Morgunblaðið - 20.01.1961, Blaðsíða 1
24 slður
Bretar vilja alþjóðasátt-
níála um landhelgismál
B R E T A R og Kanadamenn
eru nú að beita sér fyrir því
að fá um þrjátíu vestræn
ríki til að gera með sér sátt-
mála um stærð landhelgi og
fiskveiðilögsögu á höfunum.
Skýrir Llewelyn Chanter,
blaðamaður, frá -þessu í
Daily Telegraph. Hann segir
að umrædd 30 sáttmálaríki
hafi öll greitt atkvæði með
tillögu Bandaríkjanna og
Armstrong
Jones iær
vinnu
LONDON, 19. jan. (Reut-
er) — Anthony Arm-
strong-Jones, eiginmaður
Margrétar Bretaprinsessu,
hefur nú loksins ráðið sig
í vinnu. Hann hefur ráðið
sig starfsmann listiðnaðar-
ráðs brezku iðnaðarsam-
takanna. Þar ber honum
að mæta í vinnuna stuml-
víslega kl. 10 í fyrramál-
ið. —
Bæklstöð ráðsins er í
Haymarket, einni aðalgötu
Lunðúna. Það er aðeins
ráðgefandi stofnun og
framkvæmir ekki sjáif
iðnaðarteikningar. Verk-
efni þess er að hugleiða
stílþróun iðnaðarvarnings
og reyna að samræma
notagildi og fegurð hans.
Armstrong-Jones mun
Frh. á bls. 23
Kanada. — I»au lönd, sem
greiddu atkvæði gegn þeirri
tillögu fá ekki að taka þátt
í sáttmálagerðinni.
VONBRIGÐIN f GENF
Þess er getið í Daily Tele-
graph, að það hafi vakið mikil
vonbrigði Vesturveldanna, að
ekki náðist nægilegt atkvæða-
magn með bandarísk-kanadísku
tillögunni. — Tillagan fékk 54
atkvæði og skorti þá örfá í að
hafa hinn tilskilda % meirihluta
atkvæða. Nú telja Bretar alveg
sjálfsagt, að þessi 54 ríki geri
sáttmála sín á milli um stærð
landhelgi og fiskveiðilögsögu.
Ef svo mörg ríki næðu sam-
komulagi um það, myndi sá
sáttmáli smám saman hljóta
verulegt gildi í alþjóðarétti. —
Bretar vilja þó fyrst í stað að
þau 30 ríki, sem áhugasömust
voru um bandarísk-kanadísku
tillöguna og mestra hagsmuna
hafa að gæta, gerist stofnendur
að slíkum sáttmála. Fleiri gætu
svo bætzt í hópinn.
VERKEFNI KENNEDYS
Að lokum segir Daily Tele-
graph, að eitt af verkefnum
þeim sem bíði John Kennedys,
nýja forsetans í Bandaríkjun-
um, sé að taka landhelgismálin
til nánari athugunar. — Hann
muni að líkindum sjálfur gegna
mikilvægu hlutverki við gerð
fyrrnefnds landhelgissáttmála.
Þess skal að lokum getið, að
Óslóarblaðið Aftenposten spurði
norska utanríkisráðuneytið,
hvort Norðmönnum hefði verið
boðin aðild að landhelgissátt-
mála þeim, sem um ræðir í
fréttinni. Utanríkisráðuneytið
kvaðst ekkert vita um málið.
BÁTARNIR héldu áfram að moka upp síldinni út af
Garðskaga í gær. Ljósmyndari blaðsins, ÓI. K. M.,
flaug út yfir miðin og tók þessar myndir af báta-
flotanum kl. liðlega 3. Leitarskipið Fanney er lengst
til hægri á efri myndinni, og á hinni eru skipverjar
á Ólafi Magnússyni að draga inn nótina. Múkkinn
sýnir að eitthvað er í henni. Sjá nánar á bls. 10—11.
Stjdrn
arskipti
Washington, 19. jan. — (NTB)
EISENHOWER, fráfarandi
forseti, og John Kennedy,.
eftirmaður hans, áttu í kvöld
mikilvægan viðræðufund um
utanríkismál. Við hlið sér
höfðu þeir utanríkisráðherra,
landvarnaráðherra og fjár-
málaráðherra, bæði úr frá-
farandi stjórn og þeirri, sem
tekur við.
Rædd voru fyrst og fremst
vandamál í sambandi við Aust-
ur-Asíu, Afríku, Vestur-Evrópu
og Karíbahafið. Eina innanríkis-
vandamálið, sem tekið var til
meðferðar var minnkandi gull-
forði Bandaríkjanna.
Að fundi loknum kvaðst
Kennedy ánægður með viðræð-
urnar.
Á morgun, föstudag, fara
fram stjórnarskipti í Banda-
ríkjunum. Munu þeir Eisen-
hower og Kennedy þá aka sam-
an til þinghallarinnar og mun
Kennedy vinna embættiseið
sinn, að viðstöddum og aðsjá-
andi miklum mannfjölda.