Morgunblaðið - 03.11.1960, Blaðsíða 2
2
MORGUNRLAÐIÐ
Fimmtudagur 3. nóv. 1960
Víðtækar varúðarráðstafanir
— i Paris og Algeirsborg, vegna
réttarhalda yfir foringjum Alsir
uppreisnarinnar
París, 2. nóv. — (Reuter) —
Á MORGUN hefjast í París
réttarhöld í máli 20 leiðtoga
uppreisnarinnar gegn de
Gaulle í Alsír í janúar sl.
Er búizt við, að til átaka og
óeirða kunni að koma i sam-
bandi við réttarhöldin, og
gerir lögreglan hvers konar
öryggísráðstafanir í því sam-
bandi. — Svipaða sögu er að
segja frá Algeirsborg, þar
sem mikils óróa gætti þeg-
ar í dag.
★ Fjórir fjarstaddir
Fjórir þeirra tuttugu, sem
ákærðir eru fyrir að stofna
öryggi franska ríkisins í hættu
með uppreisnartilrauninni, verða
dæmdir að þeim fjarstöddum,
þar sem ekki hefir tekizt að hafa
hendur í hári þeirra. Einn þess-
ara manna er veitingahússeigand
inn Joseph Ortiz,' en hann kom
mjög við sögu í uppreisninni.
Fréttist siðast til hans á Balear-
eyjunum spönsku. — Þekktastur
þeirra uppreisnarmanna, sem
sitja munu í stúku ákærðra er
fallhlífaliðsforinginn Pierre Laga
illarde. Réttarhöldin standa vænt
anlega í sex vikur.
★ Ólga í Algeirsborg
Eins og fyrr segir, gætti mikils
óróa í Algeirsborg í dag. Hafði
lögreglan mikinn viðbúnað, er
Paul Delouvrier, aðalfulltrúi
frönsku stjurnarinnar í Alsír, ók
inni í borgina. Urðu miklar um-
ferðartruflanir í sambandi við
þær aðgerðir, og var talið væn-
Lislkynning Mbl.
Jóhann Briem
I GÆR hófst sýning á mál«»rk-
um eftir Jóhann Briem í sýn-
ingargluggum Morgunblaðsins.
Að þessu sinni sýnir hann fjög-
ur olíumálverk sem bera þessi
nöfn: Hestar i grænni brekku,
Btaurar við sjó, Haust, Rautt
hár og blátt haf.
Myndirnar aru allar til sölu.
Upplýsingar hjá afgreiðslu
blaðsins eða listamanninum sjálf
Dagskrá Alþingij
Efri deild:
1. Ræktunarsjóður og Byggingarsjóður
sveitabæja, frv. — Frh. 1. umr.
2. Fiskveiðilandhelgi Islands, frv. —
Frh. 1. umr.
3. Bústofnslánasjóður, frv. — 1. umr.
4. Jarðgöng á þjóðvegum. frv. — 1.
umr.
Neðri deild:
1. Landnám, ræktun og byggingai’ í
sveitum, frv. — 1. umr.
2. Aætlunarráð ríkisins, frv. — 1. urnr.
legast að flytja Delouvrier hið
snarasta aftur til aðseturs síns,
til þess að reyna að koma í veg
fyrir uppþot. — Stúdentar við
háskólann í borginni skoruðu á
menn að gera verkfall í fyrra-
málið —■ og lýstu yfir stuðningi
við sakborningana í París.
★ Nýjar tillögur?
Á föstudagskvöld flytur de
Gaulle forseti útvarpsávarp til
frönsku þjóðarinnar — og mun
hann væntanlega skora á menn
að veita sér stuðning gegn vax-
andi aðstöðu við stjórnarstefn-
una, sem gætt hefir undanfarið.
—• Talið er, að forystumenn
helztu trúarbragðaflokka í Frakk
landi séu nú að reyna að fá for
setann til að leggja fram nýjar
tillögur til að kt>ma á friði í Alsír,
áður en hann heldur útvarps-
ávarp sitt.
VeSdeild Búnaðarbank-
ans verði elfd með lánsfé
1 fyrirspurnatíma Alþingis í
gær svaraði landbúnaðarrað-
herra, Ingólfur Jónsson, fyrir-
spurn frá Ólafi Jóhannessyni um
veðdeild Búnaðarbankans. Innti
fyrirspyrjandi eftir því, hvað
gert hefði verið til eflingar veð-
deildinni, en sl. vor var sam-
þykkt þáltill. þess efnis.
Kvað landbúnaðarráðherra
hag veðdeildarinnar mjög bágan,
en á þessu ári mundi hún þó geta
lánað sex milljónir króna án þess
að auka fyrri skuldir. Þá skýrði
hann frá því, að er ráðuneyt-
inu hefði borizt þáltill. sl. vor,
hefði bankaráði Búnaðarbankans
þegar verið skrifað og beðið
um tillögur þess um hvernig
veðdeildin yrði efld. Tillögur
hefðu ekki enn borizt frá banka-
ráðinu, en nú væri í athugun
hjáá ríkisstjórninni hvernig veð
Kirkjuþinpið
Á FUNDI kirkjuþings í gær var
til umræðu frumvarp til laga um
kirkjugarða. Flutningsmaður og
framsögumaður var Bjarni Bene
diktsson kirkjumálaráðherra. —
Allmiklar umræður urðu um
málið og var því ví&að til lög-
gjafarnefndar.
Á dagskrá í dag er tillaga til
þingsályktunar um fyr»ingasjóð
kirkna. — (frá kirkjuþingi).
deild Búnaðarbankans yrði efld
þannig að hún gæti haldið sinni
starfsemi áfram. Á þessu ári
hefðu verið veittar til hennar 3
milljónir króna. Sagði ráðherr-
ann að lokum, að nauðsyn bæri
til að efla veðdeild Búnaðarbank
ans svo hún gæti sinnt sínu hlut-
verki í þágu landbúnaðarins.
Flugvélar \ið
vægu verði
BANDARÍKJASTJÓRN mun
hafa boðið íslenzku flugfélög.
unum gamlar herflutninga-
flugvélar við vægu verði. Er
hér um að ræða tveggja
hreyfla DC-vélar, sem hafa
allmikið burðarþol. Samkv.
því, sem Morgunbl. veit bezt,
er frekar lítill áhugi fyrir
þessu hjá íslenzku félögunum,
einkum vegna þess, að vél-
arnar eru nú þegar „gamal-
dags“, enda þótt þær séu ekki
svo ýkja gamlar. Ekki mun þó
endanlega gengið frá þessum
málum. Hins vegar má geta
þess, að margar þeirra flug-
véla, sem íslenzku flugfélögin
hafa eignazt og hafa haft í
þjónustu sinni um ára skeið,
voru upphaflega bandarískar.
Hörðui Sigurgestsson, stud oecon
formuður Stúdenturúðs
NÝKJÖRIÐ stúdentaráð Háskóla
íslands kom saman til fyrsta fund
ar síns í gærkvöldi. Fór fram
kosning stjórnar ráðsins fyrir
þetta kjörtímabil og hlutu eftir-
taldir stúdentar kosningu:
Hörður Sigurgestsson stud.
oecon formaður, Jóhannes L. L.
Helgason stud. jur. gjaldk., Örn
Gjöf til Grafar-
neskirkju
GRAFARNESI, Grundarfirði, 2.
nóvember. — Nýlega afhenti frú
Kristín Runólfsdóttir, Búðum í
Grundarfirði, sóknarprestinum
að Sebbergi, sr. Magnúsi Guð-
mundssyni, krónur 10,000 að gjöf
í kirkjubyggingarsjóðinn í
Grundarfirði. Þessi gjöf frú
Kristínar er til minningar um
látinn mann hennar Cecil Sigur-
björnsson, sem fórst með línu-
veiðaranum Papey árið 1933. Er
þetta stærsta peningagjöf frá
einstaklingi til kirkjubyggingar-
innar, en fleiri hafa borizt áður.
Á sl. sumri var byrjað að byggja
kirkjuna og vann við það hópur
útlendinga sem hingað kom til
þess á vegum Alkirkjuráðsins.
Varð lokið við grunn undir nokk
urn hluta kirkjunnar og kjallari
væntanlegs félagsheimilis kirkj-
unnar var byggður, en í félags-
heimilinu verður miðstöð kristi-
legs starf safnaðarins.
J /* NA IShnúhr 1 / SVSOhnútar Snjókomo f ÚSi V Skúrir PC Þrumur W& KuUaski! Hi/ts/ci/ H Hmi L LagB
Bjarnason stud. med. ritari.
Varstjórn skipa eftirtaldir stú-
dentará Grétar Br. Kristjánsson
stud. jur. varaform., Gylfi Bald-
ursson stud. philol. varagjaldk.,
Halldór Halldórsson stud. med.
vararitari.
Þetta stúdentaráð mun sitja til
1. marz 1962.
Hljumsveitar-
stjórinn Mitro-
poulos lálinn
MlLANÓ, ítalíu, 2. nóvember.
— (Reuter). — Grísk-banda-
ríski hljómsveitarstjórinn og
tónskáldið Dimitri Mitropoulos
lézt hér í dag úr hjartaslagi, 64
ára að aldri. Mitropoulos var
að æfa þriðju sinfóníu Gustavs
Mahlers með hljómsveit Mílanó-
óperunnar, þegar hann hneig
skyndilega niður. Hann lézt á
leiðinni til sjúkrahússins.
— ★ —
Mitropoulos var fæddur 1
Aþenu árið 1896 og hlaut tón-
listarmenntun sína þar, í Brúss-
el og Belgíu. Hann starfaði víða
um lönd, en sl. aldarfjórðung
dvaldist hann mest í Bandaríkj-
unum — og var bandarískur
borgari. Árið 1937 gerðist hann
stjórnandi Minneapolis-sinfóníu-
hljómsveitarinnar, en síðan 1951
hefir hann verið aðalstjórnandi
Filharmoníuhljómsveitar New
York. Hann hefir stjórnað mörg
um hljómsveitum við hljóm-
plötuupptökur og er mjög víða
þekktur af þeim.
Fjórtán mál rædd
í sameinuðu þingi
SEXTÁN mál voru á dagskrá
sameinaðs þings í gær og voru
fjórtán þeirra tekin fyrir. Voru
ræddar átta þingsályktunartillög
ur, sem flestra hefur verið getið
hér í blaðinu áður. Var þessum
tillögum öllum vísað til nefnda,
en umræðunni frestað.
Þá talaði fjármálaráðherra fyr
ir fjáraukalögum 1958, sem síðan
var vísað til 2. umr. og fjárveit-
inganefndar. í lok fundartímans
urðu nokkrar umræður um gjald
eyristekjur af ferðamannaþjón-
ustu, landkynningu og ferðamál
og verður getið nánar um það í
blaðinu á morgun.
Blóm
görðum
ÍSAFIRÐI, 2. nóv. — Á sunnu-
dagskvöldið féll fyrsti snjórinn
hér í byggð, en hann tók aftur
upp eftir fáeinar klukkustundir.
1 jallvegir eru en færir og allt
fram til þessa hafa blóm verið
að springa út í görðum. — Guðj.
Seinkar ve«na
n
óveðurs
MIKIÐ óveður er nú á Norður-
sjó og hafa þrír íslenzkir togar-
ar, sem eru á leið með fisk til
Þýzkalands, tafizt af þeim sök-
um. Einn átti að selja í gær, ann
ar í dag og sá þriðji á föstudag,
en öllum seinkar a. m. k. um
sólarhring.
Runólfur frá Ólafsvik mun
hafa landað 50 lestum af síld í
Þýzkalandi í gær og fengið fyrir
13 þús. mörk, mjög lágt verð.
Mý hljómsveit og breyting
á rekstri Tjarnarkaffis
S Ú breyting hefur nú orðið
á rekstri Tjarnarkaffis, að
Egill Benediktsson veitinga-
maður hefur látið af störf-
um og selt allt innbú fyrir-
tækisins í hendur Kristjáni
Gíslasyni. Tók Kristján við
rekstri hússins um sl. mán-
aðamót.
Kristján skýrði tíðindamanni
Mbl. svo frá í gær, að hann hefði
í huga breytingar á starfsemi
veitingahússins. Verður húsið
héðan í frá nær eingöngu leigt
til veizlu. og fundahalda. Sagði
Kristján að sér virtist að í höf-
Veðurspáin
klukkan 10 í gærkvöldi.
BV-mið: Austan og NA átt,
hvasst til hafsins, dálítil rign.
ing.
SV-land til Breiðafj., Faxa
flóamið: og Breiðafjarðarmið:
NA átt, allhvasst í nótt, skýj-
að.
Vestfirðir Vestfjarðamið og
Norðurmið: Austan og NA- ^
stinningskaldi og skýjað, s
hvasst og slydda þegar líður i
á nóttina. •
Norðurland til Austfjarða, i,
NA-mið til SA-miða: All- S
hvass og síðar hvass NA, í
rigning með köflum. i
SA-land: Allhvass NA, S
skýjað með köflum. ^
uðstaðnum væri mikill skortur
á húsnæði fyrir félög og hópa,
sem vildu skemmta sér út af
fyrir sig, eða félögum, sem skorti
húsnæði til fundahalda. Kvaðst
hann mundi reyna að bæta úr
þessu og myndi gera ýmsaf
minniháttar breytingar til þess
að geta gert betur fyrir það fólk
sem salinn leigir.
Ný hljómsveit.
Til hússins hefur verið ráðin
ný hljómsveit. Hljómsveitarstjóri
er J. Riba, góðkunnur hljóðfæra.
leikari hér um nær 3 áratuga
skeið. Hljómsveit hans er skip.
uð Guðjóni Pálssyni frá Vest-
mannaeyjum (píanó), Reyni
Sigurðssyni, (bassi, harmónika)
og Sverri Garðarssyni (tromm-
ur). Eru þetta allt kunnir hljóm
sveitamenn og kvaðst Kristján
fullviss um að gestum myndx
falla leikur þeirra vel í geð. Til
gamans má geta þess, að Riba
lék í Tjarnarkaffi þá er það fyrst
var opnað. Kvað hann þá oft
hafa verið glatt á hjalla og hann
og menn hans myndu »gera sitt
til að svo yrði þar aftur nú.
★ Kalt borð og kaffi.
Tjarnarkaffi hefur nú hug á
að leita fyrir sér með ýmsar
nýjungar í rekstri hússins. —
Verður t. d. haft kalt borð á
boðstólum á laugardögum og
sunnudögum og einnig verður
tekin upp kaffisala síðdegis
dag hvern og leika þeir fé.
lagar þá létta músík við hvers
manns hæfi.
AKRANESI — Á stjórnmála-
námskeiðinu hér á Akranesi
verður í kvöld flutt erindi um
sj álf stæðisstefnuna og á eftir
verða almennar umræður.