Morgunblaðið - 14.01.1962, Blaðsíða 17
Sunnudagur 14. jan. 1962
MORGVNBT. AÐ1Ð
17
f
Metúsalem Jónsson Kjerúlf
bóndi — Áttræður
ÁTTRÆÐUR er í dag einn af
mestu búhöldum þessa lands
um langa tíð, Metúsalem Jóns-
son Kjerúlf bóndi á Hrafnkels-
stöðum í Fljótsdal.
I Hrafnkelsstaðir eru sögukunn
jörð, kotbýli kallað við fyrstu
kynni, en Hrafnkell Freysgoði
gerði það höfðingssetur og óðal
sinna niðja í næstu ættliði. En
svo hverfur saga jarðarinnar í
xnóðu ókynnisins þar til er hún
undir lok 16. aldar kemst í eign
klaustursins á Skriðu í Fljóts-
dal og fylgdi síðan öðrum klaust
urjörðum að eign og umráðum
þar til er Metúsalem keypti
hana, sem síðar segir.
! Metúsalem er fæddur á Mel-
tim í Fljótsdal 14. janúar 1882.
— Foreldrar hans voru Jón
bóndi þar Kjerúlf, Andrésson
Kjerúlf Jörgenssonar Kjerúlf,
fjórðungslæknis á Brekku í
Fljótsdal og Aðalbjörg Metú-
salemsdóttir, sterka, bónda í
Möðrudal. En kona Andrésar
Kjerúlf var Anna Jónsdóttir,
Þorsteinssonar bónda á Melum,
sem Melaætt er rakin frá.
Standa þannig að Metúsalem
þrír sterkir og merkir ættstofn-
ar, og veldur hann því vel.
Metúsalem ólst upp á heimili
foreldra sinna til fulltíða ald-
urs og fékk þar alla sína bók-
legu og verklegu mennt og
menningu. Með aðstoð heimilis-
kennara nam hann þær fræði-
greinar, sem kenndar voru til
fermingar, lestur, skrift, réttrit-
un, reikning, sögu íslands og
iandlýsingu o. fl. Bókakostur
var mikill á heimilinu, því báð-
ir voru þeir bókamenn faðir
hans og afi. Þess neytti Metú-
Sdlem til framhaldsnáms. Dag-
leg önn heimilisins laut öll að
búskap og sú var einnig ríkust
hneigð Metúsalems. Var hann
því gagnvel menntur til ævi-
starfs sins, þótt ekki nyti hann
skólamenntunar.
Snemma árs 1904 lézt Aðal-
björg húsfreyja móðir Metúsal-
ems. Varð sá missir heimilisins
orsök þess, að Jón bóndi hugðist
láta af búskap næsta vor og fá
hann í hendur Metúsalems. —
Hann var þá heitbundinn ungri
stúlku á heimilinu og ekkert
að vanbúnaði til búskapar.
Um áramótin næstu sagði
ekkjan Hallfríður Einarsdóttir
upp ábúð á Hrafnkelsstöðum,
svo að jörðin var laus til ábúð-
ar næsta vor. Undanfarið höfðu
búið þar stórbændur við mikla
búfremd.
> £>að lýsir stórhug Metúsalems
að hann sótti um ábúð á Hrafn-
kelsstöðum, þrátt fyrir það þótt
Melar væri góð bújörð og áar
hans hefðu búið þar í fjóra
settliði við góðan efnahag. En
Hrafnkelsstaðir gátu framfleytt
Stærra búi og það var látið
ráða. Metúsalem var þá 22 ára
og ekki fullmyndugur. Varð
hann þvi að hafa föður sinn að
tilsj ónarmanni.
I Þrátt fyrir það að um jörð-
ina sóttu einnig tveir gildir
bændur fékk Metúsalem ábúð-
ina. Vitnar það berlega, hvað
hinn ungi maður hafði þá áunn-
ið sér mikið álit.
f Sumarið fyrsta á Hrafnkels-
Btöðum, 25. júní 1905, kvæntist
Metúsalem heitmey sinni, Guð-
rúnu Jónsdóttur frá Felli í Suð-
ursveit, Vigfússonar bónda þar.
Móðir hennar, Guðrún Davíðs-
dóttir var einnig skaftfellsk að
ætt.
Tvö fyrstu árin á Hrafnkels-
Btöðum, var búið rekið á nafni
Jóns til þess er Metúsalem var
fullmyndugur. Skipti Jón þá
búinu.
Metúsalem gerðist brátt at-
hafnasamur búmaður. Fyrsta
viðfangsefni hans var að auka
©g bæta ræktun jarðarinnar; og
•ð því verkefni hefur hann unn-
ið þrotlaust alla tíð. Landrými
er mikið á Hrafnkelsstöðum og
fjárgeymsla fyrirhafnarsöm. Á
fjórða búskaparári sínu (1911)
lagði hann 2300 m langa girð-
ingu þvert yfir landið, frá
Jökulsá austur yfir háls að Gils
árgljúfri, til að létta fjárgeysml-
una. Þar næst snerist hann að
híbýlabótum og byggði íbúðar-
hús úr steinsteypu í stað gam-
als og hrörlegs torfbæjar. Frá-
færur og sauðahald lagðist nið-
ur á Austurlandi laust eftir alda
mótin en Metúsalem hélt hvoru
tveggja lengur en aðrir, sauða-
eign fram um 1920 og fráfærum
nokkru lengur.
Eiríkur bróðir Metúsalems
hafði verið í búi með honum
og átt mikinn þátt í búþrifim-
um sökum afburða-fjármennsku.
Árið 1921 keyptu þeir bræður
jörðina Hamborg gegnt Hrafn-
kelsstöðum, vestan Jökulsár. Hóf
Eiríkur búskap þar, en Metú-
salem fékk hluta af engjum
jarðarinnar. Vænkuðust við það
búskaparskilyrðin á Hrafnkels-
stöðum, sem er engjarýr jörð.
Brátt eftir þetta rak að því
að Metúsalem vildi ekki una
leiguliðaábúð og keypti jörðina
árið 1927.
Sauðfjárbúskap rak Metúsal-
em lengst af stærri en nokkur
annar bóndi á Austurlandi sam-
tímis, og þótt víðar væri til
jafnað. í jarðatalinu 1942 er
meðaláhöfn 5 ára á Hrafnkels-
stöðum talin 660 á vetrarfóðri
en oft var það fleira einstök ár.
Flest fé á fjalli var rösklega
1500. Um haustið var 600 fjár
rekið til kaupstaðar, 70 var
slátrað til heimilis og á níunda
hundrað var sett á vetur.
Sauðfé sitt rak Metúsalem á
afrétt vestur yfir Jökulsá. Þegar
áin var í vexti á vorin þurfti
að flytja þenna mikla fjárfjölda
á lítilli lögferju.
Til úrbóta á þessu smíðaði
Metúsalem stóran pramma,
strengdi vírkaðal milli stöpla yf-
ir náa, tengdi stefni prammans
með streng við hjól, sem rann
á vírkaðlinum, og lét straum
árinnar flytja ferjuna milli
landa. Nú hefur verið byggð
brú yfir ána á þeim stað, sem
straumferjan var.
Metúsalem hefur átt sín hugð
armál utan þess sviðs, sem við
kemur hagrænum búskap. Eftir
að hann hafði byggt íbúðarhús-
ið (1917) flutti hann að því
stórvaxin reynitré úr skóglendi
jarðarinnar, og tókst það svo
vel, að skógræktin á Hallorms-
stað hefur stundum fengið fræ
af þessum trjám.
En í þessu efni sem öðru leit
Metúsalem einnig til framtíðar-
innar. Síðar efndi hann til trjá-
ræktarstöðvar í brattri brekku
ofan við túnið. Ræktar hann
þar allar fáanlegar tegundir
lauftrjáa og barrtrjáa.
Skóglendi allmikið er í landi
Hrafnkelsstaða, en jörðin átti
aðeins skógargrunninn og gras-
vöxtinn og þar með beitarrétt
í skógarlandinu. Trjávöxturinn
var ítak annarrar jarðar. Þess-
ari kvöð á jörð sína undir Metú-
salem illa og fékk hana afleysta
(keypta) fyrir nokkrum árum.
Þrátt fyrir hinn mikla sauðfjár-
fjölda á Hrafnkelsstöðum hafa
þrif skógarins í tíð Metúsalems
verið engu minni en skóglendis,
sem hefur verið girt og í sér-
stakri fræðilegri umsjá.
Metúsalem hefur verið sér
mjög einhlítur í búskapnum og
framkvæmdum öðrum. Um bygg
ingu íbúðarhússins hafði hann
alla forsögu. Straumferjan, út-
búnaður hennar og uppsetning
var hans eigin hugkvæmd og
verk. Búsmiði allt fyrir heimil-
ið hefur hann unnið. Búþrifin
eru að þakka hagleik hans og
verkhyggni eigi síður en atork-
unni. Búskapinn hefur hann
rekið meir af alúð og eljusemi
en af ofurkappi. Fólki sínu hef-
ur hann verið hlífinn og hugul-
samur, en sjálfum sér óhlífinn.
Mörg umsvif og störf hefur hann
haft, þegar fólk hans hafði full-
ar náðir. Búönnin hefur verið
honum hugðarmál.
Óhlutsamur er Metúsalem um
menn og málefni, sem honum
þykir sér ekki koma við. Hins
vegar er hann boðinn og búinn
til liðsinnis, sé þess leitað, eða
viti hann þess þörf. Hann hefur
ekki sælzt til áhrifa á félagsmál
eða héraðsmál, en hefur samt
ekki komizt hjá þeim sökum
álits síns. í hreppsnefnd og odd-
viti nefndarinnar var hann eitt
kjörtímabil. Oddvitastörfin rækti
hann með prýði, en þau voru
honum ekki hugðarmál og neytti
hann þess að þegnskyldutímam-
um liðnum að taka ekki endur-
kösningu. Trúnaðarmaður Rækt
unarsjóðs hefur hann verið og
deildarstjóri í Kaupfélagi Hér-
aðsbúa, átt sæti í fræðslunefnd
og spítalanefnd.
Fyrir nokkrum Srum tók
Metúsalem að draga saman eig-
in búskap, en fullsetin er jörð-
in. Tveir synir hans búa þar
með honum og þrjú eru þar nú
steinsteypt íbúðarhús.
Heim að sækja er Metúsalam
hinn altilegasti. Glaðlegur í
bragði tekur hann kveðju gests
ins og með spaugsyrði á vörum
sé kunnugum að heilsa. Svo
Framhald á bls. 16
Dodge ‘57
tveggja dyra (hard-top) til sölu og afhendingar í
april byrjun. Upplýsingar 1 símum 18209 og 50257.
HÚSEIGNIN
Suðurgata 112 Akranesi
er til söiu og laus til íbúðar strax. — Uppl. gefur
Þórður Hjálmarsson, Sími 96.
bbbbbbbbbbbbbtbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb1
Nýkomið:
AS S A- útihurðaskrár
Ú tihurðalamir
Bréfalokur
yggingavörur h.f.
Siml 35697
Laugaveg 178
b!
i
b
HRINGUNUM.
C/igithf>ó’lSLCC
Hafnarfjörður
Ábyggilegur maður eða kona, sem unnið getur sjálf-
stætt við innheimtu og skrifstofustörf, óskast á skrif-
v.
stofu í Hafnarfirði. — Umsóknir sendist afgreiðslu
blaðsins merkt: „Trygging — 7763“, fyrir 18. þ.m.
Afgreiðslusfúlka
óskast í snyrtivöruverzlun. — Umsóknir ásamt uppl.
sendist afgr. Mbl. merkt: „Starfshæfni — 214“.
HÚSEIGEIUR
á hitaveitusvæðinu
Hvers vegna að fara niður I
kjaliara, þegar stilla þarf
hitann?
Fáið yður heldur
sjálfvirk
stillitæki og sparið sporin
Önnumst uppsetningar
Nánari upplýsingar veitir
==HÉÐINN =
Véiaverzlun — Sími 24260
6 tepndir af
Kambgarni 10—16 oz.
í KJÓL og
SMOKINGSFÖT
Bankastræti 6
Sími 10935
11 '\ FjyUOTJffi
KLÆÐSKERI %