Morgunblaðið - 15.10.1960, Side 18

Morgunblaðið - 15.10.1960, Side 18
18 MORCVHBLAÐIB Laugardagur 15. okt. 1960 Loftpressa 127 cuf. loftpressa á bíl með vökvakrana til sölu. Uppl. í síma 32778. Köríuknattleiksmót Reykjavikur Köríuknattleiksmót Reykjavíkur 1960 hefst miðviku- daginn 2. nóvember að Hálogalandi. Tilkynningar um þátttöku ásamt þátttökugjöldum sendist K.K.R.R. fyrir 20. okt. n.k. Körfuknattleiksráð Reykjavíkur. Okkur vantar * reglusaman mann til afgreiðslustarfa. Bifreiðastöð Steindórs Simi 11388 kl. 6—7 síðdegis Rennibekkur til sölu Stór rennibraut til sölu við hagstæðu verði. Tilboð sendist Mbl. fyrir 23. okt. merkt: „36 — 1802“. Hringnöt til sölu Kuralon hringnót sem ný er til sölu með hagkvæmu verði. Stærð 174 faðmar á lengd. 38 faðmar á dýpt. 38 á. alin. ÞORVALDIJR GUÐJÓNSSON, netagerðarmaður Sími 2139, Akureyri. Til sölu vegna brottflutnings Rokoko borðstofuhúsgögn. Mjög vönduð. Til sýnis í dag á Hávallagötu 41 milli kl. 5—7, Upplýsingar á sama tíma í síma 13423. Sölubörn Munið meikjasölu Blindravinafélags íslands á morg- un sunnudaginn 16. október. Merkin verða afhent á þessum stöðum frá kl. 10 til 17 Á sunnudag: Melaskóla, Öldugötuskóla, Ingólfsstræti 16 (syðri dyr), Austurbæjarskóla (Vitastígmegin), Eski- hlíðarskóla, Laugarnesskóla, Langholtsskóla, Háagevðisskóla. í Kópavogi: Kársnesskóla, Kópavogsskóla. Sölulaun eru 10%. Merkin gilda sem happdrættismiðar. BLINDRAVINAFÉLAG ISLANDS. bbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb Nýkomið BODDÍSKRÚFUR, 1/4” — 2’ HNÍFABRÝNI LÓÐTIN EL ggingavörur h.f. Siml 3M97 lougoveg 178 Knattspyrnufél. Reynir í Sandgerði 25 ára megnis sjálfboðavinna. t>etta félagsheimili Reynis er eina samkomuhúsið í kauptún- inu og hefur bví verið mikill menningarauki og efling ýmiss konar félagsstarfsemi annarrar en íþróttastarfseminnar og einnig hefir þar verið miðpunktur allr- ar skemmtistarfsemi í Sandgerði. Leitað samstarfs. Reynismenn hafa kappkostað að leita eftir góðu samstarfi við íþróttafélög úti um landsbyggð- hita. Og eftir tvísýnan og skemmtilegan ieik báru Sand- gerðingar sigur úr býtum 3:2 — Þannig mætti lengi halda áí'rano. Framtíðarverkefni. Reynismenn líta björtum aug- um til framtíðarinnar, þótt þeir hafi sett markið hátt og mörg verkefni eru framundan. — Nýtt íþróttasvæði á að rísa af grunr.i. Fyrst verður byrjað á knatt- spyrnuvellinum, sem á að vera Suðurnesjameistarar Reynis 1952. — Fremsta röð, talið frá vinstri: Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Jóhannesson, Valdimar Valdimarsson. Miðröð: Sveinn Pálsson, Gunnar Valdimarsson, Guðlaugur Guðmundsson. Aftasta röð: Jón H. Júlíusson, Vil- bergur Jónsson, Eiríkur Helgason, Haraldur Sveinsson og Gunnlaugur O. Gunnlaugsson. Á MORGUN kl. 3 eftir hádegi verður háður knattspyrnukapp- leikur miili Færeyjafara KR og Knattspyrnufélagsins Reynis í Sandgerði og fer leikur þessi fram í tileíni af 25 ára afmæii Reynis. Knattspyrnufélagið Reynir var stofnað 15. september 1935 og voru aðalhvatamenn að stofnun félagsins þeir Trausti Jónssm og Magnús Þórðarson. Félagar voru fáir i fyrstu og knattspyrnuvöllurinn, sem fé- lagið notaði fyrstu árin var fjöru sandurinn í Sandgerði. Eftir 25 ára starf, er Knatt- spyrnufélagið Reynir orðið öfl- ugt og fjölmennt félag, sem hef- ur komið upp allgóðum knatt- spyrnuvelli og glæsilegu félags- heimili. Fyrstu stjórn félagsins skip- uðu eftirtaldir menn: Trausti Jónsson, formaður, Magnús Þórðarson, gjaldkeri og Páll Ó. Pálsson, ritari. ! Þrisvar Suðurnesjameistarar. Félögin á Suðurnesjum voru fyrstu árin aðalkeppinautar Reynis, en hin síðari ár. hefur Reynir verið virkur þátttakandi í landsmótum knattspyrnunnar og auk þess keppt við félög út um allt land. Reynismenn hafa þrisvar sinn- ur orðið sigurvegarar í knatt- spyrnumóti Suðurnesja. Og eftir að 2. delldar keppnin var tekin I upp hafa Reynismenn þrisvar sinnum verið í úrslitum í þeirri keppni En meðan öll Suðurnes- in voru innan vébanda íþrótta- bandalags Suðurnesja, átti Reyn ir ávallt menn í úrvalsliði banda lagsins, sem keppti jafnan á landsmótum í knattspyrnu. Nýr knattspyrnuvöllur. Fram að árinu 1955 höfðu Reynismenn ekki annan knatt- spyrnuvöll en fjörusandinn, eins og fyrr getur, en hann var nýtt, ur eins og kostur var á, fram til ársins 1954 að byrjað var að byggja nýjan knattspyrnu- völl og var hann vígður árið eftir. ) Þessi völlur er samt sem áð- ur aðeins til bráðabirgða, því Reynismenn hafa hug á að gera hjá sér grasvöll á fyrirhuguðu íþróttasvæði, sem hefur verið valinn staður fyrir' ofan féíags- heimilis Reynis. Félagsheimili. Innan Reynis hefur ávallt ríkt mikið og blómlegt félagslíf. — Bezta dæmi þess er hið giæsi lega félagsheimili, sem Reynis- menn reistu á árunum 1944— j 47, en framlögð vinna var mest- Handknattleiks- mót Reykjavíkur í KVÖLD kl. 8 verður Hand- knattleiksmót Reykjavíkur sett að Hálogalandi. Setningarræð- una flytur Gísli Halldórsson, for- maður íþróttabandalags Reykja- víkur. Mótið verður fjölmennara en nokkru sinni fyrr. Félögin Ár- mann, Þróttur, Valur, KR, Vík- ingur, ÍR og Fram senda 57 flokka til mótsins, en leikir mótsins eru alls 93. — Keppt er í öllum aldursflokkum kvenna og karla og í 2. og 3. flokki er keppt í A- og B-sveitum. í kvöld fara fram þessir leikir: í meistaraflokki kvenna: Ár- mann—Þróttur, en í meistarafl. karia: Valur—Þróttur, KR—Ár- imann og Vikingur—Fram. ina. Þeir hafa keppt í Hafnar- firði, Reykjavík, Vestmannaeyj- um, ísafirði, Hveragerði og Sel- fossi. Yfir sumartímann hafa Reynismenn oftai en einu smni farið til framangreindra staða og fengið gagnheimsóknir og þykja þeir gestrisnir og góðir heim að sækja. Vinir Færeyinga. Reynismenn tóku upp vina- samband við Færeyinga í Vágar og hófst það með bréfaskriftum 1955 og árangurinn varð utanför Reynis 1957. Gagnheimsóknum var komið á og hafa Reynismenn tvisvar gist Færeyjar, en VSgar menn heimsóttu Reynir 1959 og og var það fyrsta heimsókn er- lends íþróttaflokks til Suður- nesja. Vágarmenn munu og heim sækja Sandgerðinga næs .a sum- ar. Ógleymanlegar endurminningar Frá keppni sinni á knattspyrhu vellinum heima og heiman eiga Reynismenn sinar ógleymanlegu stundir, sem munu iifa í minni manna. — Ein er um leikinn við Islandsmeistarana KR sem heimsóttu Sandgerðingaoa sum- arið 1956 — og öllum á óvænt lauk leiknum með jafntefli 4:4. Einnig er fyrsti leikurinn við fþróttabandalag Keflavíkur Reynismönnum minnisstæður, en þann leik unnu Sandgerðingar 4:1. — Ofarlega er og í minni Reynismanna leikur, sem þeir háðu í Reykjavík við skipsmenn af frönsku herskipi, er statt var hér í Reykjavikurhöfn. Leikurinn fór fram á sunnu- grasvöllur af fullri stærð. Hlúa þarf að frjálsíþróttum og við félagssvæðið er einnig fyrirhug að að sundhöll rísi af grunni. —. Mikið starf liggur að baki þess að þessum málum verði komíð í örugga höfn. Núverandi stjórn Re.ynig skipa: Magnús Þórðarson, formsður, Ólafur Gunnlaugsson, gjaldkeri, Einár Júlíusson, ritari, Gottskálk Ólafsson, varaform. og Sigur- sveinn Bjarnason, meðstjórn- andi. Magnús Þórðarson hefur átt sæti í stjórn Reynis lengst ai frá stofnun félagsins og heiur verið driffjöður félagsstarfsins. Að öllum öðrum ólöstuðum á Knattspyrnufélagið Reynir Magn úsi Þórðarsyni einna mest að þakka giftu þá., sem ávallt hefir fylgt starfsemi félagsins. Afmælishátíð og leikur. Eins og fyrr segir mun afmæl- isleikur fara fram á knattspyrnu velfinum í Sandgerði á morgun og munu Reynismenn þar keppa við Færeyjafara KR frá í sumar. f leik þessum munu tveir fé- lagar úr Reyni leika sinn 125. leik með félaginu, þeir Eiríkur Helgason og Gunnlaugur Ó. Gunnlaugsson. — Hafa báðir leikið nær 10 ár með félaginu. Báðir eru þessir menn vel kunu- ir knattspyrnumenn og hafa ver„ ið valdir í úrvalið. Einnig verð- ur efnt til veglegrar afmælishá- tiðar, en dagurinn er ekki eru» fastákveðinn. —Á. Á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.