Morgunblaðið - 11.11.1961, Side 22
22
MORCUNBLAÐItí
taugqj cJagui 11. nóv. 1961
Þórólf i boðin 1
fá 2500 pund
— segja óstaðfestar fréltjr að utan
FRAMMISXAÐA Þórólfs Beck
meS St. Mirren í Skotlandi hefur
vakið mikla athygli. Þórólfur
hefur komið til félagsins sem
hinn frelsandi engill. Félagið,
sem var neðan við miðju í fyrstu
deild í fyrra, horfði fram á fall,
þar til Þórólfur átti sinn hátt í
því að rétta hlut félagsins við
með sigri Mirren í síðustu tveim
leikjum. Fallið í 2. deild — sem
þykir dauðadómur hvers félags
— vofir ekki lengur yfir, þó bví
sé engan veginn enn örugglega
forðað.
★ „Enginn spámaður í
sínu föðurlandi.“
Skozk knattspyrna gnæfir hátt
þegar Skotar nota sína beztu
menn. En það eiru örlög knatt-
spyrnumanna þar sem annars-
staðar að þeir eru betur metnir
og fá meira kaup í öðrum lönd-
um en heima hjá sér. Allir eða
langflestir beztu knattspyrnu-
manna Skota leika með enskum
liðum — eða jafnvel ítölskum
— séu þeir mjög góðir. Stilli
Skotar upp landsliði þá leika
næsta fáir af þeim sem heima
dvelja — hinir eru kallaðir heim.
Atvinnumennskan er á háu stigi,
en heimamarkaðurinn skozki get
ur ekki greitt á við stóru félög-
in erlendis. Það eru einungis hin
stærstu félög sem megna slíkt og
ber Glasgow Rangers þar hæst,
enda er það rótgróuasta knatt-
spyrnufélagið skozka.
En þar sem atvinraumennskan
ræður ríkjum verða önnur félög
að fylgjast með. I hópi þeirra er
St. Mirren og það er allríkt
félag. En því hefur gengið mis-
jafnlega, en ekki eins illa og nú
um langt árabil. Fallið blasti við
sem fyrr segir.
★ Samningar við
Þórólf.
Þórólfur var ogr er okkar
bezti knattspyrnumaður. Að
hann skyldi verða slíku liði
sem Mirren liðstyrkur kem-
ur engum á óvart. Hann gæti
styrkt miklu sterkari lið.
Hann er ekki síðri miðherji
að dómi undirritaðs en Dan-
inn Harald Nielsen sem seld-
ist til Bologna á Ítalíu fyrir
2 millj. ísl. kr. Þórólfur gæti
með æfingu og reynslu náð
Iangt.
Þær fréttir hafa nú borizt
að Mirren bjóði Þórólfi 1500
sterlingspund fyrir undir-
skrift samnings. Frétt þessi
er lausafrétt Sömu fréttir
segja að Þórólfur vilji fá
2500 pund fyrir undirskrift,
ella fari hann heim oe haldi
sinum áhueamannaréttindum.
Staðfestar fréttir höfum við
ekki oer þær fást ekki jafn-
vel með samtölum við Skot-
land. Enda er þar allt í óvissu
með samninga milli Þórólfs
oe Mirren.
★ Málið blásið upp.
Mikið rót hefur verið um ferð
Æskulýðsguðs-
þjónusta í Hafnar-
f jarðarkirkju
HAFNARFIRÐI — Akveðið er
að í vetur verði haldnar æsku-
lýðssamkomur mánaðarlega í
Þjóðkirkjunni. Að þeim standa
prestur safnaðarins, séra Garð-
ar Þorsteinsson, og Skátafélagið
Hraunbúar. Er hér um nýjung
að ræða, því að guðsþjónustan
-íer fram með sérstöku formi, þar
eem skátarnir taka virkan þátt
í athöfninni. Þeir sjá t. d. um
eöng, skáti les guðspjallið o. s.
frv. Þá flytur presturinn ávarp.
Fyrsta guðsþjónustan með
þessu sniði verður á morgun
(sunnudag) og hefst kl. 11 f. h.
Að sjálfsögðu eru allir velkomn-
ir og æskulýður bæjarins hvatt-
ur til að fjölmenna og hafa með
sér sálmabók. I kirkjunni verð-
ur úthlutað eintaki af formi
guðsþjónustunnar. — G. E.
,,Kvik-
sandur44
LEIKFÉLAG Reykjavíkur sýjn
ir leikritið KviKsand í lonó
í fjórða sinn í kvöld. Fyrstu
þrjár sýningarnar hafa tekizt
með afbrigðum vel og dómar
gagnrýnenda verið á einn veg,
— að hér sé um að ræða frá-
bæra sýningu, sem sé leikfé-
laginu til mikils sóma. — Á
þriðju sýningu, sl. fimmtudag
var alþingismönnum boðið að
sjá leikinn.
Meðfylgjandi mynd er af
fjórum aðalleikenúum: Talið
frá vinstri, Brynjólfur Jóhann
esson, sem leikur föðurinn;
Gísli Halldórsson, sem fer með
hlutverk bróðurins, Póló;
Helga Bachmann. sem leikur
eiginkonu eiturlyfjaneitand-
ans Jonna Pope, en með hlut-
verk hans fer Steindór Hjör-
Ieifsson af mikilli snilld.
Þórólfs utan og fátt eitt staðfest
af fréttum sem birzt hafa. Tekn-
ar hafa verið blaðaumsagnir í
ýmis blöð hér og gerðar stærri
hér heima en úti voru. Víst er
það frami fyrir ísl. knattspymu-
mann að fá lof erlendis. En það
er visst álit á ísl. knattspyrnu
ef bezti maður hennar fær ekki
boðið í sig nema 1500 pund.
★ Afsal réttinda.
Með því að gerast atvinnu-
maður afsalar iþróttamaður
sér miklum réttindum. Ekki
íþróttarinnar vegna einungis
heldur sjálfs sín vegna.
Tökum dæmi: Jimmy Brown
var markvörður Mirren er
það kom hingað í vor, dáður
maður oe hafði mesta milli-
göngu um það að Þórólfur
fór utan. Nú 4 mánuðum síð-
ar er Jimmy I ónáð. Það er
lögmál atvinnumennskunnar
að kasta fyrir borð þeim sem
ekki geta nóg að dómi eigenda
liðsins eða eru óþægilegir
umgengni. Jimmy er þegar i
stað seldur.
Með samningi afsalar at-
vinnumaðurinn sér vissum
frelsisréttindum Hann selur
sig ákveðnu félagi. Kastist
svo í kekki milli félagsins og
mannsins, getur félagið hrein
Iega losað sig við hnan, hvort
sem maðurinn heitir Jimmy
Brown eða Þórólfur.
Komi maðurinn óreyndur
og lítt þjálfaður miðað við
hæfileika sem í honum búa og
geri samning við félag og fái
1000—1500 pund hefur hann
selt frelsi sitt að nokkru. Nái
hann þroska i atvinnumennsk
unni og félagið sem keypti
hann upphaflega selji hann
sem stjörnu fyrir kannski 10
— 20 þúsund pimd þá fær
leikmaðurinn sjálfur næsta
lítinn hluta þessarar upphæð
ar. Það er félagið sem græðir
ekki maðurinn sjá.lfur.
Frá þessu sjónarmiði ósk-
um við ekki að Þórólfur selji
sig St. Mirren fyrir 1500 wund.
Heldur vildum við að ísl.
knattspyrna nyti hans — og
hún gæti aðstoðað hann eítt-
hvað á móti bví sem hann
aðstoðaði ísl. knattspyrnu.
— A. St.
Þorleifur jarðfræðingur kominn að línunni. Lúmskur nemandi
hans þrífur í hendi kennarans en forðar þó ekki marki.
Myndir tók Sveinn Þormóðsson.
MENNTASKÓLINN hélt sína
iþróttahátíð í fyrrakvöld að
Hálogalandi. Húsfyllir var
þar — og jafnvel meira til.
Og allir skemmtu sér hið
bezta.
Er Menntaskólinn í Reykja-
vík hafði sýnt hinum Mennta-
skólunum, það er Yerzlunar-
skólanum og Menntaskólan-
um á Akureyri í tvo heimana
í handknattleik og Mennta-
skólanum á Laugarvatni í
körfuknattleik, kor.- aö aðal-
leik kvöldsins. Það var harð-
skeytt lið kennara Mennta-
skólans og bezta lið skólans
sem reyna áttu með sér.
í fyrstu virtist ýmsum sem
nemendaliðið héldi sig kunna
allt betur en kennararnir og
teldu sig ekki þurfa að leggja
sig fram. En von bráðar sáu
nemendur sig um hönd og sáu
að kennararnir gátu meira en
„jafnvel þeir sjálfir". (Betur
að þeir sæu það varðandi
námsgreinarnar líka, heyrðist
sagt).
Og svo fór að lokum að
kennaraliðið — þó eldra' sé að
árum reyndist sterkara. „Það
er ekki allt gull seru glóir“
sagði ein námsmeyjanna, sem
skotin var í skolhærðum pilti
í nemendaliðinu.
Valdimar Örnólfsson var í
marki kennara og stóð sig
sem hetja. Þakka menn það
3 ára morgunleikfimi hans.
Og Þorleifur Einarsson jarð
fræðingur, sá er sagði í við-
tali við Mbl. að arfi hefði
Þetta er Valdimar sem stjórn-
ar morgunleikfimi útvarpsins.
Hér ver hann mark kennara-
liðsins. „í landsliðið með
hann,“ segja háværar raddir.
verið í túni Njáls á Bergþórs-
hvoli, var mesta stjarna kenn-
ara liðsins á velli úti — enda
er hann einn af beztu hand-
knattleiksmönnum landsins.
Og skemmtunin var goð.
Svona mættu skólarnir oftar
nota íþróttir, kapp og leiki til
skemmtunar og upplyftingar.