Morgunblaðið - 08.11.1960, Page 13
Þriðjudagur 8. nóv. 1960
MORCVNBLAÐIÐ
13
65 miljónir Bandaríkja-
manna velja sér forseta
dag
New York, laugardag, 5. nóv.
SÁNINGARTÍMANUM, hörð-
ustu og víðtækustu kosninga-
baráttu, sem um getur í Banda-
ríkjunum, er að ljúka. Það er
komið að uppskeruhátíðinni. Á
þriðjudag kveða 65 milljónir
Bandaríkjamanna upp úrskurð
sinn um það, hver eigi að búa í
Hvíta húsinu í Washington D.C.
næstu fjögur ár, móta stefnu
Bandaríkjanna og hafa forystu
meðal frjálsra þjóða heimsins.
Þetta er vissulega örlagaríkur
dagur, ekki aðeins fyrir banda-
rísku þjóðina heldur fyrir þró-
un heimsstjórnmálanna næstu
árin. Aldrei hefur veröldin þurft
meira á vitrum og víðsýnum
forystumönnum að halda á for-
setastóli stærsta og þróttmesta
lýðræðislands heimsins en ein-
mitt nú, þegar geigvænlegar
hættur og dimmir skuggar grúfa
yfir í alþj óðamálum. Það sem
fólkið um víða veröld varðar
um ,er ekki fyrst og fremst,
hvernig þessi volduga þjóð skip-
ar innanríkismálum sínum, held
ur hitt, hvernig henni tekst lífs-
nauðsynleg forysta um að varð-
veita heimsfriðinn og koma í
veg fyrir það hyldýpi af ógæfu,
sem ný styrjöld hefði í för með
sér.
Það er vegna þessa for-
ystuhlutverks Bandaríkjanna,
sem allur heimurinn fylgist
með lifandi áhuga á úrslit-
um kosninganna, sem fram
fara í dag.
Fólkið, sem um er kosið
í þessum kosningum hefur
baráttan ekki aðeins staðið um
þá Nixon og Kennedy. Hún hef-
ur einnig staðið um fjölskyldur
þeirra, konur þeirra og jafnvel
börn. í fáum, ef nokkru lýð-
ræðislandi, tekur konan eiens
ríkan þátt í kosningabaráttunni
með manni sínum og hér. Hún
ferðast með honum á fundina,
heldur ræður, efnir til sjálf-
stæðra funda og samkvæma, þol
ir í stuttu máli súrt og sætt
með honum. Og heimili fram-
bjóðenda í forsetakosningum
eru opin fyrir rannsakandi aug-
um alþjóðar. Auga sjónvarpsins
liggur stöðugt á þeim. Börnin
leggja sinn skerf fram til bar-
áttunnar með því að sýna sig
í leik og hversdagslífi. Það er
þess vegna óhætt að fullyrða að
kjósendurnir kjósa beinlínis um
fjölskyldurnar, hafa þær i heild
í huga þegar þeir ganga að kjör
borðinu.
Við skulum segja að fleslir
byggi úrskurð sinn á stefnu
frambjóðandans í hinum þýð-
ingarmestu málum. En margir
muna líka eftir útliti, framkomu
og fasi konunnar hans, sem
ingum til öldungadeildarinnar
1952 þegar Lodge var önnum
kafinn í baráttunni fyrir sigri
Eisenhowers og uggði ekki að
sér fyrir hinum 34 ára gamia
kongressmanni.
Kona Kennedys er Jacqueline
Lee Bouvier, fyrrverandi blaða-
maður, listmálari og málagarp-
ur. Talar auk ensku, frönsku,
spönsku og ítölsku. Hún er 31
árs gömul og eiga þau hjónin
eina þriggja ára dóttur, Caró-
línu. Þau eiga von á öðru barni
sínu í desember n. k.
Frú Kennedy er mjög , glæsi-
leg kona, dálítið sérkennileg,
hefur mikið dökkt hár, lágt
enni, miklar augabrýr og nokk-
uð þykkar varir. Eru allir sam-
mála um það að hún mundi
sóma sér vel sem húsfreyja í
Hvíta húsinu.
Varaforseraefni Demókrata er
Lyndon B. Johnson frá Texas,
t'ftir Sigurð Bjarnason
verður „fyrsta húsfreyja“ þjóð-
arinnar ef hann nær kosmngu.
Kennedy — Johnson
Frambjóðandi demókratanna
er John Fitzgerald Kennedy, 43
ára gamall, sonur eins ríkasta
manns Bandaríkjanna, sem
Roosevelt gerði á sínum tíma að
sendiherra í London. Lauk há-
skólaprófi frá Harward, tók þátt
í styrjöldinni í 4 ár og var
sæmdur heiðursmerki fyrir
hetjudáð, hefur setið á þingi í
14 ár, stundað blaðamennsku,
skrifað þrjár bækur og fengið
Pulitzer bókmenntaverðlaun fyr
52ja ára gamall, þaulreyndur
málafylgjumaður. Hann var
fyrst kosinn á þing til fulltrúa-
deildarinnar árið 1937 en hefur
átt sæti 1 öldungadeildinni síð-
an 1948. Leiðtogi Demókrata á
þingi hefur hann verið síðan ár-
ið 1953.
Kona hans er Claudia Taylor
og eiga þau tvær dætur, 13 og
16 ára.
Hlutverk Johnsons í kosninga-
baráttunni hefur fyrst og fremst
verið að halda Suðurríkjunum
saman um framboð Demókrata.
Telja margir að honum hafi tek
izt að sameina liðið, sem var i
öldina og gat sér gott orð í flot
anum á árunum 1942 til 1946.
Nixon hefur átt sæti á þingi
í 14 ár. Var fyrst kosinn til
fulltrúadeildarinnar árið 1946 en
til öldungadeildarinnar 1950. —
Var kjörinn varaforseti Banda-
ríkjanna árið 1952 og endurkos-
inn 1956. Han er kvekari að
trú.
Nixon er 5 feta hár, hinn
gerfilegasti maður, léttur í
hreyfingum, dökkur yfirlitum,
baráttumaður mikill og heíur
marga hildi háð í amerískum
stjórnmálum. Andstæðingar hans
telja hann mjög harðskeyttan
og ekki vandan að baráttuað-
ferðum. Hann hefur ferðizt mik
ið erlendis á stjórnarárum Eis-
enhowers og rekið erindi for-
setans og stjórnar hans. Hefur
honum þótt farnast mjög vel
í þessum ferðum.
Kona Nixons er Patricia Ry-
an ,sem er jafngömul manni sín-
um. Eiga þau tvær dætur, Pat-
riciu 14 ára og Júlíu 12 ára.
Frú Nixon er hin glæsileg-
asta kona og hefur getið sér
ágætt orð sem varaforsetafrú.
Hún hefur ferðazt um allt land-
ið með manni sínum í þessari
kosningabaráttu og flestum öðr-
um pólitískum ferðalögum hans.
Varaforsetaefni Repúblikana
er Henry Cabot Lodge fyrrver-
andi ambassador Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum, 58
ára gamall, fæddur í Massachu-
setts eins og Kennedy. Sat á
þingi í öldungadeildinni frá
1936 til 1952. Stundaði blaða-
mennsku áður en hann gerðist
þingmaður. Hann er kvæntur
Emily Sears og eiga þau tvo
Kosió er um það hver búa eigi í Hvíta húsinu.
ir eina þeirra. Han er róm-
versk-kaþólskrar trúar og nýt-
ur þess eða geldur í kosning-
unum.
John Kennedy er 6 feta hár,
fríður sýnum, viðfeldinn og
glæsilegur maður. Hefur orð
verið haft á því, hve vel hon-
um hafi orðið til liðs meðal
ungra kvenna, sem vinna af
miklum eldmóði fyrir kosningu
hans.
Kennedy er fæddur í Brook-
line í Massachusetts. Var fyrst
kosinn þar þingmaður til full-
trúadeildarinnar en felldi síð-
an Henry Cabot Lodge í kosn-
upphafi nokkuð sundrað. Aðrir
telja að Suðurríkin, jafnvel Tex
as, heimaríki Johnsons, hallist
mörg að Nixon, þótt ekki muni
hann reynast eins liðsterkur þar
og Eisenhower.
Nixon — Lodge
Richard Milhous Nixon fram-
bjóðandi Repúblikana er fædd-
ur í Kaliforníu og er nú 47 ára
gamall. Faðir hans var smá-
kaupmaður og vann Nixon í
æsku alla algenga vinnu og var
efnalítill. Hann er lögfræðingur
að mennt og stundaði um skeið
lögfræðistörf. Fór í heimsstyrj-
hafa fagnað Kennedy þegar
hann hélt hér mikinn útifund
19. október. Nú í vikunni komu
svo þeir Eisenhower og Nixon
og héldu fundi vítt og breitt
um borgina. Töldu Repúblikan-
ar að um tvær milljónir manna
hefðu fagnað þeim. Lögreglan
sagði ein milljón.
Kosningamiðstöð Demókrata
er á Hótel Biltmore en Repú-
blikana á Hótel Roosevelt. Er
þar gífurlegt annríki frá morgni
til kvölds.
Dýrt morgunkaffi
í fyrramálið kemur Kennedy
til borgarinnar. Eiga menn þess
þá kost að drekka með honum
morgunkaffi. En það kostar
hvorki meira né minna en 50
dollara. Þannig reyna flokkarn-
ir að afla sér fjár til þess að
standa undir kosningaútgjöldum
sínum, sem eru gífurleg. Fram-
bjóðendúrnir verða t.d. að leigja
sér einkaþotur til ferðalaga
sinna milli hinna fjarlægustu
staða í Bandaríkjunum.
Á kosningadag mun Nixon
verða staddur í heimaríki sínu,
Kaliforníu, og Kennedy í
Massaschusetts, þar sem hana
á heima.
Kosningadagurinn
Á þriðjudaginn mun svo kosn
ingin hefjast kl. 7 um morgun-
inn. Öllum vínbörum hér í
New York verður þá lokað. —
Munu það lög í mörgum ríkjum
Bandaríkjanna að vínbörum og
jafnvel vinbúðum skuli lokað á
kjördegi.
Kl. 7,30 um kvöldið byrjar
svo sjónvarp og útvarp að út-
varpa kosningafréttum af þátt-
töku í kosningunni og talningu
atkvæða í hinum einstöku ríkj-
um. Um miðnætti eða nokkru
fyrr eftir amerískum tíma ætti
að vera mögulegt að sjá úrslit
nokkurnveginn fyrir. Þá verður
farið að sjást hvert straumur-
inn liggur.
Þá mun frambjóðandinn, sem
unnið hefur, fljúga hingað til
New York og heimsækja aðal-
stöðvar sínar.
Beðið með eftirvæntingu
Þessara kosningúrslita er beð-
ið með geysilegri eftirvæntingu.
Enda þótt Kennedy hafi upp á
síðkastið verið spáð sigri geta
engir fullyrt fyrirfram um úr-
slitin. Enginn veit hvað fólkið
gerir í einrúmi kjörklefans.
En þótt þeir Nixon og Kenne-
dy séu báðir dugmiklir og
myndarlegir menn virðist það
almenn skoðun Bandaríkja-
manna að þeir séu hvorugur
„stórir menn“ og varla líklegir
til þess að verða mikilhæfir for-
setar. Um slíkt er þó ómögulegt
að fullyrða. Flestir menn vaxa
af stórum verkefnum, sem þeim
eru fengin til úrlausnar. Örlaga-
ríkir tímar skapa mikla menn.
Næsti forseti Bandaríkja Norð-
ur-Ameríku tekur við völdum
á mikilli örlagastundu.
S. Bj.
syni, 33 og 30 ára gamla. Lodge
gat sér mjög góðan orðstir sem
aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá
SÞ í 7 ár. í kosningabaráttunni
hefur það komið í ljós, að hann
nýtur mikilla vinsælda meðal
þjóðarinnar. Telja sumir að
hann hefði e. t. v. verið sterk-
ari frambjóðandi en Nixon.
Síðustu dagarnir
Hér í New York setur kosn-
ingabaráttan stöðugt mein svip
á borgarlífið. Báðir flokkar
halda hér stóra fundi síðustu
dagana fyrir kosninguna. Demó-
kratar sögðu milljón manna
Vegurinn lokast
ÍSAFIRÐI, 5 .nóv. — Þungfært
er orðið um Breiðadalsheiði og
vegurinn aðeins fær jeppabilum,
eða öðrum með drif á öllum hjól
um. Er því viðbúið, að landleiðin
suður lokist einvhern næstu
daga.
Sl
vunnn brann
ÍSAFIRÐI, 5. nóv. — f nótt
brann smáskúr við Hlíðarveg. í
honum var lítilsháttar hey.
Slökkviliðið kom skjótt á vett-
vang, en skúrinn mun hafa eyði-
lagzt. — G.