Morgunblaðið - 15.10.1960, Síða 13

Morgunblaðið - 15.10.1960, Síða 13
Laugardagur 15 okt. 1960 M O R r. THK n T 4 n IÐ 13 Níræður 1 dag: Árni Thorsteinsson Árni Þorsteinsson níræður .. 4 fíESTOR íslenzkra tónská'.da, Árni Thorsteinson, verður ni- ræður í dag. Hann fæddist 15. október 1870 f Landfógetahúsinu við Austur- stræti, þar sem nú er Hressir.g- arskálinn. Foreldrar hans vor.i Árni Thorsteinsson, landfógeti og bæjarfógeti 1 Reykjavík, og kona hans, Soffía Kristjana Hannesdóttir. Árni landfógeti var sonur Bjarna Þorsteir.ssonar amtmanns og konu hans, Þór- unnar Hannesdóttur biskups Finnssonar í Skálholti. Voru þeir bræður, Árni landfógeti og Steingrímur skáld Thorstein- son. Soffía Kristjana var dótt.ir Hannesar Johnsen kaupmanns, sem var sonur Steingríms Jóns- sonar biskups í Laugarnesi og konu hans, Valgerðar Jónsdótt- ur, en hún var ekkja eftir Hann- es biskup Finnsson, þegar Stein- grímur fékk hennar, og var því langamma Árna tónskálds í báð ar ættir. Bróðir Soffíu Kristjönu var Steingrímur Johnsen söng- kennari, sem mjög kemur við sögu söngmálanna hér um langt árabil. Tónlistarlíf var heldur fá- skrúðugt í Reykjavík á upp- vaxtarárum Árna. en þó hefir hann sagt frá því, að ein af fyrstu bernskuminningum hans er tengd tónlist. Kristján IX- Danakonungur kom hingaS 1il |>ess að vera við þjóðhátíðina í á-gúst 1874, og hljómsveit úr líf- varðarliði hans lék hér á Skóla- brúnni, þegar konungur gekk til og frá messu í dómkirkjunni. Þetta hefir orðið Árna minnis stætt, þótt hann væri þá aðeins taepra fjögurra ára. og þótt önn- tir atvik í sambandi við þjóðliá- tíðina hafi vafizt móðu gleymsk wnnar. Á æskuheimili Árna var oft #ungið og leikið á hljóðfæri. og eftir að hann kom í lærða skól- ann, tók hann drjúgán þátt í söng skólapilta, en söngiíf stóð þé með meiri blóma í skólanum en oft síðan. Hafði Árni fagra baritonrödd og kom oft fram sem einsöngvari á söngskemmt- unum. Eftir að Árni lauk stúdents- prófi, fór hann utan til Kaup mannahafnar og hugðist leggja stund á lögfræði. En ekki lauk hann þv-í námi, og er það at- hyglisvert, hve frásagnirnar úr sönglífi Hafnarstúdenta eru rúm frekar í æviminningum Árna. Hann var einnig mjög áhuga- samur tónleikagestur, og í minn ingum sínum telur hann upp nokkrar óperur, sem hann sá milli 10 og 20 sinnum hverja á 'Hafnarárum sínum. 'Sjálfur seg- ir hann, að tónlistin hafi ruglað sig aglerlega í ríminu og stolið frá sér tíma og áhuga við namið. Mun hann hafa haft mestan 'iug á að helga sig her.ni eingör.gu, en slíkt þótti ekki álitlegt fyrir ungan íslending á þeim árum. Það varð því úr, að Árni nam ljósmyndagerð í Kaupmanna- höfn, eftir að hann hvarf frá iögfræðináminu, og rak har.n síðan ljósmyndastofu hér, þang að til á styrj aldarárunum fyrri. Jafnframt hafði hann á hendi umsjón með brunavirðingum húsa í Reykjavík, og 1918. þeg- ar Sjóvátryggingafélag Islands var stofnað, gerðist hann starfs- maður þess. Var hann bókari hjá félaginu til 1929, en þá tók hann við starfi í Lands'banka íslands og vann bar til ársins 1940, er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Árni kvæntist ald-amótaárið Helgu Einarsdóttur frá Hraun- um í Fljótum. Varð þeim fjög- urra barna auðið, og eru dæturn •r þrjár á lífi, e« sonur þeirra, Árni lögfræðingur, andaðist 1948. Helga lézt 1958, og hafði hin langa sambúð þeirra hjóna verið frábærlega farsæl. Minningar úr söng- og tónlist- arlífi Reykjavíkur eru ríkasti þátturinn í æviminningum Árna, sem Ingólfur rithöfundur Krist- jánsson færði í letur og komu út 1955, og þeim fylgja nokkt.r drög að söng- og tónlistarsögu Reykjavíkur, sem Árni hefir tekið saman. Er það sem vænta má, að aldraður maður, sem lengst af hefir haft allan eða mestallan hugann við þau efni, og s.iálfur beinlmis lifað bessa sögu næstum frá fyrstu byrjun, kann frá mörgu athyglisverðu að greina. Þó er Árni næsta sagnafár um merkan þátt sög- unnar: sitt eigið framlag til ís. le^zkrar sönglagagerðar. En hann hefir samið milli 90 og 100 sönglög fyrir einsöng og kóra, og eru sum þeirra meðal skær- ustu perlanna í safni íslenzkra sönglaga. Ekki eru nærri öll lög Árna prentuð, en fjögur söng- lagahefti hafa komið út eftir hann og eitthvað af lögum hefir komið út sérprentað. Fyrsta lagasafn hans kom út 1907 og hefir að geyma 12 ein- söngslög. Þar á meðal eru Sól- skinnsskúrin (Stgr. Thorstein- son), Dalvísur (Jónas Hallgríms- son), Vorgyðjan kemur (Guðm. Guðmundsson), Áfram (Hannes Hafstein), Kirkjuhvoll (Guðm. Guðmundsson), Rósin (Guðm. Guðmundsson), Þess bera menn sár (Hannes Hafstein), Nótt (Magnús Gíslason). Þarf naum- ast lengur að telja, til þess að sýna hvílíkur fengur þetta hefti var. Þessi lög Árna og mörg fleiri munu lifa góðu lífi, þegar margar þær tónsmíðar eru gleymdar, sem íburðarmeiri kunna að teljast. Siðar voru gefin út þrjú lög úr Lénharði fógeta eftir Einar H. Kvaran (1913), 10 sönglög fyrir karlakóra (1921) og loks 13 einsöngslög (1922), sum af þeim endurprentuð úr fyrra einsöngs- lagaheftinu. Meðal karlakórslag- anna má nefna Öll él birtir upp um síðir (Bjarni Jónsson frá Vogi), Hún sveif þar yfir vogi (Þorsteinn Gíslason), Sólu sær- inn skýlir (Stgr. Thorsteinson) og Álfafell (Guðm. Guðmunds- son), sem öll bera sömu ein- kenni og beztu einsöngslögin. Arni Thorsteinson er sjálf- menntað tónskáld, en honum var gefinn guðdómsneistinn, og ásköpuð smekkvísi hans, sem hann hefir þroskað með því að hlýða á góða tónlist hvenær sem færi gafst, hefir orðið honum óbrigðull leiðarsteinn við laga- smíðina. Hefði hann hlotið þá menntun í tónlist sem trúlegt má telja, ef hann hefði verið fæddur með öðrum þjóð- um, og notið að öðru leyti ákjósaniegri starfsskil- yrða, er vafalitið, að hann hefði orðið stórbrotið og af- kastamikið tónskáld. En fyrir okkur íslendinga, í fámenni okkar og fátækt í tónlistarefn- tónskáld um, er framlag hans ómetanlegt og mun halda minningu hans á lofti, meðan lög eru sungin. ★ Árni Thorsteinson er höfðingi í sjón og raun, eins og hann á kyn til. Það er bjart yfir þessum aldna heiðursmanni, þar sem hann gengur götur Reykjavíkur, þótt sjónin sé nú farin að bila, og það hefir verið bjart yfir ævi hans, þótt ekki hafi harmur og áhyggjur sneytt hjá honum, fremur en flestum öðrum mann- anna börnum. Megi birtan end- ast honum ævikvöldið. Jón Þórarinsson. (Erindi þessi voru ort á afmæl- isdegi tónskáldsins fyrir fimmtán árum en ekki send. Ef þau áttu rétt á sér þá, mun sá réttur í gildi enn í dag). Þó aö kólni, þó aö kveldi þokar ei hin gullna rún; dag skal söngsins sólareldi signa aö hafsins yztu brún. Ennþá Ijóma Ólymps tindar, á þá blessuö sólin skín; ennþá hljómar, fslands Pindar, yndistóna harpan þin: getur bœöi hjúfraö, hlegiö, heillaö álfa og dísir fram, perlu úr hafsins djúpi dregiö, dúöaö blómum leiti og hvamm. Hljómi hún vxtt og hljómx lengi, hrynji tóna steypiflóö; enn þá gömlu gullinstrengi göfga láttu alla þjóö. Tóna svanur, þakkir þjðöar þér eru sendar nú — * dag; þótt þœr sumar séu hljóöar, sama er viö þœr allar lag. X Pottablóm Pottablóm Gerið svo vel og lítið á landsms fjölbreyttasta úrval pottablóma. Alltaf opið, einnig á kvöldin og sunnu- dögum. — Alitaf eitthvað nýtt. Gróðrarstöð PAUL V. MICHELSEN Hveragerði. OPNUM 1 DAG málflutningsskrifsfofu að Laugavegi 105 II. hæð. Sími 11380. Önnumst innheimtu og málflutningsstörf svo og fasteignasölu. Jón Skaftason, hrl. Jón Grétar Sigurðsson, lögír. Gródrastöðin við Miklatorg Símar: 22-8 22 — 19-7-75. ★ Nýtt í húsgagnagerð ★ Nýr Sindrastóll ★ Stál, plast, svampur, ullaráklæði IIMDRASMIÐJAIM *ýn« Awtttria

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.