Morgunblaðið - 15.10.1960, Page 20
Kjarval 75 ara
Sjá bls. 11.
ftiwgitnblðjttófr
236. tbl. — Laugardagur 15. október 1960
ÍÞRÓTTIR
eru á bls. 18.
Árásormálið á Njálsgötunni
,Ég man ekkeit
segir árásarmaðurinn
RANNSÓKN árásarmálsins á
Njálsgötunni, um síðustu
belgi, hefur leitt í ljós að hér
var um að ræða svo grófa
árás á konuna, að hún hefði
jafnvel getað kostað hana líf
ið. — Árásarmaðurinn hefur
skýrt frá því, að hann hafi,
vegna áfengisneyzlu lengi
nætur, misst minnið algjör-
lega og í slíku ástandi hafi
hann framið árásina.
Árásarmaðurinn situr enn
í gæzluvarðhaldi, og konan,
sem fyrir árásinni varð er
enn rúmliggjandi og illa
haldin.
★ ★ ★
Rannsóknardómari þessa máls,
Þórður Björnsson, skýrði blöðun-
um í gærkvöldi frá helztu niður-
stöðum rannsóknarinnar.
Það var kl. 5,40 sl. sunnudags-
morgun, að Runólfur Eiríksson,
rakarameistari, sem á heima við
Njálsgötu, vaknaði við skerandi
neyðaróp utan af götunni. — Það
var hann, sem hringdi á lögregl-
una, og voru tveir lögreglumenn
komnir að vörmu spori á vett-
vang. í öðrum nálægum húsum
hafði fólk einnig vaknað við
neyðarópin.
★ AÐKOMAN
Við hús þama skammt frá
komu lögreglumennirnir að
grindverki og fundu inni í garð-
inum mann, sem lá ofan á konu.
— Hann spratt þegar á fætur og
hugðist komast undan, en var
handtekinn nær samstundis.
Konan lá hreyfingarlaus. Hún
var þá meðvitundarlaus. Maður-
inn var færður í „Kjallarann",
en konan í Slysavarðstofuna, þar
sem hún kom brátt til meðvit-
undar. Var hún mjög illa útleik-
in, með glóðarauga á báðum
augum, og annað þeirra sokkið,
og með skurð á augabrún. Al-
blóðug var hún, marin og hrufl-
uð, og kvartaði um þrautir í
höfði. Utanyfirföt hennar voru
rifin, svo og nærföt. Engir áverk-
ar fundust á henni sjálfri, sem
af mátti ætla, að framið hefði
verið á henni kynferðisbrot.
★ ARÁSIN
• í sakadómi hefur konan, sem
er rúmlega fertug, skýrt frá að-
draganda árásarinnar. Hún hafði
verið á heimleið, er hún varð vör
við það, að maður gekk spölkorn
á eftir henni og fylgdi fast á
eftir, þótt hún greikkaði sporið.
Svo fór, að hann náði henni
skammt frá gatnamótum Njáls-
götu og Vitastígs. Hann spurði
hana hvað klukkan væri, og hún
kvaðst hafa svarað honum. Á
næsta andartaki var maðurinn
kominn fram fyrir hana — vatt
sér að henni og sló hana mikið
högg undir hökuna. Féll hún við,
Framh. á bls 2.
Óttuðust að
flugvélin fyki
DC-3 flugvél frá Flugfélaginu
varð veðurteppt á ísafirði í gær-
kvöldi í ágætisveðri. Sem kunn-
ugt er hefur flugvöllurinn á
Skipeyri nýlega verið tekinn í
notkun. Hann hefur ekki náð
fullri iengd og þykir því ekki ör-
uggt að leyfa flugtak í suður.
Þegar lent var á ísafirði var
s-austan víndur í það mesta, sem
má vera til að hægt hefði verið
að fara þaðan aftur.
En meðan staðið var við óx
vindurinn og var kominn upp í
15 hnúta, þegar leggja átti af
Allir til
rjúpnoveiða
HÚSAVÍK, 14. okt. — Á morg
un er friðurinn úti hjá rjúp-
unni. Húsvíkingar hafa fægt
byssur sínar í óða önn í dag,
því margir munu ætla til
rjúpna á morgun — og m.a.
eru komnir hingað 6 veiði-
menn frá Akureyri. Ekki ætla
þeir að missa af neinu. Hús-
víkingar stunda rjúpnaveiðar
jafnan af miklu kappi, margir
sem atvinnuveg, en fleiri
skjóta þó aðeins fyrir sig og
sína. í fyrra var rjúpnaveiðin
með minnsta móti og velta
menn mikið vöngum yfir því
hvernig veiðin verði núna.
— Fréttaritari.
mm
EKKl aðeins e' heldur TVEIR Volkswagen eru í
skyndihappdr. Sjálfstæðisflokksins. Þeir eru af
nýiustu gerð oj; um þá verður dregið 8. nóvember. —
Miðarnir fást í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins.
Hver vill ekki eignast nýjan Volkswagen?
stað. Ætluðu flugmennirnir að
fara á loft með tóma vélina, en
hættu svo við það. Samkvæmt
reglum Flugfélagsins er hámarks
meðvindur í flugtaki 5 hnútar og
hámarks hliðarvindur þar vestra
er 10 hnútar.
Björn Pálsson lenti sinni vél á
ísafirði um svipað leyti og var
ekkert því til fyrirstöðu að hann
færi þar eð flugvél hans þarf
mun styttri flugbraut en DC-3.
Veður var ágætt og lendingar- og
flugtaksskilyrði ekki óhagstæð
fyrir Katalínu.
í gærkvöldi hafði Mbl. sam-
band við Flugfélagið og voru
flugmenn og starfsmenn FÍ á ísa-
firði þá önnum kafnir að binda
flugvélina niður. Voru þeir farni-
ir að óttast að hún fyki. En sam-
kvæmt veðurspánni átti vind að
lægja í nótt.
Ný lyftitœki fyrir
„Gísla J. Johnsen
44
1 GÆR sýndu forráðamenn
Slysavarnafélags íslands
ný lyftitæki, sem tekin
hafa verið í notkun við hús
félagsins á Grandagarði.
Eru þau til þess að geyma
í björgunarbátinn Gísla J.
Johnsen, sem hingað til
hefur að heita má verið á
nokkrum hrakhólum.
— ★ —
Er hér um að ræða tvær
sambyggðar uglur, sem
snúast um burðarás við
fremri brún skýlisins og
tvo vökvaþrýstistrokka,
sem spyrna uglunum út og
inn. Þegar uglunum hefur
verið slegið út, er báturinn
tekinn beint upp úr sjó þar
til hjólblökk að framan er
komin í hnokka á ytri uglu.
Þá er vökvadæla sett á
hreyfingu og tekur hún
uglurnar inn, lyftir bátn-
um síðasta áfangann og
skilar honum inn á gólf í
skýlinu. Tekur ekki nema
5—6 mínútur að koma hon-
um á flot og setja hann, og
geta tveir menn unnið það
verk. Báturinn vegur 25
lestir.
— ★ —
Þennan lyftuútbúnað
teiknaði Guðfinnur Þor-
björnsson, vélfræðingur, en
Vélsmiðjan Klettur í Hafn-
arfirði sá um smíði hans og
niðursetningu. Hann kost-
aði uppkominn hálfa millj.
króna.
— ★ —
Meðfylgjandi mynd af
björgunarbátnum í naust-
inu tók Sveinn Þormóðsson
í gær. —
Aldrei minni
ungbarnadauði
í NÝJUM Hagtiðindum er yfir-1 28,0% á
lit yfir hjónavígslur, fæðingar ! manna.
og manndauða á árinu 1959.
Árið 1959 voru hjónavígslur á
landinu 1337 eða 7,8 á hvert bús-
und landsmanna. Síðan 1944 hef
ir þetta hlutfall farið minnkandi,
en þá hefur það orðið hæst.
Á árinu var 152 hjónaböndum
slitið við lögskilnað á móti 143
1958.
Um fæðingar segir, að tala lif-
andi barna hafi verið 4820, eða
Utanríkismúlo-
númskeið SUS
UTANRfKISMÁLANÁMSKEIÐ
Sambands xmgra Sjálfstæðis-
manna hefst í Skíðaskálanum í
dag kl. 3,30.
Ræðumenn í dag verða Pétur
Benediktsson, bankastjóri, og
Jóhann Hafstein, alþingismaður,
en á morgun Gunnlaugur Péturs
son, borgarritari, og Paul de
Lieven, aðalblaðafulltrúi Atlants
hafsbandalagsins.
Bílferð að Skíðaskálanum verð
ur í dag kl. 2,30 frá Valhöll við
Suðurgötu í Reykjavík.
hvert þúsund lands-
Andvana fædd böm
voru 60. Af öllum börnum, sem
fæddust 1959, voru 1239 eða
25.4% óskilgetin, og er það svip-
uð hundraðstala og verið hefur
undanfarin ár. Á árinu 1959 dóu
1242 og er það nokkru hærra
manndauða hlutfall, .en verið
hefur tvö árin á undan. Innan
eins árs dóu 79 börn. Miðað við
tölu lifandi fæddra á sama tíma,
hefur barnadauði innan eins árs
verið 1,6% eða nokkru sinni fyrr.
Að síðustu er svo fjallað um
mannfjölgunina, eða mismuninn
á tölu lifandi fæddra og dáinna,
en hún var 3578 árið 1959 eða
20,8 af þúsundi. Á árinu 1959
hafði 121 maður flutzt til lands-
ins umfram þá, sem fluttst frá
því.
Hélt lil hafs
f GÆR kom flugvél landhelgis
gæzlunnar að brezkum togara,
sem var að veiðum á mörkum
fiskveiðisvæðisins undan Þist
ilfirði. Dró togarinn þeg-
ar inn veiðarfæri og hélt til
hafs. Ekki var annað tíðinda
hjá landhelgisgæzlunni í gær.
VR xill styttri
laugardaga
VERZLUNARFÓLK f Reykjavík
fór þess á Ieit við vinnuveitend-
ur í siðasta mámiði, að verzlun-
um verði lokað ki. 1 e.h. á iaugar
dögum síðustu þrjá mánuði árs-
ins, en lokunartími hefur verið
kl. 4. Gegn þvi vildu verzlunar-
menn vinna til 7 á föstudögum
eins og hinn hluta ársins, byrja
ki. 8,30 á iaugardögum og taka
ekki matarhlé þá daga.
Stjórn VR hefur að undan-
förnu rætt við kaupmenn um
málið. Ekki náðist samkomulag.
Boðaði stjórn VR þá til fundar
með félagsmönnum. Rakti for-
maðurinn gang málsins og
greindi auk þess frá því, að sam-
tök verzlunarfólks mundu ganga
í Alþýðusamibandið á þingi þess
í næsta mánuði.
Lýsti fundurinn trausti á stjóm
félagsins og jafnframt stuðningi
við þá ákvörðun trúnaðarmanna
ráðs þess efnis að verzlunarfól'k
taki upp þá vinnutilhögun, sem
sett var fram í tilboði til vinnu-
veitenda. Mun ákvörðunin eiga
að ganga í gildi laugardag n. k.
Veðnrtepptur
SÓLFAXI, Skymastervél Flug-
félagsins, hefur verið veðurteppt
ur í Syðri-Straumfirði á Græn-
landi síðan á þriðjudag vegna ó-
hagstæðra flugskilyrða yfir
Grænlandsjökli. Einnig hefur ver
ið ólendandi í Kulusuk, en þar,
á flugvélin að hafa viðkomu
leiðinni til Reykjavíkur.