Morgunblaðið - 16.08.1961, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 16.08.1961, Qupperneq 16
16 ' MORCVTSBLAÐIÐ Miðvikudagur 16. ágúst 1961 búið var að loka undir nóttina. Það reyndist heppni. Hún tók mig með sér og keypti handa mér mat. Síðan fór hún með mig á fínt hóte’ og þar fékk ég glaesilegt herbergi og rúm út af fyrir mig. Ég átti engin orð til að lýsa undrun minni. Mörgum árum seinna fór ég aftur þangað til að sjá stað- inn, og þá sá ég að þetta var bara KFUM hótel, en þegar ég kom þangað fyrst fannst mér það eins og Waldorf Astoria. Þessi kona var svo vingjarnleg, að ég reyndi að fá hana til að út- vega mér vinnu. „Ég er dugleg að vinna,“ sagði ég. „Ég get þrifið til, þvegið tröppur og skúrað gólf.“ En þeg ar hún spurði mig að heiti, vildi ég þó ekki segja henni það. Hún vissi, hvernig í öllu lá, og brosti bara. „Já, ég veit hvernig ástatt er, og ég veit, að þú veizt að ég veit það. Þú ert óvitlaus," sagði hún. Morguninn eftir kom hún aft- ur og fór með mig á heimili, sem félagið rak. Þar var gott að vera. Maturinn var góður, og fjöldinn allur af krökkum var þar. Þau höfðu ekkert að gera, nema að leika sér. Bak við húsið var stærðar leikvöllur með rennibrautum og rólum og alls konar tækjum. Hár múrveggur •kýldi okkur frá götunni. Ég hlýt að hafa verið þama í hálfan mánuð, áður en mamma fann mig. Einn morguninn var farið með mig niður til að hitta konuna, sem var komin að sækja mig. Það var ekki mamma, heldur kona, sem hét frú Levy. „Ég fer ekkert,“ sagði ég. „Ég ætla að vera hér kyrr.“ ,Hversvegna?“ spurði hún. „Er eitthvað að?“ „Nei. Mér þykir bara gaman að vera hérna“. ,En ég ætla með þig til mömmu þinnar.“ Ég tók eftir að hún sagði ekki „móður“ heldur „mömmu". Og hún sagði það þannig, að mér datt í hug, að ef til vill vseri hún ekki sem verst. Frú Levy var konan sem mamma vann fyrir í Long Branch. Hún sagði mér, að mamma vaeri að passa börn- in hennar, en sjálf hefði hún komið í bí’lnum til að sækja mig. Þegar ég heyrði, að hún ætti bíl fóru að renna á mig tvær grímur. Og þegar ég sá, hvað bíllinn var glæsilegur, var ég reiðubúin að fara hvert á land, sem væri, bara til að komast í bílinn. Svo sjaldan hafði ég komið inn í bíl, að ég gat ekki sleppt nokkru tækifæri til þess. Síðan ókum við úr miðborg iNew York út í Long Branch. .Loks áttum við Sadie að fá að vera saman. Nú myndi ailt ganga vel. Hún hafði meira að segja fengið vinnu handa mér. Auðvitað átti ég að vera stofu- stúlka — hvað annað? Konan, sem ég átti áð vinna fyrir var stór, feit og löt. Hún gerði ekkert annað, allan daginn, en aka sínum breiða rassi á bað- ströndinni. Eg gerði ekki mikið meira. Allt, sem ég þurfti að gera var að sofa og eta, afhýða svo- lítið af lauk og grænmeti til að halda höndum hennar fallegum, þvo upp nokkra diska, til að þær yrðu ekki grófar, og þurrka af ryk, svo að hún þyrfti ekki að hreyfa sig. Þessi feita, stóra dræsa gerði ekki handarvik allan daginn, unz fimmtán mínútur voru þangað til maður hennar átti að koma heim. Þá varð hún sjóðvitlaus. f staðinn fyrir að segja mér, hvað hún vildi að ég gerði, varð hún æst af því að maðurinn hermar beið, fór að æpa og kalla á mig og kalla mig „nigger“. Ég hafði aldrei heyrt það Orð áður og vissi ekki hvað það þýddi. En reyndar gat ég getið mér þess til af raddblæ hennar. Þetta heimili var furðulegt. fullt af skrítnum húsgögnum og drasli, sem bara safnaði ryki, og allt var fullt af púðum. Allt af var hún að nöldra um þessa púða við mig. Ég varð ekki mosavaxin þar. Eitt sinn, rétt áður en hún fór niður á ströndina, dró hún fram stóra gamla værðarvoð og skip- aði mér að þvo hana. Ég reis upp á afturlappirnar. Ég átti að þvo, svo að ég sagði henni, hvað hú gæti gert við þennan voðar- skratta sinn. Það varð endinn á þeirri vistinni. Ég hafði hvort eð er engan áhuga á að vera þerna hennar, og reyndar ekki ann- ara heldur. Mér fannst, að eitt- hvað betra en þetta hlyti að vera til. Þegar ég kom aftur til mömmu og sagði henni alla sólarsöguna, vissi hún ekki hvern fjandann hún ætti að gera við mig. Ég hafði lokið við tólf ára bekk í Baltimore, og hafði ekki mætt síðan. Ef ég færi til baka myndi ég verða spurð, hvað ég hefði eiginlega verið að gera. Ég hafði heldur ekkert í skóla að gera, nema ég hefði einhvern stað að búa á. Mamma átti örlitla spari- peninga, og á endanum sagðist hún skyldu koma með mér til Harlem og leigja handa mér her- bergi. í raun og veru var mamma enginn græningi. en stundum gat það þó komið fyrir. Staðurinn, sem hún fann handa mér að búa á var hvorki meira né minna en munaðaribúð rétt við hundr- að fertugustu og fyrstu götu í Harlem. Þarna var borguð okur- leiga. Mamma fékk handa mér herbergi í fallegri íbúð, sem til- heyrði konu að nafni Florence" Wiliiams. Ég hafði ekki tæmt dalla og lagt fram karbólsápu og handklæði hjá Alice Dean í Baltimore til einskis. Ég vissi hvað klukkan sló. En það vissi mamma ekki. Hún borgaði Flor- ence fyrir herbergið mitt fyrir- fram, og bað með alvörusvip hina skrúðklæddu, laglegu konu að líta nú vel eftir litlu dóttur sinni. Florence var ein helsta melludrottning í Harlem. Hún gæti alveg eins hafa beð- ið Eleanóru litlu að líta eftir Florenoe. Mér fannst ég vera hasarskutla. Eftir nokkra daga fékk ég tækifæri til að verða fullgild 500-kalls símavændis- kona, og ég var ekki sein að nota mér tækifærið. Jalke að- ferðin, sem svo mikið var fjarg- viðrazt út af nýlega var jafnvel þá ekkert nýtt fyrirbrigði. Meira að segja mér var ekkert nýtt í þessu, nema straumlínulagað símatæki. Ég hafði séð þessa furðusíma áður í kvikmyndum, síma sem maður svarar í liggj- andi í rúminu, í staðinn fyrir gömlu veggáhöldin. Strax og ég sá þá var ég ákvéðin í, að ég þyrfti að fá svona nokkuð. Samt var ég ekkf ánægð með hvaða síma, sem réttur yrði að mér. Það átti að vera hvítur sími. Og símamir hjá Florence voru ein- mitt hvítir. Brátt hafði ég tvo hvíta stráka, Sem ég mátti búast við reglu- lega,- öðrum á miðvikudögum, hinum á laugardögum. Stundum kom fyrir að annarhvor þeirra kom tvisvar í sömu vikunni. Frú- in tók einn fjórða í leigu. Af- gangurinn var meiri hvern dag en ég gat fengið, á mánuði í stofustúlkustarfi. Þar að auki þurftu aðrir að þvo af mér. Þetta var lítil stofnun. Florence var þama aðeins með tvær, auk mín, önnur var gul og hét Gladys, hin var hvít, en ég man ekki hvað hún hét. Ekki leið á löngu unz ég átti peninga til að kaupa ýmsa hluti, sem mig hafði lengi langað til að eignast, fyrsta ósvikna silki- kjólinn minn og rándýra skó úr fínu leðri með pinnahælum. En ég var ekki gædd þeim hæfileikum, sem vændiskona þarf að hafa. í fyrsta lagi var ég skíthrædd við kynlíf, og ekki að ástæðulausú. Fyrst hafði ég orð- ið fyrir barðinu á Hr. Dick. Svo hafði trompetleikari úr stórri negrahljómsveit tekið mig á gólfinu í stofunni hennar ömmu þegar ég var tólf ára. Það var svo slæmt, að ég kom ekki ná- lægt karlmönnum lengi á eftir. Ég minnist þess, að ég var svo meidd, að ég hélt ég væri að deyja. Ég fór til mömmu og fleygði blóðugum fötunum af mér með viðbjóði fyrir fætur hennar. „Svo þetta er það, sem þið pabbi gerðuð, þegar ég svaf til fóta við rúmið ykkar í sedrusvið- arkistunni.“ æptj ég að henni. Hvað gat hún sagt? Ekkert. Lún stundi svolítið um, að barn- ið hennar hefði verið með karl- manni og var utan við sig í marga daga af hræðslu um að ég yrði ólétt á sama hátt og hún hafði orðið. Þarna hafði ég hitt á hennar veikasta blett, hún gat engum vörjjum við komið. Þá sór ég þess dýran eið, að skipta mér ekki framar af karlmönnum. Ég sagði henni, að hún þyrfti ekki að óttast að ég hagaði mér eins og hún og pabbi höfðu gert. Svo var það einu sinni, að stór negri kom til Florence’s og vildi enga nema mig. Hann borgaði mér tvöþús.kall, og það var ódýcrt fyrir hann, ef tekið er tillit til þess, að hann hálfdrap mig. Ég var óvinnufær dögum saman og gat ekki einu sinni stigið í fæt- urna. Mamma kom og heimsótti mig á meðan ég lá í rúminu. Hún — Ég sé, að þið hafið hér útvexpssenditæki. — Jlá, skógarhöggsfyrirtækið lætux okkur fá þau. Þau auð- velda leiðsögn þeirra, sem slökkva skógareldana. — Þakka þér fyrir móttökurn- ar, Ruth......Þú mátt til að líta einhvern tíma til okkar til þess að hitta Sirrý og föður hennar. — Ég geri það .... Það er stundum svo óttalega einmana- iegt héma. — Þetta virðist allra viðkunn- anlegasta fólk .... Ég gæti trú- að, að þeim reyndist oft erfitt að láta endana ná saman. vissi ekki, hvað skeð hafði, en hún var ekki fyrr búin að sjá mig en hún sagði, að ég ætti að fara á spítala. Ég var svo veik að mér var sama þótt ég færi — þangað til ég sá einkennisstafina á húfunx strákanna, sem komu með sjúkra börurnar. Ég hafði heyrt getið um spítalann, sem þeir komu frá. Stelpur, sem ég þekkti höfðu farið þangað með lungnabólgu og komið aftur án eggjastokk- anna. Þess vegna settist ég upp í rúminu og sendi sjúkrabílinn í burtu, skreiddist fram á bað- herbergið, og þegar ég hafði fengið að eta síðar meir fór mér að batna. Það var engin furða, þó að ég væri dauðhrædd við kynlífið. Það var heldur ekki undarlegt, að ég neitaði, þegar svartur strákur, Big Blue Rainier að nafni, kom í heimsókn. Hann var í félagi við Bub Hewlett, sem átti Harlem um þessar^piundir. Þeir eru báðir komnir undir græna torfu núna, en þá voru þeir mikl* ir menn. ( SJÚtvarpiö Miðvikudagur 16. ágúst 8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05 Tón leikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar. — 10:10 Veðurfr.). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. 12:25 Fréttir og tilkynningar), 12:55 ,,Við vinnuna“: Tónleikar. 15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:09 Tónleikar. — 16:00 Fréttir og tilk, 16:05 Tónleikar. — 16: 30 Veður- fregnir), 18:30 Tónleikar: Operettulög. t 18:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr, 19:30 Fréttir. 20:00 Tónleikar: Píanósónata nr. 11 I B-dúr op. 22 eftir Beethoven. —• Wilhelm Kempff leikur. 20:25 Frásöguþáttur: Kvöld í Arnar- firði (Hallgrímur Jónasson kenn- ari). . 20:45 Léttir kvöldtónleikarj a) Hilde Giiden syngur óperettu- lög með kór og hljómsveit Ríkisóperunnar í Vínarborg. b) Þrjú stutt hljómsveitarverlc eftir Stravinskij: . 1) Sirkus-polki og Flugeldar, fantasía. — Fílharmoníu- hljómsveitin 1 New Yoríc leikur; höf. stj. 2) „Ibenholt-konsert*. — -- Woody Herman leikur £ klarínettu ásamt hljóm« sveit sinni; höf. stj. 21:20 Um slysavarnamál — síðara er* indi (Garðar Viborg erindreki). 21A0 Tónleikar: Strengj akvarttett í D-dúr op. 64 nr. 5 („Lævirkja- kvartettinn“) eftir Haydn. — Janacek-kvartettinn leikur. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Kvöldsagan: „Osýnilegi maður inn“ H. G. Wells; XVI. (Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur). 22:30 „Stefnumót í Stokkhólmi": Nor- rænir skemmtikraftar flytja göm ul og ný lög. 23:00 Dagskrárlok. Fimmtudagur 17. ágúst 8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05 Tón leikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleikar. — 10:10 Veðurfr.). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. 12:25 Fréttir og tilkynningar). 12:55 „A frívaktinni", sjómannaþáttur (Kristín Anna Þórarinsdóttir). 15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:03 Tónleikar. — 16:00 Fréttir og tilk. 16:05 Tónleikar. — 16: 30 Veður- fregnir). 18:30 Tónleikar: Lög úr óperum. 18:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr, 19:30 Fréttir. 20:00 Tónleikar: Konsert fyri fagot og hljómsveit í F-dúr op. 75 eftir Weber — Karel Bidlo og tékk- neska fílharmoníuhljómsveitin leika. Kurt Redel stjórnar. 20:20 Ferðaþáttur frá Þýzkalandi: Kast alarústir 1 Moseldal (Einar M, Jónsson rithöfundur). 20:45 Tónleikar: Kvintett 1 Es-dúr op, 44 eftir Schumann. Arthur Rub- instein leikur á píanó ásamt Paganini-kvartettinum. 21:15 Erlend rödd: „Hvers vegna ég starfa í leikhúsinu“ eftir Albert Camus (Sigurður A. Magnússon blaðamaður). 21:35 íslenzk tónlist: Tvö verk eftip Þórarin Jónsson. a) Huldur — Karlakór Reykja- víkur syngur. Píanóleikarix Fritz Weishappel. Stjórnandi; Sigurður Þórðarson. b) Forleikur og tvöföld fúga yfip nafnið BACH fyrir fiðlu án undirleiks. — Björn Ólafsson leikur. 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Kvöldsagan: „Ösýnilegi maðup inn“ H. G. Wells; XVII (Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur). 22:30 Sinfóníutónleikar: Sinfónía nr. 1 í c-moll op. 6S eftir Brahms. — Concertgebouw- hljómsveitin 1 Amsterdam leikur, Eduard van Beinum stjórnar. j 23:10 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.