Morgunblaðið - 14.01.1962, Blaðsíða 20
20
MORCVNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 14. Jan. 1962
Margaret Summerton
HÚSIÐ
VIÐ
SJÖINN
Skdldsaga
V 43 _>
Allt í einu stóð Ivy hjá okkur,
án þess að við hefðum heyrt
hana koma inn. Afsakið ónseðið,
umgfrú, sagði hún snefsin, en frú
Elliot biður yður að koma og
hella í tebollana, áður en allt er
orðið kalt.
Uim leið og við stóðum upp,
sagði Mark: Vel á minnzt, elskan,
það er eitt, sem ég gleymdi að
segja þér. Hún mamma þín er
væntanleg hingað einhverntíma
á morgun. Þegar ég hringdi til
Jaimes frænda í gaer, sagði hann
mér af því. Það virðist svo sem
hún æ-tli að koma fljúgandi til
London og svo kemur hann með
hana hingað. Ég er búinn að
panta herbergi fyrir þau í
kránni.
Síðasta sólarhringinn, hafði
mér ekki einu sinni dottið
mamma í hug. Nú mundi ég allt
í einu orð hennar um ræningj-
ana, eða hákallana, eins og hún
kaliaði þá. En auðvitað hafði
James Halliwell gert henni að-
vart.
En hvað er um Edvinu? spurði
ég. Hefur hún nokkra hugmynd
um þetta?
Já, ég sagði henni það sjálfur.
Og hvað sagði hún?
Ekkert sérstakt, nema hvað
hún skríkti eins og hún getur
gert það al'lra meinfýsnislegast
og sagði, að mamma þín yrði
sennilega fyrir vonbrigðum, ef
hún héldi sig geta hrætt gamla,
hruma konu.
Ég hló. Tamara er nú sjálf
ekkert lamb að leika sér við,
sagði ég. í>að gæti orðið eitthvað
sögulegt ef hún tæki það í sig
að verða hér kyrr.
Héma! Hver í ósköpunum
heldurðu að vildi vera hérna
ótilneyddur?
Nei, ekki eins og allt er nú,
játaði ég. en Tamara myndi fyrst
og fremst koma miðstöðvarhit-
uninni í gang og útvega nægilegt
þjónustufólk á svipstundu.
Það tækist henni aldrei, að
Edvinu hei'Ui og lifandi.
Þetta er nú bara hugdetta hjá
mér. Annars geta gamlir óvinir
oft orðið beztu vinir.
Við höfðum gengið eftir gang-
inum og komum nú að setustofu
Edvinu, en úti fyrir dyrunum
þar, sagði Mark: Ég þori ekki
inn því að þá rýkur hún upp
bálvond. Ég hringi í þig í kvöld.
Nei, þú kemur inn, sagði hún.
Ef hún vill endilega hata þig, þá
verð ég að fylgja með í þeim
kaupum. Svo tók ég í hönd hans
og héit henni svo fast, að hann
gat ekki losað sig.
Edvina leit á okkur, sá að við
héldum saman höndum og sneri
sér undan eins og hún létist ekki
taka eftir því.
Nú, þegar síðdegissólin skein á
hana, sýndist hún gömul og
þreytt og af ér gengin. Eitthvað
lá í kjöltu hennar. Þegar ég gáði
betur að, sá ég, að þetta var
myndin af Danny.
Þegjandi setti hún myndina
aftur á litla borðið hjá sér. Það
var einhver virðuleiki en þó
uppgjöf þessari. hreyfingu, svo
að ég varð hrærð.
Hún lét sem hún sæi ekki
Mark, en sneri sér beint að mér.
Jæja, ég vona, að þú hafir getað
losnað við þennan lögreglumann?
Haan er farinn og ónáðar okk-
ur sennilega ekki oftar, sagði ég.
Það þykir mér vænt um að
heyra. En helltu nú í bollana,
Charlotte. Teið er búið að bíða
nógu lengi.
Það skal ég gera, en fyrst þarf
ég að segja þér dálítið.
Ég þagnaði en Mark hélt
áfram: Ég er hrædd um, að það
gleðji þig ekki neitt að heyra
það, frænka.
Það efast ég ekkert um. Hvað
var það, Chariotte?
Við Mark erum að hugsa um
að gifta okkur.
Og þú viit kannske fá blessun
mína?
Ég svaraði aumingjalegar Já,
auðvitað vildum við helzt, að þú
værir ánægð með það.
Já, en þú vissir vel, að það
yrði ég aldrei.
Mark svaraði fyrir mig: Já, ég
vissi það
Hún leit á hann með fyrirlitn-
ingu, en hann brosti á móti, eins
og ekkert væri.
Hún sagði nú önuglega: Það
er eins gott fyrir þig að fá þér
sæti. Svo var hún í þungum
þönkum meðan ég útdeildi boll-
unum, en um leið og ég setti
hennar bolla hjá henni og gaf
henni kökustykkið, sem stærsta
valhnotan var í, mundi ég eftir
fyrsta kvöldinu þarna þegar ég
hafði verið að horfa á Mark og
fannst auðmýkt hans gagnvart
Edvinu grunsamleg. En nú skildi
ég hana.
Ég var sjálf uppfull af löngun,
sem nálgaðist kærleika, til þess
að þóknast henni með því að
gera henni smágreiða, en slíkt
nægði henni bara ekki, af því að
mér var á sama hátt farið og
Mark, að ég vildi ekki þrælbinda
mig henni fyrir lífstíð, eins og
hún hélt, að Danny hefði gert.
Hún setti bollann sinn snöggt
niður og leit grimmdaraugum á
Mark. Mér var alvara með það,
sem ég sagði í gærkvöldi og ætla
ekki að taka eitt orð af því aftur.
Þú ert svikari og það var ekki
þér að þakka, að Charlotte lét
ekki gera út af við sig. Nei, þér
þýðir ekkert að fara að bera
blak af honum, Charlotte, því að
auðvitað heldur þú, að hann sé
einhver dýrlingur!
Ég settist niður við fætur henn
ar og greip hönd hennar. Nei,
,það er satt, það held ég alls
ekki. Ég held, að hann sé bezti
Vegleg
afmæEIsgJof
Ritsafn Jóns Trausta
8 bindi
Verð kr. 1500.
Fæst hjá bóksölum
— Jesús minn, sjáiffi hvernig ég brenndi mig,
þegar ég smakkaði á sósunni.
maður, sem ég hef nokkurntíma
fyrir hitt. En okkur getur öllum
skjátlast....
Hún greip fram í fyrir mér.
Já, og ég held þér sé að skjátlast
núna....
★
En allt í einu fann ég, að hún
herti takið um mína hönd, og
um leið breyttist hljómurinn í
röddinni, rétt eins og allri þrjózk
unni, em hingað til hefði verið
einvöld hjá henni, væri sópað
burt.
Síðan æpti hún fremur en
sagði: Ég vil, að hún Charlotte
verði hamingjusöm, Mark. Eins
hamingjusöm og ég var í mínu
hjónabandi.... Svo bilaði rödd-
in.
Mark hallaði sér að henni. Það
vil ég líka, frænka. Og ég á enga
ósk heitari.
Hún starði þegjandi á hann
stundarkorn, en svo var að-
finnslutónninn kominn aftur:
Það fyrsta sem þú ættir að gera,
er að snúa þér aftur að þessu
fyrirtæki þínu. Ef þú ætlar að
eiga Charlotte, verðurðu að
vinna fyrir þér.
Hann brosti góðlátlega til
hennar og hún svaraði með ein-
hverju sem líklega hefur átt að
vera bros. Kannke þú verðir
annars hérna þangað til þú get-
ur tekið hana Charlotte með þér
til London. Ég færði bollann nær
henni og um leið og ég sleppti
honum, greip hún hönd mína.
Ætlarðu að koma einhverntíma
aftur og heimsækja mig,
Charlotte?
Auðvitað geri ég það. Ég rétti
Mark hina höndina og hann
greip hönd Edvinu.
Og í því vetfangi, þegar ég
horfði í augu Marks, sem Ijóm-
uðu aftur af ást og glattni, er
hann horfði í mín augu, vissi ég,
að nú voru allir erfiðleikar okk-
ar á enda. Ég sagði: Við skulum
koma aftur hvenær sem við get-
um.
(Sögulok).
SHtltvarpiö
Sunnudagur 14. janúar.
08.30 Létt morgunlög — 9.00 Fréttir
— 9.10 Veðurfregnir.
9.20 Morgunhugleiðingar um músik:
„List og líf“ eftir Edwin Fisc-
her; II. (Árni Kristjánsson). ■
9.35 Morguntónleikar:
a) Konsert í C-dúr fyrir þrjú
píanó og hljómsveit eftir
Bach (Edwin Fisher, Ronald
Smith, Denis Matthews og
hljómsveitin Philharmonia
leika; Edwin Fisher stjórnar).
b) Aksel Schiötz syngur laga-
flokkinn „Ástir skáldsins“ op.
48 eftir Schumann; Gerald
Moore leikur undir.
C) Sinfónía nr. 3 í a-moll op.
56 (Skozka hljómkviðan) eftir
Medelssohn (Sinfóníúhljóm-
sveit ástralska útvarsins í
Sidney leikur; Sir Eugene
Goossens stj.).
11.00 Messa í Dómkirkjunni (Prestur:
Séra Jón Auðuns dómprófastur.
Organleikari: Dr. Páll ísólfsson).
12.15 Hádegiútvarp.
13.15 Erindi: í flóttamannabúðum
(Séra Jakob Jónsson).
14.00 Miðdegistónleikar:
a) Sónata í A-dúr fyrir fðilu og
píanó eftir César Franck. (Ye-
hudi Menuhin og Louis
Kentner leika).
b) Stefán íslandi syngur óperu-
aríur og dúetta ásamt Else
Brehms og Henry Skjær.
e) Konsert í A-dúr fyrir klar-
ínettu og hljómsveit (K622)
eftir Mozart (Jack Brymer
og Konungl. fílharmoníu-
8» sveitin 1 Lundúnum leika;
Sir Thomas Beecham stjónv
ar).
15.30 Kaffitíminn: Karl Jónatansson
og Sigurður Jónsson leika.
I61.OO Veðurtfregnir. — Endurtekið
efni:
a) Tveir aldnir Vestfirðingar.
Guðmundur Sigurðsson á
t»ingt/ri ojg Alexander Ein-
arsson á ísafirði, segja friá.
b) Steinunn Bjarnadóttir og
Ómar Ragnarsson skemmta
með gamanvísum og eftir-
hermum.
c) KK-sextettinn leikur nýleg
danslög eftir íslenzka höf-
unda; Díana Magnúsdóttir og
Harald G. Haralds syngja.
17.00 Færeysk guðsþjónusta (Hljóðrit-
uð í t>órshöfn).
17.30 Barnatími (Helga og Hulda Val-
týsdætur):
a) Leikrit: „Tröllakvömin“, Leik
stjóri: Flosi Ólafsson.
b) Ný framhaldssaga: „Doktor
Dýragoð" eftir Hugh "Witting,
endursögð af Thorbjörn Egn-
er; I. (Flosi Ólafsson).
18.20 Vfr. — 18.30 „Buldi við brestur,*|
Gömlu lögin sungin og leikin.
19.10 Tilkynningar. — 19.30 Fréttir og
íþróttaspj all.
20:00 Strauss-tónleikar: Sinfóníuhljóm
sveit íslands leikur. Stjórnandurs
Páll Pampichler Pálsson og Hanfl
Antolitsch.
20:15 Upplestur: „Bannsettur klárinn**,
smásaga eftir Arthur Omre, 1
þýðingu Margrétar Jónsdóttur
skáldkonu (Kristbjörg Kjeld
leikkona).
20:40 Kórsöngur: Karlakór Reykjavík
ur syngur erlend lög. Söngstjóris
Sigurður Þórðarson. Píanóleik-
ari: Fritz Weisshappel.
21.-00 . purt og spjallað í útvarpssal,
Þátttakendur :björn Þorsteins-
son sagnfr., Kjartan Sveinsson
sk j alavörður, séra Sigurður
Pálsson og Sigurveig Guðmunds-
dóttir húsfrú. —- Sigurður
Magnússon fulltrúi stýrir um-
ræðum.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Danslög. — 23:30 Dagskrárlok.
Mánuda.gur 15. janúar.
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Bragl
Friðriksson. — 8:05 Morgunleik-
fimi: Valdimar Örnólfsson stj.
og Magnús Pétursson leikur und
ir. — 8:15 Tónleikar. — 8:30
Fréttir. — 8:35 Tónleikar. —
9:10 Veðurfregnir. — 9:20 Tón-
leikar.)
12:00 Hádegisútvarp (Tónlelkar. —■
12:25 Fréttir og tilkynningar).
13:15 Búnaðarþáttur: Jóhannes Siríks-
son ráðunautur tala um vetrar
fóðrun kúnna.
13:40 „Við vinnuna“: Tónlelkar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tillc.
— Tónleikar, — 16:00 Veðurfr.
— Tónleikar. — 17:00 Fréttir).
17:05 „í dúr og moll“: Sígild tónlist
fyrir ungt fólk (Reynir Axels-
son).
18:00 í góðu tómi: Erna Aradóttir tal
ar við unga hlustendur.
18:20 Veðurfregnir. — 18:30 Norræn
þjóðlög
19:00 Tilkynningar — 19:30 Frétt.ir.
20:00 Daglegt mál (Bjarni Einarsson
cand mag.).
20:05 Um daginn og veginn (Magnúir
Á. Arnason listmálari).
20:25 Einsöngur: Elsa Sigfúss syngur*
Valborg Einarsson leikur undir á
píanó:
a) Tvö lög eftir Áma Thorsteina
son: ,,Rósin“ og „Nótt“.
b) „Haustljóð“ edftir Jónas l>cr-
bergsson.
c) Tvö lög eftir Sigvalda Kalda
lóns: „Mamma ætlar að sofna'*
og „Kata litla í Koti“.
d) „Hrafninn situr á hamrinum*
eftir Karl O. Runólfsson.
e) „Smávinir fagrir“ eftir Jóna«
Jónasson.
f) Tvö lög eftir Sigfús Einars-
son: „Um haust“ og „Ein sit
ég úti á steini*'.
20:45 Leikhúspistill (Sveinn Einarsson
fil. kand.).
21:15 Tónleikar: Spænsk rapsóclla eft
ir Ravel (Fílharmóníusveit Vínar
arborgar leikur. Stjórnandi: Con
stantin Silvestri).
21:30 Útvarpssagan: „Seiður Satúr'nufi
ar“ eftir J. B. Pristley; IV. —*
(Guðjón Guðjónsson).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Hljómplötusafnið (Gunnar Gu|
mundsson).
23:00 Dagskrárlok.
* Xr *
GEISLI GEIMFARI
>f X- >f
Geisli og Lúsí Fox eru lokið inni
; hótelherbergi. Hlerar eru fyrir
glugganum og snerillinn horfinn af
hurðinni!
— Pétur!! .... Glottandi gas! ....
Haltu ofan í þér andanum Lúsí. Þetta
er baneitrað!
t&tíXSL
— Ifiett/A, A/cmaA
og. Á/u/62'
HAPPDJiÆTTI
HÁSKOLANS