðlukennsla
Væntanlegir nemendur hafi samband við mig sem
fyrst.
Rígja Jóhannsdóttir, sími 35357.
Til sölu
tveggja herbergja íbúð á hæð við Hringbraut.
Nánari upplysingar gefur:
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðinundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar
og Guðmundar Péturssonar
Aöalstræti 6. Símar: 1-2002, 1-3602 og 1-3202.
Hentar einnig gömlum
saumavélum.
Saumavélamótor-
inn ANF 789 er
kostagripur.
220 V, fyrir riðstraum eða
jafnstraum 40 watta. Smekk-
leg srníði. Lítill og öruggur.
Þægileg og handhæg stilling.
Auðveld sporskifting.
bók um Gvðinga
Hafnarstrœti 19 — Símar 12363 og 17563.
Hljóðlítill gangur.
Truflar ekki útvarp.
H. HIRSCHSPRUNGS útgáfu-
fyrirtækið í Kaupmarmahöfn
hefir gefið út bók, sem heitir
„Og det blev morgen“. Er hún
fimmta bók séra Poul Borchsen
ius um ættmenn fsraels, Gyð-
jnga, en fyrstu bókina í þessu
verki skrifaði hann 1952 og
nefndist hún „Stjernesönnen“.
Fjallar þessi síðasta bók hans
um Gyðinga nú á dögum, m. a.
þjáningar þær, sem þeir urðu að
þola af hendi nazista á stríðsár-
unum. Einnig um fjandskap
þann, er kommúnistar hafa á-
vallt sýnt Gyðingum. Síðari hluti
bókarinnar er um ísrael og flutn
ing Gyðinga þangað.
Bækur sr. Poul Berohsenius,
sem sjálfur er Gyðingur, hafa
komið út á Norðurlandamélun-
um, nema íslenzxku, svo og þýzku
og ensiku.
Bann við fundar-
höldum
London, 23. sept. (NTB-Reuter:—
BALPH Butler, innanríkisráð-
herra, lagði í dag bann við opin-
berum fundarhöldum i hverfinu
St. Pancras í norðurhluta Lund-
únaborgar, en þar áttu sér stað
óeirðir í gær.
Það var lögreglan, sem krafðist
þess, að slíkt bann yrði sett á,
eftir að réttur hafði verið settur
yfir 45 þátttakendum í átökum
við lögregluna á fimmtudags-
kvöldið. Um 3000 manna hópur
óðra óeirðarseggja hafði um
kvöldið safnazt saman við ráð-
húsið í borgarhlutanum til að
mótmæla hækkaðri húsaleigu.
Urðu nokkur átök milli lögregl-
unnar og manna úr hópi þessum.
Þetta er í fyrsta skipti síðan
í febníar 1950, að lagt er bann
við almennum fundum í Lund-
únum.
Bðnfyrirlæki til solu
Lítil vei'ksmiðja, sem stendur á gömlum merg og fram-
leiðir viðurkenndar vörur innan vefnaðarvöruflokksins,
til sölu af sérstökurn ástæðum. Hentar manni eða konu,
sem vilja skapa sér sjálfstæða atvinnu. — Góðar vélar,
sem veita tækifæri til fjölbreyttrar framleiðslu og um-
fangsmeiri. Fagkunnátta ekki nauðsynleg. — Þeir, sem
hafa áhuga, vinsaxrxlegast leggi nöfn sín inn á afgr. Mbl.
fyrir mánudagskvold, merkt: „Iðnfyrirtæki — 1725‘.
Útflyt jandi:
Deutscher Innen- und Ausselhandel
— Elektrotechnik — Kontor 11
DDR — Berlin C2
Liebknechtstrasse 14.
VEB Eiektromaschinenbau Sachsenwerk,
Dresden-Niedersedlitz.
Nánari upplýsingar veittar þeim sem þess óska:
Garðar Gísiason hf., Reykjavík, Hverfisgötu 4—6.
Elangro Xrading, Reykjavik, Austurstræti 12 a eða
Verzlunarsendinefnd þýzka alþýðulýðveldisins,
Reykjavík Austurstræti 10A II.
HYDRAULIK
f. h. LITLA VINNUSTOFAN, Hafnarfirði.
ÁSGEIR LONG, sími 50877.
Útvega frá GL. REXROTH GMBH hin heims-
þekktu REX-HYDRO-NORMA afl-vökva tæki s.s.
Cylindra, Dælur, Loka (hand-olíu og rafstýrða), Rör
og nippla ívrir öll Hydraulisk kerfi að 300 Ato.
Verkfræðingadeild fyrirtækisins annast fúslega allar
áætlanir og útreikninga fyrir yður.
Leitið tilboða í REX-HYDRO-NORMA vökvaþrýsti-
kerfi. Þau eru vafalaust bezt.
HAMUL WERKZETJFABRIK býður yður framleiðslutæki
á Rennibekki, Stál, Stálhaldara, Deilihausa og margt fleira.
Með HAMtlL áhöldum getið þér breytt venjulegum renni-
bekk í afkastamikinn fjöldaframleiðslubekk.
Sýnishorn fyrirliggjandi.