Morgunblaðið - 11.11.1961, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.11.1961, Blaðsíða 5
Laugaidagur 11. nóv. 1961 MORCVNBLAÐIÐ 5 Björn Landström segir dönskum bóksölum frá bók sinni. BÓKIN „Skipið“ eftir Björn Landström er nýlega komin í bókabúðir. Er hún á dönsku gefin út af bókaútgáfunni Gyldendal í Kaupmannahöfn. Bókin segir sögu skipsins í 6000 ár fram til vorra daga og kom hún fyrst út í Sví- þjóð í fyrra. Er rún prýdd 810 teiknuðum myndiim bæði í litum og svart hvítum og eru þær allar gerðar af höfund inum. x-x-x Björn Landström er fæddur í Finnlandi 1917 og bjó þar til BÚK UM ársins 1959, en þá fluttist hann til Svíþjóðar. Hann er málari og auglýsingateiRnari og mjög mikils metinn bókaskreytinga maður. Aðaláhugamál hans hefur alltaf verið skip og allt þeim viðkomandi, hafið og sjó ferðasögur. Hefur hann þegar skrifað fjórar bækur u-m þessi efni. Og vöktu þær tvær fyrstu mesta athygli, en önn ur fjallaði um siglingu um- hverfis jörðina, og hin u.m ferð Leifs Eiríkssonar til Vín lands. Landström hafði í mörg ár leitað að bók, þar sem saga skipsins væri sögð í mynd- um, en hún var alls ekki til. Þess vegna ákvað hann að gera slíka bók sjálfur. Verkið var allt annað en auðvelt, an Landström er bæði listamaður, rithöfundur og könnuður. Hann er einn af þeim fá mönnum, sem glímir við örðugleikana eins og eitt hvað sem á að sigra. Og það skal verða gert, þó það taki mörg ár. Þegar Landström hafði safn að efninu gekik verkið fljótt fyrir sig og á tveimur árum varð bókin til. Hefur hún vakið mikla hrifn ingu og bókaútgáfufyrirtæki í tíu löndum hafa þegar tryggt sér útgáfurétt. Bókin er ávöxtur vitneskju, sem LangStröm safnaði úr þús undum bóka, á löngum ferða lögum, heimsóknum á öll söfn í Evrópu, sem hafá að geýma minnjar um siglingar og með því að tala við fjölda fróðra manna og yfirvalda. SKiPIÐ Bókin kom út í Danmörku í ágúst í sumar og í tilefni þess bauð útgáfufyrirtækið Gylden dal 300 dönskum bóksölum, flestum frá Kaupmannahöfn og nágrenni á kvöldsiglingu yfir sundið til Málmeyjar og leigði til þess ferjuna „Absa- lon“. Grímur Gíslason, forstjóri Innkaupasambands bóksala, var einmitt staddur í Dan- mörku um þessar mundir og var honum boðið með í för- ina. Náðum við tali af honum fyrir skömmu og báðum hann að segja okkur frá henni: — Þetta var mjög ánægju- leg ferð, sagði Grímur. Mér var boðið með, því að forstöðu menn útgáfunnar vildu sjá hvort nokkur munur væri á íslenzkum bóksölum og dönsk um, en það sýndi sig að svo var ekki. Veðrið var mjög fagurt á meðan á ferðinni stóð, en siglt var mjög hægt, því að á leið inni yfir til Svíþjóðar var framreiddur glæsilegur kvöld- verður. A borðin var dreift tveimur kvæðum, sem ort höfðu verið um „Skipið" í tilefni fararinnar. Voru þau kyrjuð við raust undir borð- um og spilað undir. í þeim hluta ferjunnar, sem venjulega er notaður sem bíla geymsla hafði verið komið fyr ir ræðustól og sætum fyrir boðsgesti Og talaði Björn Lang ström þar um bók sína, ©n for maður danska bóksalafélags- ins þakkaði. Þegar til Málm- eyjar kom tók á móti okkur lúðrasveit slökkviliðsins þar og lék fyrir hönd sænsku bóka útgáfunnar Forum, sem bauð okkur velkomna. En það var Forum, sem fyrst gaf út „Skip ið“. Viðdvölin í Málmey var stutt, aðeins farið inn í toll- búðina þar og aftur út í skip- ið. Var síðan siglt aftur til Dan merkur. Eins og ég sagði í upphafi, var ferðin öll hin ánægjulegasta og boð útgáf- unnar mjög höfðinglegt. Hef- ur hún það fyrir sið að bjóða bóksölum upp á eitthvað slíkt af og til í tilefni af útgáfu nýrrar bókar. — Við notuðum tækifærið __ og spyrjum Grím Gíslason, hvort ekki séu fleiri bækur frá Gyldendal komnar á mark aðinn hér. — Jú, það má t.d. nefna 10 bindi með verkum Martin A. Hansen. Hina stóru matreiðslu bók Gyldendals, handbók, sem í eru upplýsingar um sauma- skap og flestar tegundir handa vinnu og svo myndskreytta biblíu. Er hún mjög vegleg og fengum við hana senda í trékössum, eitt eintak í hverj um og er hún fyrsta bókin, sem við fáum í slíkum um- búðum. I 1 dag verða gefin saman i borg- eralðgt hjónaband Ragna Brynj- arsdóttir, Selvogsgötu 7, Hafnar- firði og Sigurjón Pétursson, Berg- staðastraeti 64, Reykjavík. 1 dag verða gefin saman í hjóna band af sr. Jóni Þorvarðssyni ung frú Bára Sigurbergsdóttir, Há- teigsvegi 50 og Helgi Sigurjóns- ®on, Barmahlíð 11. Heimili ungu bjónanna verður að Rauðalæk 47 Gefin verða saman í hjónaband 1 dag af séra Þorsteini Björns- syni, ungfrú Jóna Guðrún Guð- mundsdóttir, Hólmgarði 10 og Þorleifur Oddur Magnússon, Miklubraut 11. Heimili brúðhjón- anna verður að Njörvasundi 4. 4. þ.m. voru gefin saman í hjónaband af séra Jóni Þorvarðs ®yni, ungfrú Olöf Sigríður Ste- Eiginmaðurinn sat og gortaði við vini sína: — Heima hjá mér ákveð ég alit, sem máli skiptir, en kona mín hitt. ■— Hvað ákveður konan þín? — Ja, hún ákveður hvaða teg und af bíl við kaupum, hvert við förum í frí, hvað við borðum og hvernig húsgögn við höfum. — En hvað er það eiginlega, sem þú ákveður? — Eg ákveð alla stærri og mik ilsverðari hluti, t.d. hvort ísland eigi að vera í NATO eða ekki. fánsdóttir og örn Pálmi Aðal- steinsson, bifreiðastjóri. Heiimili þeirra er í Eskihlíð 35. Svava H. Jónsdóttir, Elliheimil inu Hlévangi, Keflavík, er 50 ára í dag. Hún dvelur í dag á heim- ili frænda síns, Ólafs Ingibers- sonar, Miðtúni 1, Keflavík. Til sölu þýzk Gratez eldavél, setu- sófi 3ja manna og dregill á hagkvæmu verði. Hátúni 6 4. hæð íbúð 22 Danskur Pedicure stóll úr stáli til sýnis og sölu, rakarast. Hvemsg 108 Hráolíuofnar til sölu. Uppl. gefur Harald ur Ágústsson Framnesv. 16 Keflavík Sími 1467. Píanó — Píanó Nokkur góð notuð píanó nýkomin Helgi Hallgrímsson Ránarg. 8 — Sími 11671. Leikfélag Rejkjavíkur Háskólabíó. Barnaskemmtun til ágóða fyrir húsbyggingasjóð L. R. verður haldin sunnudaginn 12. nóv. kl. 3. Skemmtiatriði: m. a. út myndabók Jónasar Hallgrímssonar. Karius og Baktus Hljómsveit Svavars Gests. Hljómsveit leikara. Aðgöngum. í Háskólabíói og Iðnó frá kl. 2 í dag. Hljóm'eikar verða í Austurbæjarbíói li sunnud. 12. nóv. kl. 15. L'iusöngur: VALENTINA MAXIMOVA. Einsöngvari Akademiska óperii oa ballettleikhússins í Leningrad, heiðraður listamaður Sambands rúss- nesku Sovétiíkjarmp. Einieikur og undirleikur Vera Podolshkaja kennari við Tónlistarbáskól ann í Moskvu. Aðgöngumiðasala í bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18, Bókabúð KRON Bankastræti, Mír- salnum, Þingholtsstræti 27 og Austurbæjarbíói. Verð kr. 5(1 hver miði. M í R. Alltaf opið Athugið að gróðvrhúsin eru fjll af hinum viður- kenndu fögru blómum í þúsuudateli og nýjungar eru alltaf hjá PALL V. MICHFLSIN, Hveragerði. Útgeiðaimenn — Skipstjóim Þeir útgerðarinenn. sem þegat- hafa pantað hjá oss herpinætur og þorskanet. Svo og aðrir útgerðar- merjn gjöri svo vel að hafa samband við undirritaða á Hótei Borg næstu daga, Tva.r Faxaflóanætur til sölu seinni h'uta mánaðarins. Sýnishorn ug tet.kningar fyrirliggiandi. Netiamenn h.f. Dalvík Kristinn Jónsson, N. P. Utzon, Cbristian Nielsen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.