Morgunblaðið - 17.02.1962, Blaðsíða 3
taugardagur 17. febr. 1f>62
MORGUyBLAÐ1Ð
3
Á ÞRIÐJUÐAGINN var fór
fram í Frakklandi útför átta
manna, sem látizt höfðu í ó-
eirðunum á lýðveldistorginu í
París í fyrri viku. Fjórir hinna
látnu voru jarðsettir í Pére-
Lachaise kirkjugarðinum, en
hinir í fjölskyldugrafreitum
utan Parísar.
Útförin í París var hin fjöl-
mennnasta sem þar hefur far
ið fram síðan skáldið Victor
Hugo var borinn til grafar
1885. Hundruð þúsunda
manna tóku þátt í líkfylgd-
inni, sem var um þriggja km
löng. Mannfjöldinn lagði af
stað frá Place de la Répu-
blique í algerri þögn og var
gangan mjög hátíðleg. Lúðra
sveitir léku útfarar- og sorg-
armarsa eftir Beethoven og
Chopin, líkkisturnar voru
fluttar á blómum skreyttum
vögnum og fulltrúar félags-
samtaka báru geysistóra blóm
sveiga.
Allsherjarverkfall hafði haf
izt nokkru áður. Allar ferðir
neðanjarðarbrauta og spor-
vagna stöðvuðust Verksmiðj
um og skólum var lokað
og um tíma var borgin gas-
og rafmagnslaus. Fólkið
þyrptist út á göturnar og safn
aðist saman við ýmis minnis-
merki í borginni og minnt-
ist hinna látnu.
- XXX -
Meðfylgjandi myndir sýna
mannfjöldann í líkfylgdinni.
Á stærri myndinni sézt hvar
mannfjöldinn gengur eftir
Avenue de la Republique en
hin minni sýnir vagnana, sem
fluttu líkkL urnar.
sTáksteinár
Miklar íbúðabyggiiigítt
Á borgarstjórnarfundi í fyrradag
upplýsti Þorvaldur Garðar Krist-
jánisson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, að á áratugnum
1950—60 hefði í Reykjavík verið
byggðar tæpar 6000 íbúðir. Á
sama tíma varð fólksfjölgunin i
höfuðborginni 17 þúsund manns.
Meðalstærð fjölskyldu er nú 4,
þannig að á áratugnum hafa íbúð
ir verið bvggðar fyrir 24 þúsund
manns, eða um 7000 manns meira
en svaraði til fólksfjölgunarinn-
ar. Er því Ijóst, að ekki er sama
knýjandi nauðsynin á jafnmikl-
um íbúðabyggingum og áður, svo
að ekki kemur eins mikið að sök,
þótt störf vinstri stjórnarinnar
hafi orðið til þess, að íbúðabygg-
ingum hefur nokkuð fækkað,
einkum þegar hliðsjón er höfð á
því, að nú safnast fyrir verulegt
sparifé, svo að strax í ár er hægt
að auka íbúðarbyggingar að
nýju.
Skipið valt
Kiel, 16. febr. (AP-NTB).
ÞEGAR verið var að búa
rússneska hvalveiðumóðurskipið
Vladivostok, sem er 17.000 tonn,
út í fyrstu ferð þess frá Kiel í
dag, tók það skyndilega að hall-
ast þar sem það lá við bryggju.
Margir, sem um borð voru, lok-
uðust inni um tíma, en um síðir
tókst að bjarga öllum úr skip-
inu. Um 300 manns voru við
vinnu í skipinu er það tók að
hallast og meiddust 38 þeirra.
Átta hinna slösuðu voru fjuttir
í sjúkrahús.
Viadivostok er smíðað í Kiel
eftir rússneslkiu'm teikningum.
Því var hleypt af stoikikunum í
nóvember s.l. og var nú verið
að búa Skipið út í fyrstu ferð
iþess. Talsmenn Howalthewerke
iskipasmíðastöðvarinnar, þar sem
skipið er smíðað, segja að ástæð-
an fyrir óhappi þessu hafi verið
mjög snarpar vindihviður. Þegar
Skipið tók að hallast varð smlá-
vegis sprenging í því og við hana
kom upp eldur í sikipinu, en
hann ‘varð fljótlega slökfctur.
Fyrstu fregnir hermdu að
skipið hefði lagzt á hliðina, en
talsmenn skipasmíðastöðvarinn-
ar bera á móti þvL Segja þeir
að aðeins 25 gráðu halli hafi kom
ið að skipinu. Próttamönnum
er bannaður aðgangur að sikipa-
ismíðastöðinni.
Vladivostok er 185 metra langlt
og 23,8 metra breitt. Á því er
sérstalkt lendmgarsvæði fyrir
þyrlu og flugskýli. Einnig frysti-
gangur, þar sem hvalurinn er
unninn.
Nýtt fyrirtæki:
Almenna bifreiða-
leigan hf.
NU UM HELGINA tekur nýtt
fyrirtæki til starfa hér í Reykja-
víkurbæ. Nefnist það Almenna
bifreiðaleigan h.f.
Fyrirtæki þetta mun leigja
folksbifreiðar af Volkswagen-
gerð, og hefur í því skyni keypt
nokkrar nýjar bifreiðar. Eftir-
spurn eftir slíkum leigubifreið-
um án ökumanns hefur mjög auk
izt á undanförnum árum, og þyk
ir Volkswagen mjög heppilegur
til slíkrar útleigu, enda hentar
hann ágætlega íslenzkum stað-
háttum. Um vetrarmánuðina er
daggjaldið fyrir leigu hverrar
bifreiðar 200 krónur, að viðbætt-
um kr. 2,50 fyrir hvern ekinn
kílómetra.
Almenna bifreiðaleigan h.f. hef
ur aðisetur sitt á Klapparstíg 40,
en þar heíur félagið tekið á leigu
lóð og skrifstofuhúsnæði.
Rafmagnstruflanir
vegna saltroks
Þykkvabæ, 15. febrúar.
I VETUR hefir verið hin megn-
asta ótíð og er þetba með verri
útsynninði, sem hér gengur. Bæði
salt- og sandburður hefir verið
mikill og hafa spennistöðvar því
kleprað að utan og það orsakað
samslátt eða samleiðslu og valdið
nokkrum rafmagnstruflunum. —
Spennistöðvarnar þarf því allt-
af annað veifið að þvo og hreinsa
og er notaður til þess spíritus,
því annað mundi frjósa og aðeins
gera illt verra.
Ófært er hér um hluta Þykkva
bæjarins en mjólkurbíll gengur
hingað með eðlilegum hætti, svo
og áætlunarbíllinn, en ófært er
minni bíium.
Kartöfluflutningar standa nú
yfir og háir þung færð þeim nokk
uð. Eftir er að flytja héðan um
12000 tunnur á markað í Reykja-
vík og mun það standa fram á
vor. — Magnús.
í GÆR var leikinn í Lundúnum
leikur í ensku deildarkeppninni
— 1. deild. Chelsea vann Black-
pool með 1 marki gegn engu.
1220 íbúðum fleira
Þorvaldur Garðar gat þess
einnig, að á árunum 1954—59
hefðu verið byggðar 8097 íbúðir
á öllu landinu, en 1955 hefði þörf-
in á þessu tímabili verið áætluð
6877 íbúðir. Sú villa varð í frá-
sögn Morgunblaðsins í gær af
fundinum, að þar var sagt, að
þessi íbúðafjöldi hefði verið
byggður í Reykjavík, en auðvitað
átti þar að standa á landinn öllu.
Þannig hefur verið byggt 1220
íbúðum meira en svaraði til fólks
f jölgunar á íslandi.
Kommúnistar fluttu á borgar-
stjómarfundinum tillögu um að
fela hagfræðingi bæjarins að
gera áætlun um byggingarfram
kvæmdir á næstu 10 árum. Þeim
var bent á, að þegar hefði verið
unnið að upplýsingaöflun um
væntanlega fjölgun íbúa i höfuð
borginni na'stu 20 árin, þannig
að eðlilegt væri að vinna áætlun
þessa upp úr þeim gögnum til
2ja næstu áratuga, en svo
feynlega brá við, að þeir greiddu
atkvæði gegn því að slík áætlun
yrði gerð til 20 ára.
Kemur úr hörðustu M
I kommúnistamálgagninu i gær
er rætt um greinar i Morgun-
blaðinu „og alþjóðamál og menn-
inigarmál, og þeir sem skrifa í
það blað þurfa umfram allt að
venja sig á að afneita kenningu
Ara fróða um það, sem sannara
reynist". Má með sanni segja,
að þessi orð komi úr hörðustu
átt. Nýlega hefur sannazt, að allt
það, sem Morgunblaðið sagði ára
tugum saman um þjóðfélags-
ástanidið og glæpastarfsemina í
Sovétríkjunum, reyndist satt og
raunar enn hroðalegra en blaða
mönnum Morgunblaðsins gat hug
kvæmzt að skýra fyrirbærin.
Moskvumálgagmið kom hinsvegar
naumast svo út, að ekki væri
talað um ,.Morgunblaðslygi“ í
sambandi við umræður um atvik
austan járntjalds, og hver spek-
ingurinn af öðrum vitnaði í Þjóð-
viljanum. Hingað til hefur þess
ekki orðið vart, að þeir kæmu
fram fyrir alþjóð og bæðu afsök-
umar á blekkingum sínum cða
trúgirni. Þess hefur ekki orðið
vart, að þeir játuðu, að kommún-
ismi í framkvæmd væri einhver
hroðalegasta glæpastarfsemi, sem
um getur í vcraldarsögunni. Þess
hefur ekki orðið vart að þeir
vildu hafa það sem sannara
reyndist. Orð þeirra í gær eru
því sannarlega mikil kokhreysti.