Morgunblaðið - 07.03.1962, Side 13

Morgunblaðið - 07.03.1962, Side 13
Miðvikudagur 7. marz 1962 MORGVNBLAÐIÐ 13 Tæknilega dmögulegt að takmarka sendisviðið við Keflavíkurflugvöil Ræða IVfagnúsar Jónssonar við utvarpsumræðurnar CTtvarpsumræður sem þessar eru óvenjulegt fyrirbæri, og sann ast sagna eru litlar líkur til þess, að útvarpshlustendur endist til að hlusta í þrjá klukkutíma á um- ræður um jafneinfalt mál og hér er til meðferðar. Eðlilegt er að efla til útvarpsumræðna um stór mál, sem eru margþætt og vanda söm, en þetta sjónvarpsmál er svo fábrotið, að engin tök eru á að rökræða það fram og aftur klukkustundum saman, nema með því að japla æ ofan í æ á sömu atriðum. Bera þessar um- ræður því ótvírætt vitni, og þessi ræða mín mun vafalaust heldur ekki leiða fram nein ný máls- atvik. Auðvitað getur viðhorf til sjónvarps, hvort heldur er frá Keflavíkurflugvelli eða islenzkt sjónvarp, ekki fallið saman við sneina flokkslínu, heldur er þar um algerlega einstaklingslegt mat að ræða. Umræður um mál- ið eru eðlilegar, enda hefur rík- isútvarpið þegar efnt til um- ræðufundar á eðlilegum grund- velli, en þessar umræður eftir flokkspólitískum línum hljóta hins vegar að setja óeðlilegan og ibeinlínis villandi blæ á málið. Krafa Alþýðubandalagsins um útvarpsumræður og allur mal- flutningur talsmanna þess flokks Ihér í kvöld, og raunar Framsókn armanna lika, er vijluljós. sem menn þurfa að forðast, ef þeir vilja mynda sér raunhæfar skoð- anir á viðfangsefninu. Reyna að egna til illinda Auðvitað var sjálfsagt að leyfa 'Alþýðubandalagsmönnum að túlka málstað sinn fyrir almenn- irjgi, enda hafa þeir með mál- flutningi sínum hér i kvöld ótví- rætt staðfest það, sem öllum þing heimi var Ijóst, er tillaga þeirra var lögð fram, að sjónvarp eða ekki sjónvarp, er algert aukaat- riði í þeirra huga. Aðalatriðið er að nota sérhvert tækifæri til þess að reyna að egna til illinda við bandaríska varnarliðið á Kefla- víkurflugvelli. Þá er handhægt að gerast eldheitir talsmenn þjóð legrar menningareinkenna, þjóð- ernis og tungu, þótt verð slíkra verðmæta hafi til skamms tíma ekki verið ofarlega á stefnuskrá hins alþjóðlega kommúnisma, enda lítt samræmanleg alþjóða- hyggju þeirrar stefnu. en hverju skiptir það, þótt boðskapurinn komi ekki alltaf frá hjartanu, ef hægt er að þjóna því hlutverki að koma Islandi úr varnarsamtök um vestrænna þjóða. Einungis með hliðsjón af þessum pólitíska tilgangi eru útvarpsumræðurnar í kvöld skiljanlegár, en hvorki þessi tilgongur né stóryrtar fujl- yrðingar um siðspillandi dag- skrár Keflavíkursjónvarpsins og tortímingu þjóðlegrar menning- er og góðra siða af hennar völd- um, eru heppilegur grundvöllur eð umræðum um þetta sjónvarps tnál. Ekki hægt aS banna þeim að njóta sjónvarps. Vissulega er hér um vandamál eð ræða, sem vert er að gefa gaum, en það verður að íhug- ast öfgalaust og algerlega óháð öllum pólitískum kennisetning- um og vináttu eða andúð í garð rtiltekinna ríkja. þótt tillaga Al- (þýðubandalagsins sé aðeins póli- tískt herbragð, sem hlýtur að fá efgreiðslu í samræmi við tilgang hennar, þá hlýtur málið þó á þessum vettvangi að verða rætt efnislega á grundvelli þeirrar til- iögu. Utanríkisráðherra hefur hefur þegar rakið ýtarlega sögu Keflavíkursjónvarpsins, allt frá jþeim tíma, er dr. Kristinn Guð- mundsson, þáv. utanríkisráð- herra. leyfði sjónvarp varnarliðs ins árið 1955 ,eftir að hann hafði fengið öll mál snertandi varnar- liðið í sínar hendur. Er rétt að vekja sérstaka athygli á því, að tilkoma sjónvarpsstöðvarinnar var bein afleiðing girðingarhug- myndar þessa utanrikisráðherra, hugmyndar, sem hann sjálfur gafst upp við að framkvæma, en var Islendingum til lítils sóma. Hitt er auðvitað rétt og skiljan- ’egt, að ekki er í senn hægt að ætlast til þess, að varnarliðsmenn fari ekki út fyrir bækistöðvar sínar, og banna þeim um leið að njóta í bækistöðvunum dægra- dvalar eins og sjónvarps, sem er hin eftirsóttasta tómstundaiðja í heimalandi þeirríi. Er að þessu leyti hægt að taka undir ummæli í greinargerð fyrir tillögu nokk- urra Framsóknarmanna um sjón varpsmálið. Una sér betur á varnarsvæðunum Það kann að vera, að erfitt hafi verið í upphafi að synja varnar- liðinu sjónvarps, og þar sem sjónvarpsstöð þessi hefur einu sinni verið leyfð. tel ég útilokað að banna varnarliðinu nú að starfrækja þessa stöð. Er enda líklegt að ekkert sé fremur fall- ið til að fá varnarliðsmenn til að una í bækistöðvum sínum en sjónvarpið. Ýmsir hafa látið sér detta í bug, að hægt hefði verið að takmarka sjónvarpið í upp- hafi við svokallað lokað sjón- varp, en af einhverri ástæðu mun dr. Kristinn Guðmundsson, þáv. ubanrrh., ekki hafa talið það ger- legt, er hann upphaflega veitti leyfið. Lokað sjónvarp er þó eina úrræðið til að loka sjónvarpið inni, eins og talsmenn Fram- sóknarmanna predika eftir sjö ára afskiptaleysi af málinu. Eg tel óvefengjanlega upplýst í mál- inu, að aukning orkustöðvarinn- ar er eingöngu tæknileg nauð- syn og stafar ekki af neinni við- leitni varnarliðsins til þess að ná betur augum og eyrum_ íslend inga. Það er staðfest af sérfræð- ingum póst -og símamálastjórnar innar, að endurnýja þurfi tæki sböðvarinnar, og tæki fyrir nú- verandi orku hennar séu ekki lengur framleidd. Það er jafn- framt upplýst, að það hafi aldrei verið tæknilega framkvæmanlegt að takmarka sendisvið stöðvar- arinnar við Keflavíkurflugvöll, og ennfremur, að orkuaukning stöðvarinnar muni ekki auka langdrægni hennar svo neinu nemi. Málflutningur Framsókn- armanna er því hlálegt vindhögg. Orðið til af misskilningi. Allt bendir því til þess að hið mikla moldviðri, sem blásið hef- ur verið upp á stækkun stöðvar- innar, og hefur náð jafnvel til ís- lenzkra menntamannahópa er- lendis, sem ekkert vita um mál- ið, sé ýmist orðið til af misskiln- ingi á eðli málsins eða af þeim sömu hvötum og liggja að baki þáltill. Alþýðubandalagsins. Hið broslega í málinu er svo það, að ef varnarliðið hefði haft einhverj ar slæmar hvatir í orkuaukningu sinni, þá hefði verið auðið fyrir það að ná tæknilega sama árangri með aðferðum,sem ekki hefðu krafizt neins nýs leyfis og eng- inn mundi hafa tekið eftir. Það verður því að játa, að tillaga Al- þýðubandalagsins um að banna alveg sjónvarpsstöðina er burtséð frá pólitískum tilgangi hennar raunhæfari en tillaga Framsókn- armanna um að banna orkuaukn ingu stöðvarinnar, því að stækk- un eða stækkun ekki hefur lítil áhrif til útilokunar á nýtingu íslendinga af sendingum sböðv- arinnar. Teljum við lífsnauðsyn að losna við sjónvarpið, verður alveg að loka stöðinni, en um leið verður að gera sér grein fyr- ir því, að brottfall þessarar dægradvalar varnarliðsmanna hlyti að leiða til þess, að þeir leituðu meir út frá bækistöðvum sínum. Er mjög ólíklegt að nokk ur óski þess. Hafa þagað í sjö ár. í greinargerð þingsályktunar- tillögu þeirra Alþýðuibandalags- manna er sagt að upphaflega hafi verið sett það skilyrði að sendi- svið sjónvarpsstöðvarinnar yrði takmarkað við Keflavíkurflug- völl. Upplýst er, að tæknilega var þetta ekki auðið, og skilyrðið því dauður bókstafur og nánast hlægilegt. Strax var vitað, að sviðið var stærra, en það látið afskiptalaust, og þótt sjónvarps- notkun Íslendinga hafi aukizt á síðari árum, þá hafa margir átt sjónvarpstæki um lengri tíma. Magnús Jónsson. Engu að síður hefur aldrei verið amazt við stöðinni né heldur á dögum vinstri stjórnarinnar. Og hefur þó dagskrárefnið, verið menningarlegra þá en nú, eða hafa framámenn kommúnista ekki almennt farið að stunda Keflavíkursjónvarpið fyrr en nú síðustu mánuðina? Öll þessi sjö ár hafa Framsóknarmenn líka þagað. Eg hefi aldrei horft á sjónvarp frá Keflavík, og get því ekki gefið lýsingu á dagskrár efninu eins og flutningsmenn þingsályktunartillögunnar, sem virðast því nákunnugir. Mér þykir hins vegar næsta ótrúlegt, að útsendingar stöðvarinnar séu að mestu helgaðar soranum ein- um úr andlegu lífi stórþjóða, eins og svo smekklega er kom- izt að orði í greinargerð þings- ályktunartillögunnar. Sjónvarp óumflýjanlegt Þótt við láturn liggja á milli hluta áhuga Bandaríkjastjórnar á andlegri meðferð íslendinga, þá er næsta torvelt að skilja það, að bandarísk stjórnarvöld telji sorann úr andlegu lífi Banda- ríkjaþjóðarinnar viðeigandi and- lega fæðu varnarliðsmanna sinna á Keflavíkurflugvelli og þeirra mörgu bandarísku kvenna og barna, sem þar dveljast. Er ekki hér lengra gengið í öfgum, en hægt er að bjóða nokkrum manni með sæmilega óbrjálaða skyn- semi? Auðvitað er ekki hægt að rökræða við menn, sem eru í þessum ham. Vil ég því hugleiða vandamálið með því fólki. sem lítur á það með rólegu hugarfari. Eg er ekki hrifinn af sjónvarpi og hefi alltaf verið dálítið kvíð- inn að fá það yfir okkur. Sjón- varpið er stórkostlegt tæki, sem hefur mikinn áhrifamátt, og ég mun naumast einn um að kvíða þeim áhrifum, sem það kann að hafa á lífsvenjur okkar. Vel kann að vera að sá kvíði sé ástæðulaus og mótist af of mikilli þröngsýni, og vonandi reynist svo. því að hvað sem mér og öðrum slíkum kann að finnast, þá er þróunin vafalaust óstöðvandi í þá átt að sjónvarpið nái til íslendinga, hvað sem Keflavíkursjónvarpinu líður, þótt það kunni að hraða þeirri þróun í okkar landi. Áform eru þegar uppi um það að nota gervihnetti til að endur- varpa sjónvarpinu, sem þá mun r.á um alla jörð ,nema hindrunin se þá sú, að menn eigi ekki sjón- varpstæki. Auðvitað mætti hindra notkun Islendinga, bæði á sjónvarpi frá Keflavík og ann- ars staðar frá með því að banna innflutning og sölu sjónvarps- tækja ,en telur nokkur maður þá leið færa? Við skulum því gera okkur grein fyrir því að innan skamms tíma er sjónvarpið skollið yfir okkur, hvort sem við bönnum sjónvarpsstöð varnarliðs íns í Keflavík eða ekki. Rás fram þróunarinnar verður ekki stöðv- uð. Deila um keisarans skegg Þar sem sjónvarpið er jafn áhrifaríkt áróðurstæki bæði til góðs og ills. og raun ber vitni, þá er það ekki nema eðlilefft. að mönnum þyki almennt séð var- hugavert að láta erlendan aðila hafa einkaaðstöðu til starfrækslu slíks tækis í landinu. Eg mundi því persónulega telja æskilegast, að engin sjónvarpsstöð væri á Keflavíkurflugvelli, og auðvitað mundum við einnig öll telja æskilegast, að ástand í heimsmál um væri þannig, að þar þyrfti alls ekki neitt erlent varnarlið að vera. Gætu því flutningsmenn, slegið tvær flugur í einu höggi, ef þeir gætu haft þau áhrif á húsbændur sína eystra, að þeir létu af þeirri yfirgangsstefnu, sem neyðir okkur sem aðrar f-jálsar þjóðir til að halda uppi hervörnum sem okkur Islend- ingum hlýtur sérstaklega að vera ógeðfelld, af því að við erum engum herbúnaði vanir og fyrir- lítum allan hernaðaranda, en eitt leiðir af öðru. Ur því að við vegna yfirgangs hins alþíóðleva kommúnisma verðum að hafa hér varnarlið, sýnist eigi heldur auðið að banna varnarliðinu að starfrækja þá sjónvarpsstöð. sem dr Kristinn Guðmundsson heim- ilaði því á sínum tíma. Og deila um orkuaukningu þeirrar stöðv- ar, sýnist vera deila um keisar- ans skegg. Eigum við að hafa bein afskipti af stöðinni? Spurningin verður því raunar ■aðeins sú, hvort Islendingar eigi að hafa bein afskipti af starfsemi þeirrar stöðvar. Vafalaust munu hinir áhugasömu verndarar ís- lenzkrar siðmenningar varla hafa óski a.m.k. eftir að fá að fylgjast á móti því að íslenzk stjórnarvöld með dagskrá sjónvarpsins, til 'þess að reyna að útiloka sorann, og láta ekki mata þjóðina á því ómerkilega efni, sem Karl Kristjánsson lýsti í ræðu sinni, sem öll var hin mesta fordæming á aðgerðum þess ráðherra Fram- söknarflokksins, sem leyfði stöð- ina. A sama hátt og hér er eftir- lit með kvikmyndum, getur ekki talizt nema sjálfsagt, að sjónvarp, hverjir sem það starfrækja, sé háð hliðstæðu eftirliti um efnis- flutning. Þótt ég telji þingsálykt- unartillögu Alþýðubandalagsins fráleita og enga ástæðu til af- skipta Alþingis af málinu, sérstak lega nú, úr því að það aldrei hef- ur komið til kasta þingsins á neinu stigi þess, þá tel ég jafn- sjálfsagt, að íslenzk stjórnvöld hafi augun opin fyrir því, að einkaaðstaða erlends aðila til sjónvarpsreksturs í landinu er viðkvæmt mál og varasamt, sem fylgjast þarf vel með og setja þau takmörk eftir föngum, að erlendur hugsunarháttur og sið- venjur, þótt gott kunni að vera á sínum stað. ýti ekki til hliðar ís- lenzku mhugsunarhætti og sér- kennum, sem telja verði rétt að reyna að vernda. En einnig á þessum sviðum sem öðrum verð- uim við þó að minnast þess, að við getum ekki byggt um land okkar neinn Kína-múr. Við erum undirorpnir erlendum áhrifum úr öllum áttum, og til lengdar ræður það því fyrst og fremst varðveizlu íslenzkra séreinkenna, hvort þau eru það sterk í eðli okkar og vitund, að við sjálf hvert og eitt „viljum vernda þau. Alþjóðlegt sjónvarp við bæjardyrnar Ég skal ekki mörgum orðuift eyða að íslenzku sjónvarpi, enda hefur Benedikt Gröndal, sem einnig er formaður útvarpsráðs, gert því máli glögg skil. Alþjóð- legt sjónvarp er við bæjardyrn- ar, og auðvitað er eina sam'keppn- isvon okkar við erlend sjónvarps- áhrif sú, að við getum sjálfir kom ið upp sjónvarpi, því að sjón- varpstækjabannið er álíka frá- leitt og að við létum okfcur detta i hug að banna að sýna erlendar kvikmyndir í kvikmyndahúsum, af því að við eigum ekki íslenzk- ar kvikmyndir. En því miður er sjónvarp dýrt fyrirtæki, svo að ég er hræddur um að torvelt reyn ist að lyfta því Grettistaki. Engu að síður verðum við að stefna að því marki. Við getum þá a.m.k. átt þá huggun, ef um einhver slæm áhrif af sjónvarpi verður talið að ræða, að þá séu áhrií íslenzk. Eftir að hafa hlustað á ræðu Alfreðs Gíslasonar, læknis, um hin geigvænlegu áhrif sjón- varps almennt, furðar menn þó á því að síðari hluti þáltillögu þeirra Alþýðubandalagsmanna skuli fjalla um athugun á að koma upp íslenzku sjónvarpi. Herra forseti. Svo sem ég í upp hafi sagði, tel ég viðhorf til sjón- varps, hvort heldur er um sjón- varp að ræða frá Keflavíkurflug- velli eða íslenzkt sjónvarp, ekki geta fallið saman við stjórnmála- skoðanir manna, og tel það mál- inu til tjóns að reyna að færa það inn á svið pólitískra deilna. Eg tel því tillöguflutning og mála- tilbúnað Alþýðubandalagsins beinlínis spillandi, að málið geti verið rætt á eðlilegan hátt og til- lögur þeirra fluttar svo augljós- lega í þeim tilgangi einum að vera liður í baráttu þeirra gegn aðild Islands að vestrænu varnar samstarfi, að ekki geti verið áhorfsmál að fella tillöguna. Sjón varpsmálið sjálft tel ég svo verða að íhuga út frá þeim sjónarmið- um, sem ég hefi hér reynt að araga fram. Góða nótt. Húsgognaveizlun í Keilnvík SÍÐASTL. laugardag opnaði ný húsgagnaverzlun í Keflavík og var fréttamönnum og nokkrum gestum boðið að kynna sér þau nýmæli, sem þar eru á ferð og skoða fjölbreytt og nýtízkulegt vöruval, sem þar er fyrir hendi. Húsgagnaverzlun þessi er deild við verzlunina FONS og eru vörur hennar frá Húsbúnaði h.f. í Reykjavik, en að því fyr- irtæki standa um 30 húsgagna- smiðir og arkitektar og er því um að ræða margar nýjar gerð- i rog „módelsmíðar" enda var heildarsvipurinn mjög nýstárleg ur og mátti þar sjá marga frum- lega og fallega hluti. Nýmæli er einnig að Sveinn Kjarval húsgagnaarkitekt og inn réttingameistari verður til við- tals í þessari húsgagnaverzlun, fyrst um sinn tvisvar í mánuði til leiðbeininga og ráðlegginga varðandi húsgögn og húsbú’nað. Einnig verða þarna á boðstól- um listmunir og listaverk, svo sem ástæður leyfa. Húsakynni eru ný og vel úr garði gerð, enda teiknuð af Sveini Kjarval og smíði fram- kvæmd undir hans umsjá. Eigandi FONS er Ari Jónsson kaupm. í Reykjavík. Hann er bæði stórhuga og áræðinn í rekstri sínum og er þetta fram- tak þakkarvert, þvi það eykur þægindi og vöruval fólksins í Keflavík og á Suðurnesjum, auk þess sem aukin samkeppni er til beinna hagsbóta fyrir kaup- endur — enda sú eina stefna, sem arftökum Duus gamla er samboðin, því Keflavík var, sem kunnugt er, eitt af helztu ein- okunarhreiðrum dönsku verzl- unarinnar. Zakarías Hjartarson er verzl- unarstjóri í báðum deildum Fons, er hin deildin er fata- verzlun. — hsj —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.