Morgunblaðið - 08.11.1960, Qupperneq 2
2
MORGUNRLAÐIÐ
Þriðjudagur 8. nov. 1960
Krúsjéff skálar fyrir
friði og frelsun kúgaðra
MOSKVU og PEKING 7. nóv.
(NTB-Reuter). — Kommúnista-
leiðtogar tólf Ianda voru í dag
viðstaddir hátíðahöld í Moskvu
í tilefni 43 ára afmælis rúss-
nesku byltingarinnar. Það vakti
athygli aff viff hersýningu á
Rauffa torginu skipaði Liu
Shao-Chi, forseti Kína, heiðurs-
sess milli þeirra Krúsjeffs i'or-
sætisráffherra og Leonid Brezhn.
ev forseta.
ELDFLAUGAR
Á hersýningunni voru aðal-
lega sýndar ýmsar gerðir eld-
flauga, en vestrænir fréttaritar-
ar segja að flestar þeirra hafi
verið sýndar áður og aðeins
tvær nýjungar hafi komið fram.
T ignir
gestir
Eftirfarandi frétt birtist í
Þjóðviljanum s.l. sunmidag:
„Gestir frá verkalýffsflokk-
um um heim allan verffa við
staddir hátíðahöldin í
Moskvu í tilefni af bylting-
arafmælinu. Þeirra á meðal
eru Einar Olgeirsson og
Kristinn E. Andrésson, og
fóru þeir utan í gær“.
Meðal annarra kommún-
istaleiðtoga á hátíðahöldun-
um er Janos Kadar frá Ung-
verjalandi.
Þarna var meðal annars „Silf-
Urnálin", þriggja metra löng
eldflaug, samskonar og sú er
grandaði U-2 flugvélinni banda-
rísku hinn 1. maí sl. Þá voru
þarna risaeldflaugar, tuttugu
metra langur, kjarnorkufallbyss.
ur, skriðdrekar og fl.
KRÚSJEFF SKÁLAR
Áður en hersýningin hófst,
flutti Malinovski hermálaráð-
herra ræðu, þar sem hann m. a.
sagði að ef ráðizt yrði á Sovét-
— Kongó
Frh. af bls. 1.
Mobutu herstjóri í Kongó hef-
trr látið efla varðsveitir þær er
gæta dvalarstaðar Lumumba í
Leopoldville. Er ástæðan sú að
uppi hafa verið sögusagnir um
það að Lumumba æriaði sér
einnig að halda til New York.
LUMUMBA VILL FRIÐ
Lumumba gaf í dag út frétta-
tilkynningu. Er það í fyrsta sinn
í fjórar vikur að hana lætur til
sín heyra. í fréttatilky.iningunni
segir Lumumba að ríkisstjórn
sú, sem hann væri forsætisráð-
herra í, væri algjörlega sam-
mála skýrslu þeirri um Kongó,
sem Dag Hammarskjöld gaf
Allsherjarþinginu nýlega. Jafn_
framt dreifðu stuðningsmenn
hans 2000 orða fjölrituðu ávarpi
hans til þjóðarir.nar sem hann
skorar á íbúana að hætta
„bræðravígum" og innbyrðis
deilum ættflokkanna.
Dagskrá Alþingis
DAGSKRA Efri ideildar í dag kl. 1,30:
1. Bjargráðasjóður Islands, frv. 1.
umr. 2. Fiskveiðilandhelgi Islands,
frv. Frh. 1 .umr. 3. Ræktunarsjóður
og Byggingarsjóður sveitabæja, frv.
Frh. 1. umr. 4. Bústofnslánasjóður,
frv. 1. umr. 5. Jarðgöng á þjóðvegum,
frv. — 1. umr.
Dagskrá Neðri deildar kl. 1,30 í dag:
Lífeyrissjóður togarasjómanna ,frv. 1.
umr.
ríkin, myndu þau gera gagnár-
ás, sem riði heimsvaldasinnun-
um að fullu. Sagði hann að
Sovétríkin hefðu nú allt er til
þyrfti til að verja landamæ-ri
ríkisins og að unnt væri að
skjóta sovézkum eldflaugum til
allra staða á jörðu.
Siðar í dag hafði Krúsjeff for-
sætisráðherra boð inni fyrir um
2.000 gesti. Þar skálaði Krúsjeff
fyrir „friði um allan heim og
frelsun nýlendubúa undan oki
heimsvaldasinna.“
Nikita Krúsjeff
VINÁTTA OG SAMHELDNI
í Peking hélt sovézka sendi-
ráðið veizlu í tiiefni byltingar-
afmælisins og meðal gesta voru
Mao Tse-Tung formaður kín-
verska kommúnistaflokksins og
Chou EnLai forsætisráðherra
Kína. Forsætisráðherrann flutti
ræðu í hófinu þar sem hann
m. a. lofaði Sovétrikin fyrir að
vinna óþreytandi að því að koma
á friðsamlegri sambúð í heimin-
um meðal þjóða með ólík þjóð-
skipulagskerfi, fyrir að vernda
heimsfriðinn og fyrir að draga
úr spennunni í heiminum. Sagði
Chou En-Lai að Kínverjar hefðn
alltaf barizt fyrir friðsamlegri
Mjög góður ýsu-
afli á trillur
AKRANESI, 7. nóv. — Mokafli er
nú á trillubátana og er það ýs-
an sem þeir veiða svona gráðugt.
í síðasta róðri voru þrjár trillur
með alls 4200 kg af fallegri ýsu.
Hér minnast menn vart þess að
svona hafi ýsan vel veiðst um
þetta leyti árs. — Oddur.
sambúð og að vinátta og sam-
heldni þjóða Sovétríkjanr.a og
Kína væru byggð á grundvallar-
reglum í kenningum Lenins og
Marx. Þessi vinátta og sam-
heldni hefði staðizt maigar
raunir, en báðar þjóðirnar hefðu
fullan skilning á gilii slíkrar
vináttu fyrir heimsfriðinn.
Aðalfundur Stúd-
entafélags Rvíkur
AÐALFUNDUR Stúdentafélags
Reykjavíkur var haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu sl. sunnudag. Frá-
farandi formaður, Pétur Bene-
diktsson, bankastjóri, stýrði fund
inum. Flutti formaður skýrslu
um störf stjórnarinnar. í lok
skýrslu sinnar minntist formað-
ur, dr. Þorkels Jóhannessonar,
háskólarektors og risu fundar-
menn úr sætum sínum í virð-
ingarskyni við hinn látna. Gjald-
keri las síðan reikninga félags-
ins og voru þeir samþykktir. Þá
fór fram stjórnarkjör og er
stjórnin nú þannig skipuð: For-
maður. Matthías Jóhannessen, rit-
stjóri. Meðstjórnendur: Hrafn
Þórisson, bankam., Einar Árna-
son, lögfr., Björgvin Guðmunds-
son, viðskiptafr., Örn Þór, lögfr.
Varastjóm: Þórir Kr. Þórðarson,
prófessor, Jón E. Ragnarsson,
stud. jur., Jóhann Hannesson,
skólastjóri, Elín Pálmadóttir,
blaðakona, Bjarni Beinteinsson,
stud. jur.
í fundarlok fóru fram umræð-
ur um 50 ára afmæli Háskóla ís-
lands á næsta ári.
Stærsta skip síðan
styrjöldiniii lauk
RENDSBURG, V-Þýzkalandi, 5.
nv. (Reuter). — í dag hljóp af
stokkunum í Þýzkalandi stærsta
skip, sem Þjóðverjar eignast síð
an styrjöldinni lauk. Skipið er
4800 tonn. Það verður notað sem
æfingaskip fyrir sjóherinn. Verð-
ur áhöfn þess 270 menn auk 250
sjóliða.
Forsetafrú V-Þýzkalands, frú
Wilhelmine Liibke, skírði skip-
ið „Deutschland".
Ellefu ára snáði
skákar Keflvík-
ingum
HRAÐSKÁKMÓT Suðurnesja
var haldið í Keflavik á sunnu-
daginn var. Keppendur voru 20
og var teflt í einum riðli.
í fyrsta og öðru sæti með 16%
vinning hvor af 19 mögulegum,
urðu þeir Jón Pálsson hraðskák-
meistari Reykjavíkur og Haukur
Angantýsson 11 ára snáði úr
Keflavík.
Haukur litli tefldi mjög vel og
vann t.d .fyrstu 11 skákirnar og
þegar 2 umferðir voru eftir var
hann 1% vinning hærri en Jón
Pálsson. En svo fór þreytan að
segja til sín. í 3. sæti var Pálm-
ar Breiðfjörð með 16 vinninga.
— B. Þ.
NA /5 hnútar / SV 50 hnútar X Srjókoma » Oi/ 17 Skúrír K Þrumur 'W?.Z KuUatki/ Hittski/ HAHmt k L&LauB |
7./1.1960 k/ // ^/SSO l Ía t°fö p •
NÁMSKEIÐ Heimdallar um er-
lend stjórnmál og alþjóðastofn-
anir heldur áfram í kvöld kl. 8,30
í Valhöll. í tilefni af forsetakosn-
ingunum í Bandaríkjunum verð-
Heimdallar
ur sýnd kvikmynd af þriðja sjón
varpseinvígi Nixons og Kenne-
dys. Á eftir verður rabbað um
forsetakosningarnar og stjórnmál
; Bandaríkiunum.
í GÆR var almikil hæð yfir
Bretlandseyjum, en djúp lægð
fyrir SV Grænlandi. Regn-
svæðið var komið suðvestan
úr hafi til Vesturlandsins og
annað á leiðinni um 1500 km
suðvestur í hafi.
Veðurspáin kl .10 í gærkv.:
SV-land til Vestfjarða og
miðin: SA átt, víða allhvass
og rigning með köflum.
Norðurland og norðurmið:
Sunnan kaldi, dálítil rigning
vestan til í nótt.
NA-land, Austfirðir og mið-
in: SV gola .úrkomulaust.
SA-land og SA-mið: Sunn-
an gola og síðar kaldi, rign-
ing.
ísafold fœrir
út kvíarnar
Verzlunin i Austurstrœti stœkkuð
15 nýjar bækur væntanlegar
á markaðinn innan skamms
BÓKAVERZLUN ísafoldar
færir um þessar mundir enn
út kvíarnar í Austurstræti.
Hefur innri hluti hinnar
gamalkunnu verzlunar nú
verið aukinn svo, að húsa-
kynnin eru um fjórðungi
rúmbetri en áður var. Með
þessu hefur verzlunin tekið
hinum ánægjulegustu stakka
skiptum.
Mikiff annríki í gær
Bókstaflar hlóðust upp í
hrannir á víð og dreif um gólf-
ið og starfsfólkið var á þönum
um búðina við allskyns tilfær-
ingar og flutninga, þegar frétta-
menn litu inn hjá ísafold síð-
degis i gær. Allir unnu þá
af kappi við að koma nauðsyn-
synlegustu breytingum um kring
fyrir opnunina í morgun.
í bókadeildinni á baðstofuloft-
inu, þar sem fyrrum var hlaða
yfir fjósi Björns ráðherra og
ritstjóra Jónssonar, var sezt að
stuttu spjalli við þá Pétur Ólafs-
son, forstjóra og Sigurpál Jóns-
son, sem sögðu frá stækkun verzi
unarinnar og nokkrum nýjum út
gáfubókum ísafoldar.
Tvær flugur slegnar
Þannig stendur á stækkuninni,
að port nokkurt, sem þaxna var
að húsabaki og einkum var not-
að til geymslu í tíð Morgunblaðs-
ins á þessum stað, var orðið til
mikils ama, vegna rusls, sem
þar hefur safnazt saman og m.
a. valdið talsverðri eldhættu, er
staðið hefur stuggur af. Það rann
upp fyrir mönnum í vetur, að
með því að stækka verzlunina út
í portið var unnt að slá tvær
flugur í einu höggi. Og það er
einmitt það, sem nú hefur verið
gert. Eftir stækkunina er hægt
að koma við betra skipulagi í
verzluninni, en því munu við-
skiptavinir af eigin raun kynn-
ast, næst þegar þeir leggja þang-
að leið sína.
Kver á ensku til jólagjafa
Af um 40 bókum, sem Isafold
1 gefur út á þessu ári, eiga um
fimmtán enn eftir að koma út.
Þar að auki er svo lítið kver með
enskri þýðingu Snæbjarnar Jóns
sonar á kafla úr Endurminning-
um Sveins Björnssonar, sem
tekur yfir skamma tíð frá því
í maí 1939; þegar ófriðarskýin
hafa svo hrannað loftið að naum
ast er að efa hvað í vændum
sé, og þangað til rétt um það bil
sem Þjóðverjar eru að hefja inn-
rás sína í Danmörku vorið eft-
ir. Þykir í þessum þætti endur-
minninganna koma einkar skýrt
fram, hvað I manninum bjó.
Þessi litla en vandaða útgáfa
sem prýdd er 12 myndum, er
ekki hvað sízt ætluð til jóla-
gjafa. Hún kemur út í dag.
Nýjar bækur
Meðal þeirra bóka, sem ísafold
gefur út á næstunni, eru Bólu-
Hjálmar, æviágrip, sagnir og
þættir, eftir Finn Sigmundsson,
landsbókavörð, Ævisaga Jóns
Guffmundssonar, ritstjóra, eftir
Einar K. Laxness, fyrsta bók frá
hans hendi, gefin út í samvinnu
við Sögufélagið, Leikrit Shake-
speares, ný útgáfa af þýðingum
Matthíasar Jochumsonar, sem
lengi hafa verið ófáanlegar,
Rímur Breifffjörffs, sem nú er
hafin útgáfa á í umsjá Svein-
björns Beinteinssonar og með
myndskreytingum Jóhanns
Briem; söguleg skáldsaga frá
Tyrkja-ráninu hér. Herleidda
stúlkan, eftir Sigfús M. Johnsen,
fyrrum bæjarfógeta í Vestmanna
eyjum; Frá Grænlandi til
Rómaborgar, ferðaþættir eftir
Einar Ásmundsson, hrl.
Þýddar bækur eru líka allmarg
ar og má af þeim t. d. nefna
„Of seint, óðinshani", eftir All-
an Paton, höfund bókarinnar
„Grát, ástkæra fósturmold“,
þýdd af Andrési Björnssyni, og
6. bindið af verkum Jack Lond-
on, sem byrjað var að gefa út
í fyrra og hafa því komið ört
út.
Svipaffur fjöldi i ár
Að lokum má geta þess, að
bækur ísafoldar í ár verða svip-
aðar að fjölda og í fyrra eða
lítið eitt fleiri. Og eins og upp-
talningin ber með sér, eru ýms-
ar þeirra í senn hinar forvitni-
io£jn«sfii np merkar miöíy