Morgunblaðið - 15.10.1960, Síða 4
4
MORCUIS BLAÐIÐ
Laugardagur 15. okt. 1960
Húsbyggjendur
Gröfum ■ húsgrunna. Upp-
mokstur, hífingar spreng
ingar. Vanir menn. —
Sími 32889.
Rafvélaverkstæði
H. B. Ólasonar Sími 18667
Heimilistækjaviðgerðir. —
Þvottavélar o.fl. sótt heim.
Til leigu
herbergi. Laust strax. Tilb.
óskast, merkt. „Óðinsgata
— 1832“
Skuldabréf
Ríkistryggð útdráttarbréf
til sölu. 9% ársvextir. —
Uppl. í síma 13525.
Aukavinna
Stúlka óskar eftir auka-
vinnu. Margt kemur til
greina. Uppl. síma 34740.
Píanó til sölu
„Steinberg" kr. 22 þús. —
Einnig NECCht saumavél
og stuttpels á háa dömu.
Laugarnesvegi 61.
Ung hjón
eitt lítið barn óska eftir 1
til 3 herb. og eldhúsi. —
Uppl. í síma 12569 í dag.
Stúlka óskast
til heimilisstarfa. Má hafa
með sér barn. — Uppl. í
síma 16257.
1 stór stofa
og eldhús til leigu. Uppl. í
síma 34705.
Stúlka óskar
eftir vinnu í biómabúð eða
skóbúð. Sími 32105.
Barnakojur
til sölu með dýnum í Hólm
garði 44 niðri.
2 herb. og eldhús
óskast nú þegar. Uppl. í
síma 35033 milli kl. 1 og 4
í dag og sunnuaag.
Keflavík
Herbergi til leigu. Uppl. í
síma 2245 milli kl. 8 og 9
í kvöld.
Keflavík
Gott herbergi til leigu. —
Uppl. í síma 2393.
Dönsk hjónarúm
stórglæsileg úr teak, með
gorma botnum og super
springdínum til sölu. Einn
ig barnarimlarúm í Álf-
heimum 52 3. hæð t.h.
Lengir nóttu, lúta höfðum blóm,
laufið titrar fölt á háum reinum,
vindur hvíslar ömurlegum óm
illri fregn að kvíðnum skógargreinum
greinar segja fugli’ og fuglinn þagnar.
í brjósti mannsins haustar einnig að,
upp af hrelldu hjarta gleðin flýgur,
en vetrarmjöll í daggardropa stað
á dökkan lokk og mjúkan þögul
hnígur,
og æskubiómin öll af kinnum deyja.
Grímur Thomsen; Haustvísa.
□ Mímir 596010177 = 7 atkv.
Ljósmæðrafélag íslands heldur bazar
Heilsuverndarstöðinni sunnudaginn
16. okt. kl. 2 e.h. — Bazarnefndin.
ATHUGIÐ! — Hér eftir verða fréttir
og tilkynningar sem birtast eiga í
Dagbók, að hafa borizt blaðinu fyrir
klukkan 4 alla virka daga nema laug-
ardaga kl. 12 á hád.
Lestrarfélag kvenna Reykjavíkur hef-
ir hafið vetrarstarfsemi sína. Bóka-
safnið á Grundarstíg 10 er opið til út-
ána mánud., miðvikud. og föstud. kl.
—6 og 8—9. Tekið er á móti nýjum
élögum á útlánstímum.
Frá Blóðbankanum! — Margir eru
þeir, sem lengi hafa ætlað sér að gefa
ilóð. nú er vöntun á blóði og fólk er
því vinsamlegast beðið »ð koma 1
ÁHEIT 09 GJAFIR
Viðeyjarkirkja, áheit frá: HGH 25,00
kr„ AI 25,00 kr„ NN 100,00 kr. — Þakk
ir, kirkjuhaldari.
í dag verða gefin saman i
hjónaband af 'sr. Árelíusi Níels-
syni, ungfrú Jóhanna Sigrún
Bjarnadóttir, Grundarstíg 5 B og
Ólafur A. Jónsson, tollvörður,
sama stað. — Heimili ungu hjón-
anna verður að Grundarstíg 5 B.
í dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Fanney Fells,
Ingólfsstræti 22 og Birgir Jóns-
son, bókbindari, Mávahlíð 19. —•
Heimili ungu hjónanna verður
að Stóragerði 18, Reykjavík.
f dag verða gefin saman í
hjónaband ungfrú Ingibjörg Sig-
urðardóttir, Þingvallastræti 18,
Akureyri og Kolbeinn Ólafsson,
Sólbyrgi við Laugarásveg. Heim
ili ungu hjónanna verður að Sól
byrgi við Laugarásveg.
Haustið er að flestra dómi
fegursta árstíðin, en fegurð
þess er mjög skammæ. Þeg-
ar hinu dásamlega sumri, sem
við Reykvíkingar og flestir
landsmenn urðum aðnjótandi,
lauk, hélt haustið innreið sína
á mjög mildan hátt. Sólin
vermdi ennþá og þó hún væri
ekki eins skær og heit og í
sumar, veitti hún landinu
mildan blæ. Laufið á trjánum
og Iyngið í móunum, klæddist
sínum fagra og fjölskrúðuga
haustbúningi. Aldrei er gróð-
urinn eins fagur og einmitt
þegar dauðastundin nálgast,
og nú má segja að hún sé kom
in. Síðustu daga hefur vindur
inn hrist miskunnarlaust krón
ur trjánna og laufblöðin falla
sem skæðadrífa á göturnar. Á
þessari mynd sést hvernig þau
hrúgast upp á gangstéttunum
og gamli maðurinn með kúst-
inn er að sópa saman síðustu
leyfunum af fegurð haustsins.
í dag er laugardagurinu 15. okt.
289. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 2.38.
Síðdegisflæði kl. 15:07.
Næturvörður vikuna 15.—21. okt. er
í Laugarvegsapóteki.
Slysavarðstofan ei opm allan sólar-
hringlnn. — Læknavörður L.R. (fyrir
vitjanir). er á sama stað kl. 18—8. —
Sími 15030.
Næturvörður vikuna 8.—14. okt. er í
Ingólfsapóteki.
Holtsapótek og Garðsapótek eru opin
alla virka daga kl. 9—7 og á sunnudög-
um kl. 1—4.
Næturlæknir í Hafnarfirði 15.—21. er
Olafur Einarsson, sími 50952.
Næturlæknir í Keflavík er Kjartan
Olafcson, sími 1700.
Blóðbankann til blóðgjafar. — Enginn
veit hvenær hann þarf sjálfur á blóði
ð halda. Opið kl. 9—12 og 13—17. Sími
19509.
Bæjarbúar! — Geymið ekki efnisaf-
ganga lengur en þörf er á, svo að ekki
safnist í þá rotta og látið strax vita
ef hennar verður vart.
Læknar fjarveiandi
Erlingur Þorsteinsson læknir verður
fjarverandi til áramóta. Staðgengill:
Guömundur Eyjólfsson Túngötu 5.
Haraldur Guðjónsson um óákv. tíma.
Staðg.: Karl Jónasson.
Henrik Linnet um óákv. tíma. —
taðg.: Halldór Arinbjarnar.
Katrín Thoroddsen irá 17. sept. fram
yfir miðjan okt. Staög.: Skúli Thor-
oddsen.
Olafur Jóhannsson um óákv. tíma.
Staðg. Kjartan R. Guðmundsson.
Sigurður S. Magnússon um óákveð-
nn tíma. Staðg.: Tryggvi Þorsteinsson.
fFEUIR
*'
JUMBO gerist leynilögreglumaður
+ + + Teiknari J Mora
— Þúsund þakkir, kæri Júmbó,
sagði hr. Leó hrærður. Heyrðu mig
annars.... þú ættir að koma heim
til mín annað kvöld, ef þú getur. Eg
þyrfti að tala við þig um mjög mikil-
vægt mál.
Og svo hóf hr. Leó kennsluna. —•
Vaskur, sagði hann, — ef Mikkí gef-
ur þér þrjá fimmeyringa, Júmbó gef-
ur þér fjóra og Teddi fimm .... hvað
áttu þá marga? — Engan, hr. Leó,
sjáið þér bara sjálfur, sagði Vaskur
ringlaður og sneri við vösum sínum.
Skólinn var búinn og Júmbó kom-
inn út í garðinn. Hann óskaði þess,
að það væri strax komið „annað
kvöld“ .... hann langaði svo óskap-
lega mikið til að vita, hvað hr. Leó
ætlaði að segja við hann.
Jakob blaðamaður
Eftu Petei Hoffman
— Nokkuð nýtt, sem ég get hringt
til blaðsins míns, lögregluþjónn?
— Það eina sem ég get sagt þér,
Jakob, er að ég þori að veðja að
Heston bræðurnir eru þegar sloppn-
ir burtu í þokunni!
En í nágrenninu ....