Morgunblaðið - 20.01.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.01.1961, Blaðsíða 24
Vettvangur er á bls. 13. íþróttir Sjá bfs. 22. 15. tbl. — Föstudagur 20. janúar 1961 Flotinn fékk 30þústunnur Sumír tvíhlóBu á sama sólarhringnum FRÁ því kl. 7 á fimmtudags- kvöld og til jafnlengdar í gærkvöldi, varð afli síldar- bátanna út af Garðskaga alls rúmlega 32.600 tunnur síldar. Tala bátanna fer ört hækk- andi, en í gærkvöldi var vit- að um alls 31 bát, sem síld fékk á þessu sólarhrings- tímabili. síld, en hún stóð þar efcki eins þétt og á aðalveiðisvæðinu. Jakob sagði að síðustu daga hefði síldin heldur sigið í áttina til suðvesturs, frekar dýpkað á sér. Þessi síld er mestmegnis vorigotssíild og virðist mest af henni vera 4—8 ára. Veiðisvæð- ið er frekar tafcmarkað. í gær höfðu Ægismenn verið önnum kafnir við síldarmerking ar. Við merktum 2000 sildar í Síldin á lands- marka&' TVEIK togarar héldu í gær- kvöldi til Þýzkalands full- hlaðnir síld. Þetta eru Röðull og Þormóður goði. Elzta síld- in í þeim var tæplega sólar- hrings gömul. Hún er ísuð og söltuð — og á að koma vel fersk á markaðinn eftir 4—5 sólarhringa. Það er mikilsvert fyrir okk- ur að selja síldaraflann við hæsta fáanlega verð. Þess vegna hafa verið gerðar til- raunir með slíkan útflutning að undanförnu, því veiði Þjóð- verja í Norðursjó hefur verið í lakara lagi og minna um síld á markaðnum en oft áð- ur. Nokkrir togarar hafa tekið slatta af síld til viðbótar við eigin fiskafla. Þeir síðustu fengu allgott verð fyrir þessa síld, að jafnaði um kr. 5,50 fyrir kg. eða 30 pfenniga fyrir pundið. Þetta verð er í hærra lagi á markaðnum'. Stundum fer það nokkuð yfir 30 pfenn- iga, en það hrapar líka allt niður í 20 pfenninga. Við höfum aldrei sent jafn- mikið af ferskri síld á þennan markað í einu og nú. Þormóð ur goði er með liðlega 300 tonn, eða á f jórðu þúsund tn., og Röðull með 260 tonn. Er það von manna, að þetta mikla magn hafi ekki áhrif á markaðinn. Síðustu fregn- ir að utan benda samt til þess, að meiri síld berist á land í V-Þýzkalandi næstu daga en undanfarnar vikur. Þjóðverj- ar hafa fundið mikla síld í írska hafinu — og þangað' halda skipin nú úr Norðursjó. Friðrik og Ikov í gærkvöldi átti Mbl. tal við Jakob Jakobsson fiskifræðing. Som kunnuigt er, er hann leið- angursstjóri síldarrannsókna og leitar sem varðskipið ébgi r og o 1/ 11 , fi vélskipið Fanney taka þátt í. OlVJJLtlU Jctllill Ægir var þá um 30 mílur NV af Garðskaga, 15 mílur utan við aðalveiðisvæðið, en þar lá Fann- ey. Þar úti mældi Ægir einnig dag. Hinn fræðilegi árangur þessa leiðangurs, kvað Jakob að þegar væri orðinn talsverður. Hlutur síldarleitanskipsins Fanneyjar í þessum leiðangri er mjög mikilvægur. Sannast mála hafa síldarbátarnir ékkert þurft að leita síldarinnar. Fann- "•I ey hefur alltaf fyilgzt með „síld- arkökkunum" og bátarnir stíma bara beint að henni og byrja að veiða. Þetta er ómetanlegt. Með Fanney vakta síldina, hvalahjón, sem eru stöðugt á sveimi kringum skipið. Þegar aftur lifnaði yfir síld- veiðinni vestur í Kolluál á dög- unum, mældi Ægir þar feikilegt síldarmagn. Um þessa síld sagði Jakob Jakobsson í gær að hún „stæði þar“ og virtist magnið engu minna en fyrst. Seint í gærkvöldi voru bátar í síld á veiðisvæðinu. Þá höfðu nokkrir Akranesbátar tilkynnt kom'u sína þangað með síld og Frh. á bls. 23 SJÖUNDA umferð á skákmót- inu í Beverwijk var tefld á fimmtudag. Úrslit urðu þau að van Sheltinga vann Larsen, Gereben vann Donner, Ivkov og Uhlmann eiga biðskák, van den Berg og Friðrik gerðu jafntefli. Kunn eru úrslit í tveim bið- skákum 6. umferðar. Ivkov og Friðrik skildu jafnir og sömu- leiðis van Sheltinga og Donner. Röðin er nú þessi: Larsen 5% vinning, Ivkov 4% og biðskák, Uhlmann 4 og biðskák, 4.—5. eru van Sheltinga og van den Berg með 3% hvor, í 6.—8. sæti eru Friðrik, Gereben og Griin- feld með 3 vinninga hver. Donn er og Barendregt hafa 2 vinn- inga hvor. Stóri borinn yfirfarinn GUÐMUNÐUR J. Guðmundsson spurðist fyrir um það á bæjar- stjórnarfundi í gær, hvernig á því stæði, að starfsmönnum við jarðborinn stóra, sem bærinn og ríkið eiga, hefði verið sagt upp starfi. Borgarstjóri, Geir Hall- grímsson, upplýsti að taka þyrfti borinn í sundur og yfiríara hann, og þar sem slíkt mundi taka 2 til 3 mánuði, hefði ofangreind ráð- stöfun verið gerð. Að yfirferðinni lokinni mundi strax á ný verða hafizt handa um boranir — og lægi þegar fyrir áætlun um > næstu 10 borunarstaði. Þarna er síldin Þetta er í rauninni mynd af síldinni. þverskurður af ein. um anganum af þessari stóru, sem allir bátarnir voru að gæða sér á undan Garðskaga í gær. Þetta er línurit úr dýptarmæli Guð- mundar Þórðarsonar og dökku fletirnir eru síld, efri línan sjávaryfirborðið og sú neðri botninn. Guðmundur kom brunandi á miðin í gær morgun. Dýpið er 54 faðm ar og síldartorfan stendur frá 8 föðmum og langleið- ina til botns. Gúðm. sigl- ir yfir „síldarkekkinn". Þar sem lægðin kemur í síldina er báturinn kominn yfir aðal.„kekkinn“, Þar snýr hann við, siglir að útjaðri „kekksins“ og fer svo stór- an hring og kastar. Þar voru komrrar 1500 tunnur. Nótin er 51 faðmur á dýpt, en skipstjórinn seg- ir, að teinninn hafi ekki farið lengra en á 30 faðma vegna þess hve síldin belgdi nótina fljótt út. 50 þúsund tunnur Faxasildar Húsmæður gætu komizt í síld Miklar annir í öllum verstöðvum ÞAÐ var gleðisvipur á hverju andliti á bryggjunum í verstöðvunum hér við Faxaflóa í gær. Síldarhátarn ir komu að með feiknalegan afla. í öllum frystihúsum var nóg að starfa, og allsstaðar var verið að salta síld. í alla fyrrinótt var mjög víða unn- ið í síld og aftur í nótt er leið, var verið í síld. Hvert einasta hraðfrystihús hér við Faxaflóa hafði tekið eins mikla síld og framast var unnt að vinna. Eigi að síður hafði þó nokkuð af aflanum í gær farið í bræðslu. Sáttafuncilr UNDANFARIN kvöld hefur sáttasemjari ríkisins 1 vinnudeil- um setið á löngum fundum með fulltrúum útvegsmanna og sjó- manna. Enn í gærkvöldi var fund ur haldinn. Þegar þetta er skrif- að laust fyrir miðnætti sátu nefndarmenn enn sem fastast. Saltað og fryst Til Keflavíkur höfðu i gær alls borizt á land um 10.000 tunnur síldar. Það var mikið að gera í Keflavík í gærkvöldi, því auk þess sem mikil vinna var við síldina í írystihúsunum var nokk ur síldarsöltun á 6 stöðum. Víðir n. hafði komið þang- að með 1500 tunnur, en hann hafði komið snemma í gær- morgun til Akraness með 1145 tunnur. Vöggur hafði tvíhlað- ið allt 1250 tunnum í ferðun- um tveim. Árni Geir var með 1000 tunnur, Hilmir 900, og Ólafur Magnússon sama. Til Akraness höfðu borizt tæplega 8340 tunnur síldar. Höfrungur hafði tvíhlaðið í gær, alls 2170 tunnur. Aðrir Akranesbátar höfðu verið með um og yfir 500—800 tunnur. Sigurður AK, hafði enn orð- ið fyrir því óhappi að rífa nótina, annan daginn í röð. Þá hafði báti frá Hafnarfirði hlekkzt á. Bóman hafði brotn- að undan þunga síldarinnar og nótin rifnað. Á bls. 10 og 11 eru frásagn- ir blaðamanna Mbl. úr síld- inni. I ÖLLUM verstöðvum hér við Faxaflóa hefur allmikið magn síldar verið saltað síð- ustu daga. Mun nú heildar- söltun Faxasíldar nema milli 40—50 þús. tunnum. — Er mikil eftirspurn eftir síldinni og nú nýlega voru gerðir við bótarsölusamningar á Faxa- síld. Lœfur ekki bugast BÓNDINN á Neðra Hóli í Staðarsveit, Jónas Þjóðbjörns son og fjölskylda hans mun ekki leggja árar í bát, þótt illa færi í eldingunum á dögun um, er íbúðarhúsið á jörð hans brann og fimm af átta kúm, sumar komnar að burði fór- ust. Mbl. hefur fregnað að bónd- inn og synir hans tveir upp- komnir séu nú að innrétta skemmu eða áhaldaskúr, svo þeir geti búið í honum í vetur. Svo hafa þeir hug á því strax í vor að hefja smíði nýs íbúð- arhúss. Er hugur í þeim að koma því sem fyrst áleiðis. Síðan óhappið vildi til hef ur fólkið hafst við á tveimur nágrannabæjum í Tungupláss- inu. Hjónin hafa verið í Glaumbæ en synirnir í Syðri Tungu. Vonast fólkið til að geta flutt bráðlega í bráða- birgðahúsnæði á jörðinni, en þar þarf að sinna þrem kúm sem eftir lifa og um 100 ám. Jörðin er ríkisjörð og telja menn í sveitinni ekki ósenni- legt að ríkið leggi nokkuð af mörkum til að endurreisa íbúðarhúsið, þótt ekkert hafi enn verið leitað eftir því. Hin saltaða síld fer aðallega til A-Þýzkalands og Rússlands, ennfremur til V-Þýzkalands og Svíþjóðar. Þá hefur nýlega ver- ið gerður sölusamningur við Pólverja, sem kaupa vilja 20,000 tunnur síldar. Er það óvanalegt um þá samninga, að síldin má vera allt niður í 10% að fitu- innihaldi til. Á þeim söltunarstöðvum, sen* nú er unnið, eru möguleikar til frekari afkasta, ef þörf krefur og fólk fæst til starfa. Síldar- staltandi einn sagði við Mbl. i gær: Ef áframhald verður á hinni miklu síldveiði, sem við öll skulum vona, þá fer ekkl hjá því að auka verður stórlega síldarsöltunina. Væri það ómet- anlegur stuðningur, ef konur, sem kunna til söltunar, gætu gefið sig að síldarsöltun ein. hvern part úr deginum. Hér I Reykjavík og verstöðvum hér við Faxaflóa, er fjöldi kvenna, sem árlega fer norður á síld, Þær gætu án efa komizt nú ■ síld hér syðra, ef vel gengur og aðstæður þeirra heima fyrir Ieyfa. Bnmsay erki- biskup nf Kautoruborg LONDON 19. jan. (Reuter) Elisabet droittning hefur tilneínt nýjan erkibiskup af Kantara- borg í stað Fishers sem nú er að láta af því embætti. Hinn nýi erkibiskup heitir Arthiuri Michaei Ramsey og heÆur hannl verið biskup af Jórvík síðustu fjögur ár. Hann er 56 ára. Til* nefning hans fcemur nokkuð á óvart. Líklegri í þetta æðsta em* bætti ensfcu" kirkjunnar Iþóttií Sopford biskup af Peterborougihi og Joost de Blank erkibiskup aít Höfðaborg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.