Morgunblaðið - 07.03.1962, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.03.1962, Blaðsíða 12
12 MORGVTSBLAÐIÐ Miðvikudagur 7. marz 1962 wdpissiMflMfr Otgefandi: H.f Arvakur Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (átom.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Krisíinsson. Ritstjórn: ðöalstræti 6. Augiýsingar og argreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. Viðreisn og vestræn sam vinna TTvað skiptir mestu máli í íslenzkum stjórnmálum í dag? Fyrst og fremst tvennt: Að þjóðinni takist að treysta svo efnahagsgrundvöll þjóðfélags síns að hún geti haldið áfram uppbyggingu og fram- förum í landi sínu. í öðru lagi, að íslendingar geri sér Ijóst, að sem nánust samvinna þeirra við vestræn ar lýðræðisþjóðir er hrein- lega frumskilyrði þess að haldið verði uppi á Islandi fullkomnu, batnandi og þroskavænlegu þjóðfélagi. Ef þessi tvö meginatriði eru athuguð nokkru nánar, dylst engum hugsandi manni, hvar í flokki sem hann er staddur, að áframhaldandi framfarir og uppbygging í landinu er fyrst og fremst háð því, að þjóðin reki bjargræðisvegi sína á heil- brigðum grundvelli, miði eyðslu sína við arðinn af framleiðslustörfunum og hag nýti sem bezt krafta sína. Ef við gerum þetta ekki, ef við eyðum um efni fram, látum íslenzka krónu halda áfram að grotna niður og verða að engu, ef við glötum öllu láns trausti út á við, ef við gef- um taumlausri eyðslu og ráð- leysi byr undir báða vængi, en hindrum alla ráðdeild og sparnað — þá er voðinn vís. Þá stöðvast uppbyggingin og framfarirnar láta á sér standa. Á sama hátt myndi það þýða ófrelsi og niðurlæg- ingu, skerðingu mannrétt- inda og kúgun frjálsrar hugsunar á öllum sviðum, ef íslenzka þjóðin einangraði sig frá vestrænum lýðræðis- þjóðum og nágrönnum sínum en hallaði sér að hinum al- þjóðlega kommúnisma og hinni austrænu ofbeldis- stefnu. Af slíku hátterni myndi á örskömmum tíma leiða nýlenduaðstöðu til handa íslandi. Á sama hátt og Ungverjaland, Austur- Þýzkaland, Búlgaría og fleiri lönd Austur- og Mið-Evrópu hafa orðið algerar hjálendur Sovétríkjanna, myndi ísland og hin örfámenna þjóð þess á skömmum tíma glata póli- tísku og efnahagslegu sjálf- stæði sínu. Þetta sýnir reynsla þjóða þessara landa og fjölmargra annarra, þannig að eigi verð- ur um villzt. Hér er því ekki um neina hrakspá að ræða, heldur framsýni og skilning á sorglegri öfugþróun, sem orðið hefur hlutskipti margra menningarþjóða. Það er því frumskilyrði á- framhaldandi uppbyggingar og framfara í hinu íslenzka þjóðfélagi, að þjóðin geri sér Ijós þau tvö meginatriði ís- lenzkra stjórnmála, sem minnzt var á hér í upphafi. Ef hún gerir það, og það mun hún áreiðanlega gera, á íslenzka þjóðin bjarta og farsæla framtíð fyrir hönd- um. — Kermsluverkstæði á Hvanneyri T afmælisviðtali, sem birtist við Guðmund Jónsson, skólastjóra á Hvanneyri, sex- tugan hér í blaðinu fyrir nokkrum dögum, skýrði hann m.a. frá því að nú væri í deiglunni við Bændaskól- ann á Hvanneyri nýbreytni, sem hann vonaðist eftir að yrði skólanum til mikils vegsauka, en það væri sér- nám í vélfræði. Frá 1. janú- ar í vetur starfar sérstakur kennari í -vélfræði við bændaskólann og gert er ráð fyrir því, að því er skóla- stjórinn segir, að byggt verði kennsluverkstæði þar á komandi sumri. Verður þá hægt að stórauka kennslu í meðferð véla við Hvanneyr- arskólann. Fyllsta ástæða er til þess að fagna þessari nýbreytni við Bændaskólann á Hvann- eyri. Vélanotkun fer stöðugt í vöxt við allar greinir land- búnaðarins. Mikils er um vert, að hin ungu bændaefni fái góða undirstöðuþekkingu á þeim vélum og tækjum, sem þeir óhjákvæmilega verða að nota á búum sínum. Þeir þurfa einnig að læra hirðusemi og virðingu fyrir þeim miklu verðmætum, sem í þessum tækjum eru fólgin. En mjög oft hefur á það brostið að margskonar nýjar vélar og tæki væru hirt sem skyldi. Þau hafa jafnvel ver- ið látin standa úti vetur, sumar, vor og haust, og enzt af þeim sökum miklu verr en skyldi. Vonandi kemst hið nýja kennsluverkstæði upp á Hvanneyri á komandi sumri og verður bændaskólanum og íslenzkum bændum að því gagni, sem að er stefnt. Krúsjeff á undanhaldi TVTikita Krúsjeff, forsætis- ■*•’ ráðherra Sovétríkjanna, hefur nú fallizt á þá tillögu TALDAR eru likur fyrir því að Gyðingaböðullinn Adolf Eichmann, sem dæmdur hef- ur verið til dauða í ísrael, komi aftur fyrir rétt í Jerú- salem. Fári svo er sennilegt I að endurminningar hans verði lagðar fram í réttinum, því verjandinn telur að þar komi fram nýjar upplýsingar í málinu. Á fimmtudagskvöld var skýrt frá því að verjandi Eichmanns, dr. Robert Serva- tius, hafí ritað hæstarétti ísraels og óskað eftir að leiða Eichmann fyrir rétt að nýju og auk þess ný vitni og end- urminningar þær, sem Eich- mann hefur skráð í fangels- inu. — Lögfræðingar telja að svo geti farið að hæstiréttur úr- skurði að réttur sá, sem i dæmdi Eichmann til dauða, i verði kvaddur saman að nýju til að fjalla um málið. Hér yrði þó ekki um nýja málsrannsókn að ræða, held- ur aðeins frekari vitnaleiðsl- ur ixm einstaka atriði. Mynd þessi var tekin í réttarsainum í Jerúsalem 15. desember s.l. þegar dauðadómurinn var lesinn yfir Eichmann. Ký rannsókn í máli Eichmanns? Hæstiréttur á svo að taka málið fyrir, en þar verður aðallega rætt um ýmis mót- mæli, sem Servatius bar fram í undirrétti varðandi málssóknina, og sérstakiega um þá fullyrðingu verjand- ans að ísraelskur dómstóll hefði enga heimild til að dæma Eichmann. Hæstarétti er ætlað að koma saman hinn 22. marz, en ef mál Eichmanns fer aft- ur fyrir undirrétt, getur það dregizt eitthvað. Enginn veit hvað endur- irrinningar Eichmanns hafa að geyma, en þær skráði hann í fangelsinu meðan hann beið dóms. Enginn hef- ur séð endurminningamar, jafnvel ekki verjandinn, sem nú vill leggja þær fram í réttinuiii. En Servatius vill leggja þær fram vegna þess að hann segir að þær muni leiða í Ijós „hinar sönnu til- finningar“ Eichmanns gagn- vart Gyðíngaofsóknum Hitl- ers. —. 12 doga Ítalíu.'srð um póskana Vesturveldanna að afvopn- unarráðstefna hinna 18 ríkja, sem fyrirhugað er að hefjist í Genf á næstunni, hefjist með fundi utanríkisráðherra aðildarríkjanna. Áður hafði Krúsjeff lagt til að æðstu menn allra aðildarríkjanna kæmu til þessarar ráðstefnu. Þegar sú tillaga fékk daufar undirtektir, lét hann að því liggja að hann myndi sjálf- ur sitja ráðstefnuna, hvað sem aðrir gerðu. Hann hefur nú fallið frá þeirri fyrirætl- an sinni og tekið undir þá skoðun leiðtoga Vesturveld- anna að æskilegt sé að málin séu undirbúin betur og sam- komulagsmöguleikar athug- aðir, áður en efnt sé til funda hinna æðstu manna. Á sl. sumri hótaði Krús- jeff öllu illu í sambandi við Berlín. Setti hann í því sam- bandi ýmsa fresti, ýmist til október eða áramóta. Var því jafnvel hótað af hálfu Sovétríkjanna að þau mundu semja sérfrið við Austur- Þjóðverja og rjúfa allt sam- FERÐASKRIFSTOFAN Lönd og leiðir h.f. efnir um páskana til 12 daga ferðar til Ítalíu. Ferða- áætlunin er í stórum dráttum á þessa leið: I>ann 13. apríl verður flogið til Rómaborgar með við- komu í Glasgow og London, komulag um frelsi Vestur- Berlínar. Öllum þessum digurmæl- um hefur Krúsjeff orðið að kingja. Vesturveldin hafa staðið ákveðin á grundvelli gerðra samninga um Berlín og látið hótanir Rússa sem vind um eyrun þjóta. Hins- vegar hafa lýðræðisþjóðirnar verið reiðubúnar til samn- inga um Berlínarvandamál- ið. Við það situr. Krúsjeff hefur nú vafa- laust gert sér ljóst, að hót- anir hans um ofbeldi og samningsrof eru hvorki lík- legar til þess að treysta að- stöðu Sovétríkjanna, né held- ur að stuðla að bættum frið- arhorfum í heiminum. stanzað dag í Róm og síðan ekið með langferðabifreið suður með ströndinni til Napoli og Sorento og siglt þaðan til Capri. Á Capri verður dvalið næstu 5 daga, og sennilega ekin önnur leið, og dag inn eftir, sem er páskadagur, fær ferðafólkið blessun páfa. Frá Róm verður farið 24. apríl og flog ið heim með viðkomu á sömu stöðum og á útleið. Einnig getur fólk hagað heimferðinni á marga aðra vegu og komið við í ýmsum borgum. Kostnaður við ferðina verður kr 13.880, og eru allar ferðir þá innifaldar, svo og gisting og fæði. Fararstjóri í ferðinni verður Ein ar Pálsson, leikari, en hann talar ítölsku og er vel kunnugur svæð inu, sem farið verður um. Pompei og Vesúvíus Meðan dvalið er á Capri er um margt að velja fyrir ferðafólkið, það getur sleikt sólskinið á bað- ströndinni, skoðað bláa hellinn og farið í ferðir eins og til Napoli. Einnig gefst fólki kostur á að sjá eldfjallið Vesúvius og skoða fomleifarnar frá árinu 7Ö f. Kr, í PompeL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.