Morgunblaðið - 16.03.1961, Page 1
28 siður (I og II)
18. árgangur
62. tbl. — Fimmtudagur 16. marz 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Suöur Afríka hrakin úr Samveldinu
Andstyggð
á kynþátta-
stefnunni
London, 15. marz. (Reuter)
VERWOERD, forsætisráð-
fcerra Suður-Afríku lýsti því
yfir í kvöld á samveldisráð-
stefnunni I London, að hann
befði ákveðið að afturkalla
timsókn Suður-Afríku-lýð-
veldisins um inngöngu í
Brezka samveldið.
Ákvörðun þessa tók Ver-
woerd mjög skyndilega eftir
börðustu orðaskipti, sem
nokkru sinni hafa orðið a
ráðstefnum Brezka samveld-
isins. Höfðu umræðurnar um
kynþáttastefnu Suður-Afríku
staðið í þrjá daga og mælti
ekkert ríki bót aðgerðum
Suður-Afríku-stjórnar.
l»egar ráðstefnan hófst var
vitað að deilur myndu verða
um aðild Suður-Afríku að
samveldinu. Flestir bjuggust
þó við, að ekki kæmi til þess
að landið yrði hrakið úr sam
tökunum. Macmillan, for-
sætisráðherra Breta, lýsti því
m.a. yfir, að hann myndi
fceita sér fyrir málamiðlun-
arlausn.
Hin nýju svertingjaríki í
samveldinu veita harða mót-
spyrnu gegn áframhaldandi
þátttöku Suður-Afríku, sér-
staklega Ghana.
Andstyggð á svertingja-
kúgun
f morgun var þó enn talin
von á samkomulagi og þá helzt
Framhald á bls. 19.
Segju skilið
við Castró
Haag, 15. marz (Reuter).
SENDIHERRA Kúbu í Hol-
landi og allt starfslið hans á-
kvað í dag að beiðast lausnar
og segja upp starfi til að mót-
mæla stjórnarstefnu Fidel
Castros.
Sendiherrann heltir Ignacio
Fiterre og hefur gegnt em-
bætti nú í 18 mánuði. Hann
var áður stuðningsmaður
Castros. Hann segir, að hann
sjálfur og allt starfslið hafi
sent Castro skeyti með lausn-
arbeiðni og lýst því yfir, að
þau muni hefja baráttu fyrir
nýrrl Kúbu, með réttlæti,
frelsl og virðingu fyrir manns-
' andanum.
Rússneskir njdsnarar
fyrir Old Bailey réttinum
London, 15. marz. (Reuter)
FRÓÐLEG innsýn í leyni-
starfsemi Rússa hefur nú
gefizt við njósnaréttarhöld-,
sem hafin eru fyrir Old
Bailey-sakadóminum í Lund-
únum. Fimm sakborningar
eru leiddir fyrir réttinn sak-
aðir um þátttöku í einum
allra hættulegasta njósna-
hring, sem komizt hefur upp
um á síðustu árum. Sakborn-
ingarnir hafa lýst yfir sak-
leysi sínu og því kemst hinn
opinberi ákærandi ekki hjá
því að draga fram ýmis at-
hyglisverð sönnunargögn í
málinu, sem gefa góða hug-
mynd um þá fullkomnu
tækni, sem rússneska leyni-
þjónustan beitir.
• Njósnatækni
Réttarhöldin hafa þegar staðið
í þrjó daga og hafa eftirfarandi
Vaníraustj
iðfellt *
ATKVÆÐAGREIÐSLA um
vantrauststillögu stjórnarand-
stæðinga á ríkisstjórnina fór
fram á fundi sameinaðs þings
í gærdag.
Var viðhaft nafnakall um
tillöguna. Féll hún með 32 at-
kvæðum stjórrrarþingmanna
gegn 27 atkvæðum stjórnar-
andstæðinga. — Einn þing-
manna, Guðmundur I. Guð-
mundsson utanríkisráðherra,
var fjarstaddur. Situr hann
irú fund utanríkisráðherra
Norðurlanda í Stokkhólmi.
atriði m. a. komið fram í dags-
Ijósið.
jr Rússneskir njósnarar bera dul
málslykla á mjög þunnum hvít
um pappírssneplum, sem eru
svo eldfimir, að þeir hverfa á
einu augnabliki ef logandi eld
spýta er borin að þeim.
-Ar Þeir hafa tæki til að ljós-
mynda handrit, síður úr bók-
um og vélateikningar á 35 mm
filmur. Síðan geta þeir mink-
að filmuna niður í míkrómynd
sem er ekki stærri en punktur
í venjulegu lesmáli.
Eins hafa þeir efni sem geta
gert blettinn algerlega ósýni-
legan og annað efni sem gerir
hann sýnilegan og loks hafa
þeir smásjá á stærð við síga-
rettu sem gerir punktinn læsi
legan.
Þeir hafa sterka 150 watta
sendistöð, sem getur dregið
3000 mílur, — en frá London
til Moskvu eru 1700 mílur. —
Stöðin er ekki stærri en svo
Frh. á bls. 2
Rothöggið
Þessi athyglisverða mynd
sýnir lok hnefaleiksins milli
Fattersons og Ingemars
Johansens í Miami á mánu-
daginm.
Hún sýnir rothöggið sem
Ingemar lilaut í sjöttu lotu.
Auk hnefahöggs Pattersons
sýnir myndin að hann hef-
ur hlotið þungt högg í fall-
inu, því að hann fellur með
öllum kroppþunga (93,7
kg) beint á höfuðið.
En ekki er þeim fisjað
saman þessum ketfjöllum
því að enn einu sinni gerði
Ingemar örvæntingarfulla
tilraun til að rísa á fætur.
Aður en honum tækist það
hafði dómarinn þó talið upp
að 10. og lyft armi Patter-
sons upp til merkis um
sigur.
Fyrsta skákin í bið
Moskvu, 15. marz. — (NTB)
í DAG hófst í Moskvu skák-
einvígi um heimsmeistara-
titilinn milli Mikhails Tal og
Mikhails Botvinniks.
Fyrstu skák þeirra var
frestað eftir 41 leik.