Morgunblaðið - 23.12.1961, Blaðsíða 24
DACUR
TIL JÓLA
DAGUR
TIL JÓLA
Fálki réðist
inn í hænsnahús
STYKKISHÓLMI, 22. des. —
Það gerðist hér í dag eftir há-
degi, að fálki kom fljúgandi og
réðist inn í hænsnahús hjá
systrunum á St. Fransiskusar
sjúkrahúsinu. Hafði drepið 6
hænur áður en að var komið.
Heyrðu menn, sem voru að
vinna þar nálægt hávaðann í
hænsnahúsinu. Komu þeir á
vettvang, og króuðu fálkann
af í hænsnahúsinu, handsöm-
uðu hann og stungu honum í
kassa, sem þeir strengdu síðan
net yfir- — Fréttaritari.
★
FÁLKINN, sem kom í heim-
sókn til Stykkishólms og réð-
ist þar á hænur kaþólsku
nunnanna er nú fanginn í búri
hjá Siemsen apótekara stað-
arins og tekur lífinu með ró.
Við náðum tali af Siemsen í
gærkvöldi og sagði hann að
gripurinn væri grimmur, er
reynt væri að nálgast hann, en
ýmislet góðgæti þiggur hann
þó og étur með beztu lyst,
Lambakjöt er hans uppáhalds-
fæða og einnig át hann mús
með góðri lyst er hann fékk
í gær
Þeir Hólmarar telja fálka
þennan gamlan heimagang og
hefir hann komið þar undan-
farna vetur Segir Siemsen að
hann sé sýnilega gamall, því
svo sé nefið á honum slitið
orðið Hann ræðst af og til á
dúfurnar strákanna í bænum
og þykir þær hið mesta góm-
sæti,
Þrátt fyrir yfirgang hans
við nunnur staðarins og spjöll
hans á hænsnum þeirra hef-
ir verið ákveðið að fara með
kauða út fyrir staðinn og gefa
honúm frelsi.
Góöur síldarafii
GÓÐ síldveiSi var í fyrrinótt og
komu flest skipanna í gær með
afla sinn inn til hafnanna hér
við Faxaflóa, einstaka töldu þó
ástæðu til að bíða úti til öflun-
inn brennur
í GÆR var stráikunum í Teiga-
hverfinu gerður ljótur grikkur.
Þeir hafa undanfarinn rúrean
imlánuð verið að safna sér í mynd-
arlega brennu og komið henni
upp. Ætluðu þeir að njóta henn-
ar um áramótin sem aðrir strák-
ar í bænu-m- Brenna þeirra leit
út fyrir að verða með þeim glæsi-
legustu, sem stofnað hafði verið
til. En einhverjir hafa þurft að
fá fljótræði sinu eða illgimi út-
rás, því undir kvöld hafði verið
kveikt í brennunni. Margra vikna
erfiði fjölda unglinga logaði upp
löngu áður en því var ætlað.
Fjöldi fólks safnaðist saman við
bálið en fjæ'r stóðu höfundar
verksins, sem fyrir þeim hafði
verið eyðilagt.
Teigarstrákarnir hafa með sér
félagsSkap hinn öflugasta og
hyggja á hefndir með því að
reisa nýjan bálköst fyrir gamlárs-
kvöld en til þess þurfa þeir hjálp
þeirra er efni geta veitt þeim til
þessa. Ekki er að efa að einlhverj-
ir verða til að rétta hlut þeirra.
Elzta kona í
Reykjavík látin
í GÆR lézt elzta konan í
Reykjavík, Þórunn Bjarnardóttir
frá Núpi á Berufjarðarströnd, 101
árs að aldri, fædd 2. nóv. 1860.
Þórunn var dóttir Bjarna Þórðar-
sonar og- Málfríðar Jónsdóttur.
Hún giftist Jóni Bjarnasyni frá
Dölum í Fáskrúðsfirði árið 1891.
Gerðu þau bú að Fögrueyri við
Fáskrúðsfjörð, en 1903 fluttust
þau til Reykjavíkur og bjuggu
þar síðan.
Mann sinn missti Þórunn 1952,
en hún hefir um langt árabil not-
ið aðhlynningar dóttur sinnar,
Málfríðar, í Granaskjóli 17
rjarnagsaæuunin sam-
þykkt í bæjarstjórn
FJÁRHASÁÆTLUN
Reykjavíkurborgar fyrir árið
1962 var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar Reykjavíkur
kl. 8 í gærkvöldi. Hafði fund
ur bæjarstjórnar þá staðið
nær látlaust frá því kl. 2 e.
h. á föstudag.
Samþykktar voru nokkrar breyt
ingartillögur við frumvarpið að
fjárhagsáætlun, sem bæjarráð
hafði komið sér saman um og
nokkrar breytingartillögur sem
bæjarfuiltrúi r Sjálfstæðisflokks-
ins fluttu Fulltrúar minnihluta-
flokkanna fluttu í áróðursskyni
mikinn fjölda breytingartillagna,
við einstaka liði, sem allar voru
felldar Ennfremur fluttu þeir
f jölda áivktunartillagna, sem þeir
höfðu áður flutt flestar í bæjar-
stjórninm. Var þeirn ýmist vís-
að frá eða visað til bæjarráðs og
einstakra netnda.
★
Þegar fulltrúar minnihluta-
flokkanna höfðu flutt langar
framsöguræður fyrir tillögum sín
um, sem getið var hér í blaðinu
í gær, tóku nokkrir bæjarfull-
trúar Sjáifstæðisflokksins til
máls Og svöruðu gagnrýni, sem
fram hafði komið í ræðum þeirra.
Þessir bæjarfulltrúar Sjálfstæð
isfiokksins töluðu við umræðuna,
auk Geirs Hallgrímssonar, borg-
arstjóra: Auður Auðuns, Þorvald
ur Garðar Kristjánsson, Björgvin
Frederiksen, Gísli Halldórsson,
Úlfar Þórðarson, Einar Thorodd-
sen og Magnús Jóhannesson.
Framhald á bls. 2.
ar frekari magns, einkum þau
sem veiða í Skerjadjúpinu, suð-
vestur af Reykjanesi, en þar er
yfirleitt um bræðslusíld að
ræða. Vestur af Jökli veiðist enn
betri sild og er reynt að taka
hana til vinnslu í frystihús og
til söltunar.
í HÉR er verið að hella smá-
síld af bílnum í þró í Vest-
mannaeyjum. Þangað var von
á mikilli smásíld í gær, senni-
lega mesta magni, sem þar
hefur borizt á land í haust.
Fyrstir komu Víðir II. með
1300 tunnur og Viktoria með
8-900 tunnur. Margiir fleirl
, voru þá á leiðinni, þ. á. m.
Helgi Helgason með 1500 tn.
Mikil síld hefur komið til
Vestmannaeyja í haust, en
mest hefur farið I bræðslu.
Langar eyjarskeggja til þess,
að hægt yrði að sjóða hana
Síðustu
forvöð að
verzSa í dag
Athygli fólks skal vakin á því
að aðfangadag ber að þessu
sinni upp á sunnudag. Verzl-
anir eru því aðeins opnar í
dag, Þorláksmessu. Opið verð-
ur til miðnættis og eru því síð-
ustu forvöð að verzla fyrir
jólin í dag.
Sérstök athygli skal vakin á
því að mjólkurbúðir eru opnar
frá klukkan 8—4 í dag, og frá
klukkan 8—2 á morgun, að-
fangadag.
/