Morgunblaðið - 18.03.1962, Side 10

Morgunblaðið - 18.03.1962, Side 10
10 MORGUNBLAÐ1Ð Sunnudagur 18. marz 1962 f „öldinni oikikar 1931—1950“ stendur á bls. 154: „Einax Sig urðssan, forstjóri Hraðfrysti- stöðvarinnar í Vestmanna- eyjum, var í gær (iþ.e. 30. júní 1940) staddur ausbur und ir Eyj afjöllum og hafði beðið bát að saekja sig þangað úr Eyjutm. En er báturinn kom var haugabrim, svo að óikleift var að lenda. En Einar lét það elkki aftra sér. Hann afklæddi sig í fjör- unni, fleygði sér síðan til sundis og synti í gegnum brim garðinn út að bátnum. Sundið var ekki langt, en brimið hins vegar mikið, og þykir þetta því mjög karlmannlega gert.“ Þegar ég hafði lesið þessa klausu langaði mig að eiga samtal við Einar. En nokkrir mánuðir liðu án þess hann gæfí færi á sér. Svo var það 4. marz s.l., að ég leit á for- síðu Tímans og sá svofellda fyrirsögn með heimsstyrjald- arletri: „Einar kaupir bát- ana.“ Einar Sigurðsson útgerð armaður hafði keypt fiski- skip! Ég hringdi í hann og sagði: „Má ég tala við þig um bátana?“ „Ég er að fara til Eyja.“ „Hvenær kemurðu aftur?.“ „Á föstudaginn.“ „M!á ég þá hringja?" „Látitu þetta eiga sig.“ „Ég hringi á föstudaginn." Á föstudaginn lét ég verða af hótun minni. „Ég þarf að skreppa niður í SH, ég skal korna við hjá þér, en . . .“ „Þakka þér fyrir“ greip ég fram í. Við hittumst nokkrum mín- útum síðar. „Þú ert í nýjum frakka mleð nýjan hatt og trefil, ég fer að halda að þú sért eins ríkur Og af er látið. Einar brosir. “,,Ég fékk frakkann í SÍS, þú getur ef- laus fengið þér annan eins“. „Ég þarf að tala við þig.“ „Ekkert samtal.“ „En það er tilefni.“ „Tilefni!“ og Einar glottir. „En komdu samt með mér upp á skrifstofur. Ég ætla að gefa þér kaffi. Ég hetf ekki farið varhluta I af árásum í blöðum, einhver verður að vera bitbein. Ég hef aldrei svarað blaðaskrifum um mig einu orði. Ég skal eiga viðtal við þig, þegar ég verð 85 ára. Þá verð ég kom- inn á raupsaldurinn og hef gaman af að gorta af því hvernig mér tókst að stand- ast öll áhlaup ykkar blaða- mannanna". Þegar við höfðum fengið okkur sæti í skrifstofu Árna Finnbjörnssonar ætlaði Ein- ar að fá handa okkur kaffið. „Ég vil heldur kók“, skaut ég að honum. Hann bað þá stúlk- una að ná okkur í 10 flöskur af kók. Drukkum við svo úr einni flöskunni af annarri, meðan eftirfarandi orða hnippingar fóru fram. „Þeiim er táðtalað um þig í blöðunum." „Þeir skrifa um miig eins og erlent kóngafólk, ég má ekki snúa mér við, svo ég sé etkki óð- ara kominn í blöðin.“ „Það gerir pólitíkin. Þeir kalla þig Einar skuldakóng og Einar Eyjajarl og sæma þig öðrum titl- um. Svo hafa þeir gefið þér við- urnefnið „ríki“. Langar þig til að verða kóngur eða jarl?“ „Ekki kannast ég nú við þá kennd.“ „En pólitíkus?1* „Ég var 8 ár í bæjarstjóm Vest mannaeyja og hafði gaman af að vinna að sveitarstjórnarmálum." „Og vildir ráða þar einn öllu?“ „Læt ég það nú vera. Ég held að ég hafi verið samvinnu- þýður. Annars hef ég gaman af baráttu.** „En hvernig hefur þér líkað á alþingi?** „Ég hef lítið verið þar, annars fellur mér það vel.“ „Ef þú ættir að velja á milli stjórnmálanna og atvinnulífsins, hvort miyndir þú þá kjósa?“ „Þetta tvennt er svo samtvinn- að að ómögulegt er að aðskilja það. Stjórnmálin byggjast á at- vinnulífinu. En ekki mundi ég óska strákunum mínum þess að verða útgerðarmenn**. „Heldurðu, að stjórnmálin séu arðvænlegri en útgerð?" „Arður eða peningar skipta mig engu.“ „Engu?“ „Ég hef aldrei gert neitt vegna peninganna, ég hef heldur aldrei átt neina peninga. Alltaf verið búinn að eyða þeim, um leið Og ég eignaðist vonina í þeim. Fram- kvæmdaþörfin hefur verið mér allt: að byggja, kaupa nýja vél eða bát, sem var nauðsynlegur. Á meðan ég á frystihús, verð ég líka að eiga báta til að hafa hráefni.** „Tíminn segir, að þú sért ný- búinn að kaupa tvo.“ „Ég hef keypt marga báta uim dagana og selt marga. Það er ekkert athugaverðara, þó bátar gangi kaupum og sölum en hús eða bíll. Að það sé tilefni til fimm dálka fyrirsagnar með fimm sentimietra háu letri, að ég hafí keypt 59 tonna bát, fæ ég ekki skilið. Þessi bátur, Hannes lóðs, var búinn að vera til sölu í tvö ár og margauglýstur í blöð- unum. Það er ekki eins og þetta séu fyrstu samskipti okkar Jóhanns Fálssonar, sem áfeldi mér bátinn. Hann hefur verið formað- ur fyrir mig á þremur bátum og aflakóngur hverju sinni.“ „Hvar á báturinn að leggja upp?“ „Hér í Reykjavík. f Vest- roannaeyjum er nóg hráefni, en vantar hins vegar fólk. Ég vona að verkafólkið, sem á að verka aflann úr honum, þegar til kemur sjái a.m.k. í gegnum fingur við mig fyrir þetta ódæði. Frysti- húsin í Reykjavík eru illa sett með hráefni, síðan togararnir hættu að leggja þar á land afla sinn. Það er ekki hægt að segja, að þar hafi verið handtak að gera fyrstu tvo mámxði ársins." „En „Kristbjörg**, sem er nú aðallega lagt út af.“ „Ég hef ekki keypt „Krist- björgu". „Af hverju keyptirðu ekki nýjan bát?“ „Ég hef aðeins einu sinni látið byggja fyrir mig bát, annan bát- inn, sem ég eignaðist, Tý í Vest- mannaeyjum, 37 tonn, happaskip. Fyrsti báturinn, sem ég eign- aðist, var 12 lestir, vafalítið minnst eftirsótti báturinn í Eyj- um þá. Ég hef alltaf orðið að kaupa báta, sem aðrir hafa ekki viljað eiga. Ég gat aldrei fengið innflutningsleyfi fyrir bát, á meðan leyfa þurfti við, ekki einu sinni fyrir bíl. Þeim á skrifstof- unum fannst alltaf ég eiga svo mikið. Fyrir 5 árum samdi ég þó um að láta smíða fyrir mig innanlands tvo 190 lesta báta hjá Þorgeiri Jósefssyni á Akra- nesi, en þegar ég sótti um lán út á þá eins Og ég hélt, að lög stæðu til, var mér neitað svo ekkert varð úr þessu.“ Einar stóð nú upp og drakk úr síðustu kókflöskunni. Hann vildi, að ég skryppi með sér heim. Ég sat sem fastast. „Frystihúsin þin og bátarnir hafa verið auglýst í Lögbirtingar- blaðinu, já, meira að segja í Morgunblaðinu." „Það ber aðeins vott um, að ég baða ekki alltaf í rósum. Bf mig vantar tilfinnanlega vél í bát eða frystihús, kaupi ég hana. Ég treysti á, að forsjónin hjálpi mér til að greiða næstu skuld, ef ekki á gjalddaga þá að minnsta kosti fyrir eindaga.** „En ef forsjónin bregst?" „Hún hefur aldrei brugðizt mér.“ )rÞeir segja, að þú farir óvar- lega með peninga, sumir kalla þig _braskara.“ „Ég reyni að vera heiðarlegur. Mér vitanlega hef ég hingað til borgað allar mínar skuldir.** „Hvað um Sigurð? Þeir segja, að ríkið borgi hann?“ „Sigurður er kapituli út af fyrir sig. Ég lenti í togaraútgerð vegna fyrirtækis, sem ég keypti á -Flateyri fyrir 9 árum. Það átti einn gamlan togara og svo keypti ég annan, sem margir höfðu gef- izt upp á að þ'ira út. Þessi skip gerði ég út í ein 7 ár, og örvuðu þau atvinnu í byggðarlaginu og veittu gjaldeyri í þjóðarbúið. En þau voru gömiu!, æva- gömul, og það varð ekki komizt hjá að endurnýja skipakostinn. Þá voru karfaveiðarnar við Ný- fundnaland í algleymingi. Skipin komu þaðan drekkhlaðin mánuð eftir rnánuð. Ég barst með straumnum og var einn af þeim fimim,. sem sömdu um smíði 1000 lesta togara. Þeir kostuðu þá 25 milljónir; srvo kom gengisbreyt- ingin. Ég var óheppinn til að byrja með og getan ekki otf mikil til að mæta skakka- föllum. Þó ég hefði viljað veita fé í útgerðina, voru bank- arnir ófúsir að lána í botnlausan taprekstur, eins og togaraútgerð- in hefur verið undamfarið, og lái ég þeirn það ekki.“ „Hvað hefur þú tapað á Sig- urði?“ „Ég lagði í hann rúmar 4 millj. kr., aúk þess sem ég bjó skipið á veiðar og hef haft af því veru- legan kostnað. Alls hef ég ekki lagt minna en 7 milljónir króna í skipið.“ „En þessar 4 milljónir kr. er ekki hægt að reikna sem tap“. „Ég mundi glaður afhenda skipið í dag fyrir það, sem hvílir á því og afskrifa þar með þessar 7 milljónir króna.“ „Sá, sem þolir að tapa slí'ku fé á tveimur árum, er ekki á flæðiskeri staddur?" „Eysteini vini mínum tókst að setja mig efistan á blað af þeim burgeisum, sem voru á sínum tíma skyldaðir til að greiða stór- eignaskatt. Mér var gert að greiða rúmar fjórar miilljónir króna. Þá fékk ég viðurnefnið „hinn ríki.“ En nú er meira að segja Þjóðviljinn farinn að draga í efa réttmæti þess titils og hetfur haft hann innan gæsalappa up>p á síðfcastið. Ég er samt efcki að berja mér.“ „Hefur þá forsjónin brugðizt, hvað Sigurð snertir?" „Ég trúi því, að Sigurður eigi eftir að skila sínu og meira að segja, að það hafi átt að fara eins og fór, þegar vélsmiðirnir 1 Héðni gleymdu að „opna fyrir smurninginn**, svo vélin bræddi úr sér, og ekki varð úr að skipið færi tiil Færeyja.** Einar fór nú í samrvihnufrakk- ann, setti á sig hattinn og við gengum sem leið liggur heim tiil hans. „Þú spurðir mig áðan, hvort ég væri rikur. Það má tiil sanns vegar færa, já, ég á fjársjóð. Við hjónin höfum eignazt níu börn.“ Ég staldraði við. „Og hvað er það yngsta gamalt?** „2ja ára.“ „Og elzta? „13 ára“. „9 böm á 11 árum.“ „Settu það samt ekki á prent, það gæti Utið út sem gort!“ „Ertu hættur?“ * „Því verður forsjónin að ráða eins og í gamla daga.“ Við vorum nú komnir heim til Einars Sigurðssonar, og frú Svava tók glaðlega á móti ofcfc- ur. „Ég ætla að skrifa samtal við hann.“ „Og hvað eruð þið búnir að tala lengi saman?“ spurði hún. „Klukkutíma**, sagði Einar, „en þetta á ekki að vera neitt samtal til birtingar.** „Klukkutíma?, sagði hún“ neí, það getur ekfci orðið neitt sam- tal. „Svo bætti hún við: „Það er ekkert gaman að samtölum, nema þau séu sönn og einlæg.** Heimili þeirra hjóna er faliegt, íburðarlaust. Við fórum inn I skrifstofu Einars. Alilir veggir eru þaktir bókum. Við vorura varla seztir, þegar börnin komu niður. til að fagna föður sínum. i „Eg er búin að sofa“, segir lítil ljóshærð hnáta. „Hvað heitirðu?** „Helga". „Og hvað ertu gömul?“ „Þriggja ára.“ Pabbi segir við hana: „Þú ert bellarass, farðu aftur í rúmið þitt.“ „Þú ert sjálfur bellarass á hau3 inum,“ sagði sú litla. Pabbi hennar hló og frú Svava fór með börnin í háttinn. „Hafurðu ekki áhyggjur?** spurði ég Einar. „Ég get ekki neitað því, að ég hef átt marga andvökustund út af daglegum viSfangsofnum, sem erfitt hefur verið að ráða fram úr. En ég reyni af fremsta megni að láta áhyggjurnar aldrei ná tökum á mér. H5f ég gerði það væri lifið óbærilegt.** „Þú lendir iðulega í árekstr- um við menn og blöð?“ Samtal v/ð Einar Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.