Morgunblaðið - 03.11.1960, Side 12
12
MORGUNBLAÐ1Ð
Fhnmtudagur 3. nóv. 1960
Ensk hraðritun
Stórt fyrirtæki óskar að ráða stúlku til bréfritunar.
Kunnátta í erskri hraðritun áskilin. — Umsóknir
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, send-
ist afgr. Mbl. fyrir laugardag 5. nóv. merktar:
„Gott kaup — 1112“.
Atvinna Kópavogur
Piltur eða stúlka óskast í matvörubúð í Kópavogi
nú þegar eða a næstunni. — Tilboð er greini aldur
og fyrri otörf, óskast send afgr. Mbl. fyrir laugar-
dagskvöld, merkt: „Stundvís — 1184“.
Eyjólfur Guðmunds-
son frá Hömrum
Minning
EYJÓLFUR GUÐMUNDSSON,
fyrrv. bóndi að Hömrum í Gríms
nesi, andaðist í Héraðssjúkra-
húsinu í Keflavík fimmtudag-
inn 27. f. m. Útför hans verður
gerð frá Mosfellskirkju í dag.
Eyjólfur Guðmundsson var
fæddur að Holtakotum 1 Bisk-
upstungum 29. desember 1896.
Hann var sonur merkishjónanna,
Guðmundar Bjarnasonar og Guð
bjargar Eyjólfsdóttur, sem lengi
bjuggu að Seli í Grímsnesi. Var
Eyjólfur aðeins 5 ára að aldri
Þab er efni i
SOUPS
sem gerir nana BRAGÐGÓÐA
....................................................................
: ...... • •• f
Þessir vellöguðu og rauðu
Campeirs tómatar eru rækt-
aðir sérstaklega fyrir okkur —
Síðan er valið úr þeim og
tómatsúpa búin til á einum
degi.
Þetta er ein bezta tómattegund í heimi, fallega
rauð og hið mesta lostæti. Úr þeim búum við til
beztu tómatsúpuna, sem þér bragðið.
Bætið við dós af
vatni og síðan
hálfri til einni
dós af mjólk
eða vatni
LOSTÆTI
4 til 5 diskar
eftir smekk
Frá Silla & Valda Austurstr. - KRON - Egilskjöri — Síld og Fiski - Matkaup hf.
(heildsala) — Búðagerði, Búðagerði 10 — Búrið, Hjallavegi 15 — Bústaðabúðin, Hólm-
garði 34 — Hagabúð, Hjarðarhaga 47 — Kjötbúð Laugarness, Dalbraut 3 — Krónan,
Mávahlíð 25 — Melabúðin, Hagamel 39 — Ragnarsbúð Fálkagötu 2 — Sveinsbúð Borgar-
gerði 12 — Teigabúðin, Kirkjuteigi 19 — Varmá, Hverfisgötu 84 — Víðir, Fjölnisvegi 2
Þingholt, Grundarstíg 2 — Kiötbúðin Austurveri, Miklubraut — Jónskjör, Sólheimum 35
Kjötmiðstöðin, Laugalæk, — Reynisbúð Bræðraborgarstíg 34 — Matardeildin, Hafnar-
stræti 5 — Matarbúðin Laugavegi 42 — Kjötbúðin Réttarholtsvegi 1 — Kjötbúðin Grett-
isgötu 64 — Kjötbúðin Brekkulæk 1 — Kjötbúð Vesturbæjar, Bræðraborgarstíg 43 —
Kjörbúðin Kjöt og grænmeti, Snorrabraut 36
Umboðsmaður á fslandi — JOHN LINDSAY, Austurstræti 14, Reykjavík
er foreldrar hans fluttu að Seli,
en með þeim var hann þar alla
þeirra búskapartíð, eða þar til
hann, ásamt Bjarna, bróður sin-
um, tók við búsforráðum, er
fjölskyldan fluttist frá Seli að
Hömrum vorið 1937. Þar bjuggu
þeir bræður síðan saman og önn
uðust um aldraða foreldra sína á
meðan þau lifðu. En um hausiið
1949 tók svo Eyjólfur, einsam-
all, við búsforráðum á þeirn
hluta jarðarinnar á Hömrum, er
þeir bræðut höfðu búið á.
Um haustið 1941 giftist Ey-
jólfur Ingu Ágústsdóttur, frá
Ólafsvik, hinni ágætustu konu,
sem þrátt fyrir langvarandi
heilsuleysi, annaðist um heimil-
ið, og einkum og sér í lagi um
háaldraða tengdaforeldra sína,
af frábærri umhyggju og mynd-
arskap. Þau hjónin, Inga og
Eyjólfur, eignuðust saman ijög-
ur börn, þrjá syni og eina dótt-
ur, sem öll eru á lífi og hin
mannvænlegustu. Hjónabandið
varð ekki langt, en ástrikt og
gott. Inga andaðist í júlímánuði
1955.
Vorið eftir varð Eyjólfur því
að bregða búi, og fluttist hann
þá með börnin til æskuvinar
síns, Stefáns Diðrikssonar, bónda
og ’oddvita, að Minni-Borg, og
konu hans, Ragnheiður Böðvars
dóttur, sem ekkí lét sig muna
um' að bæta þessum barnahópi
við heimili sitt, eftir að hafa
áður alið upp stóran barnahóp.
Var þetta vissulega gert af
miklum drengskap og vissi ég
að þeir Eyjólfur og Stefán hugs-
uðu gott til ánægj ulegrar sam.
vinnu, sem þó varð alltof stutt,
því Stefán andaðist 18. jauúar
1957. Það kom því i hlut
Eyjólfs, sem hann og jnnaðist
af sinni alkunnu fórnfýsi, að
veita þessum æskuvini sínum, í
þungri banalegu, alla þá aðstoð
og umönnun, er hann mátti. En
vel hafa þsiu, börn Stefáns og
Ragnheiðar munað þetta, eftir
að Eyjólfur, tiltölulega stuttu
síðar missti heilsuna og varð
sjálfur að líða langvarandi
sj úkdómsþrautir. Þannig er
mannlífið. Gott er það áreiðan-
lega að gera vel og hitta sjálfan
sig fyrir.
Börnin þeirra, Eyjólfs og
Ingu, sem nú hafa misst sína
góðu foreldra, eru enn ung að
aldri, eða á aldrinum 12 til 18
ára. En einn son hafði Eyjólfur
eignaðist áður en hann giftist,
og er hann nú uppkominn mað-
ur.
Svo sem hér hefur stuttlega
verið lýst, voru það landbúr.að-
arstörfin, sem Eyjólfur helgaði
krafta sína, svo að segja ein-
göngu, þótt einnig stundaði
hann sjóróðra á vetrarveitíðum
á yngri árum eins og þá var al-
gengt að ungir menn gerðu.
Eyjólfur var harðduglegur tli
allra verka, greindur ve. léttur
í lund og á allan hátt vei gerður
maður. Hann var því vinsæll,
svo að af bar. En því lám fagna
þeir einir, sem til þess vinna.
Og þó er það ef til vill vafamál,
að það sé raunverulega á sjálfs-
valdi nokkurs manns, að kynna
sig svo, að öllum þyki vænt um
hann. Eyjólfi tókst þetta. án
þess að vita af því sjálfur og
sennilega einmitt vegna þess, að
þetta erfiða ,,sjálf“ okkar mann-
anna var honum áreiðanlega
minni fjötur, en flestum öðrum.
Hann hafði meiri ánægju af því,
að gera öðrum greiða, en að efla
eigin hag. Ef fjöldinn væri
þannig, væru erfiðleikarnú- I
mannlífinu áreiðanlega minni
en þeir eru, en það er önnur
saga.
Þeir, sem þekktu Eyjólf bezt,
og jafnvel allir, sem kynntust
honum nokkuð vita að hér er
ekkert ofmælt. Vinirnir hans
mörgu, sveitungarnir hans, sem
ekki létu sig muna um það, á
mesta annatíma, að eyða tíma
og kostnaði í langar ferðir til
þess að heimsækja hann í sjúkra
húsinu, sumir mörgum sinnum,
eru beztu vitnin um þetta Þær
ferðir voru áreiðanlega farnar
í fórnfúsum þakkarhug. En bezt
gæti ég trúað, að vinarbros
þessa góða manns, helsjúks á
sóttarsænginni, hafi þeim fu.nd-
izt borga ferðina og meira en
það. Eyjólfur var einn at þess-
um fáu mönnum, sem maöur
mætir á lífsleiðinni, sem alltaí
eru veitandi, en aldrei er hægt
að borga. Hann virtist æfiniega
sjá einungis það bjarta og góða
í öllu. Það er dásamlegt að
kynnast slíkum mönnum, og
þeirra er gott að minnast.
Blessuð sé minning hans.
Ingólfur Þorsteinsson. 1
m
Blómlaukar
Haustfrágangut
Gróðrastöðin víð Miklatorg
Símar: 22-8 22 — 19-7-75.