Morgunblaðið - 16.08.1961, Síða 1
20 siðtiv
48. árgangur
182. tbl. — Miðvikudagur 16. ágúst líb»i
Prentsmiðja Morgunblaðstna
Ofbeldinu mótmælt:
Svívirðilegustu samningsrofin
— segir i orðsendingu hernámssfjóra vesfurveldanna i Berlin til sovézka fulltrúans
A.-þýzka stjórn
in hótar tak-
mórkuðu sam-
góngufaanni
við Vestur-
Berlín
Berlín, 15. ágúst. (Reuter-NTB)
AUSTUR-ÞÝZK yfirvöld
liertu enn á samgönguhöml-
íim milli borgarhlutanna í
dag. T. d. var Brandenborg-
arhliðinu algerlega lokað með
gaddavírsgirðingu og engin
umferð leyfð þar.
Hernámsstjórar Vestur
veldanna í Berlín sendu í dag
formleg mótmæli til rúss-
neska hernámsstjórans, Solo-
viev, vegna lokunar landa-
merkjanna milli borgarhlut-
anna. Sagði m. a. í orðsend-
ingunni: „Allt frá því að sam
göngubannið var sett á Ber-
lín (1948) hefir fjórvelda-
samkomulagið um Berlín
ekki verið rofið með jafn-
svívirðilegum hætti.“
í kvöld gaf svo a.-þýzka
stjórnin út tilkynningu, þar
sem haft er í hótunum um að
hindra vöruflutninga V.-Þjóð
verja til V.-Berlínar, ef v.-
þýzka stjórnin rjúfi einhliða
viðskiptasamningana við A,-
Þýzkaland — en mjög há-
værar raddir heyrast nú í
V.-Þýzkalandi um það, að
setja beri viðskiptabann á
kommúnistaríkin.
f V. ''■■-■ýrvr*-' -■ ■
- 1
ic Mikil spenna ríkti í allri Ber-
lín í dag, t. d. réðst hópur V.-
Berlínarbúa á austur-þýzka bila,
sem fengið höfðu leyfi til að fara
vestur yfir Iandamerkin, og barði
þá með berum hnefunum til þess
að láta í Ijós reiði sína. — Allt
lögreglulið V.-Berlínar, 13.000
manns, hefir fengið skipun um
að vera viðbúið á hvaða tíma
sólarhringsins sem er.
ic Fundahöld
Bonnstjórnin kom saman til
fumdar í dag til þess að ræða,
Frh. á bls.
Ekki bólar á upp-
reisn gegn de Gaulle
PARÍS, 15. ág. — (Reuter) —
Bæði í gær og dag hefir lög-
regla og herlið verið mjög á
varðbergi í París, vegna flugu-
fregna um, að öfgamenn til
„Alþýðuhermenn" vlð ®Inn hinna morgu brynvörðu bíla sinna við markalínuna.
hægri hefðu í undirbúningi vopn
aða uppreisn gegn de Gaulle og
ríkisstjórninni — en umrædd
samtök hægri manna hafa bar-
izt gegn Alsírstefnu stjórnarinn-
ar með öllum ráðum.
Stjórnarheimildir hér telja, að
möguleikarnir til slíkrar upp-
reisnar séu nánast engir, en eigi
að síður hafa margvíslegar ör-
yggisráðstafanir verið gerðar —
og munu þær enn verða í gildi
á morgun, a. m. k. Samkvæmt
fregnum þeim, sem gengið hafa,
átti umrædd uppreisn að hefjast
í dag, en allt hefir verið með
kyrrum kjörum í París og ann-
ars staðar í Frakklandi, nema
hvað kastað var sprengju að
stöðvum Poujadista í París , í
dag.
Lík brezku
skóladrengjanná
LONDON, 15. ág. Reuter) —
Lík hinna 34 brezku skóla-
drengja og tveggja kennara
þeirra, sem fórust í flugslysinu
við Solaflugvöll í Noregi í sl.
viku, munu verða jarðsett í einni
gröf í heimabæ þeirra, Craydon,
nk. fimmtudag, að því er upp-
lýst var hér í dag.
Brandenborgarhliðinu, aðal-/
samgönguleiðinni milli Vest-
ur- og Austur-Berlínar, var í
gær lokað algerlega með
gaddavírshindrunum. Þessi
mynd var tekin á sunnudaginn
við þetta fræga hlið, er V.-
Berlínarbúar flykktust þang-
að til að fylgjast með aðgerð-
um Austur-Þjóðverja.
Enn flýjn mem
nð nustnn
Berlín, 15. ágúst
SÍÐASTLIÐINN sólarhrini
létu 2.760 austur-þýzkir flótta-
menn skrá sig í Marienfelde
stöðinni í Vestur-Berlín, a
sögn embættismanna þar. Sag
var, að meirihluti þeirra hefðil
komizt vestur fyrir mörkinj
áður en þeim var lokað. Jafn-'
framt neituðu viðkomandi em-'
baettismenn að upplýsa, hve
imörgum hefði tekizt að flýja'
jeftir að ,járntjaldið var fellt“!
á sunnudaginn — en margir,
sem fylgjast náið með gangi
mála, telja, að þeir muni að!
líkindum vera nær 1.500. í
í *
| f hópi þeirra fáu, sem tókst
að flýja að austan í dag, var
jeinkennisbúinn maður úr a.-,
jþýzku alþýðulögreglunni. i