Morgunblaðið - 17.12.1960, Qupperneq 14
14
MORCUN31. AÐIÐ
Laugardagur 17. des. 1960
. ÆL'sogo kunnrar reíaskyttu
Bókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri hefir látið frá sér fara
æfiminningar Guðmundar Einars
sonar á Brekku á Ingjaldssandi
við önundarfjörð, ritaðar af
Theodór Gunnlaugssyni frá
Bjarmalandi. Nefnist bókin „Nú
brosir nóttin“.
f inngangsorðum segir höfund
ur svo um söguhetju sína:
„Hann er sá merkilegasti mað-
ur, sem ég hefi kynnzt um dag-
ana, og er þá mikið sagt. Bréfin
frá honum, og það sem þeim
fylgdi ,hefir oft minnt mig á
hinn forvitra Njál og einnig á
göfuglyndi Ingimundar gamla.
Og hæfni hans, áræði og skjót-
leiki minnir þráfaldlega á ýmsar
söguhetjur vorar. Er þá ekki nóg
komið, lesandi góður, til að
vekja athygli þína á íslenzkum
afburðamanni. Síðar mun ég
finna þessum orðum mínum stað.
Æfisöguþætti þessa hefir Theo
dór samið að miklu leyti upp úr
sendibréfutn Guðmundar, en þeir
hafa um mörg ár haft bréfa-
skipti.
Líklegt má telja að rriarga
muni fýsa að lesa þessa bók, ekki
hvað síst kafla þá, er fjalla um
viðskiptin við rebba en þar fjalla
fagmenn um efnið. Guðmundur
lá tæplega 2500 sinnum á greni
og er einhver kunnasta refa-
skytta þessa lands.
Annars fjallar þessi skemmti-
lega bók um margt þótt í brotum
sé.
Galdra-Loftur
jólaleikrit
á Sauðárkróki
SAUÐÁRKRÓKI, 15. des. —
Jólaleikrit Leikfélags Sauðár-
króks er að þessu sinni Galdra-
Loftur, eftir Jóhann Sigurjóns-
son. Leikstjóri er Eyþór Stefáns-
son. Leikurinn var frumsýndur
sl. þriðjudagskvöld í félagsheim-
ilinu Bifröst við ágætar undir-
tektir áhorfenda. Áður en sýn-
ingin hófst flutti Björn Daníeís-
son, skólastjóri, erindi um höf-
undinn og verk hans. Þá lék Ey-
þór Stefánssos orgelverk, sem
hann hafði samið í tilefni þessar-
ar leiksýningar.
Aðalhlutverkin eru leikin af
Kára Jónssyni, sem leikur Loft,
Helgu Hannesdóttur, sem leikur
Steinunni, Hrafnhildi Stefánsdótt
ur, sem leikur Disu biskupsdótt-
ur og Kristjáni Skarphéðinssyni,
sem leikur Ólaf. Leiktjöld gerðu
þeir Jónas Þór Pálsson og Hauk-
ur Stefánsson.
Næsta sýning verður væntan-
lega á annan jóladag. — Guðjón.
Hjá okkur eru skór wð allra hæfi
Handa honum: Inniskór, götuskór, vinnuskór og spariskór
Handa henni: Inniskór, töflur með háum hæl, lágum hæl og sléttbotnaðir.
ítaló-kvenskól og nokkrar gerðir af enskum,
' spönskum kvenskóm
Handa barninu: Lakkskór, uppreimaðir skór, enskir og hollenzkir,
spánskir skór og inniskór.
Verð, gerðir og gæði
við allra hæfi
Aðalstræti S, sími 18514 — Laugaveg 29 Aðalstræti 8, sími 18514 — laugavegi 20,