Morgunblaðið - 17.02.1962, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.02.1962, Blaðsíða 12
 <•■ ■■ ■■' ■■_.■■■■■■■■■ ■ :■ ^SÍfciiÍÍcíWcixíáiWíS: J|0TölÍílMallfÍlll MAMkMMMMtMn MMhMMMAMiM MORGUNBL^ÐIÐ Laugardagur 17. febr. 1962 TANNVIÐGERÐIR BARNA T ýsing sú, sem tannlæknar *-* hafa gefið á tannskemmd um barna, er sannarlega ó- fögur og furðulegt, að í ljós skuli hafa komið við athug- un, sem gerð var í einum barnaskóla bæjarins, að að- eins rúmlega 10% bamanna bursta tennur sínar reglu- lega og tæpur helmingur átti sinn eigin tannbursta. Tannlæknarnir telja, að brýna nauðsyn beri til að auka eftirlit með tönniun barna og tannviðgerðir í skól um og fer-varla á milli mála að í því efni hafa þeir rétt fyrir sér. Gallinn er aftur á móti sá, sem fram hefur komið í um- ræðum í borgarstjórn Reykja víkur, að illmögulegt hefur verið að fá tannlækna til starfa í skólunum. Verður að gera ráð fyrir, að það stafi fyrst og fremst af því, að tannlæknar telji sig hafa betri kjör með því að reka sínar eigin tannlæknastofur, en vera á launum hjá borg- inni. Eins og frá var skýrt í blaðinu í gær hefur Geir Hallgrímssjon, borgarstjóri, hent á lofti áhuga tannlækna á auknum tannviðgerðum í barnaskólum Reykjavíkur og óskað samstarfs við Tann- læknafélagið til úrbóta í þessu efni. Borgarstjóri óskar þess í fyrsta lagi, að Tannlæknafé- lagið hafi milligöngu um ráðningu skólatannlækna og bendi á hvaða kjör þeir mundu þurfa að hafa. Hann nefnir til vara þann mögu- leika, að félagsmenn Tann- læknafélagsins skipti með sér störfum á tannlækna- stofum skólanna og loks, ef hvorugt þetta væri unnt, að þeir tækju að sér tannvið- gerðir barna á eigin tann- læknastofum. ■ Tannlæknar eiga þakkir skildar fyrir áhuga þann, sem þeir hafa sýnt á því að upplýsa menn um vernd tanna og benda á það, sem aflaga fer. Nú reynir á þá að koma til samstarfs við yfirvöld borgarinnar, svo að sameiginlega verði fxmdnar heppilegar leiðir til að forða hinum ískyggilegu tann- skemmdum skólabama. Morgunblaðið efar ekki, að Tannlæknafélagið muni gera gangskör að því að afgreiða tillögur og fyrirspurnir borg- arstjóra, og er þá vel farið, að mál þetta skyldi rætt op- inberlega. LAUN JAKOBS T borgarstjórn Reykjavíkur urðu nýlega mjög athygl- isverðar umræður um launa- mismun í þjóðfélaginu, þar sem fram kom, að allir flokk ar töldu, að launajöfnuður væri orðinn of mikill og hækka yrði laun sérfróðra og hámenntaðra manna, ef þjóðfélagið ætti að fá að njóta starfskrafta þeirra. Vafalítið mun ástæðan til þess, að erfiðlega hefur geng ið að fá tannlækna að barna- skólum Reykjavíkur vera sú, að þeir telji, að laun hafi ekki verið nægilega há, og má vera að það sé rétt. Annað dæmi um það,~að sérfróðum hæfileikamönnum séu borguð of lág laun, má nefna, að sjómenn og útgerð- armenn hafa að undanförnu birt áskoranir um það að Jakobi Jakobssyni, fiskifræð- ingi, yrði falin yfirstjórn síld arleitar, en eins og kunnugt er, hefur Jakob mjög lagt sig fram og verið langdvöl- um á síldarleitarskipum. — Laun þessa hæfileikamanns munu þó sjaldnast komast nærri launum þeirra háseta, sem veiða síld þá, sem hann finnur fyrir þá. Menn verða að horfast í augu við þá staðreynd, að naumast er þess að vænta, að menn á borð við Jakob vinni árum saman með glöðu geði hin þýðingarmestu störf fyrir miklu lægri laun en þeir, sem í kringum þá starfa. Þess verðut þó að gæta, að íslenzka þjóðin býr yfirleitt vel að námsmönn- um sínum, þótt hún sé meðal hinna fátækari þjóða í Norð- urálfu. Þess vegna er hægt að ætlast til þess að íslenzk- ir menntamenn vinni ætt- landi sínu gagn, þótt þeir hafi eitthvað lægri laun en starfsbræður þeirra erlendis, en augljóst mál er þó, að kjör þeirra þurfa mjög að batna. VARÐBERG Tj’nn hefur Varðberg, félag áhugamanna um vest- ræna samvinnu, haldið al- mennan umræðu- og út- breiðslufund. — Var hann í fyrrakvöld í Keflavík. Á því leikur ekki minnsti vafi, að Varðberg hefur þeg- ar haft veruleg áhrif í ís- lenzku þjóðlífi. Yfirgnæfandi meirihluti íslendinga vill trausta og heilbrigða sam- Glienicke-brúin í Berlín, þar sem fangaskiptin fóru fram. Powers kominn iieim Sem kunnugt er var banda- ríski flugmaðurinn Francis Gary Powers látinn laus á laug ardaginn var — í sikiptum fyr ir rússneska njósnarann Ru- dolf Abel ofursta, seim árið 1957 var dæmdfur í 30 ára fang elsi fyrir njósnir. Fangaskipt in fóru fram á Glienioke- brúnni í Berlín — kl. 7:15 að morgni laugardagsins og með aágerri leynd. Powers dvaldist aðeins skamima hríð í Berlíin — var fluttur þaðan með ner flugvél til Bandarílkjanna. f>ar fékk hann að hitta fjöl- skyldu sína, foreldra og eigin konu, en tilkynnt var áður en hann kom til Bandaríkj- anna, að blaðamenn fengju ekkert tækifæri til þess að ræða við hann fyrr en eftir tíu daga. Á þriðjudag hófust viðræður hans við yfirmenn bandarísku leyniþjónustunn- ar, en henni leikur mikil for- vitni á að fá úr því skorið, hvernig U-2 flugvélin var skotin niður á sínum címa. Francis G. Powers. Eiginkona Powers. vinnu við hinar vestrænu lýðræðisþjóðir, en fram að þessu hefur of lítið verið gert að því að undirstrika nauðsyn þeirrar samvinnu. Hinsvegar hefur kommún- istum tekizt með aðstoð nyt- samra sakleysingja og rúss- nesks fjármagns að halda úti hverri áróðursherferðinni á fætur annarri. Samtök þau, sem þeir hafa stofnað, hafa að vísu aldrei orðið gömul, því að venjulega hafa menn séð í gegnum þau innan 2—3 ára, en þá hefur það verið tekið til bragðs að leggja þau niður og stofna önnur ný, þar sem aðrir menn voru hafðir á oddinum og ný nöfn fundin upp. Sá tími er nú liðinn, að íslenzkir lýðræðissinnar léti kommúnista eina um það að efna til funda um vamar- mál og afstöðu íslands til Atlantshafsbandalagsins, og augljóst er, að Varðbergs- menn ætla ekki að láta þann tíma koma að nýju. Otgefandi: H.f Arvakur. Reykjavik. F'.amkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: A.rni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.