Morgunblaðið - 13.10.1960, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.10.1960, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 13. okt. 1960 Asanuma JAPANSKI stjórnmálamaður- inn Asanuma, sem féll í gær fyrir morðingjahendi í Tokíó hlaut sl. sumar heitið forseti götuþingsins þegar hann stjórn aði hinni ofsafengnu baráttu stjórnarandstöðunnar gegn varnarsáttmála Bandaríkjanna og Japan. Hann hefur allt frá unga aldri verið æsinga og öfga- seggur. Hann varð 64 ára, fæddist á smáeyju einni fyrir utan mynni Tokyó-flóa. Faðir hans var bóndi, sem hafði unnið sig upp með dugnaði og gat kostað son sinn ti'. skólanáms í Tokíó. En einu sinni kom faðir Asanuma í heimsókn til hans í Tokíó og komst þá að því að sonurinn far farinn að starfa í samtökum Jafnaðar- manna. Við þetta reiddist hann svo mjög að hann svipti soninn öíllum fjárstyrk. En Asanuma hélt áfram upp á eigin spýtur og fékk sér vinnu í lindarpennaverksmiðju jafn- hliða náminu. Hann tók síðan að starfa í verkalýðsfélögum og hélt því starfi áfram eftir styrjöldina. Hann var í fyrstu hægrisinnaður Jafnaðarmaður en hefur færzt æ lengra til vinstri, unz margir hafa talið hann kominn ískyggilega nærri '■kommúnistum. Stafaði það máske af því að japanskir Jafnaðarmenn hafa stöðugt haldið áfram að tapa fylgi. Asanuma fór 1959 í heim- sókn til kommúnista-Kina. Þá kom hann þjóð sinni mjög á óvart með yfirlýsingu um að „ameríska heimsvaldastefnan er sameiginlegur óvinur Kína og Japans“. Þá bar hann einn ig I fyrsta skipti fram kröfuna um stjórnmálasamband við Kína og brottflutning amer- ísks herliðs frá Japan. Má vera að það hefi verið í örvænt- ingu vegna stöðugs fylgistaps Jafnaðarmanna sem Asanuma tók upp þessa róttæku stefnu og fitjaði upp á þeim æsingum sem báru nafn Japans svo oft inn í heimsfréttirnar sl. sumar. Það var alvarlegur og hættulegur leikur. Asanuma var sjálfur i>otturinn og pann an í því öllu. Hann æddi um landið og bunaði úr sér hat- urs og æsingaorðum. Stund- um flutti hann yfir 100 æsinga ræður á dag. Almenningur í Japan mun að sjálfsögðu harma það hvernig komið er, ef morð eru farin að vera stjórnmálarök- in í landi þeirra en margur mun hugsa að hinn róttæki stjórnmálaforingi eigi kannski ekki sízt sjálfur sök á því, hvernig fór. Samheldni meðal brezkra íhaidsmanna Scarborough í Englandi, 12. október. FLOKKSÞING brezka íhalds flokksins hófst í dag í sama fundarsal og flokksþing Jafn- aðarmanna var haldið í fyrir skömmu. Ríkir meiri sam- heldni og baráttuvilji á þess- um fundi en hinum fyrri. — Var forystumönnum flokks- ins mjög fagnað er þeir komu til þingsins. Einna mesta hrifningu vöktu ummæli Watkinsons, Iandvarnaráðherra, um það, að ríkisstjórnin þyrði að bera ábyrgð og léti ekki sligast — Kongó Frh. af bls. 1. slitakosti þess efnis, að ef herlið SÞ hætti ekki að vernda Lum- umba fyrir kl. 3 á þriðjudag myndi herlið Kongó ryðjast inn í bústað Lumumba og bæri her- lið 9Þ þá ábyrgð á því ef til átaka kæmi. Bomboko utanríkisráðherra Kongó lýsti því yfir að ef SÞ héldu áfram að vernda Lum- „ „ , umba gætu þeir atburðir gerzt saja c, n irv. 9. Iðia oa iðnaður. frv í Kongó sem yrðu upphaf þriðju heimsstyrj aldarinnar. í gær gáfu talsmenn SÞ út undir henni. Vísaði hann með þessu til hins djúpstæða ágreinings, sem kom í ljós í Verkamannaflokknum um landvarnamálin. Watkinsson bar Verkamanna- flokkinn þungum sökum fyrir ábyrgðarleysi í landvarnarmáí- um. Hann sagði að það alvarleg- asta við umræðurnar í Verka- mannaflokknum um landvarnar- málin hefði verið, að hvergi var komið nálægt þeim raunhæfu málum, sem varða iandvarnir landsins.. Umræðurnar voru til- Dagskrá Aljping'is DAGSKRA sameinaðs Alþingis. Fyrir- spurnir: a. Lántökur ríkisins. b. Vörukaupa- lán í Bandaríkjunum. c. Lántökur er- lendis. — Hvort leyfðar skuli. Dagskrá efri deildar: 1. Bráðabirgðabreyting og framleng- ing nokkurra laga, frv. 1. umr. 2. Rík- isreikningurinn 1958, frv. 1. umr. 3. Happdrætti háskólans, frv 1. umr. Dagskrá neðri deildar: 1. Almenn hegningarlög, frv. 2. Eft- irlaun, frv. 3. Sóknarnefndir og hér- aðsnefndir, frv. 4. Dómtúlkar og skjala þýðendur, frv. 5. Lífeyrissjóður em- bættismanna, frv. 6. Hlutafélög, frv. yfirlýsingu þess efnis að þeir gætu ekki leyft handtöku Lum- umbas, þar sem sakir þær sem á hann eru bornar styðjast ekki við lög. Þá er sagt í tilkynning- unni, að Mobutu herforingi hafi tekið völd í Kongó í þeim yfir- lýsta tilgangi að koma á víðtæku pólitísku samkomulagi. Pólitísk hermdaraðgerð eins og handtaka Lumumbas telur framkvæmda. stjóm SÞ að geti ekki samrýmst þeim tilgangi. Ólga hefur verið í Leopold- ville sérstaklega eftir að frestur sá sem Mobutu veitti Sameinuðu þjóðunum rann út. Standa her- menn SÞ og Kor.góstjórnar hver andspænis öðrum við bústað Lumumba og brennur eldur úr augum þeirra. Er sagt að allt geti hvenær sem er farið í bál og brand. 10 Tannlækningar, frv. 11. Lækninga- leyfi, frv. 12. Leiðsaga skipa, frv. 13. Sveitarstjórnarkosningar, frv. 14. Fast eignasala, frv. 15. Niðurjöfnunarmenn« sjótjóns, frv. 16. Atvinna við sigling- ar, frv. 17. Löggiltir endurskoðendur, frv. 18. Réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins, frv. 19. Kosningar til Alþingis, frv. — Mál þessi eru öll til 1. umræðu. finningavæl, sem snerti ekkert hverjar landvarnarþarfir ríkisins væru. Þá sagði Watkinsson að ekki kæmi til mála að Bretar afsöluðu sér einhliða yfirráðum kjarnorku- sprengja. Slíkt myndi aðeins veikja varnarmátt vestrænna ríkja án þess að nokkuð áynnist í staðinn. Herforingjar hótuðu byltingu í Argentínu Buenos Aires, 12. okt. (Reuter) FORINGJAR landhers og flota Argentínu kölluðu lið sitt saman í morgun og hót- uðu að velta Frondizi forseta úr valdastóli, ef hann ekki sæi að sér og hreinsaði komm únista og perónista úr stjórn sinni. Sendu herforingjarnir forsetanum raunverulega úr- slitakosti þar að Iútandi. Foringjamir skipuðu öllum hermönnum að vera um kyrrt í herbúðum og öllum sjóliðum að koma til skipa sinna. Stjómin svaraði þá með því að kalla út ríkislögregluna og stóð hún við stjórnarbyggingamar meðan stjómmálamenn ræddu og sömdu um málið við fulltrúa hersins. Hermálaráðherra landsins, Rudolfo Larcher hershöfðingi, baðst lausnar í gærkvöldi eftir að herforingjarnir lýstu því yfir að hann hefði túlkað mál þeirra rangt fyrir Frondizi. En forystu fyrir herforingjunum í þessari deilu hafði Montero hershöfð- ingi, yfirmaður argentínska hers ins, sem kom sér upp bráða- birgðabækistöðvum í herstöð um 30 km vestur af höfuðborg- inni. Yfirmaður flotans, Alberto Vago, flotaforingi, lýsti því yfir að hann styddi fullkomlega að- gerðir hersins. Hershöfðingjarnir hafa sakað Frondizi um að leika stöðugt tveim skjöldum og viljað að gef- Vestmannaeyjabátar selja í Bretlandi VESTMANNAEYJABÁTURINN Haförn seldi um 1000 kassa af ísfiski í Hull á mánudag og mun hafa selt nokkuð vel. Þá lestaði danska leiguskipið í Eyjum í fyrradag og fór þaðan um kvöld- ið með um 660 kassa áleiðis til Hull. Þó togararnir selji ekki um þessar mundir í Brettandi, mun gegna öðru máli um kassafiskinn, sala á honum mun vera frjáls, að því er Sighvatur Bjarnason, útgerðarmaður tjáði blaðinu í gær. Bæði ofannefnd skip hafa áð- ur farið eina ferð hvort með kassa fisk til Bretlands, danska skipið með um 240 kassa og Haförn með með aflann út. að ráði. , NA 95 hnúiar / SV 50 hnutor X Snjókoma 9 OSi V Skúr ir FC Þrumur mtit KuUathl Hittt kit H.Hmt 1 l*Lme» I ÁRÍÐANÐI fundur verður hald- inn í fulltrúaráði Heimdallar í dag, fimmtudag, kl. 5,30. Brezkur malsveirm í sjúkrahúsi á Patreksfirði 500—600 kassa og selt ágætlega. Eins og kunnugt er reyndu Vest- mannaeyingar í sumar að selja til Danmerkur en gafst það ekki vel. Þá seldi Hildingur, bátur Helga Benediktssonar, lítið magn af fiski í Aberdeen fyrir skömmu. Var báturinn á veiðum og hafði fengið 4 tonn af lúðu og bætti á sig 6 tonnum af ýsu, og sigldi in yrði ákveðin stjórnaryfirlýs- ing, þar sem afneitað væri sam- starfi við kommúnista og fasista. Um tíma leit út fyrir að her- inn væri að framkvæma nýja valdatöku, en seint í kvöld bár- ust fregnir af því að samkomulag hefði tekizt milli herforingj- anna og Frondizi forseta og var þeirri kreppu þar með aflétt. Sumos-tunglskot mistókst WASHINGTON, 12. okt.: — Fyrsta tilraun Bandaríkja- manna til að skjóta upp Samos könnunargervitungli mistókst í dag. Gervitunglinu var hleypt upp með eldflaug frá Point Arquello eldflaugastöð- inni í Kaliforníu. Gervitungl- ið vó um 2 tonn og átti það að fara á sporbaug yfir bæði heimskautin frá norðri til suðurs. En af einhverjum ástæðum misheppnaðist skotið og tunglið komst ekki á rétta braut. Gervitunglið Samos á að vera undanfari þess að hægt verði að senda á loft gervi- tungl til nákvæmrar vígbún- aðarkönnunar úr lofti. Myndlistaskólinn byrjaður • Myndlistarskólinn í Reykja- vík er tekinn til starfa á Freyju- götu 41, og er aðsókn góð. Þó mun vera hægt að bæta nokkr- um nemendum við. Kennari i höggmyndadeild er Ásmundur Sveinsson, í málaradeild Haf- steinn Austmann og teiknideild Ragnar Kjartansson. Kennt er á kvöldin. í barnadeildum kennir Sigrún Gunnlaugsdóttir og hefst kennsla þar 18. október. Innritun þar verður nk. föstudag. Eldur í bát KLUKKAN að verða tíu í gær- morgun kom upp eldur í bátnum Andra frá Patreksfirði, þar sem hann lá við Ægisgarð í Reykja- vik. Hafði neisti hrokkið í olíu. Eldurinn var slökktur fljótlega, áður en nokkrar skemmdir urðu PATREKSFIRÐI, 12. okt. — Um kl. hálf tólf í gærkvöldi kom brezka reigátan Palliser hingað inn með veikan mann. Var það matsveinn af brezkum togara, sem hafði veikzt, og fékk her- skipið leyfi til að flytja hann í land. Læknirinn á herskipinu kom fyrst í land á hraðbátnum og fór læknirinn hér, Sigursteinn Guð- mundsson með honum um borð. Er hann hafði skoðað sjúkling- inn, taldi hann að blóðtappi mundi vera í öðru lunganu. Var maðurinn fluttur í land og er hann nú á sjúkrahúsinu hér á Patreksfirði. Sjúklingurinn er fullorðinn maður, líklega um sextugt. — Trausti. DJÚP lægð (980 mb.) um an lands. 100 km suðvestur af Reykja- nesi þokast hægt norðaustur Veðurspáin kl. 22 í gærkvöldi eftir, enda er SA-hvassviðri, SV-mið: Allhvass austan hlýnandi og þokuloft skammt eða SA, skýjað, dálítil rign- undan suðvesturströnd ís- ing. lands. Háþrýstisvæði (1020 SV-land, Faxaflói og mb) er milli íslands og Fær- Faxafl.mið: Austan og síðar eyja, en lægð yfir Danmörku SA stinningskaldi, dálitíl rign veldur allhvassri N-átt á ing. Norðursjónum. Breiðafjörður, Vestfirðir og í nótt sem leið var allt að miðin: Austan gola, skýjað. 7 stiga frost í uppsveitum Norðurland til Austfjarða norðanlands og um hádegi og miðin: Góðviðri. var 0 stiga hiti á Akureyri, SA-land og SA-mið: SA hins vegar 6—8 stiga hiti vest gola, skýjað. «

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.