Morgunblaðið - 13.10.1960, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.10.1960, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 13. okt. 1960 1 O R CU N B L A ÐIÐ 11 Alþjóðasýningin í París. FIMMTUDAGINN 6. þ. m. var opnuð alþjóða bifreiða- sýning í París og ber flestum saman um að bandarísku ,,smá“-bílarnir veki þar mesta athygli. Þarna eru sýndar bifreiðir frá 106 framleiðendum og er búizt við að um ein milljón manna sæki sýninguna, sem lýkur hinn 16. þ. m. Af fyrir- tækjunum sem þarna sýna eru 26 frönsk, 26 brezk, 22 vestur-þýzk, 19 bandarísk, 9 ítölsk og eitt frá hverju landi, Spáni, Hollandi, Sví- þjóð og Tékkóslóvakíu. Þá sýna einnig sérfræðingar í yfirbyggingum. „SMÁ“ BÍLAR Bandarísku ,,smá“-bílarnir voru fyrst sýndir í París í fyrra, og voru þar þá þrjár tegundir en nú eru þar 10 tegundir, þ. e. Dodge Lancer, Pontiac Tempest, Buick Special, Oldsmobile F 85, Ford Falcon, Ford Comet, Ghevro let Corvair, Chrysler Valiant, Rambler og Studebaker Lark. — Fjórar fyrstnefndu gerðirnar eru alveg nýjar. W ANKEL-HRE YFILLINN Renault-verksmiðjurnar frönsku sýna þarna nýtt ,,módell“, sem nefnist Renault Dauphine Ond- ine, endurbætt útgáfa af Dau.p- 'hine bifreiðinni, með aflmeiri vél. Bretar komu ekki með neina nýjung á þessa sýningu, en eru sennilega að bíða eftir bílasýn- ingunni í London, sem tekur við af Parísarsýningunni. Þjóðverjar sýna þarna ýmsar nýjungar, þar á meðal Wankel- vélina, sem er ný gerð bifreiða- hreyfla án strokka (cylindra), sem NSU-Prinz verksmiðjurnar munu brátt hefja framleiðslu á. VW Að sjálfsögðu gefur þarna að líta Volkswagen bifreiðir. Að ytra útliti virðast þær óbreyttar, en nokkrar breytingar hafa þó verið gerðar á þeim. Með því að breyta lögun benzíngeymisins, hefur farangursrýmið verið stækkað um tvö teningsfet. Vél- arorkan hefur verið aukin úr 36 í 40 hestöfl og ýmsar fleiri breyt ingar gerðar, svo sem al-„syn- króniseraður" gangskiptir, högg- deyfari á stýrisstöng, sjálfvirkt innsog o. fl. Volkswagen smiðj- urnar eru hinar stærstu í Evrópu og framleiða um 3200 farþega- bifreiðir á dag. „SKELLINAÐRA" Mesta eftirtekt allra bifreið- anna á sýningunni vöktu Chevro let Corvair Special, sem ítalinn Pinin Farina teiknaði, og frönsk Citroen bifreið af gerðinni DS 19. Minnsti „bíllinn" á sýningunni er Vespa 400, sem í rauninni er að- eins „skellinaðra" með þaki, en er seld í Frabklandi með tveggja ára eða 50.000 kílómetra ábyrgð. Fiat verksmiðjurnar ítölsku sýna þarna m.a. nýja sportbif- reið, Fiat Abarth 1000, með 91 hestafla vél og yfir 200 km há- markshraða á klst. Alls eru á sýningunni um 1300 bifreiðir. VAXANDI FRAMLEIÐSLA Miðað við fyrstu sex mánuði ársins í ár og í fyrra, var heild- arframleiðsla sjö stærstu bíla- framleiðslulandanna sem hér seg ir, talið í þúsundum bifreiða: BANDARÍKIN: 1959 1960 Farþegabifreiðir 3277 3802 Sendiferðabifreiðir 659 719 BRETLAND: Farþegabifreiðir 574 798 Sendiferðabifreiðir 176 236 VESTUR-ÞÝZKALAND: Farþegabifreiðir 651 846 Sendiferðabifreiðir 101 114 FRAKKLAND: Farþegabifreiðir 566 640 Sendiferðabifreiðir 100 125 ÍTALÍA: Farþegabifreiðir 226 314 Sendiferðabifreiðir 13 22 SOVÉTRÍKIN: Farþegabifreiðir 62 68 Sendiferðabifreiðir 180 189 KANÁDA: Farþegabifreiðir 200 209 Sendiferðabifreiðir 43 46 Fiat Abarth 1000 Chevrolet smíðar nú þennan vagn, sem nefnist Greenbrier sports Wagon til að keppa við Volkswagen sendiferða- bifreiðina (,,rúgbrauðið“). Ford Comet 1961. Fordverksmiðjurnar fengu nýlega ítölsku gullverðlaunin fyrir árið 1961. Samsalan losnar ekki við söluskattinn MJÖLKURSAMSALAN hefur tapað máli fyrir Hæstarétti, en í héraði hafði það unnizt. Er um að ræða ágreining við fjármálaráð- herra f. h. ríkissjóðs um greiðslu söluskatts af brauðum en Sam- salan selur þau í mjólkurbúðum sínum. Taldi Samsalan sig ekki eiga að greiða söluskatt af heildarverð mæti brauðsölunnar, þar eð veru legur hluti brauðanna eru ekki frá eigin brauðgerð heldur öðr- um og því hafi ekki verið heimiit að leggja allan söluskattinn á um- boðssölu-brauðin. Mjólkursamsalan gerði kröfu um greiðslu á kr. 79.548.23 með 6% vöxtum frá 1. janúar 1956 til greiðsludags. í Hæstarétti sýknaði dómurinn ríkissjóð af kröfum Samsölunn- ar og segir m. a. svo í forsendum Hæstaréttardómsins: „Með setningu 3. gr. laga nr. 108/1954 var kveðið á um nýtt orðalag á 22. gr. laga nr. 100/1948. 1 a-lið greinarinnar var fyrst xnælt fyrir um 2% söluskatt af eölu eða afhendingu smásala, í b-lið var þvínæst kveðið á um 3% söluskatti af annarri sölu eða veltu og aftan við b-lið bætt nýju ákvæði svohljóðandi: „Af sölu bóksala á bókum í umboðssölu skal þó aðeins greiða sk-attinn af umboðsþóknun hans. í öðrum um boðssöluviðskiptum skal smásaii eða annar umboðssali greiða sölu- skatt af öllu heildarandvirði var- anna frá sér“. í 2. tl. A-liðs 6. gr. reglugerðar nr. 168/1954 eru og samskonar ákvæði um þetta efni. Samkvæmt þessum skýlausu ákvæðum verður stefndi (Sam- salan) að teljast hafa verið rétti- lega krafinn um söluskatt af þeim viðskiptum, sem rakin eru í hér- aðsdómi. Eigi getur það haggað þessari niðurstöðu um skyldu stefnda til greiðslu söluskattsins til áfrýjanda, þótt verðgæzlustjóri hafi ekki leyft stefnda að bæta söluskatti þessum yið útsöluverð varanna. Ber því að sýkna áfrýj- anda (ríkissjóð) af endurgreiðslu kröfu stefnda og dæma hann til að greiða áfrýjanda málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, kr. 4500.00. Skólarnir byrjaðir í Stykkishólmi . Studebaker Lark. STYKKISHÓLMl, 10. okt. — Barna- og Miðskóli Stykkis- hólms var settur í kirkjunm í Stykkishólmi að viðstöddum börnum og foreldrum þriðjudag- inn 4. okt. kl. 2. Prófastur Sig- urður Ó. Lárusson fluiti bæn en Sigurður Helgason skólastjóri flutti ræðu og ávarpaði nem- endur og foreldra. Var ræða hans mjög um samstarf skóia og heimila í uppeldismálum æsk- unnar og mótun hennar. Skýrði hann einnig fyrirkomulag í vet- ur en það verður með líkum hætti og áður. Skólinn skiptist í 9 bekkjardeildir og eru sam- tals 175 nemendur við skóla- byrjun, þar ef 60 í Miðskólanum í þrem bekkjardeildum. Ný • ^ • ' ' ■:/.n, .. . Plymouth 1961 er smíðaður í 26 mismunandi gerðum. námsskrá kemur til fram- kvæmda í ýmsum bekkjum skól ans m. a. verður 3. bekkur Mið- | skólans aðeins fyrir þá sem hugsa sér að keppa að lands- I prófi. | Þá hefir skólinn fengið kennslu tæki í átthagafræði, sem reynd munu í vetur og auk þess mun ; kennsla i föndri verða hafin: Skólastjóri gat bess að af 7 nemendum í fyrravetur sem gengið hefðu til landsprófs hefðu 5 staðist og taldi hann þetta á- gætan árangur. 15 unglingar hafa að undan- förnu sótt um skólavist en þess- ir unglingar eru utan Stykkis- hólms en vegna ýmissa ann- marka var ekki hægt að taka við þeim öllum og strandaði m. a. á húsnæði og fæði. Taldi skóla- stjóri að ef heimavistin sem und Framhald á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.