Morgunblaðið - 06.03.1962, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.03.1962, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjtídagur 0. marz 1962 XvXÍ'IWW'' ... ..m i.i i M ............riTirinrrh y Viðtal við dr. Gunnar Böðvarsson EINS og skýrt er frá í frétt ifggö í blaðinu, rituðu þeir dr. Gunnar Böðvarsson og Jón Jónsson, fiskifræðingur, grein í brezka blaðið Nature, og settu fram tilgátu um hugs- anlegt samband á styrkleika þorskstofnsins og annarra fiskistofna við Island annars vegar og sólbletta hins veg- ar, þannig að 11 ára sveiflan í sólblettum hefur sterk áhrif á styrkleika fiskárganganna. Fréttamaður blaðsins leit- aði til dr. Gunnars og spurði hann um tildrög þess að þessi tilgáta varð til og nán- ari skýringu á henni. — Eins og kunnugt er, er Ynismunandi blettamagn á sól inni og þetta blettamagn breytist ár frá ári. Er greini- leg 11 ára sveifla í þessu, sagði Gunnar. Blettirnir ná hámarki 11. hvert ár og var ....»922^924 1« »60 111 »20 Á efra kortinu er sýnt þorskstofnar fram á síðasta Á neðra kortimu sést á þorskveiðimagnið við Vest- tug aldarinnar. hvaða árum sólblettirnir eru mannaeyjar frá árinu 1900 mestir og hvenær minnstir, —1940 og merktir sterkir en sveiflan er 11 ár. Sterkir þorskárgangar klekjast út þegar sdlblettirnir eru minnstir síðasta blettahámark um 1957. Þessar sveiflur eru kunnar öllum, sem fást við jarðeðlisfræði. Ég hef á undanfömum ár- um lesið nokkur rit eftir Jón Jónsson, fiskifræðing, um þorskstofninn við ísland og veitti því athygii, að í nokkr- um gögnum um veiðar hér við land á þessari öld koma • fram 10—11 ára sveiflur í aflamagni. Þetta minnir ó- neitanlega nokkuð á sveifl- •urnar á sólblettastarfseminni. Ég ræddi þetta við Jón, sem var að sjálfsögðu ljóst fyrir að slíkar sveiflur væru fyrir hendi, og við ákvóðum að birta grein um þetta í Nature. í greininni er lögð á- herzla á það, að þegar borin eru saman styrk- leiki einstakra árganga þorsksins hér við Suður- »and og sólblettastarf- semin, þá virðist koma greinilega fram að sterkir árgangar klekjast út svo að segja eingöngu á þeim tíma, þegar lítið er um hletti á sólinni og virðist 11 ára sveiflan koma nokk uð greinilega fram í styrk leika árganganna. Einkum þorskur, einnig síld, lax og hrognkelsi Það sem hér er sagt gild- ir um þorskinn, en auðvitað er fróðlegt að sjá hvort svipað kemur fram í aflamagni eða styrkleika stofns annarra fiska hér við land, segir Gunn- ar. Til að kanna þetta, höfum við athugað sveiflur í síldveiði, laxveiði og hrognkelsaveiði. Þau gögn, sem eru fyrir hendi, eru af ýmsum ástæð- um erfiðari viðfangs en gögn in um þorskinn. Við höfum gögn um þorskveiðar frá Þorsteini í Laufási í Vest- mannaeyjum, en hann tók niður meðalafla á 100 öngla og lögn á árunum 1900—1940, og þau gögn verður að telja góð. Gögnin um aðrar fisk- tegundir eru bara venjuleg- ar aflaskýrslur, þau ná ekki jafn íangt aftur í tímann og eru heldur ekki eins hrein. Að sjálfsögðu eru í íslenzk- um annálum eldri gögn um afla hér við land og geri ég ráð fyrir að þar sé mjög merkilegur fróðleikur, þó ekki hafi verið unnið úr því. Þrátt fyrir þetta virð- ist okkur að í öllum fyrr- nefndum fisktegundum megi greina nokkrar 11 ára sveiflur, þó þær séu ekki eins greinilegar og hjá þorskinum. Til fróðleiks má skjóta því hér inn í, að dr. Finnur Guð mundsson hefur fyrir nokkr- um árum sýnt fram á mjög sterkar 10 ára sveiflur í ísi. rjúpustofninum. Og yfirleitt eru til í ísl. annálum ýmis náttúrufræðileg gögn, sem geta komið að miklum not- um við almennar rannsóknir og varla til annars staðar hliðstætt efni að vinna úr. fsland liggur í aðalnorðurljósasvæðinu Gunnar tekur það fram, að þetta sé alis ekki í fyrsta skipti sem tglað er um sam- band milli líffræðilegra fyr- irbrigða og sólbletta. Tilgát- ur um áhrif þessarar 11 ára sólblettasveiflu á ýmis líf- fræðileg fyrirbrigði á jörð- inni, hafa verið margar og ýmsir hafa lagt fram gögn því til sönnunar, segir hann. En yf irleitt er óhætt að segja, að Gunnar Böðvarsson þessi gögn hafi verið léleg og það samhengi sem reynt hefur verið að benda á, hef- ur verið mjög vafasamt. Það má því kannski segja að það sé að bera í bakkafullan læk- inn að bæta við nýjum gögn- um. En gögnin sem við Jón Jónsson teljum hægt að leggja fram um sveiflur í þorskstofninum, virðast mun áreiðanlegri en þau sem áð- ur hafa komið fram, segir Gunnar. Virðist okkur því nauðsynlegt að þetta mál verði rannsakað áfram. Ef sólblettasveiflan hefur á ann- að borð áhrif á fyrirbæri hér á jörðu, þá er sérstök ástæða til að vænta þess að þau áhrif séu sérstaklega mikil á ökkar breiddargráðu. ísland liggur á aðalnorðurljósasvæð- inu og fiskimiðin við suður- strendur landsins eru einmitt á því svæði, þar sem norður- ljósatíðnin nær hámarki. En norðurljósin stafa, sem kunn- ugt er, af geislim frá sólinni og þessi geislun fylgir sól- blettastarfseminni. Svæðið við ísland ætti þvi að vera sérstaklega viðkvæmt. Það vill einmitt svo til, að á síðustu árum hafa jarðeðl- isfræðingar getað sýnt ótví- rætt fram á samhengi milli háloftastrauma og sólsveifl- unnar, bætir Gunhar við, og þessi vitneskja styrkir okk- ur í þeirri trú að sambandið milli sólblettanna og styrk- leika fiskstofnsins eigi að rannsaka, og að þessi kenn- ing sé ekki eins út í bláinn og maður hefði annars kannski freistast til að halda. Af því sem sagt hefur verið hér að ofan, tel ég að þorsk- stofnsveiflurnar gefi tilefni til að við hér á íslandi gefum þessu meiri gaum en hingað til. Persónulega fékk ég á- huga á þessu máli á árunum 1950—1952, þegar ég var í nefnd til rannsókna á síld- veiðum. Þá fór ég að velta fyrir mér og setja í samband ýmis atriði sem falla undir lífeðlisfræði og hefi ætíð síð- an gefið slíku gaum. Eg mundi vilja kalla þá grein, sem ofarnefndar rannsóknir falla undir, „ytri lífeðlisfræði“ og á með því við áhrif eðlis- fræðilegra fyrirbæra í um- hverfinu á líffærastarfsemi. Samvinna fiskifræðinga og eðlisfræðinga Talið berst nú að því hve sú stefna er að færast í auk- ana að sérfræðingar í ýmsum greinum hafi samstarf, og kveðst Gunnar einkurn hafa orðið var við þá tilhneigingu í Bandaríkjunum, þar sem er t. d. til sérstök stofnun, sem hefur það að verkefni að kanna gerð lífvera með það fyrir augum að nota sér þá tækni sem náttúran hefur fundið upp, til að leysa ýmis vandamál á öðrum sviðum. Sem dæmi um það má nefna að maður nokkur fór að velta því fyrir sér hvernig á því gæti staðið að smáhveli gátu elt skip dögxun saman án þess að þreytast og komst með rannsóknum að því að þeir bæði ráða yfir sérstakri sund- tækni og auk þess er húðin sérstaklega gerð til að minnka viðnámið í vatninu. Tók mað- urinn svo einkaleyfi á að nota þessa tækni hvalsins við ann- að. — Sú tilhneiging að auka samstarf milli hinna ýmsu fræðigreina á áreiðanlega eft- ir að aukast, segir Gunnar. Og á sama hátt tel ég að hér eigi samstarf fiskifræðinga og eðl- isfræðinga um rannsóknir á sjávarlífi í hafinu umhverfis ísland, eftir að aukast mikið. Tölulegur styrkleiki stofnsins Við göngum nú á Gunnar og spyrjum hann um framhald á þessum rannsóknum. Hann kveðst að sjálfsögðu mundu halda áfram athugunum á þessu. En í framtíðinni vonaði hann að það yrði verkefni fyr- ir hina væntanlegu Raunvís- indadeild Háskólans. — í því sambandi langar mig til að leggja á'herzlu á annað atriði, sem virðist skipta miklu máli, og það er notkun nútima reiknistækni við rannsóknir á styrkleika íslenzka fiskistofnsins, segir hann. Það skiptir miklu máli, að maður geri sér tölulega grein fyrir veiðiþoli stofn- anna og ef lögð er nægileg vinna í þessi verkefni, þá ætti síðar meir að vera hægt að gera sér tölulega góða grein fyrir veiðiþolinu. Þetta ætti að vera auðveldast þegar um þorskstofninn er að ræða, þvi hann hefur verið rannsakaður langmest, fyrst af Bjarna Sæmundssyni og síðan af Jóni Jónssyni, sem báðir hafa sem kunnugt er leyst af hendi mjög merkilegar rannsóknir á þessu sviði. — Það sjá allir hvílíka hag- nýta þýðingu það 'hefur, ef við getum séð nokkurn veginn fyr ir að sérstaklega sterkur ár- gangur muni klekjast út ellefta hvert ár, og að við get- um líka gert okkur reiknings- lega grein fyrir veiðiþoli þess- ara árganga. Nokkuð af þeirri óvissu, sem hvílir yfir fiski- veiðum almennt, mundi þá rutt úr vegi, sagði Gunnar Böðvarsson að lokum. — E. Pá. — Alþingi Framh. af bls. 8. hefur vísitaian hækkað úr 134 stigum í 168 stig, samkv. upplýs- ingum í síðasta hefti fjármála- tíðinda. Byggingarkostnaður hef- ur með öðrum orðum hækkað um 25% og fer þá eingögu eftir því, hve dýra íbúð menn taka, hverju sú hækkun nemur í krónu tölu. En menn skyldu ekki ætla, að það sé óþekkt fyrirbæri, að bygg ingarkostnaður hækki. í tíð vinstri st]órnarinnar, eða frá árs- byrjun 1957 til ársloka 1958, hækkaði byggingarvísitalan úr 113 stigum í 134 stig eða um 19% á tveim árum í stað 25% á þeim þrem árum, sem síðan eru liðin. Á því sést, að byggingarkostnað- urinn hefur hlutfallslega hækkað meir í tíð vinstri stjórnarinnar. 80 þús. kr. hækkun Þegar lögin um húsnæðismála- stjórn voru sett, var ákveðið að hámark iána skyldi vera 100 þús. kr. f raun námu þau þó ekki meiru en 70 þúsundum. 1960 hefðu þau hækkað í 100 þús. kr. og ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp þess efnis, að þau megi nema allt að 150 þúsundum. Hin raunverulega hækkun lánanna frá 1960 nemur því 80 þús. kr. verði það frumvarp samþyfckt og kvaðst ráðherrann vilja halda því fram, að sú upphæð sé ná- lægt aukningu byggingarkostn- aðar á minni íbúðir frá tíma vinstri stjórnarinnar. Með hækk- uninni sé ráðin mjög veruleg bót á lánaupphæðinni og þeim mál- um komið í hlutfallslega betra horf en fyrir 1960. Þá kvaðst hann enga trú hafa á því, að það dugi að lækka vexti A-lána með einu penna- striki í 4%, það sé miklu flókn- ara mál en svo. Því er slegið föstu, að eftir að skuldabréf er gefið út, verða vextirnir þeir sömu, meðan það er í gildi. Verði því vöxtunum breytt, kvaðst ráð- herrann hvggja, að ríkissjóður yrði að taka á sig mismuninn, en hann næmi hærri upphæð, en rík issjóði yrði mögulegt að taka S sig, nema þá með því að afla tekna þar á móti. Loks gat ráðherrann þess, aS vaxtahækkunin hafi verið tíma- bundin og hugsuð sem einn liður í því kerfi að koma fjármálun- um á varanlegan grundvöll. í ára byrjun 1961 voru þeir lækkaðir, 1 flestum tilfellum um helming hækkunarinnar, og kvaðst ráð- herrann vilja ætla, að með þeim árangri, sem náðst hefði, sé si dagur ekki langt undan, að frek- ari vaxtalækkun sé möguleg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.