Morgunblaðið - 06.03.1962, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 06.03.1962, Qupperneq 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 6. marz 1962 Otgeíandi: H.f, Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfú.s Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.) Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: A.rni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Simi 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. HATRIÐ Á HÖFUÐ- BORGINNI „Forystuskip Reykvíkinga er fúnað í naustum og maðk- smogið. Borgararnir hafa of lengi lagt blessun sína yfir það uppsátur í sömu skorð- um. Sé reynt að ýta nökkv- anum á flot í einhverjum framfaramálum, liggur kjöl- urinn eftir í sora þeirra spilltu sérgæðings- og fjár- gróðaafla, sem grafið hafa um sig við rætur borgar- meiðsins í fjörutíu ár“. annig lýkur ritstjórnar- grein í Tímanum sl. sunnudag um höfuðborgina. Þar er allt maðksmogið og fúnað, þar er sori spilltra sérgæðings- og fjárgróðaafla o.s.frv. Reykvíkingar kippa sér að vísu ekki upp við að heyra slíkar lýsingar af hálfu Fram sóknarmanna. Frá fyrstu tíð hafa þeir hatazt við höfuð- borgina og fundið henni flest til foráttu. Menn minn- ast þess, að svo langt hefur ónáttúra Tímans gengið, að hann gat ekki unnt Reykvík- ingum aðdáunar á útsýninu til Esjunnar og líkti henni við fjóshaug. Framan af kann hatrið á höfuðborginni og baráttan gegn henni að hafa markazt af því, að Framsóknarmenn teldu það líklega leið til að afla sér fylgis úti uni land. En sannleikurinn er bara sá, að hvað sem áður kann að hafa verið, þá gera allir landsmenn sér grein fyrir hlutverki höfuðborgarinnar og eru raunar stoltir af henni, bæði vegna eldri sögu hennar og yngri. Þess vegna er barátta Tímans gegn Reykjavík og Reykvíkingum illskiljanleg. Þegar Reykjavíkurkynning in var haldin í sumar, flutti Tíminn nokkrar greinar, þar sem málefni Reykjavíkur voru rædd vinsamlega og af réttsýni. Menn héldu þá, að Framsóknarflokkurinn hefði gert sér grein fyrir því, að hyggilegra væri að líta á höfuðborgarbúa sem jafn- réttháa öðrum landsmönn- um og róginum um Reykja- vík myndi þar með linna. En annað er nú orðið uppi á teningnum, eins og menn sjá af hinum tilvitnuðu orð- um hér að framan. En einkennilegt er það, ef Framsóknarmenn halda að rógburður um Reykjavík sé líklegastur til að styrkja þá í baráttu þeirri, sem framund an er í borgarstjómarkosning unum. —Reykvíkingar munu vissulega nota það tækifæri til verðugs svars við Fram- sóknarrógnum. AUKNAR ÍBÚÐA- BYGGINGAR Árið 1955 komst tala íbúða í smíðum í Reykjavík í hámark, eða 1808 íbúðir. Þessar geysimiklu bygging- arframkvæmdir voru ávöxt- ur heilbrigðrar efnahagsþró- unar eftir að gengið var fellt 1950 og efnahagurinn treyst- ur. — Er kunnara en frá þurfi að segja, að 1955 var almenn velmegun hér á landi og bjart fram undan. En þá tókst kommúnistum með að- stoð Hermanns Jónassonar að knýja fram nýja verð- bólgu með víðtækum verk- föllum, og í kjölfar þeirra var vinstri stjórnin sáluga svo sett á laggirnar. Almenna veðlánakerfið, sem komið var á fót nokkru áður en vinstri stjórnin tók við völdum, hafði lánað að meðaltali 8,7 millj. kr. á hverjum mánuði og meðal- lán út á íbúð voru þá 55 þús- und krónur. Á tímum vinstri stjómarinnar lækkuðu mári- aðarlegar lánveitingar úr almenna veðlánakerfinu nið- ur í 3,9 millj. og meðallán á íbúð urðu þá 36 þúsund krón ur. Á vinstri stjórnartíman- um hækkaði hins vegar byggingarkostnaður venju- legrar 100 fermetra íbúðar úr 280 þús. kr. í 375 þús. Afleiðingar þeirrar bjálfa- legu efnahagsstefnu, sem vinstri stjórnin rak, urðu þær, að íbúðabyggingar minnkuðu ár frá ári. Al- menna veðlánakerfið varð nær óvirkt, og engar ráð- stafanir voru gerðar til að tryggja lánsfé. Nú er verið að snúa þess- ari óheillaþróun við. Sam- hliða aukinni spárifjármynd- un er nú unnt að endurreisa lánasjóði til styrktar hús- byggjendum. íbúðabygging- ar munu því þegar fara vax- andi á þessu ári og þó enn meira á næstu árum, þegar verulegt sparifé hefur safn- azt fyrir. Þannig er þróunin að verða hin sama og fyrir 8—10 árum, þegar húsbygg- ingar voru að ná hámarki. „UNDIRLÆGJU- AFSTAÐA" C|íðastliðinn sunnudag ræðir ^ Tíminn um það í löngu Biblíutextar frá fyrstu öld e.kr. birtir innan skamms FYRIR skömmu bárust þær fregnir frá bandarísku forn- leifastofnuninni í Jerúsalem, að tekizt hefði að fletta í sund ur og þýða textana á einni helgiritarúllunni, sem farmst Við Dauða hafið ‘árið 1956. Á þessa rúllu eru letraðir 36 sálmar úr Gamla testament- inu og nokkrir fleiri sálmar, áður óþekktir. Meðal sálm- anna úr Gamla testamentinu er sálmur númer 151, sem til þessa hefur aðeins verið til í einni grískri útgáfu. Þessa leturrúllu fann Jórd anskur bedúini í Qumram- héraðinu við Dauða-hafið. Hún er frá því á fyrstu öld eftir Krist burð — eða 8—900 árum eldri en elztu heildar- handrit, sem áður höfðu fund izt — og sálmarnir eru allir ritaðir á hebresku. Innan skamms verða text- arnir birtir, en það er forn- leifastofnunin í Jerúsaiem, sem hefur birtingarréttinn. Handritin eru hinsvegar talin eign jórdanska ríkisins. Siglingaþing og ömul landabréf Alþjóðasiglingaþingið fór fram í Baltimore í Bandaríkj- unum síðastliðið haust. Þingið sóttu nokkur hundruð fulltrú- ar frá 105 lönum. Slík þing eru haldin fjóðra hvert ár, og var þetta í annað sinn, að það var háð í Bandaríkj unum. í því tilefni hafði hið heirns kunna listasafn í Baltimore, Walters Art Gallery, sýningu á verðmætum handritum, landabréfum og uppdráttum, sem rekja sögu sæfara heims- ins allt frá Ptólemusi Og fram á okkar daga. Þar gat að líta nokkur elztu landabréf af heiminum, sem vitað er, að til eru — eða þeim hluta heimsins, sem þekktur var. Koma þar m,a. fram skemmtilegar skoðanir manns að nafni Marcrobius, sem uppi var á árunum 395 til 423. Hann skipti flötu yfirborði jarðar- innar í fimm hluta eftir veð- urfari: pólarnir tveir sinn við hvorn enda, þar sem óbyggi- legt var vegna kulda; mið- baugur, þar sem óbygigilegt var vegna hita, og loks tvö tempruð belti. En hinn byggði heimur var allur í nyrðra belt inu, og það var urnlukt sjó. Claudius Ptolemeus frá Alexandríu ber hæzt í sögu landauppdrátta og siglinga. Hann er sagður höfundur fyrsta heimsatlasins. Hann skráði lýsingu á heiminum í bók kringum 160 f. Kr. Það var fyrsta tilraun til þess að ’byggja landakortagjörð á vís- indalegum grundvelli. Bókin var full af villum, mdðað við það sem nú er vitað, en svo verðmæt var hún þá, að hún var hin viðurkennda veraldar mynd í hvorki meira né minna en 1400 ár. Þegar kom fram á 15. öld, fóru sæfarar í Miðjarðarhafi að gera svokölluð „skipstjórn- arkort.“ Sagnfræðingur einn segir m.a. svo um hinar fögru Jónisku eyjar, að þær „freist- uðu jafnvel hinna raunsærri sæfara og teymdu þá frá einni eyjunni til annarrar." Og þeir gerðu uppðrátt að strandlengj um eyjanna um leið og þeir sigldu meðfram þeim, og ár- angurinn varð einskonar ferða mannakort af þessu svæði. Smám saman bættust ný lönd í hópinn og voru skráð inn á landabréf og kort. Upp- dráttur af landifundum Kólum busar, sem sýnir Vestur-Indí- ur og Mið-Ameriku, er fyrsta prentaða spænska kortið af Ameriku. Hjartalagað landa- bréf, sem gefið var út í Fen- eyjurn árið 1511, er eitthvért fyrsta „nútima" landabréfið, sem sýnir hluta af meginlandi Norður-Ameríku. Það sást að visu ekki mikið af meginland- inu, aðeins óljós hugmynd um strandlengju efst á þessu ein- stæða landakorti. •Um tíma urðu landakörtin t fremur skrautleg myndskreytt j handrit en nytsöm siglinga- J kort. Frá 13. öld eru nokkur l svonefnd Portolan Atlaskort. | Það voru fagurlega skreytt | sjókort af ströndum Evrópu, / Afríku og Indlandshaifs, og l voru hafnir og fljót og helztu I borgir máluð af mikilli list á fínlegt gullblað. En þessi kort voru fremur til skrauts en nota, enda Skildu skipstjórarnir korta- bækur síinar eftir í landj í ör- uggri geymslu Það var ekki fyrr en seint á árunum kringum 1500, að far- ið var að gera vísindalega ná- kvæm heimslandakort — sem byggð voru á landikömnun en ekki ágizkunum og sögusöng- um. Eitt merkasta landakort endurreisnartímabilsins var Wright-Molineaux veraldar- kortið, sem gert var með Mer cator-aðferðinni. Þar var gef- in nokkuð nákvæm mynd af Evrópu, Afríku og Asíu. Suð- ur-Ameríka var auðþekkjan- leg, helzt til samankeyrð neðst,- og Norður-Ameríka var nokkuð rétt, nema hvað Mich- iganvatn var allt of stórt. En það sem mestu máli skipti, var að yfirleitt var allt á rétt- um stað — og það ekki lítið afrek á þeim tíma. máli, hver undirlægjuháttur það sé að heimila varnarlið- inu rekstur sjónvarpsstöðvar. Blaðið spyr: „Hvers vegna hafa slík mistök átt sér stað? Hvað veldur því að ríkisstjórnin afhendir erlendum aðila eins konar einkaleyfi til að ráða yfir mesta áróðurstæki í landinu? Hvers vegna dylst öllum hinum sjö ráðherrum, sem skipa ríkisstjórn íslands, að hér sé nokkuð varhuga- vert og hættulegt á ferð- inni....“ o. s. frv. Hið kátlega við þessi um- mæli er hinsvegar, að utan- ríkisráðherra Framsóknar- flokksins, dr. Kristinn Guð- mundsson, veitti þetta leyfL Orð þessi hitta því engan annan en hann og flokk hans. Er því engin furða, þótt menn brosi að þessum nýjustu tilburðum Þórarina Þórarinssonar til að reyna að gera samstarf okkar við bandamenn okkar tortryggi- legt. —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.