Morgunblaðið - 16.03.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.03.1961, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 16. marz 1961 '1 O R C V 7V B L 4 fí 1 ö 5 f MENN 06 = MALEFNI= í hefti af franska listablað- inu Combat- Art, sem út kom 6. marz er grein eftir Alain Jouffroy, þar sem hann deilir hart á þann hátt sem orðinn er á sölu listaverka. Segir hann að gagnrýnendur og listaveíka salar marki stefnuna og þeir sem eru utan við hana, hafi ekki sölumöguleika. Sem dæmi um fyrsta flokks lista- mann, sem máli frábrugðið hinni gefnu línu og líði þar af leiðandi fyrir það, sé íslenzki málarinn Ferró. I greininni segir að málverk Ferrós séu einhver margbrotn- ustu og innnihaldsmestu verk, sem komi frá yngri málurum. Hann gefur þá skýringu að þau fjalli um uppruna nútíma mannsins, séu ljóðrænn boð- skapur um lífshætti okkar. Þó að Ferro hafi búið í París í nokkur ár, séu það aðeins ís- lendingar sem kaupi af hon- um. öðru hverju hitti hann „skarpan listaverkasala", sem hrósi honum, en segi um leið: — Ég get því miður ekki sýnt verkin yðar í sýningarsalnum mínum, því þau eru ekki í sam ræmi við stefnuna sem þar ríkir. Og það vilji svo til að þetta sé sú „stefna“, sem gangi í hverju listatímaritinu á fæt- ur öðru og ríki í öllum söfn- um, og sem flestir „gáfaðir listaverkasalar“ virði af ráðn- um hug. Ferró getur beðið, ' .' '-'iv-, V'-.'vTvV.Í-;' ■ , marapon d rceour o Nú er í Bretum bágur tónn, þeir bölva íslendingum fyrir að œtla sjálfum sér sjóinn landiö kringum. Úfin eru Breta-blöð, búin í Herjans tygi (Þjóðviljinn þaö samt ei sér og segir það haugalygi). Ólafur Thórs og Bjarni Ben brosa á allar hliðar, þeir eru dálítiö drjúgir af dýrð hins nýja friöar, og glottið á honum Guðmundi getur ei veriö betra (og hann hefur sennilega lengst um liöugan sentimetra!). Þetta er lausn, sem þjóðin kýs, það sér gud og hvermand, þó að haldi þrefi upp Þórarinn og Hermann. Við flota Hennar Hátignar helzt vill Lúðvík glíma, —• fagnaðarboðskap þuldi þann % þrjá og hálfan tíma! Hannibál er hœttur þvi að hlýða forsetunum, að hlusta á langa lopann hans leiðist ráðherrunum. Alla syfjaði undir því endurtekna spjalli, —■ deilan er til lykta leidd — og lauk með nafnákalli! FARCEUK. __________: Mynd eftir Ferró, sem fylgdi umræddri grein. — segir greinarhöfundur að iok- um. Hann mun bíða. En að- stæðurnar sem honum eru skapaðar með þessu eru þrátt fyrir það algert hneyksli. ★ Af Ferro er það annars að frétta, að hann hélt sýningu í Milanó í janúarmánuði á Ítaiíu og gekk hún mjög vel. Seldust 10 myndir af 16. 70 ára verður i dag Guðlaug Daníelsdóttir, Nönnustig 6, Hafn arfirði. í dag er Ingvi Brynjólfsson, bóndi, Hliðsnesi, Bessastaða- hreppi 75 ára. Opinberað hafa trúlofun sina ungfrú Unnur Ragnarsdóttir frá Grindavik og Bj örn Níelsson frá Hofsósi. Skrifstofuhúsnæði Tvö samliggjandi herbergi til leigu í Miðbænum. — Tilb. merkt: ,,1258“ leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 18. marz. Hafnfrðingar Ung hjón óska eftir 3ja herbergja íbúð fyrir 14. maí. — Uppl. í síma 50570. Sníð dömukjóla Alþingishátíðar- þræði saman og máta. — peningarnir frá 1930 ósk- Uppl. í síma 37991. ast til kaups. Tilboð send- Kristín Karlsdóttir. ist afgr. Mbl. merkt: Geymið auglýsinguna. „Alþingi 1930 — 88“ Ábyggileg stúlka óskast til að sjá um heimili í 1—2 mánuði. Upplýsingar í Garðastræti 35. Til sölu Einn stór kæliskápur, tvær Rafha eldavélar, ein vigt, einn stálvaskur, eitt kæliborð, ein stór rafmagns- hakkavél, búðarborð o. fl. tilheyrandi kjötverzlun. Upplýsingar í síma 13544. Metsölubækur Elizabeth Goudge: The Dean’s Watch Noel Coward: Pomp and Circumstance Harper Lee: To kill á Mockingbird Grace Metalious: The Tight White Collar Ernest K. Gann: Fate is the Hunter Joy Adamson: Born Free Alan Moorehead: The White Nile Montgomery: The Path to Leadership Peter Ustinov: The Loser John Gunther: Taken at the Flood John Hersey: The Child Buyer C. S. Lewis: The Screwtape Letters Cameron Hawley: The Lincoln Lords J. K. Galbraith: The Liberal Hour Terence Reese: Play Bridge with Reese H. M. Robinson: Water of Life James A. Michener: Hawaii T. H. White: The View from the Fortieth Floor Moss Hart: Act One Lawrence Durrell: Clea G. Di Lampedusa: The Leopard Walter Lord: The Good Years Allar þessar bækur eru fyrirliggjandi. Nýjar erlendar bækur með hverri skipsferð. tJtvegum allar fáanlegar erlendar bækur. SnfrbjömJónsstm«íb.h.í THE ENGLISH BOOKSHOP Hafnarstræti 9 Símar 11936 — 10103. Húsnœði til sölu 4ra herbergja íbúð á 2. hæð með 5 herb. I kjallara, um 120 ferm. tilbúin undir tréverk, sameign að mestu fullgerð. Er í vesturenda á sambýlishúsi í Háaleitishverfi. Einbýlishús í Vogahverfi. Á 1. hæð 2 stórar stofur, eldhús o. 11. Á 2. hæð 4 herbergi, bað o. ÍL Steinhús ca. 4ra ára. 2ja herbergja íbúð við Stóragerði næstum tilbúin. Nýtizku þvottavélar. Frystiklefi. 4ra herbergja íbúð á hæð með 5. herb. í kiallara við Álfheima ca. 125 ferm. Ibúðin er ca. 3ja ára og er í mjög góðu standi. 7 herbergja fokhelt raðhús við Hvassaleiti. Mjög skemmtileg teikning. íbúðarflötur um 200 ferm. fyrir utan bílskúr. 5—6 herbergja íbúðir á ýmsum byggingarstigum í tvíbýlishúsum. 3—4 herbergja íbúðir á jarðhæð í tvíbýlishúsum. ÁRNI STEFANSSON, hdl., Málflutningur. Fasteignasala. Suðurgötu 4 — Sími: 14314.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.