Morgunblaðið - 28.12.1960, Page 8

Morgunblaðið - 28.12.1960, Page 8
8 MORcrnvnrAfíiÐ Miðvikudagur 28. des. 1960 Jólin úti á landi Misjafnt jólaveður, góð kirkjusókn — fjöldi barna skirður JÓLAVEÐRIÐ var talsvert misjafnt á hinum ýmsu stöð- um á landinu, hvít jól og gott veður fyrir sunnan, bleytu- hríð víða á Vestfjörðum og fyrir norðan og hríðarbylur víða á Austfjörðum. Nokkrir fréttaritarar blaðsins úti á iandi símuðu fregnir af jólunum í sínum byggðarlögum, en símasambandslaust var við Norðausturlandið í gær, eins og skýrt er frá á Öðrum stað í blaðinu. A Akureyri AKUREYRI, 27. des. — Á að- fangadagskvöld var fallegt veð- ur hér, frosinn snjór yfir öllu. En á jóladag fór að þykkna í lofti og þá hlýnaði nokkuð og um kvöldið var komin nokkur snjókoma og slydda, sem síðan hefur haldizt. Mikil mergð skipa liggur nú í Akureyrarhöfn, sum vegna jólahátiðarinnar, önnur vegna veðurs. Slökkvilið Akur- eyrar var aldrei kvatt út um jólin og munu þess fá dæmi. Messað var í Akureyrarkirkju kl. 6 á aðfangadagskvöld og var svo mikil kirkjusókn að fólk varð frá að hverfa. Munu um 600 manns hafa verið í kirkj- unni. Einnig var messað á jóla- dag og annan í jólum og var kirkjan yfirfull í bæði skiptin. Sama er að segja um Lögmanns- hlíðarkirkju, en þar var messað á jóladag. Kl. 12 á aðfangadags- kvöld var lágmessa í kapellunni og var þar einnig fjölmenni. Um hátíðarnar voru gefin saman á annan tug hjóna hér á Akureyri og skírð yfir 30 börn, þar af í einu í Akureyrarkirkju 5 börn skipverja á togaranum Hvalbak. Einnig voru skírðir einir þríburar, einu þríburarnir sem hér hafa fæðzt um langt árabil — St. E. Sig. Á Ströndum Hér var leiðinleg veðrátta um jólin, norðarnátt og bleytu- slydda. Ekki var nein jólamessa, því hér er prestslausv. Prófast- urinn er á Hólmavík, en hauga- sjór var um jólin og því ekki fært hingað. Ungmennafélagið ætlar að halda jólafagnað milli jóla og nýjárs. Ætlar Stígur Herlufssen skákmaður úr Hafnarfirði, sem er nýfluttur í byggðarlagið, að tefla hraó'skák og er mikill áhugi hjá unga fólkinu á því, en skólafólk héðan komst allt heim fyrir jólin. Skákmaðurinn er lagður af stað heiman frá Dröngum. Ekki er hægt að fara sjóveg fyrir veðri og lagði hann af stað fótgangandi ásamt konu sinni í morgun og var væntan- legur í Ófeigsfjörð síðdegis í dag. Þá á hann eftir 6—8 tíma ferð í Trékyllisvík. — Regína. Á fsafirði Hér var kalsaveður og snjó- koma um jólin. Ekki er fært neitt nema í bænum-. Messað var hér um jólin að venju og dans- leikur i gær. Og í dag ætla verkalýðsfélögin að hafa jóla- trésskemmtun fyrir börnin. — Guðjón. Á Norðfirði Um jólin var mjög leiðinlegt veður hér. Á aðfangadag gerði ■ snjóbil og á jóladag var komin ■ slydda. Varð af því svo mikil i ófærð að bílar komust ekki um. j Kirkjusókn var dræm vegna ó-. færðarinnar og jóladansleiknum á annan jóladag varð að fresta j vegna veðurs. Óvenjumikið er i að þessu sinni um jólaskreyting- ar utan á húsum hér í kaup- staðnum. — S. L. Á Hornafirði Veðrið var ágætt hér vm jól- in, svolítil snjókoma á aðfanga- dagskvöld, svo þetta gátu talizt hvít jól. Á aðfangadagskvöld var aftansöngur á Höfn, á jóla- dag messað í Bjarnaneskirkju og í Stafafellskirkju á annan jóladag. Var fjölmenni í kirkju og börn skírð. Bærinn er vel skreyttur með ljósum. Annars hafa verið hér jólaboð, eins og gengur, og dans leikur og kvikmyndasýning á annan. — G. S. í Gnúpverjahreppnum Hér var dálítið hvasst og kalt um jólin og snjór yfir öllu. Á jóladag var siæmt veður og skafrenningur, svo að messufall varð á Stóra-Núpi. Annars hafa engar samgöngutruflanir orðið. Fólk fer í heimsóknir eins og venjan er um jólin, en engin jólaskemmtun hefur verið enn. — S. G. Á Egilsstöðum — Hér hefur verið leiðinda- veður öll jólin, norð-austan slydda og bleytuhríð, meira að segja svo að raflínur biluðu hér í grenndinni í gær. Fólk hefur haldið sig heima og látið sér líða vel. Fjallvegir eru hálftepptir. t. d. ekki hægt að fara Fagradal nema á snjóbílum. Annars er mjög jólalegt hér, uppljómað jólatré og margir hafa sett ljós í trén fyrir utan húsin sín. — A. B. Á Akranesi — Á aðfangadag og jóladag var hér frost og svolítið gjóstur, en á annan frostlaust og logn. — Kirkjusókn var hér framúrskar- andi góð um jólin. Sóknarprest- urinn messaði á aðfangadags- kvöld og jóladag og þá var einn- ig skírnarmessa, skírð 16 börn. Dansleikur var haldinn á hótel Akranesi á annan jóladag. Ágerð ist ölvun er á dansleikinn leið, brotin voru tvö klósett og tvær rúður og var einn maður fluttur í fangahúsið ofan við Stekkja- horn. — Oddur. Á Stykkishólmi — Hér var hyasst á norðan og þíða um jólin. Á aðfangadag var messað kl 6 og kaþólsk messa kL 12 á miðnætti. Hér voru róleg jól, — vegir færir víða nema Fróðárheiði, en bíll komst í morg un frá Grafarnesi en færðin er mjög erfið. Skógarstrandarvegur er mjög þungfær. — FréttaritarL í Keflavík — Hér voru ákaflega róleg jól, ekkert kom fyrir yfir hátíðina. Bærinn var prýddur sínum upp- lýstu jólatrjám og símaturninn var einnig ljósum skrýddur. —- Messað var að venju og kirkjan yfirfull á aðfangadagskvöld og jóladag. — Helgi. ÞESSI Egypti sem sést hér á myndinni vera að renna sér á sleða, er 53 ára gamall — en hafði aldrei á ævi sinni augum litið snjó fyrr en hann kom til Danmerkur um miðj- an desember sl. Og hann varð „ástfanginn“ af snjónum — og af Danmörku. Þessi virðulegi Egypti hló og skríkti eins og barn, þegar hann fékk í fyrsta skipti tækifæri til að renna W* LATIÐ EKKI ÁRIÐ LÍÐA ÁN ÞESS AÐ LESA BLAÐ ÍÁLKWS Eiris og barn sér á sleða. Og þeim, sem á horfðu, þótti þetta líka mjög skemmtileg og sérkennileg sjón — enda er það ekki á hverjum degi, sem Arabi í fullum skrúða sést renna sér á sleða, í flaksandi skikkju og með gljáandi silkitúrban á höfði. ★ Egyptinn heitir Shaffy el Gabri og á heima í litlum bæ í grennd við hina frægu pýra- mida. Hann er ,.dragoman“, það er að segja hann skipu- leggur ferðir fyrir erlenda ferðamenn til pýramídanna, til grafar Tut Ankh Amons, fornaldarborgarinnar Memfis o. s. frv. — Frá árinu 1945 hefir Sh-affy el Gabri verið í þjónustu SAS-flugfélagsins, og í þakklætisskyni fyrir veí unnin störf bauð félagið hon- um nú í ferðalag um Skand- inavíu og Danmörku. Hann kom fyrst til Danmerkur, um miðjan desember — og varð stórhrifinn af landinu og öllu því, sem danskt er, eins og fyrr segir. ★ — Þetta er yndislegasta land, sem ég hefi séð, sagði hann við blaðamenn. Og fólk- ið er svo vingjarnlegt og kurteislegt í framkomu. Megi Allah blessa Danmörku, kon- unginn, dönsku þjóðina og fána hennar í þúsundir og aft- ur þúsundir milljóna ára, sagði Shaffy el Gabri og lyfti hægt og virðulega gimstein- um prýddum höhdum sínum. ★ Eftir nokkurra daga dvöl í' Danmörku, hélt svo Egyptinn áfram ferðinni til skandina- visku landanna — og þar geðj aðist honum ekki síður vistin, hvað helzt vegna þess, að þar var enn meiri snjór en í Dan- mörku — og sleðabrekkurnar miklu hærri og brattari. — Um jólin hélt hann svo aftur til Danmerkur, og naut þess að halda „dönsk jól“ í Arós- um .... STtJLKA óskast á lögfræðistofu. — Vélritunarkunnátta nauðsynleg. — Tilboð merkt: „X—1482“, sendist afgr. Mbl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.