Morgunblaðið - 14.01.1962, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.01.1962, Blaðsíða 1
24 siður Adula fyrirskipar handtöku Gizenga Leopeldville, 13. janúar. -— p Æ R fregnir berast frá Leopoldville í dag, að mið- etjórnia í Kongó, undir for- sæti Cyrille Adoula hafi fyr- irskipað handtöku Antoines Gizenga í Stanleyville. Hafi Adoula sent Victor Lundula, herforingja í Orientalehéraði ckipun þessa og gefið honum frjálsar hendur um fram- kvæmd hennar. Adoula mun gera þinginu grein fyrir ákvörðun sinni á morgun en þingmönnum er orð- ið afar keitt í hamsi vegna framkomu Gizenga síðustu vik- urnar. í gær deildu þeir allir harkalega á Gizenga, þeirra á meðal margir helztu stuðnings- menn han», en enginn tók svari hans. Fréttaritari brezka útvarpsins i Leopoldville segir, að bilið milli þeirra Gizenga og Lund- ula herráðsforingja í Stanley- ville hafi mjög breikkað síðustu vikur og virðist sem uppgjör þeirra í milli sé óhjákvæmilegt. Fyrir nokkrum dögum reyndi Gizenga að láta handtaka Lun- dula, en ekipunum hans var ekki hlýtt. Talið er, að Gizenga hafi nú aðeins yfir að ráða 200 vopnuðum hermönnum, sem flestir hafa umkringt hús hans í Stanleyville. Menn Lundula og hermenn frá Sameinuðu þjóðun- um halda uppi reglu í borginni. Virðist sæmilega kyrrt þar, ut- an hvað hópar ungmenna hafa farið hópgöngur í borginni og lýst stuðningi sínum við Giz- enga. Belgíska þotan heím Moskvu, 13. jan. — (NTB) — BELGÍSKA farþegaþotan, sem var neydd til að lenda sunnarlega í Rússlandi sl. mánudag, er hún villtist inn í sovézka lofthelgi, kom til Moskvu í gær. Þaðan flaug hún til Briissel eftir nokk- urra klukkustunda viðdvöl. Farþegar flugvélarinnar, 18 að tölu, voru áður komnir til Moskvu, þeir héldu til Brúss el með sovézkri flugvél. — ★ — Á meðan belgíska þotan hafði viðdvöl í Moskvu, rannsökuðu sovézkir tollverðir gaumgæfilega farminn, sem þotan var með en hún var á leið frá Teheran til Brússel um Istmibul, þegar áttaviti hennar bilaði og hún villtist inn yfir Sovétríkin. Áhöfn vélarinnar og sovézkir viðgerðarmenn gerðu við átta- vitann áður en flugvélin lagði af stað til Moskvu. Vélin verð- ur rannsökuð nákvæmlega, þeg- ar til Briissel er komið. ÞESSI mynd er af ótilgreind-i um stað hátt uppi í fjallshlíð Huascaran í Perú, þar sem snjóflóðið mikla varð 11. jan. s.l. En eru engar nánari upp lýsingar fyrir hendj um mann' tjón. Veður hamlar björgunar aðgerðum og stjómin í Perú' 'hefur lýst svæðið hættusvæði,1 því mjög er óttazt, að fleiri1 snjóskriður falli. Virðist því' borin von, að nokkur þeirra þúsunda manna, sem grófust' undir skriðunni verði bjarg-| að. Myndin er tekin á flugi í slæmu veðrl. Síðustu fregnir herma, að 16' þorp hafi eyðilagzt að meiru' eða minna leyti í þessum nátt' úruhamförum. Yfirmaður heil' brigðisstjómar Perú sagði gær, að ekkert væri unnt að segja með vissu um mann-' tjón en hann álætlaði að a.m.k 3.800 manns hefðu farizt. í Afhenda portúgalska fanga NÝJU DELHI, 13. janúar — AP — NTB Reuter. — Stjórn Ind,- lands hefur með milligöngu Ara- bíska sambandslýðveldisins sent stjórn Portúgals orðsendingu, þar sem segir, að Indverjar séu reiðu búnir að afhenda aHa portú- galska hermenn, sem handteknir voru í innrásinni í Góa, Diu og Daman. Jafnframt óskar Indlands stjórn efitir því, að Portúgalar veiti ferðafrelsi Indverjum, sem búsettir eru í portúgölsku nýlend unni Mosambique og öðrum yfir- ráðasvæðum Portúgala. Nairopi, Kenýa, 13. jan. — AP. YOMO Kenytta tók í dag sæti á löggjafarþinginu í Kenya við hátíðlega athöfn. 4 latnir ur bolu 1 Lvklegt að tólf aðrir hafi tekið veikina, — og er óttazt, að hún kunni enn að breiðast ut London, 13. jan. — (AP) — t DAG lézt í Englandi fjórða fórnarlamh bólusóttarinnar þar í landi — tveggja ára drengur. Eru menn nú orðnir uggandi um, að hólusóttin breiðist út, án þess við verði ráðið. — | t Drengurinn litU lá í sjúkra- Vaiuæhsla vaiðar við Iög CABACHI, 13. jan. (AP) —' Ilátt á þriðja hundrað manna' 'hafa beðið bana af völdum' bólusóttarinnar, sem herjar í Pakistan. Síðustu þrjá daga hafa meira en þrjú hundruð' þúsund manns verið bólusetir *og í dag létu heilbrigðisyfir- völdin þau boð út ganga, að, foreldrar, sem vanræktu að; koma sjálf og færa börn si: til bólusetningar ættu á hættu að þeim yrði stefnt fyrir lög og dóm. i húsi í Birstall skammt frá Leeds. Óttast er, að fjögur börn, sem lágu þar með honum og hjúkrunarkona þeirra hafi smit- azt og í borginni Bradford eru sjö manns, sem sennilega hafa tekið veikina, undir ströngu eftirliti lækna. Dr. John Douglas, yfirmaður heilbrigðisstjórnarinnar í Brad- ford segir, að ástandið valdi sér nokkrum óróa, en hann hafi þó ekki tekið ákvörðun um, hvort gripið skuli til allsherjar skyldu bólusetningar í borginni. íbúar þar eru um 300 þúsundir. Bólusetning við bólusótt er ekki lögboðin í Englandi en allir sem óska geta fengið bólusetningu endurgjalds- laust. Svo, sem fyrr hefur verið frá skýrt barst bólusóttin til Eng- lands með manni, sem kom frá Pakistan. Þar herjar bólusótt, sem kunnugt er og hefur á þriðja hundrað manna látizt af völdum hennar. Þessi maður hét Ishmet Kahn og nú hefur mág- kona hans verið lögð í sjúkra- hús í London, sýkt af bólusótt. Ishmet Kahn lézt 7. jan. sL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.