Morgunblaðið - 15.03.1962, Page 14

Morgunblaðið - 15.03.1962, Page 14
14 MORCUNBLAÐIh Fimmtudagur 15. marz 1962 Hjartans þakklæti og kveðjur llyt ég börnum, tengda- börnum, systrum, mágum, frændfólki, vinnufélögum og öðrum vinum minum, sem glöddu mig á sextugsafmæL inu, hinn 6. marz síðastUðinn með kveðjum, skeytum, heimsóknum og gjöfum. Ég óska ykkur allrar blessunar. Sigurjón Halldórsson frá Traðargerði. SILFURTUNCLID Leikum og syngjum frá kl. 9—11,30 í Silfurtunglinu. — Opið frá kl. 7. Jarðarför móður okkar, fósturmóður, tengdamóður og ömmu GUÐRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR Köidukinn, Holtahreppi. fer fram frá Marteinstungukirkju laugardaginn 17. marz næstkomandi, og hefst með bæn að heimili hinnar látnu kl. 12 á hádegi stundvíslega. Ferð frá B.S.Í. kl. 8 árdegis. Upplýsingar um ferðina í síma 17310. Bórn, fósturbörn, tengdabörn og barnabörn. Eiginmaður mmn og faðir okkar HARALDUR JÓNSSON Sólvangi, Seltjarnamesi, andaðist að Landakotsspítala 13. marz 1962. Ásta Þorvarðardóttir og börnin. Alúðar þakkir til ykkat allra nær og fjær, sem hafa auðsýnt okkur vinarhug á margan hátt vegna andláts og jarðarfarar systur og fóstursystur okkar Frk. JÓHÖNNU FRIÐRIRSDÓTTUR fyrrverandi ljósanóður, og heiðrað hafa minningu hennar. Sérstaka þökk til Landspítalans fyrir hjúkrun og aðhlynningu, einnig Ljós- mæðrafélagi íslands og síðast en ekki sízt þeim ljós- mæðrum sem sátu við sjúkrabeð liennar og reyndu að létta henni sjúkdómsstríðið. Fyrir okkar hönd, fjarstaddrar systur og annarra ættingja. Sveinn Friðri'ksson, Sigrún Rosenberg. Systir okkar , GUÐRÚN ANGANTÝSDÓTTIR sem andaðist 9. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 16. þ.m. kl. 1,30 e.h. — Blóm vin- samlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á minningarsjóð Guðrúnar Jónsdóttur, og tekur bókabúð Kron á móti minningargjöfum. Fyrir hönd syslkinanna. Sveinbjörn og Yilhjálmur Angantýssynir. Hjartanlega þökkum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður minnar og systur okkar ÁSTRÓSAR K. ÞÓRÐARDÓTTUR Öldugötu 59. Sonur og bræður. Við þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og ’arðarför JÓNS SAMSONARSONAR Sérstaklega þökkum við Trésmiðafélagi Akureyrar fyrir auðsýnda vináttu ag virðingu við hinn látna. Börn og tengdabörn. Sigrún Sigurðardóttir Aiviðru níræð í dag Þú unað hefur æsku þinnar dögum við áarnið og fugla væran klið. Og enn ert þú í þínum heimahögum með hugarþrótt og sálar djúpan frið. Kæra vinkona, og ágæta hús- móðir mín um áratugi. Þessar Ijóðlínur frá áttræðisaÆmiælinu eiga auðvitað enn við. Og enn þá ert þú furðu styrk og alltaf jafn fús til starfa, svo að þér fellur varla nokkurn táima verk úr hendi. Svona hefur það ver- ið alla þína löngu ævi. Stál hugar og handar hefur stöðugt slípast í erfiði lífisins, svo að ennþá er styrk"_r handa þinna ótrúlega miikill, og hugis- unin skýr og glögg eins og alltaf & 5KIPAUTGCRD RIKISINS Ms. ESJA vestur um land í hringferð 17. þ. m. — Vörumóttaka í dag til Patreksfjarðar, Bíldudals, Þing- eyrar, Flateyrar, Súgandafjarð- ar, ísafjarðar, Siglufjarðar, Dal- víkur og Akureyrar. — Farseðlar seldir á föstudag. áður. — Það er mikil blessun að hafa fengið góða greind og sk-ýr leika í vöggiugjöf oj fá að halda því til hárrar ellL Á Tannastöðum, við rætur brattra hliða Ingólfsfjalls, stóð vagga þín. Þar lágu smalaspor þín um Ingólfsfjall, Gróhóla, Mosabungu, mýrar og dal. — Þú varst snemma góð og natin við öll dýr, og Þórður, ætttfræð ingur, bróðir þinn sagðist held ur hafa viljað smala með þér einni en hverjum tveimur öðr- um, vegna þess hvað þú varst glögg, lagin og fljót, enda eru þetta beztu kostir smalans. Frá foreldrum þínum: Sigurði Sigurðssyni og konu hans Guð- rúnu Magnúsdóttur frá Engey, fékikistu gott veganesti eins og öll þín systkini. Þau, sem upp kom ust eru talin eftir aldri í þessari vísu, er varð til á Tannastöð- um á uppvaxtarárum þínum; „Þórður, annar Eiríkur. Ýtar sanna Kristján bur. Sigrún, hann og SigurSur, sömu manna Guðríður.“ Og enn varstu ung, er þú hófst nýtt landnám lengra inn með fjallinu, stundaðir heyákap á flöt AMAZONE $61 AMAZONE S 61 með sjálf virkum útbúnaði fyrir kál- og illgresishreinsun. AMAZONE S 61 er árangur tuttugu ára þróunar og full- komunar vestur-pýzks iðnaðar í framleiðslu á sjálfvirk- um kartöfluupptökuvélum, þar sem lögð er höfuð- áherzla á vandaða meðferð á kartöflunum, við hinar ólíkustu aðstæður. AMAZONE S 56 R hefir verið í notkun víðsvegar á ís- landi síðustu fimm árin, m.a. hefir mestur hluti híns mikla kartöflumagns, sem ræktaður er í Þykkvabæn- um, verið tekiim upp með AMAZONE S 56 R. Við prófanir á AMAZONE S 61, sem er fullkomun hinnar f eldri gerðar, AMAZONE S 56 R, voru viðstaddir fulltrúar frá íslenzkum kartöfluframleiðendum, og var þá þegar augljóst, að AMAZONE S 61 mun valda gjör-byltingu í kartöflurækl. Leitið nánari upplýsinga. — Sýningarvél á staðnum. Pantanir, sem afgreiðast eiga fyrir næstu uppskeru, þurfa að berasí fyrir 31. marz. MAGNÚS SIGURLÁSSON Þykkvabæ — Sími 5. unum fögru, túni og engjum við hið blátæra Sog, og gegndir með prýði húsimóðurstörfumn í Al- viðru, þar sem um áratugi var fjölmargt hjúa og kaupafóliks, og gesta mátti vænta á öllum tím,- um sólarhrings. Þá var ekkert til af þessum hjálpartækjum húsmæðra, seiu nú þykja ómissandi. Og það sem verra var, að aldarandinn var slíkur, að karlmenn virtust ekki teija það í sínum verkahring að létta undir með húsmóðurinni. Það var þér líka alltaf eiginlegra að ganga sjálf í verkið en ýia öðrum, enda ert þú meðal fóm fúsustu kvenna, sem ég hefi þekkt. — Þú virðist hafa lifað í samræmi við þessa göimilu og góðu vísu: „Ekki dugir um að kvarta eða neinum segja frá. Heldur bera hermanns hjarta, hvað sem dynur á.“ Sartt að segja hygg ég, að fáar konur hefðu leyst þitt erfiða og umfangsmjikla hlutverk af hendi með slákri prýði sem þú. Og svo hefurðu alla tíð átt þinn frjóa og skapandí hugar- heim, svo að þú strax í æisku brauzt heilann um frumrök til- verunnar, enda hefur fræði- mennska jafnan legið í landi á þessum vinabæjum undir Ingólfs fjalli, Tannastöðum og Alviðru. Eg veit, að andlegt útsýni þitt hefur jafnan verið gott og fagurt og einkenni lífs þíns verið kær- leiksrík þjónusta og fórnarlund, en svo hefurðu líka átt því láni að fagna að fæðast, alast upp og búa, þar sem útsýni er eitt i-ið fegursta á fslandi. — Enginn veit, hversu djúpstæð áhrif fag ui - umhverfi hefur á manngerð- ina, en ég er ekki í neinum vafa um, að þau eru mikil og góð, og þykir mér þú einnig hafa sannað það. Svo hefurðu líka haft blóm f bagganuim. Þú eignaðiist dióttur til að annast. Þessi góða og trygg lynda dóttir varð þér mjög sam- rýmd og nú getið þið foreldram ir búið áhyggjulaui í verndar- skjóli dótturinnar og hennar at okrusama eiginmanns. Það er hamingja, sem þú átt sannar- lega skilið eftir alla ósérhTfni þína og þolgæði. — Það er eins cg að sitja í mildu kvöldskini. En mesta hamingja þín er þó sú að eiga örugga trú og sjá f anda birtu hins eilífa morgun- roða glæðast, þegar ævisólin lsekkar. Kæra Sigrún, ég held, að ég endi þetta spjall með öðru ljóða stefi mínu frá áttræðisafimæli þínu, um leið og ég sendi þér hjartanlegustu heillaóskir og þaikkir fyrir margra ára hugljúfa og göfuga viðkynningu. Og sittu álfram sæl viff morgunljóma, er sólin laugar f jalla bláan hring, því þú ert þínum bæ og byggíl til sóma og brosum mildum stráir vitt í kring. Og slík er tíffum hetjulundin hressa aff hefja þunga jafnt og létta raun. Og Guff ég biff aff gleffja þig og blessa og gefa trúa þjónsins sigurlaun. S. E. H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.