Morgunblaðið - 09.11.1961, Side 20
20
MORGvnnr4ðið
Fimmtndagur 9. nóv. 1961
Dorothy Quentin:
Þftglaey
•3 6 Skáldsaga
Hann var kominn út úr bíln-
um og bauð henni arminn til að
hjálpa henni út, og svaraði síð-
an, alls ófeiminnn: Ég varð svo
hrifinn af lýsingu yðar á Laurier
og eyjunni, og mér datt strax í
hug. að þetta væri einmitt það,
sem okkur vantaði fyrir nýja
gistihúsið okkar.
bá er ég hrædd um, að þér
verðið fyrir vonbrigðum. Lauri-
er er alls ekki til söl.u. Hún svar
aði snöggt og gekk síðan upp
þrepin á undan hönm, og var feg
in, er hún sá. að Sol og nokkrir
fleiri sátu í setustofunni. Síz,t af
öllu óskaði hún sér samtals undir
fjögur augu við Garcia í kvöld.
Hún heyrði lágan hlátur hans
að baki sér og rósemina í rödd-
inni. I>ér skuluð aldrei hafna til-
boði áður en það kemur fram,
ungfrú Laurier. Það er engin
kaupmennska og þér vitið, að ég
gæti gert mikið fyrir þetta hús
yðar --- og eyjuna. Peningarn-
ir tala nú á dögum — jafnvel á
afskekktustu stöðum.
Þegar inn í forstofuna kom.
benti hún honum, hvar hann
gæti hengt regnfrakkann sinn og
hattinn, og leit svo á hann, kulda
lega og hæðnisléga. Kannske var
hann, eftir allt saman. það sem
greifafrúin hafði sagt hann vera:
skrílL Hann bar á sér milljónirn
■V£
3/fim
kœliskápsins
-flvmu oj^jJiíjsle/S
®tíiS jþcr
# */.
* • - - þaS bcr að vanda val fians §
^ . Austiir??
feliskápj
«i
— Flýtið ykkur að éta þennan ís. Annars getum við
ekki haldið meðalhraðanum!
ar hans föður síns eins og hverja
aðra brynju, og sjálfsþótti hans
var óbilandi. Það gæti verið gam
an að sýna honum það svart á
hvítu, að jafnvel nú á dögum,
fæst ekki hvað sem er þó að pen
ingar séu í boði.
Hún sagði. hæversklega: Ég
ætla að bjóða yður upp á eitt
glas, herra minn, og biðja svo
Joseph að ajta yður til skips. Þér
viljið víst hvort sem er gjarnan
haJda áfram ferð yðar á morgun.
Hann brosti dapurlega. Þér er
uð næstum eins ógestrisin og
vinafólk yðar, de Tourville,
sagði hann léttilega. En þér slepp
ið ekki svo auðveldlega ,við mig.
Hann gekk til hennar og greip
um hendur hennar og augun
leiftruðu snögglega. Það var ekki
húsið eitt. sem ég kom til að
sjá, Frankie.... því megið þér
trúa! Ef þér viljið ekki yfirgefa
heimili yðar, þá gildir þ. ð auð-
vitað. En þér verðið að leyfa mér
að heimsækja yður í fyrramálið.
Hann leit kring um sig. ... og
skoða Laurier í allri þess dýrð..
Ég er svo hrifinn af gömlum hús-
um, jafnvel þó ég geti ekki keypt
þau.
Hún roðnaði ofurlítið, og hálf
skammaðist sín fyrir þetta. jafn-
gestrisinn og hann hafði verið
við hana í Trinidad. Komið þér
þá seinnipartinn á morgun, sagði
hún og losaði hendur sínar. Ég
verð vant viðlátin fyrripartinn.
Og nú skuluð þér koma og hitta
kunningjafólk mitt aftur.
Þegar hún hlustaði á hann
skrafa hlæjandi við Sol og Jeff-
erson og Tom inni í stofunni, tók
hún að spyrja sjálfa sig, hvers-
vegna hún hefði svona mikla ó-
beit á honum. I Trinidad hafði
hann verið kurteis og alúðlegur
gestgjafi í gistihúsi föður síns.
Það var ekki sannjarnt að dæma
menn eftir því, sem aðrir segðu
um þá. og André kynni að vera
vilhallur.
XVII.
Þegar Frankie ók yfir hoss-
andi trébrúna yfir ána, hafði
hún ákafan hjartslátt. Skógivaxn
ir klettamir voru fallegir í
skærri morgunbirtunni og himin
inn heiðblár. Stormurinn í gær-
kvöld hefði eins vel getað verið
ímyndun hennar- og ekkert
minnti á hann — nema stóra
hvíta skemmtiskipið úti á Lúsíu-
flóanum.
Hún velti því fyrir sér, hvort
André myndi fara að sýna henni
sjúkrahúsið, eftir það, sem skeð
hafði heima hjá honum. og hvort
hann mundi yfirleitt tala við
hana, ef hann stæði í þeirri trú,
að hún hefði sent eftir Garcia.
En að því varð hún að komast,
og hún Varð að minnsta kosti að
friða hann með fullvissu um, að
henni kæmi ekki til hugar að
selja Laurier til gistihúsafyrir-
tækis Mendozafeðganna.
Pálmahöllin gnæfði fyrir ofan
hana. tignarleg, gráleit stein-
bygging, sem ekkert prýddi nema
nokkrir grannir turnar, sem
hefðu betur átt heima í kastala
við Loire. Hún hugsaði með sér,
að í útliti hefði höllin alls ekki
breytzt neitt, og ekkert benti til
þess. að þetta væri sjúkrahús,
nema sjúkrabillinn, sem stóð þar
úti fyrir.
Hún vissi sjálf, að það var
hlægilegt, en þegar hún gekk inn
í stóra marmaraforsalinn. sem
var svalur, jafnvel í mestu hitum, i
bjóst hún við að hitta gamla
greifann. Þegar hún hafði verið
boðin í barnasamkvæmi þarna,
áður fyrr — og endranær fékk
hún ekki að ganga inn um aðal-
dyrnar — hafði Henri de Tour-
ville jafnan verið þar til að taka
á móti henni. Þá kom hann út
úr lestrarherberginu sínu með
opinn faðminn, brosandi. og hún
hljóp þá beint í fangið á honum.
Æ, elskan mín! Komdu nú og
hjálpaðu mér til að skemmta hin
um gestainum, var hann vanur
að segja. Alltaf sagði hann eitt-
hvað, sem gaf til kynna. að hún
væri velkomin, til þess að draga
úr hræðslu hennar við Helenu,
sem annars hafði hrætt hana til
dauða við þessar hátíðlegu athafn
ir. Því að Helena hafði alltaf haft
lag á því að gera jafnvel svona
samkomur fráhrindandi. En
Henri var vanur að leiða hana
við hönd sér út á garðpallinn að
húsabaki og talaði þá alltaf við
hana um eitthvað, sem hann
vissi. að henni þætti skemmtilegt,
hvort sem það var nú fiðrildið,
sem hann hafði séð í pálmalund-
inum. eða nýja veiðistöngin, er
hann ætlaði að -fara að reyna með
Edvard frænda, eða síðasta við-
bótin við húsdýrin á búgarðin-
um. Og svo stóð hann rétt hjá
henni meðan hún var að Ijúka
því af að heilsa Helenu kurteis-
lega þarna úti. og svo sendi hann
hana af stað til að gá að André,
sem var venjulega að gegna sín
um gestgjafastörfum niðri við
ána.
Hvílík eldraun höfðu þessi sam
kvæmi ekki verið! Hversu gjör-
ólík félagsskap þeirra Andrés
hversdagslega, í skólanum eða
við leik, datt henni nú í hug.
Stóri forsalurinn var óbreytt-
ur, en hún kannaðist strax við
spítalalyktina þar. þessa marg-
blönduðu meðalalykt, sem hvergi
finnst annarsstaðar en á sjúkra-
húsum.
Vestur-indíski dyravörðurinn
kom fram fyrir stórvaxnar jurtir
sem þarna voru og heilsaði henni
með handabandi. Velkomin heim,
ungfrú; Ég var að spyrja sjálfan
mig, hvenær þér kæmuð að heim
sækja okkuí — herrann bíður
yðar. Svo kallaði hann á unga,
svarta hjúkrunarkonu og sagði
henni að fylgja henni til herrans.
Svo hann hefur þá búizt við
þér. þrátt fyýir það, sem gerðist
í gærkvöldi, hugsaði hún og svo
brosti hún til litlu hjúkrunarkon
unnar sem gekk á undan henni
upp stigann og áleiðis að litla
turnherberginu, sem hafði verið
Svefnherbergi Andrés, þegar
hann var drengur.
Yður finnst víst margt hafa
breytzt hérna. ungfrú, sagði sú
svarta forvitnislega.
Já, hér hefur margt breytzt,
svaraði Frankie og röddin var
hás, en mér finnst það hafa
breytzt til batnaðar. Þetta verð-
ur ágætis sjúkrahús.
Já. það er sannarlega ágætt,
svaraði hún og öll feimni henn-
ar hvarf snögglega. Systrunum
finnst þetta hreinasta himnaríki
á jörðu, eftir þetta hræðilega hús,
sem þær höfðu í Bellefleur. Hún
reigði höfuðið hreykin. Hérna höf
m við stórar og góðar sjúkrastof
ur, sem eru alltaf svalar, vegna
þess hvað steinveggirnir eru
þykkir og svo er þetta það hátt
upp frá sjónum. að loftið er heil
næmt....
GEISLI GEIMFARI >f >f X-
>f >f >f
•— Þetta kalda logsuðutæki er
sannarlega fljótvirkt, Geisli!
.— Fleming ofursti! Hvað eruð þið
að gera við nýja skjalaskápinn okk-
ar?
— Hvers vegna var mér ekki sagt
''að búið væri að skipta, ungfrú
Booth? Sem yfirmaður öryggiseftir-
lits jarðar á ég að fá að fylgjast með
öllum nýjungum!
Þær sáu inn í löngu, svölu
sjúkrasto'furnar þar sem hjúkrun
arkonur og nunnur voru á ferli
í snyrtilegum búningum og Fran
kie dáðist að öllum þeim friði og
ró, sem þarna ríkti. Hún hugsaði
með sér, að andrúmsloftið þarna
í höllinni hefði heldur en ekki
batnað síðan Helena réð þar ríkj
um.
Nú er kominn matartími, sagði
sú svarta brosandi yfir öxl sér.
um leið og hún benti Frankie á
stigann, sem lá upp í turninn. —
Þessa leið!
Ég rata þetta allt saman, hugs-
aði Frankie og hló að sjálfri sér
fyrir að vera með hjartslátt. Og
þegar sú svarta hafði barið að
dyrum og hún heyrði André
segja: kom innf fannst henni
helzt eins og hjartað í henni ætl
aði alveg að stöðvast.
Já, bjáni hafði hún verið að vera
að koma hingað og stofna sér í
þessar kvalir, eftir það. sem
gerzt hafði í gærkvöldi. í gær-
kvöldi hefði hún getað yfirgefið
eyna án þess að finna til þess,
og ekki þurft annað en kveðja
Tourville-fjölskylduna kurteis-
3|Utvarpiö
Fimmtudagur 9. nóvember.
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05
Morgunleikfimi — 8:15 Tónleikar
— Fréttir — 8:35 Tónleikar —
9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl.
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar —
12:25 Fréttir og tilkynningar)
13:00 Sjómannaþáttur: ,,Á frívaktinni**
(Sigrfður Hagalín).
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk.
Tónleikar — 16:00 Veðurfr. —
Tónleikar — 17:00 Fréttir — Tón-
leikar).
17:40 Framburðarkennsla í frönsku og
þýzku.
18:00 Fyrir yngstu hlustendurna (Guð-
rún Steingrímsdóttir).
18:20 Veðurfregnir. — 18:30 Þingfrétt
18:50 Tilkyinningar — 19:30 Fréttir.
ir — Tónleikar.
20:00 Á vettvangi dómsmála (Hákon
Guðmundsson hæstaréttarritari).
20:20 Lög ,úr óperettum: Austrrískir
listamenn leika og syngja.
20:35 Erindi: Ólögleg mannanöfn; sfð-
ara erindi (Dr. Halldór Halldórs
son prófessor).
21:00 Frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabiói, —
fyrri hluti. Stjórnandi: Jindrich
Rohan. Einleikari á fiðlu: Einar
G. Sveinbjörnsson.
a) „Á leiði tónskáldsins Couper
in“ eftir Maurice Ravel.
b) Ljóð fyrir fiðlu og hljómsveit
eftir Ernest Chausson.
21:40 Af blöðum náttúrufræðinnar:
Örnólfur Thorlacius fil. kand. tal
ar um svartadauða-pláguna 1402.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Upplestur: „Herra Vorel“, smá-
saga eftir Jan Neruda í þýðingu
Málfríðar Einarsdóttur (Jón Að-
ils leikari).
22:30 Harmoííikuþáttur í umsjá Högna
Jónssonar og Henrys J. Eyland.
23:00 Dagskrárlok.
Föstudagur 10. nóvember
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:03
Morgunleikfimi — 8:15 Tónleikar
— Fréttir — 8:35 Tónleikar —
9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl.
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar
12:25 Fréttir og tilkynningar)
13:15 Lesin dagskrá næstu viku.
13:25 „Við vinnuna“: Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tillk.
Tónleikar — 16:00 Veðurfr. —•
Tónleikar — 17:00 Fréttir — Tón-
leikar).
17:40 Framburðarkennsla í esperanto
og spænsku.
18:00 „Þá riðu hetjur um héruð“: Ingi
mar Jóhannesson flytur annan
þátt um Gísla Súrsson.
18:20 Veðurfregnir. — 18:30 Þingfrétt
ir — Tónleikar.
18:50 Tilkyinningar — 19:30 Fréttir.
20:00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson
cand mag.)
20:05 Efst á baugi (Björn Jóhannsson
og Tómas Karlsson).
20:35 Frægir söngvarar; III: John Mc
Cormack syngur.
21:00 „Fljúgandi næturlest”: Jóhann
Hjálmarsson skáld lee úr nýrri
ljóðabók sinni.
21:10 Tónleikar: „Suður-anferísk sin-
fónetta eftir Morton Gould —
(Hollywood Bowl sinfóniuhljóm
sveitin leikur; Felix Slatkin stj.>.
21:30 Útvarpssagan: „Gyðjan og ux-
in“ eftir Kristmann Guðmunds-
son; XXV. (Höf. les).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Erindi: Að kunna ekki að hlakka
til (Hannes J. Magnússon skóla^
stjóri á Akureyri).
22:35 Á síðkvöldi: Létt klassísk tón-
list:
a) Pólonesa nr. 5 í fis-moll op.
44 og nr. 6 í As-dúr op. 53 eft-
ir Chopin (Malcuzynski leik-
ur)4
b) Kristen Flagstad syngur fjög-
ur lög eftir Sinding; Edwin
McArthúr leikur undir á
píanó.
c) Þrír þýzkir dansar (K605) og
tveir menúettar eftir Mozart
(Hljómsveitin Philharmonia
leikur; Colin Davis stjórjaar).
23:20 Dagskrárlok.