Morgunblaðið - 08.11.1960, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.11.1960, Blaðsíða 22
22 MORCUTSru. 4 Ð1Ð Þrlðjudagur 8. nóv. 1960 Annar leikur Tékkanna: Feimið Reykjavíkurúrval gaf Tékkunum of mikið forskot og Tékkarnir unnu 16 — 15 TÉKKNESKU handknatt- feiksmeistararnir frá Gott- waldov mættu úrvalsliði Reykjavíkur í öðrum leik sínum hér. Fór hann fram á sunnudagskvöldið og varð eftir daufa byrjun skemmti- legur og tvísýnn. Mátti lengi vel ekki á milli sjá hvort liðið næði sigri. Það féll i hlut Tékkanna, sem skoruðu 16 mörk gegn 15. Dauf byrjun Upphaf leiksins bar daufan svip. Reykjavíkurliðið mætti til leiks óákveðið og feimið. Það og gerbreyttist svipur leiks- ins. Á næstu mínútum nær Reykjavíkurliðið öllum tök- um á leiknum. Gunnlaugur skorar tvívegis í röð og Karl bætir 10. markinu við. Vane- cek lagar töluna fyrir Tékk- ana, 14:10. En það stöðvar ekki Reykvíkingana. Guðjón skorar 11. markið og siðan Gunnlaugur tvö (það siðara úr vítaspyrnu) og Karl Jó- hannsson jafnar, 14:14. — Þá voru 8 mín. til leiksloka. Tékkarnir misstu samt aldrei forystuna og skora tvö mörk, en Gunnlaugur hafði „síðasta orðið“, skoraði úr vítaspyrnu. Lokastaðan varð 16:15. Markmaður Tékka varði af hreinni snilld. (Myndirnar tók Sveinn Þórmóðsson) örlaði ekki á vilja hjá því til að berjast framan af. Tékkarnir tóku frumkvæðið með rólegum leik — höfðu örugga forystu i mörkum og allri sókn og höfðu greinilega undirtökin í viður- eigninni. Smá saman uku þeir forskot sitt og í hálfleik stóð 11:7. Ofan á báráttuleysið bættist það hjá Reykjavíkurliðinu, að skotin voru ónákvæm. Þannig átti Reykjavíkurliðið 5 stangar- skot í hálfleiknum. ic Hrista af sér slenið í byrjun seinni hálfleiks héldu Tékkamir áfram frum- kvæðinu og komust upp í sex marka forskot, 13:7 En að því kom að Reykja- víkurliðið hristi af sér sleniðStefán segja. ★ Liðin Reykjavíkurliðið fékk mun minna út úr leik sínum en ætla hefði mátt miðað við síð- ari hálfleikinn. Feimnin við gestina og fyrirfram ákveðinn ósigur fyrir þeim dró máttinn úr liðinu. En þegar á leið og feimnin hvarf kom styrkur liðs- ins í Ijós. Liðið vann síðari hálf leik með 8 gegn 5. Það sýnir að úthald þess var í lagi og kunn- áttan. Það var hikið og fálmið í upphafi, sem réð úrslitum. — Bezti maður liðsins var Gunnlaugur — markhæstur og bezt leikandi. Guðjón átti og prýðisgóðan leik. Nafnarnir Karl Jóhannsson og Karl Benedikts- son féllu ekki í liðið sem sín eigin lið. Sama má reyndar um Heinz, Hermann, Rejmi og lleinz komst i færi, en var hindraður. Tékkarnir áttu lengst af ró- legan leik og kærðu sig ekki um að auka hraða hans í upp- hafi. En svo fór að þeir máttu taka á sínu bezta. Samt höfðu þeir aldrei sérstaka yfirburði yfir þetta heldur misheppnaða úrvalslið. Beztir voru Provaz- nik, Ruza, Kukla og Gregoraivc að ógleymdum markverðinum Stekl, sem varði af hremni snilld. Snerpa hans er meiri en allra markvarða er að Háloga- landi hafa sézt, öryggi hans, ró- semi er frábær. Mörk Reykjavíkur skoruðu Gunnlaugur 8 (þar af 4 úr víta- köstum), Karl 4, Guðjón 2 og Reynir 1. — Mörk Tékkanna skoruðu Ruza- (1 úr víti), Greg- orovic 3, Sobora, Kukla og Vanecek 2 hver og Provaznik úr víti. Dómari var Hannes Sigurðs- son og sló töluvert af ná- kvæmninni, sem hann viðhafði í upphafi, þegar á leið leikinn. — A. St. Þrír ÍR-ingar bítast um knöttinn við körfu Ármanns. Körfuknattleiksmótið: ÍR sigraúi Ármann með yfir- buróum eftir jafna byrjun Harður leikur á laugardag KÖRFUKNATTLEIKSMÓT Reykjavíkur héit áfram aö Hálogalandi á laugardags- kvöldið. í 2. flokki sigraði KR ÍR-b með 58 stigum gegn 30 og í meistaraflokki sigraði ÍR með 60 stigum gegn 39 stigum Ármanns. KR—iR-b 58:30 (27:16) KR-ingar unnu auðveldan sig- ur yfir B-liði ÍR í 2. flokki. Leikurinn var prúðmannlega leikinn af beggja hálfu, en ekki gat hann talist spennandi, til þess voru yfirburðir KR of miklir. • Stigahæstir KR-inga voru Halldór Sigurðsson með 17 stig, Jón Otti Ólafsson með 14 og Guttormur Ólafsson með 10 stig. Skúli og Sveinn áttu einn- ig góðan leik. Stighæstir ÍR-ingar voru Helgi Hólm og Kristján Eyjólfs son með 8 stig hvor. Dómarar voru Sigurður Guð- mundsson og Marinó Sveinsson og dæmdu vel. ÍR—Ármann, meistaraflokkur, 60—39 (17:17) Islandsmeistaramir byrjuðu af miklum krafti og höfðu skorað 10 stig áður en Lárusi tókst að skora fyrstu körfuna fyrir Ár- mann. Talsverðs taugaóstyrks virtist gæta hjá Armenningum framan af hálfleiknum, en um miðjan hálfleikinn fóru þeir að sækja í sig veðrið og skoruðu 11 stig á meðan ÍR bætti aðeins einu stigi við sig úr vítakasti. Hálfleiknum lauk með jafn- tefli, 17:17, sem voru réttlát ur- slit, en lág stigatala er það hjá meistaraflokksliðum. Leikurinn var nokkuð grófur á báða bóga og mikið dæmt af vítum, en bæði liðin voru mjög óheppin með vítaköstin. Strax í byrjun síðari hálf- leiks færðist aukin harka í leik- inn. ÍR-ingar léku maður gegn manni og fóru nú að „pressa“ og sækja eftir knettinum alveg upp að körfu mótherja. Með slíkri leikaðferð er alltaf hætta á grófum leik og því áríðandi að dómurum takist að halda leiknum niðri. Þetta tókst þvi miður ekki og höfðu dómararn- ir hvergi nærri fullt vald á leiknum. Allmikið sást nú af hrinding- um og hindrunum, sem ekki var dæmt á. Einkum fannst mér áberandi hve vægt var tekið á bakvörn, sem hindrar eðlilegar hreyfingar leikmanns, sem er með knöttinn. Þegar Ieikar stóðu 27:24 fyrir ÍR, varð Birgir Birgis að yfir- gefa leikvöllinn þar sem hann hafði hlotið 5 víti. Við þetta virtust Ármenningar missa móð- inn, enda var Hörður með 4 víti og varð að fara varlega í sakirnar. Islandsmeistararnir tóku nú leikinn meira og meira í sínar hendur og var engann bilbug á þeim að finna þótt bæði Helgi Jóhannsson og Guðmundur Þor- steinsson yrðu að yfirgefa völl- inn með 5 víti. Leiknum lauk með stærri sigri iR, en á horfðist í fyrstu. Lið Ármanns var að mestjl skipað sömu mönnum og gegn 2. flokki ÍR, nema hvað Davíð Helgason lék nú ekki með vegna meiðsla. I stað Davíðs kom hinn 15 ára gamli Guðmundur Gísia- son, sem átti góðan leik og skoraði 6 stig. Lárus Lárusson var beztur Ármenninga með 11 stig og Árni átti einnig mjög góðan leik og skoraði 6 stig. — Hörður og Birgir hafa oft verið betri. ÍR-liðið sýndi nú óvenjulega grófan og lélegan leik. Það var ólíkt skemmtilegra að sjá þetta lið leika gegn flugvallarúrval- inu á dögunum. Þorsteinn Hall- grímsson var sem fyrr beztur með 22 stig og Hólmsteinn, sem skoraði 15 stig, er í stöðugri framför. Aðrir leikmenn voru fyrir neðan sína venjulegu getu. Ragnar Jónsson mun vera góður handknattleiksmaður, en hann er áberandi grófur leik- maður í körfuknattleik. Dómarar voru Ingi Þorsteins- son og Ásbjörn Eyjólfsson. Það mun hafa verið mjög erfitt að dæma þennan leik, enda virtust dómararnir missa tökin á hon- um í síðari hálfleik. BÞ. Hondknattleiksmótið HANDKNATTLEIKSMÓT Rvik- ur hélt áfram á sunnudagir.n. I 2. fl. kvenna vann Armann KR með 11:5 og í 1. fl. kvenna sigr- aði Ármann Víking 5:0. Fimm leikir fóru fram í 3. fl. karla. Valur vann lR 9:3 KR vann Ármann 6:4, KR vann Þrótt 7:2, ÍR vann Armann 5.4 og Valur og Víkingur skildu jafnir, skoruðu 8 mörx hvor. I 2. fl. karla fóru fram þrir leikir. Víkingur vann KR 10:6, Frarn vann Þrótt 10:5 og Arrnann vann ÍR 10:2. Skemmtilegustu leikirnir voru 3. fl. leikir Ármann og ÍR og leikur Vals og Víkings. Þegar 5 mín. voru eftir af leiknum höfðu Víkingar 5 mörk yfir, en 'V als- drengjunum tókst að íafna á síð- ustu sekúndum leiksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.