Morgunblaðið - 07.03.1962, Síða 15

Morgunblaðið - 07.03.1962, Síða 15
Miðvikudagur 7. marz 1962 MORGVTSBLAÐIÐ 15 Powers Washington, 6. marz. (AP) LEYNIÞJÓNUSTA Banda ríkjanna tilkynnti í dag, að U - 2 f lugmaðurinn Francis Gary Powers hafi staðið við ráðningarskil- mála sína og „skyldur sín- ar sem Bandaríkjamaður“. Hermálanefnd þingsins opinberaði skýrslu um mál flugmannsins, en vél hans hrapaði yfir Rússlandi í maí 1960, eins og kunn- ugt er. Skýrslan er hyggð á rækilegri rannsókn CIA og ráðgjafanefndar, og er flug maðurinn þar hreinsaður af öllum áburði um að hann hafi látið neyða sig til að segja meira en hann hafði Ieyfi til. Leyniþjónustan sagði, að Powers og aðrir U-2 flug- menn hefðu fyrirmasli um að „gefast upp án mótspyrnu og vera samvinnuþýðir við fangaverði sína“, ef þeim tæk ist ekki að forða sér og þeir ættu í vændum að verða teknir. Ennfremur eru flugmenn HreyfUlinnii úr U2 þotu Powers tU sýnis í Moskvu. brast ekki skvldum sínum U-2 vélanna „fullkomlega sjálfráðir gerða sinna, þegar frá eru tekin ákveðin fyrir- mæli í flugvélinni.“ I skýrslunni segir, að Pow ers hafi fylgt þessum fyrir- mælum og haft leýfi til að játa fyrri þjónustu sína í Cughernum og að hann væri í þjónustu CIA. Þessi yfirlýsing er hin fyrsta opinbera staðefsting þess, að Powers hafi verið í þjónustu CIA, enda þótt lítill vafi hafi leikið á því. í skýrslunni segir, að hin eitraða nál, sem Powers bar, „hafi verið ætluð til notk- unar, ef reynt yrði að beita hann pyndingum, eða undir öðrum þeim kringumstaeðum, að hann teldi rétt að svipta sig lífi“. „Hann hafði engin fyrir- mæli um að fremja sjálfs- morð í þeim aðstæðum, sem hann var í, og enginn ætlað- ist til þess af hónum,“ er bætt við. Skýrslan sagði, að ekkert hefði komið fram, sem benti til að hann hefði „hlýðnast Rússum“ né framið skemmd- arverk. CIA segir ennfremur, að Powers hafi sagt rannsóknar- nefndinni, að hann hefði get- að náð í húninn, sem taka átti í til að sprengja vélina í loft upp, en þá ekki getað skotið sér út úr hrapandi flug vélinni. í yfirlýsingu CIA sagði, að nefnd sérfræðinga hefði rann sakað framburð Powers um sprenginguna, sem olli hrapi flugvélarinnar, og hafa kom- izt að þeirri niðurstöðu, að „sprenging hefði skemmt flug vélina á þann hátt sem hann lýsti.“ „Þar af leiðandi," segir skýrslan, „verða Mr. Pow- ers greidd laun þau, sem hann átti inni samkvæmt ráðningarsamningi sínum.“ Powers átti að fá greidda 30.000 doxlara á ári. Hluti af þessari upphæð var ekki greiddur meðan hann væri við þjónustu í U-2 flugvélum, og ekkert meðan hann var í fangelsi hjá Rússum. Hann á því inni um 50.000 dollara. Skýrslan gat um, að þótt Powers hafi fylgt fyrirmæl- um sínum og játað, vegna áleitni fangavarðanna, tilgang farar sinnar, neitaði hann samt sem áður að nefna nöfn annarra flugmanna á U-2 vél unum. Skýrslan sagði, að Powers hefði sagt Rússum, að flug- mennirnir „væru félagar sín- ir og vinir og þeir myndu missa atvinnu sína, ef hann nefndi nöfn þeirra“. Powers sagði, að Rússarnir hefðu „fallizt á afstöðu hans“. Um hrap flugvélarinnar er haft eftir Powers, að hann hefði reynt að komast í að- stöðu til að taka í hina fjóra aðskildu húna, sem stjórna segir í skýrslu leyniþjónustu Bandaríkjanna eyðileggingu flugvélarinnar, eftir að hafa slengzt harka- lega til í vélinni, en tókst það ekki vegna þyngdarafls- ins, og þess hvað flugbúning- ur hans var uppblásinn og móðunnar á sjóngleri hans. Að endingu segir skýrslan, reif Powers buxtu súrefnis- slönguna, sem wr hið eina sem hélt honum í stjómklef- anum. Þá tók hann að falla og fallhlif hans opnaðist nærri því þegar í stað, í um það bil 4500 metra hæð eða lægra. í skýrslunni sagði, að sprengjurnar í flugvélinni hafi aðeins vegið um 1200 grömm og verið ætlaðar til þess að eyðileggja myndavél- ina og önnur tæki, en hafi hvorki átt ’að sundra þeim né filmunni algjörlega. Leyniþjónustan sagði, að upplýsingar þær sem Powers gaf um stefnu sína, áður en sprengingin varð og staðar- ákvörðunina rétt á eftir, hafi verið borin saman við „leyni- legar upplýsingar“, og að sumt af þessum leynilegu upplýsingum staðfesti fram- burð Powers, en „öðru bar ekki saman að nokkm leyti..“ en „það sem ekki bar saman við frásögn Powers hafi einn- ig að nokkru leyti verið 1 mótsögn við sjálft sig og hafi mátt draga af því mismun- andi ályktanir." CIA sagði, að nokkuð af þessum upplýsingum hafi ver ið grundvöllur umræðna í fréttum, skömmu eftir at- burðinn þann 1. maí, að vél Powers hefði verið búin að lækka flugið smátt og smátt og hefði verið skotin niður af rússneskum orrustuflugvél um í meðalflughæð. Við nákvæma rannsókn, sagði CIA: „.... virðist sem upplýsingar þær, sem þess- ar sögur vom byggðar á, hafi annað hvort verið rang- ar eða mátt draga af þeim mismunandi ályktanir. Nefnd ' in komst að þeirri niðurstöðu, að hún gæti ekki samþykkt vafasamar ályktanir í þessu máli, sem væru í ósamræmi við allar aðrar þekktar stað- reyndir." Nefnd manna, reyndra í yfirheyrslum, sem átti m. a. að rannsaka, að hvað miklu leyti mætti taka Powers trúanlegan, komst að þeirri niðurstöðu, að Powers væri sannleikanum samkvæm ur í frásögn sinni, og voru þeir allir sammála um þetta. Til að rannsaka æviferil Powers voru meðal annars notaðir læknar, sérfræðingar í geðlækningum, sálfræðingar og fyrri félagar hans í flug- hernum og U-2 sveitunum. „Allir þessir menn voru þeirrar skoðunar, að Powers væri sannsögull, bæði af eðl- isfari og af vana,“ segir skýrslan. CIA sagði, að Powers hefði „boðizt til með nokkrum æs- ingi að láta prófa sig í lyga- mæli, þótt hann hefði ógeð á því“. „Skýrsla Polygraph-sér- fræðingsins segir að ekkert hafi bent til þess, að Powers hefði sagt ósatt, á meðan yf- ir heyrslan fór fram,“ segir leyniþjónustan ennfremior. Við þetta er bætt, að rann- sókn á ljósmyndum af flug- vélarflakinu og öðrum upp- lýsingum hafi sýnt að ekk- ert benti heldur til að frá- sögn Powers af atburðunum væri röng, að áliti þeirra sér fræðinga sem hana fram- kvæmdu. Skýrslan segir framburð rússnesku vitnanna við rétt- arhöldin í Moskvu hafi verið í samræmi við sögu Powers. „Powers gat þekkt aftur stað í nágrenni lítils þorps, þar sem hann hélt sig hafa lent,“ segir í skýrslunni. — „Þegar landslag þessa stað- ar var borið saman við fyrri framburð Powers ,stefnu flug vélar hans, hraða hennar og flugtíma, ber þessu öllu sam- an. Ennfremur er framburð- ur hans staðfestur með sjálf- stæðum upplýsingum, sem fyrr voru fengnar, um að nokkrir þeirra, sem tóku hann höndum áttu heima í þessu þorpi.“ Bridge ITALSKA sveitin græddi 13 st. á spili því er hér fer á eftir. Spilið er frá síðustu heimsmeist arakeppni í leiknum gegn Eng- landi. Á öðru borðinu sátu ítölsku spilararnir Forquet og Garrozzo N—S, en ensku spil- ararnir Priday og Truscott A— V. — Sagnir gengu þannig: Austur Suður Vestur Norður 1 grand pass pass dobl pass 2 hjörtu dobl Allir p. A A D 10 8 2 V D 8 5 ♦ 7 4> D 9 4 2 * K 9 5 V G 6 3 ♦ Á 9 6 2 4» Á 8 7 A G ð 3 V K 10 4 2 ♦ K G 10 4 3 * 6 Vestri lét út spaða 7, sem drepið var með ás í borði. — Næst var tigul 7 látið út úr borði. Austur (Priday) lét, án þess að hika, tigul 2 og Suður drap með kóngi. Þar sem ensku spilararnir nota opnun á einu grandi sem veika opnun, þá var Suður (Garrozzo) alls ekki örugg ur um, að Austur ætti tigul ás, en heppnin var með honum. — Suður lét nú út laufa 6, Vestur drap með tíunni, Norður með drottningu og Austur fékk slag- inn á ás. Nú lét Austur út hjarta 3, sem Vestur drap með ás, og því næst lét Vestur út hjarta 7, sem drepið var í borði með áttunni, Austur drap með gosa og Suður fékk slaginn á kóng. Suður lét nú út spaða gosa, sem Austur drap með kóngi og enn lét Austur út spaða, sem Vestur trompaði. — (A—V hafa nú fengið 4 slagi). Nú lét Vestur út tigul 8. Nú sýndi Suður hvað í honum bjó, því hann gaf í borði (trompaði ekki), Austur drap með ás og fékk þann Slag. Austur lét nú út lauf, sem Suður trompaði heima. Nú trompaði Suður tigul í borði og drottningin hjá Vest- ur féll í og voru því tiglarnir hjá Suður orðnir góðir. Nú er sama hvað Austur gerir, Suður vinnur alltaf spilið. Suður læt- ur spaða úr borði. Ef Suður trompar, þá trompar Suður yf- ir heima og fær afganginn á tigul. Ef Austur gefur, þá gef- ur Suður einnig, því spaðamir í borði sem hæstu spaðarnir. ítölsku spilararnir unnu því 2 hjörtu dobluð og fengu fyrir það 670. Á hinu borðinu fengu ítölsku spilaramir í A—V að spila 2 lauf og unnu. Fengu þeir 90 fyrir það eða samtals 760 á báðum borðum. Cjafir þakkaðar Gjafir til aðstandenda þeirra, sem fórust með m.s. Særúnu. Sama dag og minningara'tihöfn- in fór fram í Neskirkju uœ þá menn, sem fórust af m.s. Særúnu, kom til mín hr. N. N. og frú N. N. og gáfu þau 2500.00 krómur til eftirlifandi aðstandienda. Fyr- ir þessa höfðinglegu gjöf færi ég gefendum innilegar þakkir. Peningar þessir vom strax af- hentir. Jón Thorarensen. A 7 4 V Á 9 7 * D 8 5 + K G 10 5 3

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.