Morgunblaðið - 23.12.1960, Qupperneq 1
24 síður
47. árgangur
295. tbl. — Föstudagur 23. desember 1960
Prentsmiðis Worgunblaðsina
Rekur
bróð-
ursinn
hondon, 22. des. — (Reuter)
SAUD Arabíukonungur vék
■tjórn bróður síns, Faisals, í
gær frá völdum. í dag skip-
aði hann nýja stjórn. Saud
konungur sjálfur fer með
embætti forsætisráðherra, en
í embætti utanríkisráðherra
hefur verið skipaður maður
•ð nafni Ibraham Al-Seway-
•1, sem að undanförnu hefur
verið sendiherra í írak.
Falsal vildi sparnað
Það hefur lengi verið vitað,
að deilur hafa staðið milli
bræðranna Saud og Faisals.
Saud fól Faisal stjórnarmynd-
un í marz 1958 í fjárhags-
kreppu sem reið yfir ríkið.
Hefur Faisal krafizt þess að
fjárlög væru samþykkt, sem
aldrei hafði tíðkazt undir ein
valdsstjórn Sauds og síðan
hefur hann þvingað konung
og höfðingja til að draga úr
eyðslu sinni.
Nasser eða Kassem
Þá hefur bræðurna og greint á
1 utanríkisstefnu landsins. Faisal
hefur gerzt stuðningsmaður Nass
ers forseta Egyptalands og er
mjög hlynntur þeirri sameining-
arstefnu Araba, sem Egyptar
beita sér fyrir. Saud hefur á hinn
bóginn tekið Kassem forsætisráð
herra fraks fram yfir Nasser.
Lausafregnir frá Mekka herma
að Saud konungur telji ekki nóg
að gert með því að svipta Faisal
ráðherradómi, heldur vilji hann
einnig svipta hann titli sem krón
prins Arabíu og útiloka að hann
fái erft ríkið. Sé það rétt Virðast
alger vinslit orðin milli bræðr-
anna.
Haonerro
komínn heim
GUÐMUNDUR I Guð-
mundsson utanríklsráðherra
kom heim í gærdag með
flugvél flugfélagsins frá
Giasgow. Henrik Sv. Björns
son ráðuneytisstjóri tók á
móti honum á flugvellinum.
Ráðherrann vildi ekkert
tala við fréttamann Mbl.
um utanför sína.
Afli togaranna 38 prs.
minni i ár en á vinstri
stjórnartímanum
BÆÐI Á ALÞINGI og í blöðum sínum hafa andstæðingar
ríkisstjórnarinnar undanfarið mjög klifað á því, að allt tal
um aflaleysi á þessu ári væri algerlega út í hött. Hafa þeir
reynt að sanna þessa staðhæfingu sína með tölum, en þá að
jafnaði gripið til þess hreinlega að falsa tölur eða hagræða
þeim þannig, að þær gætu stutt málflutning þeirra.
Nýjasta dæmið er að finna í Tímanum í gær, þar sem
forystugrein blaðsins er helguð þessari iðju, undir fyrir-
sögninni „Sannleikurinn um fiskaflann“. Enn er reynt að
blekkja með því að birta aflatölur án þess að taka nokkurt
tillit til breyttra aðstæðna, svo sem þess, að fiskiskipaflot-
inn hefur stóraukizt á undanförnum árum og veiði- og
fiskileitartækni hefur fleygt fram.
0 Aflabrestur togaranna
En hvað er nú hið rétta í þessu
efni? Hver verður aflinn á þessu
ári, sem er að líða og hvernig
hefir hann verið árin áður?
Morgunblaðið hefur aflað sér
upplýsinga um þessi atriði og
fara þær hér á eftir:
Gera má ráð fyrir, að heild
arafli togaranna á þessu ári
verði um 110 þús. smál. Með-
alafli togaranna þau tvö heilu
ár, 1957 og 1958, sem vinstri
stjórnin sat að völdum, en það
er sá samanburður, sem Tím-
inn notar, var 176 þús. smál.
Afli togaranna verður því
Lnn bar izt í Add-
is Ababa
Addis Abába, 22. des. (Reuter)
SVEITIR uppreisnarmanna,
sem höfðu leynzt í fjöllunum
kringum höfuðborg Eþíópíu,
hófu í gærkvöldi gagnárás. —
Þær komu ofan úr fjöllunum
og sóttu inn í borgina. Tókst
bar harður bardagi skammt
frá keisarahöllinni, sem lykt-
aði með því að uppreisnar-
menn voru yfirbugaðir. Þar
voru handteknir tveir af for-
ingjum uppreisnarmanna.
Þeir, sem þama voru fangaðir,
nefnast Bekele, er var siglinga-
málaráðherra í stjóm uppreisn-
armanna og Deferess, er var
upplýsingamálaráðherra í sömu
stjórn.
Frh. á bls. 23
38% minni í ár en á fyrr-
greindu tímabili vinstri stjóm
arinnar. Það jafngildir því, að
tekjurýrnun togaraflotans
vegna aflabrestsins nemi yfir
150 milljón kr. en það sam-
svarar meira en 3 millj. kr. á
hvern togara til jafnaðar.
I þessum tölum er þó ekki
tekið tillit til þess, að á þessu
ári hafa komið til landsins 5
nýir togarar, en úthaldstími
þeirra samsvarar því, að tveir
togarar hefðu verið gerðir út
allt árið.
Aflarýrnun togaranna hefir því
raunverulega orðið mun meiri en
ofannefndar tölur gefa til kynna.
Ef athugaðar eru aflatölur enn
lengra aftur í tímann kemur í
ljós, að fara verður allt aftur til
ársins 1947 til þess að finna ihinni
ársafla togaraflotans en verður
á þessu ári, og meðalafli togar-
anna á 12 ára tímabilinu fyrir
1960 þ. e. 1948—1959 var um 170
þús. smál. og aflinn á árinu 1960
verður því aðeins um 54% af
þessu meðaltali. Allar sýna þess-
ar tölur hversu gífurlegt áfall
Frh. á bls. 23
f LOK síðustu viku var
haldinn í París ráðherra-
fundur Atlantshafsbanda-
lagsins. Þar voru saman
komnir ráðherrar frá öll-
um 15 þátttökuríkjum
NATO. Fundirnir voru
haldnir í hinum nýlegu
höfuðstöðvum samtakanna.
Á myndinni sér yfir fund-
arsalinn. Spaak framkvstj.
NATO er fyrir miðju í bak-
sýn. Fulltrúar Islands, þeir
Hans G. Andersen, Guð-
mundur í. Guðmundsson og
Agnar Kl. Jónsson snúa
baki í ljósmyndarann lengst
til hægri.
Flugslys
á Filippseyjum
MANILA 22. des. (Reuter) —.
Carlos P. Garcia forseti Filipps-
eyja hefur um stundarsakir
lagt bann við öllu næturflugi
yfir ríkinu. Gaf hann út tilskip-
un um þetta eftir að farþega-
flugvél fórst á eynni Cebu, um
500 km SA af Manila höfuðborg
eyjanna. Þar létu lífið 28 manns.
Sænskur auðjöfur býður
SAS 110 millj. krónur
Það segir þó lítið í erfiðleikum félagsins
Kaupmannahöfn, 21. des.
SKANDINAVÍSKA flugfé-
lagið SAS er að komast í gíf-
urlega fjárþröng vegna hins
mikla kostnaðar við að taka
upp farþegaþotur. Tókst svo
illa til hjá félaginu, að það
hefur haft sáralítið upp úr
sölu á eldri flugvélum. M. a.
tapaði félagið 80 millj. d. kr.
eða 440 millj. ísl. kr. á að
selja mexíkönsku félagi eldri
flugvélar sínar, en það félag
hefur síðan farið á hausinn.
• Tilboð Wallenbergs
Forráðamenn SAS hafa setið á
löngum fundum til að ræða erf-
iðleikana. Helzta leiðin virðist
vera sú að tvöfalda höfuðstól fé-
lagsins úr 200 milljón dönskum
krónum í 400 milljónir. En gall-
inn er bara sá, að enginn áhugi
virðist fyrir að kaupa hlutabréf-
in. Fyrir liggur loforð um kaup
á aðeins 20 milljón kr. hlutabréf-
um og það allt frá einum manni.
Það er sænskur auðjöfur,
Marcus Wallenberg, sem hefur
boðizt til að kaupa ný hlutabréf
í félaginu fyrir 20 milljón dansk-
ar krónur eða 110 milljón ísL kr.
Wallenberg á sæti í stjórn SAS
og hafa dönsk blöð að undan-
förnu ráðizt harkalega á hann
fyrir að hann eigi mestu sökina
á braskinu í Mexíkó, sem fékk
verstan endi. Það var hann sem
barðist fyrir því að eldri flug-
vélarnar yrðu seldar til Mexíkó.
Hafa dönsku blöðin svo sem BT
kallað hann, manninn sem sóaði
80 milljónum frá SAS og býður
nú 20 milljónir.
• Ráffherrar tregir
Nýlega komu samgöngumáVa-
ráðherrar Danmerkur, Noregs og
Framh. á bls. 23