Morgunblaðið - 06.03.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.03.1962, Blaðsíða 6
6 MORCVNBL 4Ð1Ð Þriðjudagur 6. marz 1962 lilfur Gunnarsson, þýzkur ræð'smaður á ísafirði SÍÐASTLIÐINN föstudag var Úlfur Gunnarsson, sjúkrahúss- læknir á ísafirði, settur inn í embætti sem þýzkur kjörræðis- maður á ísafirði. Er hann skip- aður í það starf af forseta Vest- ur-Þýzkalands. Hirschfeld, am- bassador Vestur-Þýzkalands á íslandi, kom til ísafjarðar af þessu tilefni á þýzka eftirlits- skipinu „Poseidon.“ Hafði hann opinbera móttöku um borð í skipinu og voru boðn- ir þangað emibættismenn og all- margir borgarar í bænum. Flutti Hirschfeld ambassador þar ræðu og bauð gestina velkomna. Komst hann m. a. þannig að orði, að þegar Sambandslýðveldið Þýzka- land ophaði nú aftur kjörræðis- mannsskrifstofu á ísafirði eftir alllangan tíma, þá ætti það ræt- ur að rekja til þess að vestur- strönd íslands og þá sérstaklega hafnirnar við fsafjarðardjúp væru taldar mikilvægar fyrir efnahagslegt samstarf íslands og Þýzkalands. Einkum hefur hin ágæta og skjólgóða höfn á tsa- firði oft boðið togurum og öðr- um fiskiskipum okkar Þjóðverja hjálp og skjól fyrir hættum íss og storma, sagði sendi'herrann. Einnig hefði sjúkrahúsið á ísa- Dregið í 11. flokki Happdrættis DAS SL. laugardag var dregið í 11. flokki Happdrættis DAS um 55 vinninga og féllu vinningar þannig: Þriggja herbergja íbúð, Ljós- heimum 20, 5. hæð (C), tilbúin undir tréverk, kom á nr. 12116. Umboð Hreyfill. Óendurnýjaður miði. Tveggja herbergja íbúð, Ljós- ur heimum 20, 5. hæð (D), tilbúin undir tréverk, kom á nr. 40442. Umboð Aðalumboð. Óendurnýj-. aður miði. Taunus-fólksbifreið kom á nr. 43306. Umiboð Aðalumboð. Eig- andi Sigurbjörg Sigurbjörns- dóttir, Sólheimum 23. Moskviteh-fólksbifreið kom á nr. 56422. Umboð Aðalumboð. Eftirtalin númer hlutu hús- að fyrir kr. 10.000,00 hvert: 122 5221 14160 29384 44552. Eftirtalin númer hlutu hús- foúnað fyrir kr. 10 þús. hvert: 122 467 1136 3957 4124 4875 6412 8947 9607 12036 16318 16598 19043 22283 31013 37139 41443 48485 58491 19615 23636 32538 39406 41756 55963 58515 20400 26028 32762 39821 43992 56135 58817 21202 28606 33728 40299 44245 56938 62017 22115 30185 34692 41282 47760 57047 63933 firði grætt marga slasaða eða sjúka þýzka sjómenn ög jafnvel bjargað þeim frá dauða. Færði hann stjórn sjúkrahússins, lækn- um þess og hjúkrunarkonum, þakkir .fyrir alla þá hjálp og mannkærleika sem þýzkum sjó- mönnum og fiskimönnum hefði ávallt verið sýnd þar. Þessi hjálp semi og vinsemd ísfirðinga, hélt sendiherrann áfram hefði áreið- anlega átt sinn þátt í að efla hin góðu, görnlu tengsl milli ættjarð- ar minna og íslands. Og það er trú mín að Úlfur Gunnarsson muni vera rétti maðurinn til að hlúa að vexti og viðgangi þessara vináttutengsla. Úlfur Gunnarsson, læknir, er eins og kunnugt er sonur Gunn- ars Gunnarssonar, skálds. Hann er kvæntur þýzkri konu og eiga þau fjögur börn. Kvenfélagið í Hafnarfirði HAFNARFIRÐI. — Um þessar mundir eða nánar tiltekið 7. marz er liðin hálf öld siðan Kvenfélag- ið Hringurinn í Hafnarfirði var stofnað. Forgöngu um stofnun hafði Helga Benediktsdóttir Grön dal, kona Þórðar Edilonssonar héraðslæknis. Stofnendur voru 18 talsins og eru tveir þeirra enn starfandi í félaginu, þær Guðbjörg Kristjánsdóttir og Guðrún Eiríksdóttir. Var tilgangur félagsins í upp- hafi að hjálpa og styrkja berkla- veikt fólk, en á þeim árum geis- aði berklaveikin mjög hér á landi, sem kunnugt er. Vann Hringurinn mikið og gott starf og hjálpaði mörgum berklasjúkl- ingnum. Þegar sigur hafði að mestu unnizt á berklaveikinni, tóku Hringskonur að kosta dvöl fá- 9%%%%%%%%%%% SPILIÐ, sem hér fer á eftir er frá leiknum milli Bandaríkjanna og Englands á nýafstaðinni heims meistarakeppni. Á öðru borðinu sátu Bandaríkjamennirnir Mathe og Nail N.-S., en Englendingarn- ir Priday og Truscott A.-V. Á þessu borði skeði nokkuð óvenju- legt atvik og óneitanlega spaugi- legt. Bandaríkjamaðurinn Mathe gaf og sagði pass. Priday sagði einnig pass og Nail, sem sat í suður doblaðiH Allir ráku upp stóru augu og eftir mikinn hlát- kom skýringin, Nail hafði heyrt félaga segja pass, en hon- um heyrðist Priday segja 1 hjarta. Var sú skýring gefin, að mikill munur er á framburði Englendinga og Bandaríkja- manna og sé alls ekki mikill munur á framburði Bandaríkja- manns á passi og 1 hjarta hjá Englendingum. Eftir að aliir höfðu jafnað sig eftir þetta óvænta atvik var lcallað á keppi.isstjórann og úr- skurðaði hann að félagi Nail mætti ekki segja frekar, en sjálf ur hefði Nail heimild til að segja að vild. Nail valdi að segja 1 grand, sem varð loka- sögnin. A D 186 53 ¥ D + 95 * Á D 10 7 4 A G 2 ¥ 106 5 3 + K 8 4 3 2 * 96 * 84 ¥ ÁG942 A G 10 7 6 * K 3 A Á K 9 7 ¥ K 8 7 + Á D * G 8 5 2 Vestur lét út hjarta 4 og Suð- ur fékk 12 slagi eða 240 fyrir spilið. Á hinu borðinu sátu Engiend- ingarnir Rodrigue og Konstam N-S og Bandaríkjamennirnir Coon og Murray A-V. — Þar gengu sagnir þannig: Norður Austur Suður Vestur 1 * pass 2 A pass 3 A pass 4 A pass 4 A pass pass pass Vestur lét út tigulgosa og eins og sést á spilunum vinnast allt- af 6 spaðar og gerði Konstam það. England græddi því 6 stig á þessu spili. Þegar hlé var gert þennan keppnisdag var mikið rætt um þetta atvik og voru flestir á þeirri skoðirn, að Nail hefði átt að segja strax 3 grönd, þar eð hann mátti vita að hann fengi ekki að segja oftar. HRINGUNUM. 7úýit/2i.rVur& 4 Hringurinn hálfrar aldar tækra og veiklaðra barna í sveit. Rak Hringurinn t d. sumardval- arheimili í Viðey um hríð. Nú síðustu árin hafa 10 til 20 börn verið kostuð til dvalar í Glaum- bæ, en til stofnunar þessa barna- heimilis lagði Hringurinn 40 þúsund krónur. Félagið hefir látið að sér kveða á ýmsan annan hátt. Það gaf t. d. myndarlega upphæð til þeirra, sem urðu fyrir skakkaföllum í jarðskjálftunum á Dalvík 1934. Það styrkti börn er misstu feður sína í Halaveðrinu svonefnda, en þá fórst togari héðan Hringurinn lagði fram 120 þús. kr. til Sól- vangs — og ýmislegt annað hef- ir hann látið gott af sér leiða. Fjáröflunarleiðir Hringsins hafa einkum verið merkjasala, bazar og hlutaveltur Einnig sel- ur hann minningarkort. Hafa Hafnfirðingar jafnan sýnt félag- inu góðan skilning og styrkt það með fjárframlögum. Sú konan, sem lengst hefir ver- ið í stjórn Hringsins, er Guð- björg Kristjánsdóttir eða til árs- ins 1958, þegar hún baðst und- an endurkosningu. Núverandi stjórn skipa Kristín Kristjáns- dóttir, Sjöfn Sigurðardóttir, Björney Hallgrímsdóttir, Svein- björg Auðunsdóttir, Sjöfn Magn- úsdóttir meðstjórnandi. — G.E. Fjöldi manns heiðrar Guðmund á Hvanneyri Akranesi 3. marz. í GÆR komu að Hvanneyri i Borgarfirði 3-400 manns til þess að heiðra Guðmund Jónsson skólastjóra bændaskólans á sex- tugs afmæli hans. Var stöðugur straumur af fólki að koma og fara allan daginn heim á þetta næstum 1100 ára gamla höfuðból Gríms hins háleyska. Heillaskeyt in til Guðmundar skiptu mörgum hundruðum. — Oddur. „Krossgátubok44 NÝKOMIN er út lítil „krossgátu foók“. Hefur hún inni að halda 4° verðlaunakrossgátur. Heitið er þremiur verðlaunum fyrir réttar lausnir á öllum kross gátunum — flugferð til Khafnar og heim aftur, Sindrastól og transistor-viðtæki — og skulu lausnir hafa borist til Krossgátu útgáfunnar, Ljósvallagötu 20, Rvilk, fyrir 1. okt. 1962. • Vor í Vesturbænum G.M. hefur öðru sinni beðið Velvakanda að vera mitli- göngumaður milli R.J. og sín og segir: Ég held að ég naegi fullyrða að ég hafi birt pistil minn um daginn án tillits til greinar „Hjálmtýs í Nonna“ í Tíman- um ekki alls fyrir löngu. Hitt skal játað, að þegar ég hafði skrifað þetta, fór mér eins og R.J., að mér kom í hug sam- líkingin við þá grein. En ég taldi þó hvorki Velvakanda né M'bl. neina hættu búna á borð við það sem hlaust af þeirri grein, jafnvel þótt grein R.J. væri sxáldleg á köflum, enda skil ég kveðju hans til mín á þann veg, að hann hyggi ekki á slíkar hefndir. Þvert á móti býður R.J. mér í morgun- göngu með sér og er það vel boðið. En svo við snúum okkur aft ur að veðurfarinu, þá mætti kannski minna R.J. á það, að eitthvert vinsælasta „ljóð dags ins“ um þessar mundir endar á orðunum: „Ekkert er feg- urra en vorkvöld í Reykja- ví’k“. Þetta kann og syngur hvert einasta barn í Reykja- vík, sem nokkuð getur sungið, raunar börn og fullorðnir um allt land. Og svo kemur R.J. og lýsir þvi yfir, blákalt, að í höfuðstaðnum sé ekkert vor! Meðan Vesturbæingar voru og hétu, hefði þeim manni, sem lét sér slik orð um munn fara naumast orðið vært á Melurium til lengdar. • Gönguferð á Esju Það væri náttúrlega „alveg draumur“ að fá að aka snemma morguns með R.J. í hans (fjólu)bláa jeppa upp að Esju eða jafnvel Skarðsheiði, en þó að R.J. kunni að vera ennþá hraustari en undirrit- aður, þá held ég að ráðagerð- ir hans um morgungöngu upp á Esju nú á miðri Góu séu „hreystilegri" en góðu hófi gegnir. Eg gekk einu sinni fyr ir állmörgum árum upp á Esju, upp frá Kollafirði. Það var að sumarlagi í góðu veðri, ógleymanleg gönguferð. Eg Wiás&Jt \-jJl / V 7J-L ji J~*) t *jJl íCiTiúv- (I i i/ ^ I/ var einsamall og fór mér hægt og hvíldi mig við og við. En eins og R.J. sjálfsagt veit, er leiðin gróflega brött á köflum, og ég lít svo til héðan úr bæn- um að sjá, að svo miklir skafl- ar séu á þeim stöðum sem annars er gengt, að það mundi illfært jafnvel fjallagörpum á borð við okkur R. J. Eg verð því að afþakka boðið um morg ungönguna á Esju, og ég held að R.J ætti heldur ekki að vera að príla upp um Esjuna ofanverða fyrr en blessað vor- ið kemur, því að þrátt fyrir allt viljum við líklega ekki missa’nn! • Hitaveituhiti fyrst Til að gera langt mál stutt, þá vil ég af tilefni greinar R.J. 21. 2. segja það, að hvem- ig svo sem ráðamenn þessar- ar borgar taka þeirri hug- mynd hans að „búa Reykvík- ingum þann munað sem flest önnur lönd hafa ókeypis handa almenningi" þá hljóti að verða að teljast æskilegt að nýta fyrst miklu betur hitann af hitaveituvatninu en nú á sér stað, og hlýtur að koma að því að það verði gert, þótt það verði kannski ekki „áður en við er litið“. Og að lokum, þótt ég af. þakki morgungöngu boð R. J. að sinni, þá kynni að vera að við mæltum okkur mót einhverntíma seinna, og þar sem R.J. var svo kurteis og vingjarnlegur að gefa mér upp heimilisfang sitt, tel ég rétt og skylt að ég geri slíkt hið sama. Baugsveg 26, 2. marz 1962. G. M.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.