Morgunblaðið - 23.12.1960, Page 10

Morgunblaðið - 23.12.1960, Page 10
10 MORCUNBT 4ÐTÐ Föstudagur 23. des. 1960 VEGG-ELDHÚSVOGIR allir litir „Flamingo“ STRAUJÁRN með hitastilli og hitamæli. STRAUBRETTI m/snúruhaldara og strau- járnsbakka. ERMABRETTI SNÚRUHALDARAR stakir HRÆRIVÉLAR RAFMAGNS-PÖNNLR m/hitastilli BRAUÐRISTAR HRAÐSUÐUKATLAR RAFMAGNS-KAFFI- KVARNIR sem mala í könn una á 10 sek. BRAUÐ- og ÁLEGGS- HNÍFAR m/sleða. — Feir vönduðustu á markaðinum. EIIMGÖNGIJ LRVALS VÖRIJR Opið til miðnættis/ Bílastæði fyrir viðskiptavinina. O KORNERUP MANSEN SÍMI 1-26-06 • SUÐURGÖTU 10 FALLEG PRJÓNAVESTI hneppt og með rennilás. ESTRELLA-SKYRTUR hvítar með hnepptum og tvö földum manchettum. GÆRUÚLPUR og ytra byrði KARLMANNAHANZKAR loðskinnsfóðraðir, einnig með prjónuðu hand- arbaki og skirðii í iófa. TERYLINE—karlmannabindi gott úrval. Barnafatnaður Þýzkur. — Soðin ull, litekta. f 1 Austurstræti 12. MINERVA — skyrtur úr sísléttu poplíni. Strauning óþörf. OLD SPICE snyrtivörur — gamla verðið Marteihi LAUGAVEG 31 Jólagjöf konunnar er GLAMORENE teppa- hreinsarinn Aðeins kr. 3/3,50 Regnboginn Bankastræti 7 — Sími 22135 Norðurleið Til Akureyrar. Dagiegar ferðir til jóla Síða#ta ferð á Þorláks- messu. Anna Kristín Aradóttir F. 30. des. 1891. D. 17 des 1960 1 DAG, 23. des 1960 verður gerð útför Önnu frá Þverhamrj — undir því nafni gekk hún dag- lega, þótt hún bæri nafn ömmu sinna beggja. Foreldrar hennar voru Ingi- björg Högnadóttir frá Skriðu í Breiðdal og Ari Brynjólfsson alþm. á Þverhamri. Móðir Ara hét Anna Aradóttir, en móðir Ingibjargar var Kristín, dóttir séra Snorra Brynjólfssonar í Heydölum. Hugurinn reikar nær sjö ára- tugi aftur í tímann til æsku- stöðva hennar, dalsins fagra, Breiðdalsins, og æskuheimilis- ins undir svipmikilli hamrahlíð, .upp frá fögrum sjávarboga, en myndauðug, tignarleg austur- fjöll Breiððalsins blasa við auga í fjarsýn. Þessa sviphreinu mynd frá æskuárunum og þroskaárun- um bar hún æ í huga og unni heitt til hinztu stundar, þótt atvikin bæru hana þaðan burtu. Minningarnar um æsku hennar í faðmi ástríkra foreldra og með ástkærri eldri systur voru henni alla tíð sem helg vé. Á mannmörgu myndarheimili foreldranna uxu upp þessar tvær systur, báðar glæsilegar og gáfaðar, sem þær áttu kyn til, en ólíkar að ásýnd. Eldri systirin, Rósa, ljóshærð og björt yfirlitum, sú yngri, Anna, svart hærð. svipmikil og sviphrein, með einhver fegurstu augu, sem sem ég hef séð. Sagt er að „aug- un séu spegill sálarinnar“. — Anna átti líka fagra og göfuga sál. Veturna 1910—12 stundaði Anna nám í Kvennaskólanum í Reykjavík. Átti hún margar hugljúfar minningar frá þeim tíma og órjúfandi vináttubönd voru þar tengd við margar skóla systur hennar. Að loknu námi í Kvennaskól- anum gerðist Anna heimilis- kennari á Selnesi í Breiðdal og eftir það annaðist hún barna- kennslu í sveit sinni til ársins 1917, en veturinn 1915, var hún á námskeiði í Kennaraskólanum og tók þá kennarapróf. Á miðju sumri 1916 (16. júlí) giftist Anna eftirlifandi manni sínum, búfræðikandidat Þor- steini Stefánssyni prests á Hjaltastað, Péturssonar. Eignuð- ust þau fjögur börn, öll efnileg og vel af guði gerð, eru þau gift og búsett hér í Reykjavík. Anna og Þorsteinn settust að i búi með foreldrum hennar á Þverhamri og bjuggu þar við mikla rausn um 20 ára skeið. — Var jafnan mjög gestkvæmt á i heimili þeirra hjóna. Þorsteinn varð brátt bæði hreppstjóri og oddviti sveitarinnar, þurftu því margir við hann að ræða, auk þess voru hjónin gestrisin og skemmtileg heim að sækja. Þeir, sem sjúkir voru og hjálp ar þurftu með á einn eða annan hátt áttu öruggt athvarf á heim ili Önnu og Þorsteins. Sjúkling- ar dvöldu þar tímum og jafnvel árum saman. Öllu þessu fólki hjúkraði Anna með frábærri nærfærni og alúð. Félags og menningarmál sveit arinnar lét Anna sig miktu j skipta og lagði þar fram krafta sína. Á mannamótum og skemmti- samkomum sveitarinnar skemmti hún með upplestri og stjórnaði leiksýningum. Barnakennslan var Önnu jafn- an hugleikin. 1928—1930 hafði hún barnakennslu á heimili sínu kenndi þar milli 10 og 20 börn- um og auk þess borðuðu þau há- degismat hjá henni. Öll þessi umsvifamiklu störf reyndu að sjálfsögðu mjög á krafta húsmóðurinnar, en hún gætti þess ekki sem skyldi; henni var tamara að hugsa um aðra en sjálfa sig. Haustið 1933 veiktist Anna skyndilega og mjög alvarlega, beið hún þess aldrei bætur síð- an. Af þeim sökum fluttu þau hjónin frá Þverhamri vorið 1935 að Setbergi við Hafnarfjörð, þaðan 1938 að smábýlinu Hauka landi við Öskjuhlíðina og þegar það varð í uppnámi vegna flug vallarins, settust þau að hér i bænum á Hrísateig 8. Þrátt fyrir mikla vanheilsu, sem hefði fyrir mörgum árum verið búin að leggja þrekminni manneskju í rúmið eða jafnvel I gröfina — vann Anna mikið fyrir sitt heimili og þar var jafn an sama gestrisnin og myndar- bragurinn á öllum hlutum, sem frá upphafi hafði einkennt heim ilið. „Enginn má sköpum renna", þar kom að lokum að sjúkdóm- arnir brutu niður þessa sterku og kjarkmiklu konu, bjarta bro* ið hennar sást nú ekki lengur, i fótavist hafði hún samt öðru hverju, þar til fyrir þremur mánuðum að hún varð fyrir þvl að detta og meiða sig í baki. — Nokkrum dögum síðar fór hún í sjúkrahúsið Sólvang í Hafn- arfirði. Þar andaðist hún þann 17. þ. m. ★ Anna átti einlæga og óbilandi trú á góðan guð, sem öllu stjórnar af sinni alvizku; hún kveið ekki dauða sínum. Allir, sem þekktu Önnu, sakna hennar sárt og þeir mest, sem þekktu hana bezt. En sælt er líka að vita að nú er hún laus við þrautir og þjáningar, og hugljúfar minningar verma ást- vinina. Blessuð sé minning hennar. Halldóra Sigfúsdóttir. Starí við útílutningsverz'un Rótgróið innflutningsfirma sem ennfremur hefir fengizt við útflutning á undanförnum árum, hefir áhuga á að auka þessa starfsemi. í þessu augnamiði óskar það eftir að komast í sam- band við mann, er hefir þekkingu og reynslu í þessu sambandi og áhuga á því að starfa sjálfstætt að þessum málum innan vébanda firmans, eftir nán- ara samkomulagi. Tilboð merkt „íslenzkar afurðir — 1475“, sendist afgr. Mbl. — Fyllstu þagmælsku heitið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.