Morgunblaðið - 17.12.1960, Síða 18

Morgunblaðið - 17.12.1960, Síða 18
18 MORGXJNBLAÐIÐ Laugardagur 17. des. 1960 Bóel Erlendsdóttir frá Hlíóarenda JARÐARFÖR hennar fór fram, þ. 29. október síðastliðinn að Hlíð arenda að viðstöddu miklu fjöl- menni. Er ég nú minnist frænku minnar, vil ég lýsa því, er henni var helgast með hendingum þess í nafni trúar, nafni vonar. Hún man sinn frið, i fræðum Krists Guðssonar. Of hann var hennar lífsins lind, svo ljúf og heilög fyrirmynd. Síldin stendur djúpt AKRANESI, 15. des.: — Hingað bráust rúmlega 1000 tunnur síld- ar i dag. Aflahæstur var Sigurð- ur með 400 tunnur. Þá Sigurvon með 300 tunnur, Höfrungur 1. með 200 tunnur og Höfrungur II. með 100 tunnur. Hinir voru með minni afla. Sildin veiddizt í Mið nessjó, og er allgóð, svo hún er öll söltuð. En hún stendur djúpt og örðugt að ná henni. Flestir fóru út aftur. Sæljónið, einn af fimm bátum, sem réru, er komin að og fiskaði 1070 kg. — Oddur. 1 Það er Drottins gjöf að hafa orðið t:l og eignast hlutdeild í lífinu og að enduðu ævi- starfi skilja þá eftir sig gróður er ber ávöxt til blessunar. Bóel var fædd 1. október 1878 að Hlíðarenda í Fljótshlíð, þeim sögufræga stað. Hún andaðist 21. október síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Erlendur Erlends- son Árnasonar hreppstjóra þar og Margrét Guðmundsdóttir, ætt uð úr Garði i Gullbringusýslu. Bóel ólst upp hjá foreldrum sínum á Hlíðarenda og gekk þar að öllum algengum sveitastörf- um eins og þá gerðist, glaðlynd, tápmikil fríðleiks stúlka. | tápmikil fríðleiksstúlka. í faðmi hinnar stórbrotnu feg- urðar, ólst hún upp, lék sér barn um hlíðar brekkurnar, batt sér festar úr fíflum og sól- eyjum, skreyttum með blá- gresi, því að fín vildi hún vera frammi fyrir fossun- um, þeir sungu svo fallega og svo voru þeir táðir úr tárum svo sem þeir ættu að vera ivaf í lífið sjálft. Snemma hneigðist hugur hennar til trúrækni. Móðir henn- ar Margrét kenndi börnum sín- um ungum fagrar bænir og sálma, og var siáminnandj um trúmennsku í orði og verki. Bóel var söngelsk sem hún átti kyn til, söng í Hlíðarendakirkju og hafði fagra rödd. Árið 1900 giftist hún Jóni Ingvarssyni bókbindara frá Neðra-Dal í Vestur-Eyjafjalla- hreppi og hófu þau þar búskap að þrem árum liðnum, en þá urðu foreldrar hennar og fjölskylda fyrir þeirri djúpu sorg að dóttir þeirra Jngibjörg, efnisstúlka 19 ára, varð bráðkvödd. Til huggun ar og styrktar flytja þau þá að Hlíðarenda og voru þar í þrjú ár. Þá tóku þau jörðina Borgar- eyrar í Vestur-Eyjafjallahreppi til ábúðar og bjuggu þar um 40 ára skeið. Mann sinn missti Bóelárið 1950. Þau hjón eignuðust 5 mann- vænleg börn, Júlíus dó í æsku | hin eru Guðmundur bóndi Ossa- j bæ, Austur-Landeyjum, giftur I Jónínu Jónsdóttur, Markús söðla smiður Borgareyrum giftur Sig- ríði Magnúsdóttur, ísleif gift Árna Sigurðssyni Bjarkarlandi, og Sigríður gift Arnóri Hansen Reykjavik. Aldrei urðu þau hjón rik af þessa heims auð en voru sjálf- bjarga, gestrisin og hjápfús. Skemmtilegt var að heimsækja þau, þar voru allir svo hjartan- lega velkomnir. Bóel var vel skynsöm og sómdi sér vel í stétt hþsmæðra. Eins og áður er sagt var hún trú- uð, lagði stund á að kenna börn- um sinum kristindóm og hátt- prýði. Hún var til fyrirmyndar um jólahald. Og munu börn hennar aldrei gleyma hvað hátíð j legt var í foreldrahúsum. Og ( hvað móðurmálið var fallegt frá ■ hennar kærleiksríka hjarta. Síð- I ustu árin sem maður hennar lifði var hann sjúklingur og oft sárþjáður. Þá reyndi á krafta Bóelar allar stundir, dag og nótt veitti hún honum þá hjúkrun sem auðið var með rólyndi | þeirra, er Guði treysta. Hún dvaldi síðustu árin hjá börnum sínum lengst af hjá Sigríði og manni hennar Arnóri er veittu henni ástúð og umhyggju sem bezt mátti vera. Hún skrapp á fornar slóðir meðan heilsa entist og fékk að kveðja þennan heim í nálægð barna sinna þar. öll vildu börn hennar létta henni lífið og sýndu henni ástríki. Nú heldur hún heilög jól með ástvinum sínum, er áður voru farnir, jól i dýrðarríki hans þar sem máttur kærleikans ríkir. Og syngur með englum Guðs lofsöng til lifgj afans. Börn, systkin og vinir allir þakka ævistarf henn- ar og geyma fagrar minningar um góða konu. Nói Kristjánsson, ÁvaxtakLaup í túbum til að skreyta með tertur o.fl. . ÞRÍR LITIB L..II I|9I1 Wl ■ /r tMBOÐS- 1 IIEILDVEIIZLUN SKIPHOLTI 1 SÍMAR: *S7 37 — IM7I 8PARIÐ og kaupið EHGLI8H ELECTHIC Sjálfvirku þvottavélarnar og þurrkar- arnir eru ENGLISH ELECTRIC sem byggð eru eftir amerískum sérleyfum. Berið saman verð á English Electric og öðrum gerðum og komist að raun um að þér sparið yður allt að kr. 8.500,00 per samstæðn. English Electric Liberator Þvottavél kr. 15.903,75. Gerið kaupin þar sem verðin ern hagstæðust! Hagkvæmir greiðsluskilmálar. «»K 14 Laugavegi 178, Reykjavík. Heimkeyrsla á vörum — Verzlunin Selás Kartöflur í 5 kg pokum - Sími 22050

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.