Morgunblaðið - 11.11.1961, Page 11

Morgunblaðið - 11.11.1961, Page 11
Laugavdagur 11. nóv. 1961 MORCVmtL AÐ1Ð 11 Skurðgröfur Það mjakast MIKIÐ er stundum gaman að sjá hvernig hlutirnir mjakast á- fram, fyrst hægt, en fyrr en varir er kominn fullur skriður á. Árið 1955 hóf ég fyrst að skrifa um þá nýjung í tækni, að nota litlar, ódýrar traktorgröfur við n.inni hóttar framræslu með opnum skurðum, lagði ég til að það yrði reynt, jafnhliða því sem auðvitað væri upplagt, að nota siíkar gröfur við ræsagerð margs konar, svo sem þá var farið að gera mjög víða erlendis. Þessari tillögu minni var allt annað en vel tekið, í sjálfu Bún- aðarritinu kvað við: „Vitanlega var þessi tillaga að engu höfð, jþví að aðrir vissu betur“. Haust- ið 1958 vekur Árni Jónsson til- raunastjóri á Akureyri athygli á Bvona traktorgröfum, hafði séð þær í Englandi, og skömmu síðar er hin fyrsta keypt til landsins, að ég hygg fyrir atbeina hans. Síðar gat Vélanefnd ekki leitt fnálið hjá sér og keypti traktor- gröfu, en því miður virðist ekk- ert hafa verið gefið út (ritað) um reynslu nefndarinnar á því Eviði, væri þess full þörf, því að nú er það stórt í efni, að þörf er leiðbeininga á þessu sviði. Að irr.innsta kosti 4 mismunandi teg- undir af traktorgröfum munu hafa verið fluttar inn, og nú sé ég t. d. í júlíblaði Freys heillar ©pnu auglýsingu um traktorgröf- ur, og i ágústblaðinu er auglýst norsk traktorgrafa Han-Jern (á að vera Kam-Jem þ. e. skamm- stöfun af Hamar Jernstöperi). Eins og venjulega dreifist inn- flutningurinn á fleiri gerðir og imerki; ekk^ gott að gera við því, þótt ekki sé það hagkvæmt varð- landi -tarahluti, en erfitt er að svifta menn frjálsræði um val og kaup. En leiðbeiningum má 'beita, ekki er það skerðing á frelsi og framtaki. Mér verður hugsað til þess, að efcki hefði það verið nein fjarstæða að kaupa eina eða tvær traktorgröfur og reyna „þegar á komandi sumri“, eins og ég stakk upp á í febrúar 1955. Á grundvelli þeirrar reynslu sem þá og þannig hefði fengizt, hefði mönnum og fyrir- tækjum svo verið leiðbeint um frekari kaup á slíkum gröfum, en auglýsingar einar efcki verið iátnar ráða. En hvað um það, það er gott og gleðilegt að þessi tækni er kom- in til íslands. En það er fleira og stærra í efni um þessa hluti. Fyrir þrem- ur árum hóf ég að vekja athygli á stórri norskri skurðgrclu sem vinnur með vökvaþrýstingi (hydraulisk). Hér er um mikla nýjung að ræða, tel ég alveg vafalaust að slíkar gröfur muni verða teknar í notkun á íslandi eenn hvað liður. Ekki svo að Bkilja að ég búizt við að þær muni ryðja úr vegi gröfum þeim erf dragskóflugerð sem nú eru mest notaðar. Við notkun þeirra hefir Vélanefnd sýnt mikla rögg- Bemi og festu, að láta ekki krítik B'kvaldurmanna hrekja sig frá réttri stefnu, við að samræma fiotkun dragskófluvéla af heppi- legri gerð. Ekki vantaði krítikk- ina hér á árunum, að þetta væru „bara seinvirkar vélskóflur" en ekki neinar skurðgröfur o. s. frv. Nei, vökvalyftugröfurnar eiga að verða teknar í notkun samhliða dragskóflugröfunum við fram- ræslu og notast sérstaklega þar Bem hart er undir, eins og t. d. f Flóanum, og þær munu einnig reynast valin verkfæri til fram- kvæmda við gatnagerð og fl. framkvæmdir i Reykjavík og á öðrum stöðum slíkum. Vonandi tekur það ekki mörg ár að réttir «ðilar átti sig á þessu. Að þessu sögðu eir erindi þessa bréfs að geta þess og vekja athygli á því að út er komið á norsku dálítið rit um vélar og tæki til notkunar við framræslu — Utstyr for mask inell gröfting. Þetta er bara smárit, 102 bls. með 58 mynd- um, en ritið er afbragðs greinagott og nýtilegt til fróð leiks. Það á sannarlega erindi til skurðgröfumanna, héraðs- ráðunauta og margra tækni- menntaðra manna. Það er Tæknistofnun landbúnaðarins sem að ritinu stendur, svo að góður er að því nauturinn. Höfundurinn heitir Hans Aamodt. Fleira hefi ég ekki um ritið að segja, menn verða að lesa það sér til fróðlekiks, það eitt dugir. Svo varð ég hér um daginn var við annað — smávægilegt, sem líka mjakast, þótt hægt fari. Hér nota menn í öllum svína- húsum tæki sem þeir kalla Sparigris. Þetta er einfaldlega eins konar djúpt „trog“ úr járn- rimlum sem hvolft er yfir gylt- una sem er í stíu með smágrísum sínum ungum, svo að öruggt sé að hún verði þeim eigi að tjóni, eins og kunnugt er hættir gylt- unum stundum til þess að leggj- ast á grísina og verða þeim að bana. í fyrra eða hitt eð fyrra tók ég nokkur eintök af auglýs ingablaði um þennan útbúnað og sendi fóeinum aðilum heima, sem fást við svínarækt. — Viti menn hvað, um daginn hitti ég eiganda verkstæðis sem smíðar þessa „sparigrísi" — „vökukon- Vökvaknúin skurð’grafa ur“ eru tækin líka kölluð — og þá sagði hann mér að sér hefði nýlega borízt pöntun frá SÍS þar sem beðið er um einn „spari- grís“. Með öðrum orðum nú ætlar einhver að reyna þetta heima. Já, eitt stykki fer nú til íslands, — gott að fara varlega í sakimar, en annars yrði víst fraktin á 6—12 stykkjum saman- bundnum, litlu eða engu meiri en á einu stykki. En sem sagt allur er varinn góður, að fara hægt og reyna þetta áður en lengra er haldið. — Annars held ég að svín séu svipuð að háttum og „innræti“ hér á Rogalandi eins og á íslandi, og norsk reynsla við hirðingu hljóti áð gilda heima — tilraunalítið. Jaðri, 30. október 1961 Árni G. Eylands. Kúabúskapur I BtJSKAPNUM á Islandi eru fjöldamörg atriði sem bæta þyrfti, og þá sérstaklega á tím- um verðfoólgiu og dýrtíðar. Vegha fjárskorts og annarra erfiðleika eru framfarir í íslenzk um landfoúnaði alltof hægfara. Framfarimar mætti örfa ef með amerískri framtakssemi tækist t. d. að byggja miklu ódýrari og hollari fjós en nú er gert. Járn- bentu steinsteypufjósin eru ekki höllar vistarverur nema sérstak- lega vel sé frá þeim gengið með rándýrri einangrun. Líklega verða fjósfoyggingar framtíðar- innar að einhverju leyti verk- smiðjuframleiðsla í stórum stíl, 1 nýju og hollu fjósin þarf svo að fá betri mjólkurkýr en nú eru til í landinu. Mjólkurframleiðsl- una þarf að auka stórkostlega á komandi árum og líka þarf mjólk in og afurðirnar að verða betri vara. Þessar og fleiri hugleiðingar eiga e. t. v. rót sína að rekja til þess að á námsárum mínum skoð aði ég marga fyrirmyndar bú- garða í Bayem og mátti þar margt læra er til framfara gæti orðið á Islandi. Ég man etftir fjósi þar sem ekki var nein fjósalykt til staðar, en það var vegna þess að þvag stóð aldrei í flórnum og laftræstingin var í lagi. „Bosch“-búgarðamir í nánd við Múnchen eru mjög frægir, en þar var fyrirmyndar fram- leiðsla ógerilsneyddar barna- mjólkur. Daglega fór fram rannsókn á mjólkinni í rannsókn arstofum, enda var hún seld nærri helmingi hærra verði en önnur neyzlumjólk. Þarna voru líka einir átta súrheysturnar hjá hverju fjósi. Var talið að bygg- ingarkostnaður súrheystums fengist greiddur á einu ári vegna vinnuspamaðar. A tilraunabúinu í ,,Grub“ voru gerðar tilraunir með gripaupp- eldi. Þar vom ræktaðar gráar svissneskar kýr. Kýrnar þar voru óheyrilega dýrar vegna þess að sérstaklgea var vandað til upp- eldisins, kálfamir vel aldir og fóðurkostnaður mikilí í samfoandi við kvígumar. Samt sögðu menn að þessir búskaparhættir borg- uðu sig margfalt vegna þess, að rétt upp aldar kýr endurgreiddu kostnaðurinn með hærri nyt eða meiri afurðum en aðrar kýr. Af þessu má því ráða hverja gmndvallar þýðingu rétt kálfa- uppeldi hefur í kúabúskapnum. Það má ekki vanrækja viður- geming kálfanna fyrstu sex mán uðina, því þá er vöxtur þeirra og þroeki örastur. Seinna er ekki hægt að ráða bót á slíkri van- rækslu. A þessum tima þroskast líka erfðir eiginleikar, svo sem mjólk urhæfileikar, sem síðar koma fram hjá fuliorðnum kúm. Fyrst þurfa kálfar að fá brodd mjólk, þá nýmjólk og síðan und- anrennu. Þegar kálfar eru orðnir mánaðar gamlir, byrja Danir smátt og smátt að gefa iþeim sýrða undanrennu og halda því áfram^ þangað til kálfurinn er sex mánaða. 1 sex lítrum af und- anrennu eru 200 gr. af steinefn- um í heppilegum hlutföllum og hafa þau áhrif á það að beina- vöxtur skepnunnar geti orðið með eðlilegum hætti. renna frá mjólkurbúum hefur reynzt betra fóður en venjuleg undanrenna. Hún er jafnara fóð- ur og þolir betur geymslu. Tilraunir í Danmörku og ®ví- þjóð hafa sýnt að sýrð undan- Þá byrja danir og snemma að gefa kálfum fóðurblöndur. Er gefið lítið magn í fyrstu og eggja hvítusnautt. T. d. til 6 mánaða aldursins 90% bygg og hafrar og 10% hörfrækökur. Seinna er hlut föllunum í fóðurblöndunni smótt og smátt breytt og þá látin inni- halda 60% bygg og. hafra, 20% Sesamkökur, 10% Solsikkekökur 10% Bómullarfrækökur. 1 sambandi við kálfaeldið verð ur að hafa hugfast máltækið „Sjaldan launar kálfur ofeldi,“ það er, að ekki má fita kálfana of mikið. Efnahlutföllin í fóðri þeirra þurfa að vera rétt. Ef kálfar eru fitaðir of mikið, er hætt við að fitujúgur myndist þegar kýrin er vaxin. Verður þá þroski júgursins með óeðlilegum hætti og fitan útrýmir þá kirtil- vefnum, sem á að myndast í júgrinu. Eg geri ráð fyrir að kúabænd- ur verði að hugsa meira um þenn an þátt í kúabúskapnum, kálfa- uppeldið. Vanþrif í kálfum kosta meira en í tölum verði talið. Kálfauppeldi útheimtir mikla að- gæzlu; að kálfar fái broddmjólk- ina, hreinlæti mjólkuríláta sé í lagi og að lyf séu gefin í tima ef meltingarkvillar gera vart við sig. Þá geri ég ráð fyrir að breyta þurfi til í kálfaeldinu eins og það er algengast nú hér á landi. Kálfar 40 daga gamlir verða að fá sýrða undanrennu í staðinn fyrir of litla og dýra nýmjólk. Undanrennuduft er of dýrt til kálfaeldis. Eg geri ráð fyrir að undanrennugjöf handa kálfurn til sex mánaða aldurs geti að ein- hverju leyti komið í veg fyrir beinveiki þá, sem er að verða al- geng í góðum mjólkurkúm. Þá þarf líka að athuga betur fóður- blöndur þær sem ungviðinu eru gefnar og hollustu þeirra. Venju lega innihalda þær nú síldarmjöl misjafnlega mikið og mjög mis- jafnit að gæðum. Ef síldarmjölið er unnið úr S'kemmdri síld, þá mun það ekki vera hollt fóður til kálfaeldis. Þess vegna þurfa að vera fáanlegar auðmeltanleg- ar fóðurblöndur handa kálfum eins og fyr hefur verið lýst (með olíukötkum). Þá ættu lika að vera í þessum fcðurblöndum 2% af viðurkendri ste’nefnablöndu. Rétt kálfauppeldi kostar mikið fé, en reynslan mun sanno að þessum fjármunum er vel varið, I húskapurinn mun endurgreiða þá og borga sig betur. — Þennan þótt í kúaræktinni hygg ég þurfi að efla og hann þarf að haldast í hendur við örar framfarir og þróun í kynbótum í nautgripa- ræktinni. Hér á ég sérstaklega við sæðingarstarfsemina, sem á fáurn árum befur gjörbreytt og bætt kúakyn annara landa. Megi aukin hreysti og afurðageta verða sá árangur sem fæsf af þessu starfi á Islandi. Kúaræktin og heilbrigðismól nautpeningsins eru nátengd og því vil ég hvetja bændur til þess að hugleiða þessi mál, því að margt mó lagfæra sem orðið gæti til þess að efla og bæta íslenzkan landfoúnað. Laugarási 31. okt. 1961, Bragi Steingrímsson, dýralæknir. NY VERZLIJN Opnar í dag B ARN AFATNAÍ) UR KVENUDNIKFATNAÐUR o.fl. Giörið svo vel og lítið inn. VAFFESS-búðin Klapparstíg 40. Reykjavík - Hafnarfjörður Frá og með laugarde-girura 11 nóvember breytast fargjöld á sérleyfisleiðum vorum og verða sem hér segir: Reykjavík — Hafnarfj.; Kr. 6,25 pr. ferð. Afsl.kort 21 ferð .S kr. 100.— eða 4,76 pr. ferð. Earnagj. 5—12 ára. Kr. 2,75 pr. ferð. Reykjavík — Garðahr.: Kr. 5,50 pr. ferð.Afsl.kort 21 ferðir á kr. 90,— (4,50 pr. ferð) Barnagj. 5—12 ára. Kr. 2,25 pr. ferð Afsl.kort 6 ferð á kr. 10,— (1,66 pr. ferð) Reykjavík — Kópav.: Kr. 4,25 pr. ferð. Afsl.kort 16 ferðir á kr. 50,— (3,12 pr. ferð) Barnagj. 5—12 ára. Kr. 2,25 pr. ferð. Afsl.kort 6 ferðir á kr. - 10,—■ (1,66 pr. ferð) Hafnarfj. — Kópavogur: Kr. 3,25 pr. ferð. Afsl.kort 9 ferðir á kr. Barnagj. 5—12 ára. Kr. 1,00 pr. ferð. 25.— (2,77 pr. ferð) Hafnarfj. — Garðahr.: Kr. 2,25 pr. ferð. Afsl.kort 6 ferðir á kr. Barnagj. 5—12 ára. Kr. 0,75 pr. ferð. 10,— (1,66 pró ferð) Hafnarfj. innanbæjar: Kr. 2,25 pr. ferð. Afsl.kort 6 ferðir á kr. Barnagj. 5—12 ára. Kr. 0,75 pr. ferð. 10,— (1,66 pr. ferð) Reykjavík - Vifilsstaðir: Kr. 6,75 pr. ferð. Barnagj. 5—12 ára. Kr. 3,25 pr. ferð. Reykjavík — Garðahv.: Kr. 6,75 pr. ferð. tarnagj. 5—12 ára. Kr. 3,26 pr. ferð. Reýkiavík — Alftanes: Kr. 8,00 pr. ferð. Barnagj. 5—12 ára. Kr. 4,00 pr. ferð. LANDLEIÐIR H.F.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.