Morgunblaðið - 06.03.1962, Qupperneq 11
Þriðjudagur 6. marz 1962
MORGVISBLAÐtÐ
11
Sindri og Sindrasmiðjan.
Á tímum hinnar hröðu uppbyggingar atvinnulífsins um landið allt, veltur á miklu fyrir athafna og
framkvæmdamennina að geta á hverjum tíma snúið sér til þjónustufyrirtækja sem fær séu um að veita
þeim umbeðna þjónustu á skjótan og hagkvæman hátt.
SINDRI OG SINDRASMIÐJAN hafa leyst af hendi brautryðjendastörf og aflað sér traustrar reynslu
á nokkrum þýðingarmiklum sviðum íslenzks iðn'aðar og framkvæmdalífs- og geta því boðið fram-
kvæmdamönnum þjónustu og samstarf sem þeim er hagur að.
Sindri starfrækir í Borgartúni, aðalskrifstofan
Hverfisgötu 42
Járn- og stálbirgðastöð, sem hefur fyrirliggjandi:
Stangajárn — Vinkiljárn
Stálbjálka, 1- og Ll_£omiaða
Plötujárn af ílestuin þykktum og stærðum
Kaldvalsað plötujárn. Galv. slétt plötujárn.
Vélastál, sívalt, flatt og ferkantað^
Margar tegundir og stærðir af gæðastáli.
Steypustyrktarjárn — Þakjárn.
Pípur í mörgum stærðum fyrir vatnsleiðslur,
olíuleiðslur, og margskonar formaðar pípur til iðnaðar.
Eir, kopar og aluminium í pípum, plötum <*g stöngum.
Hinn velþekkta SMIT.rafsuðuþráð.
SINDRI er fyrsta og eina stál- og járnbirgðastöð hérlendis,
sem hefur verið, og á væntanlega eftir að verða, til ómetan-
legra hagsbóta fyrir allar framkvæmdir, og þá sérstaklega
fyrir járniðnaðinn í heild.
Grundvöllurinn að járnbirgðastöðinni er byggður upp á
kaupum á járni og stáli frá Vöruskiptalöndum í Austur-
Evrópu. ....o*.----
Vegna erfiðra samgangna við Austurland, þá höfum við
komið upp járn- og stálbirgðastöð á Seyðisfirði, sem hefur
stórbætt aðstöðu og þjónustumöguloika járniðnaðarins í
þessum landshluta.
Brotajárn og brotamálmar:
Kaupum brotajárn og málma til sundurgreiningar og út-
flutnings til erlendra verksmiðja.
SINDRI er fyrsta og eina
fyrirtæki landsins, sem hag-
nýtur og hefur vélar til sund
urgreiningar brotajárns og
málma, og gerir það að sér-
grein hérlendis.
Sindrasmiðjan starfrækir í Borgartúni
Vélaverkstæði, þar sem framleitt er meðal annars: hinar
velheppnuðu vökvadrifnu bílpallslyftur (vélsturtur), sem
framleiddar eru fyrir íslenzka notkun og staðhætti, og taka
fram erlendri framleiðslu sömu gerðar.
Byggjum einnig bílpalla
Ennfremur framleiðum við fyrir trésmíðaverkstæði vökva-
drifnar límþvingur, upphitaðar með rafmagni.
Höfum langa reynzíu í smíði stálgrindahúsa, gróðurhúsa, og
lýsis- og olíugeyma
Framleiðum í fjöldaframleiðslu: Kúbein, meitla og steinbora
úr nákvæmlega hertu stáli, sem eru meðal eftirsóttustu
handverkfæra sinnar tegundar.
Stálherzlu, með fullkomnustu gerð af stálherzlutækjum, en
hún er fyrsta og ema stálherzlustöð landsins, útbúin með
nýjustu og fullkomnustu gerð stálherzlutækja, en stálherzla
er grundvöllur að margskonar nýjum iðnaði í landinu.
Húsgagnagerð í Borgartúni og Hverfisgötu 42
SINDRA-húsgögnin eru nýr kafli í íslenzkri húsgagnagerð.
Þau eru gerð úr stáli, plasti og tré, og klædd með íslenzkum
skinnum eða ullaráklæðum. Sindrahúsgögnin hafa hlotið
mikla viðurkenningu hér heima og erlendis. Sindrahúsgögnin
eru gerð fyrir samkomuhús, veitingastaði. skóla, skrifstofur
og heimili
tifímmmmnmnniiiimiiiiiiiiiimfflttfflttttm
Sölubúð
Hverfisgötu 42
11 m ^fflffltffltffltffliimimíiimmimmimiimiiiii
WM
♦