Morgunblaðið - 21.03.1962, Síða 2
2
MORGVNBLAÐ ÍÐ
Miðvikudagur 21. marz 1962
Merk mál til umræðu
Læknafélags Rvíkur
AÐALFUNDR Læknafél. Reykja*
víkur var haldinn 1 Háskólanum
14. marz s.l.
Fundinn sátu 134 félagsmenn
Og er það fjölsóttasti fundur, sem
haldinn hefur verið í læknafé-
laginu. Féie.gar eru 240 þar af
rúmlega 70 eriendis.
Formaður félagsins Arinbjöm
Kolbeinsson var endurkosinn til
tveggja ára og sömuleiðis ritari
þess Snorri Páll Snorrason, gjald
keri var kosinn Bjarni Konráðs-
son. í meðstjórn hlutu kosningu
Guðmundur Björnsson, Riöhard
Thors og Þórarinn Guðnason.
Skqrtur á sjúkrahúsrými
í skýrslu félagsstjórnar var
meðal annars skýrt frá niður-
stöðum neífndar, er athugað
hafði væntanlega framvindu í
sjúkrahúsmálum á félagssvæðinu.
Athugunin fór fram vegna þess
að sjúkrahússkortur torveldar nú
æ meir störf lækna, veldur sjúki-
ingum ómælandi erfiðleikum Og
skaða, en þjóðfélaginu fjárhags-
tjóni vegna óeðlilegs sjúkrakostn
aðar og vínnutaps. Þótt ýmsir
telji kostnað við rekstur sjúkra-
húsa mikinn,, þá er enm dýrara
fyrir þjóðféiagið að vanta slíkar
stofnanir en að standa straum
af rekstri þeirra, því líf og
heilsa borgaranna er sú undir-
staða, sem öll velgegni og verð-
mæti byggist á. Flestir börgarar
þarfnast einhverntíma á ævinni
sjúkrahúsvistar og margir oftar
en einu sinni. í skýrslu nefndar-
innar kom fram að f járframlög til
sjúkrahúsbygginga í Reykjavík
hafa aukist i tíð núverandi land-
laeknis og er útlit fyrir að all vel
verði séð fyrir fé til stækkunar
Landsspítaians Og byggingar
Bæjarspítaians næstu tvö árin,
og má þar vænta notokrar aukn-
ingar á sjúkrarúmum, þótt hvergi
nærri mum takast að Ijúka þeim
byggingum á þessum tíma.
Stækkun Hjúkrunarskólans
aðkallandi í ár
Að áliti nefndarinnar er skort-
ur hjúkrunarfólks eitt mest að-
kallandi og alvarlegasta vanda-
málið í sambandi við bætta ög
aukna þjónustu á sjúkrahúsum.
f landinu eru um 600 hjúkrunar-
bonur, þar af starfandi á sjúkra-
húsum liðlega þriðjungur — 215.
En það er að tiltölu nærri helm-
ingi minna en í Danmörku. Til
þess að fullnægja þörfinni fyrir
hjúkrunarkonur þyrfti Hjúkrun-
arskólinn að útskrifa árlega tvö-
falt meira hjúkrunarlið en hann
gerir nú. Þó mætti einnig ráða
nokikra bót á þessum vanda með
betri nýtingu starfskrafta hjúkr-
unarfólks. Fundurinn ályktaði að
beina þeirri ábendingu til heil-
brigðisyfirvalda að samfara nauð
syn á auknum hraða í sjúkrahús-
byggingum væri mjög aðkallandi
að bæta við kennslúhúsnæði
HjúkrunarSkóians nú þegar á
þessu árL
Lög um geislavarnir
Þá samþykkti fundurinn til-
mæli til ríkisstjórnarinnar þess
efnis að hraða lagasetningu um
öryggisráðstaíanir gegn jónandi
geislum frá geislavinkum efnum
og geislatækjum. Lög þessi munu
að vísu ekki fjalla um varnir
gegn geislavirkum efnum frá
atomsprengjum heldur um notk-
Freysteinn
þús. fyrir
A BÆJARÞINGI Reykjavíkur
hefur verið kveðinn upp dómur
í máli, sem Freysteinn Þorbergs
son, hinn kunni skákmaður, höfð
aði gegn Vélasjóði og Ræktunar
sambandi Breiðdæla og Beru-
nesshrepps vegna slyss, er hann
varð fyrir sumarið 1955. Voru
Freysteini dæmdar kr. 112.000,00
í skaðabætur úr hendi Véla-
sjóðs, svo og vextir og máls-
kostnaður, en ræktunarsamband
ið sýknað.
Málavextir eru þeir í stuttu
máli, að Freysteinn var að
vinna austur á Berufjarðar-
strönd sumarið 1955 að skurð-
grefti. Átti Vélasjóður gröfuna,
en unnið var m. a. við tún-
skurð fyrir bændur í hinu
stefnda ræktunarsambandi. Eitt
sinn var Freysteinn að stilla ás
nokkurn á gröfunni og hafði
handlegginn milli pílára í stóru
tannhjóli, sem er í sambandi við
víraútbúnað gröfunnar. Sam-
starfsmaðunr hans ræsti vél gröf
unnar, áður en Freysteinn hafði
lokið verkinu, og þar sem víra-
útbúnaðurinn var tengdur við
vélina, tók tannhjólið að snú-
ast. Handleggsbrotnaði Frey-
steinn og greri brotið seint.
Læknir mat síðar, að hann hefði
orðið fyrir 15% varanlegri ör-
orku.
Niðurstaða málsins varð sú,
að ræktunarsambandið var sýkn
að, þar sem ekki var sannað að
unnið hefði verið fyrir það, er
slysið varð, og samningar þess
og Vélasjóðs óljósir. Vélasjóði
var hins vegar gert að greiða
4/5 af örorkutjóni Freysteins og
að auki bætur fyrir þjáningar.
Var talið, að Freysteinn sjálfur
hafi átt sök á slysinu að fimmta
hluta, m. a. af því, að hann
hefði ekki gætt þess að tann-
Sínióníutónleikor d íimmtudng
TÓNLEIKAR Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar er fresta varð
vegna veikinda hljómsveitar-
manna í fyrri viku hafa nú
verið ákveðnir fimmtudaginn 22.
marz kl. 21.00 í Háskólabíói.
Á efnisskránni er Egmont-for-
leikur Beethovens, Rococotil-
brigði fyrir cello og hljómsveit
eftir Tschaikowsky, Tapiola eftir
Sibelius og Skozka sinfónían
eftir Mendelsohn. Stjómandi er
Jindrich Rohan og einleikari
með hljómsveitinni er Einar
Vigfússon.
Aðgöngumiðar frá 15. marz
gilda á þessa tónleika, en auk
þess eru miðar seldir í bóka-
verzlunum Sigfúsar Eymunds-
sonar og Lárusar Blöndal.
>■
Við Genezaretvatn
Miklir árekstrar
hafa orðið undan-
farna daga á
landamærum Sýr
lands og ísraels
og saka hvorir
aðra. Myndir þess
ar eru teknar á
laugardag eftir
bardaga nálægt
sýrlenzka þorpinu
El-Nuqueib. Féllu
þar 30 sýrlenzkir
hermenn og fimm
hermenn frá ísra-
el. Israelsmenn
réðust þarna á
virki Sýrlendinga
eftir að skotið
hafði verið frá
virkinu á fiski-
báta og eftirlits-
báta ísraelsmanna
á Genesaretvatni.
Efri myndin sýn-
ir rústir hjá virk-
inu eftir bardag-
ana en sú neðri
þrjár brynvarðar
bifreiðir ísraels-
manna, sem lask-
aðar voru í bar-
dögunum.
Sýrlendingar hafa
nú óskað þess að
öryggisráff Sam-
einuðu þjóðanna
taki þetta mál til
umræðu.
Hernaðaryfirvöld
in í ísrael til-
kynntu í gær-
kvöldi að skotið
hafi veriff úr fall-
byssum á þorpið
Ein Gevji austur-
strönd Genesaret-
vatns. Ben Gurion
forsætisráffherra
hefur snúiff heim
til Jerúsalem úr
leyfi.
Efling Hjúkrun-
arskóla íslands
114 nemendur þar við nám í vetur
á aðalfundi
un geiála og geislaefna í lækna-
ingastarfsemi og iðnaði. En slík
geisiahætta er á vissan hátt tengd
þeirri geislahættu, sem stafar af
atomsprengjum.
Læknahús — Domus Medica —
Ail mikið var rætt á fundinum
um Domus Medica læknahús, sem
væri í senn félagsheimili og
fræðslustaöur, en auk þess lækn-
ingamiðstöð sérfræðinga og jafn
vel einnig heimilislækna. Reykja
víkurbær hefur lofað lóð við
Snorrabraut fyrir læknahús.
Það hefur verið ætlun lækna
í nær 40 ár að koma upp slíku
húsi, en fiárskortur ætíð hamlað
framkvæmdum og svo er enn.
Til þess að ráða noklkra bót á
vandamálinu samþykkti fundur-
inn að hver læknir skyldi greiða
aúkaársgjald, er renni í sjóð
Domus Medica. Með vaxandi fé-
lagatölu getur á þennan hátt skap
azt á nökkrum árum fjárhags-
grundvöllur fyrir þetta mikla
nauðsynjamál lækna.
(Fréttatilkynning frá
Læknafélagi Reykjavikur).
fékk 112
beinbrot
hjólið og vél gröfunnar væru
ekki tengd, meðan hann vann
að stillingunni. Við mat á tjóni
Freysteins var m. a. tekið tillit
til þess til lækkunar, að hann
var við nám í fjóra vetur eftir
slysið og gat hagað námi sínu
þannig, að sem minnstur bagi
yrði að örorku hans.
Dóminn kváðu upp Einar Arn
alds yfirborgardómari og verk-
fræðingarnir Jóhannes Zoega og
Ögmundur Jónsson.
Lítill afli í net
Eskifjarðarbáta
ESKIFIRÐI, 20. marz. — Aflinn
'hjá Eskifjarðarbátum var þann
15. þ.m. sem hér segir: Seley 234
lestir, Vattarnes 217 lestir, Hólma
nes 208 lestir, Guðrún Þorkels-
dóttir 242 lestir.
Eru bátarnir búnir að taka net.
Seley kom með 35 lestir úr 4
lögnum. Fiskur virtist vera held-
ur tregur í netin enn sem komið
er.
Undanfarna daga hefur verið
hér sumarblíða, sólskin og stillur.
— GW
STRJÁLAR þrýstilínur á kort
inu sýna, að vindur er yfir-
leitt hægur og veður aðgerða-
lítið. í háþrýstisvæðinu fyrir
suðvestan landið var loftið
fremur hlýtt og rakt niður við
jörð, og þoka lá yfir Faxaflóa
allan fyrri hluta dagsins. Aust
an lands var hins vegar viða
bjartviðri, en hiti 2—6 stig
um land allt.
Veffurspáin kl. 10 í gærkvöldi:
Á FUNDI neffri deildar Alþingis
i gær var frumvai-p um Hjúkr-
unarskóla íslands samþykkt sam
hljóffa við 2. umræffu, svo og
frumvarp um almamnatryggingar,
og vísaff til 3. umræffu.
Námstíminn styttur
Sigurffur Bjarnason (S) hafði
framsögu fyrir heil'brigðis- og fé-
lagsmálanefnd um frumvarp til
SV-land til Breiðafjarðar
og miðin: Vestan og NV kaldi
skýjað.
Vestfirðir, Vestfjarðamið og
norðurmið: Vestan stinnings-
kaldi, víðast skýjað.
Norðurland, NA-land og
NA-mið: Vestan kaldi, víðaist
léttskýjað.
Austfirðir, SA-land og mið
in: NV gola eða kaldi, létt-
skýjað.
laga um Hjúkrunarskóla fslands.
Gat hann þess, að sú breyting
væri gerð með frumvarpi þessu,
sem ríkisstjórnin flytur, að nafni
skólans verði breytt, Hjúkrunar-
skóla íslands í stað Hjúkrunar-
kvennask óla íslands. Sprettur sú
breyting af því,
að gert er ráð
fyrir, að karl-
menn geti sótt
ikólann eklki síð
ur en kvenfólik.
Þá er gert ráð
fyrir, að skólinn
muni framvegis
heyra undir
menntamálaráðu
ráðuneytið eins og læknadeild
Háskólans.
Samkvæmt frumvarpinu mun
námstími í skólanum styttast
nokkuð, en áherzla lögð á að
skipuleggja það betur og laða
fólk þannig til náms í hjúkrunar-
fræðum. En til þess ber brýna
nauðsyn, sagði Sigurður Bjarna-
son, þar sc-m miikill skortur hefur
undanfarið verið á hjúkrunar-
fóliki.
Heilbrigðis- Og félagsmálanefnd
flutti þrjár smávægilegar breyt-
ingartillögur við frumvarpið, sem
allar voru samþykktar.
Hannibal Valdimarsson (K)
lýsti því yfir, að hann væri mót-
fallinn þyí ákvæði frumvarpsins,
að skólinn skyldi lúta stjórn
menntamálaráðherra. Taldi hánn
réttara, að hann lyti áfrám heú-
brigðis- og félagsmálaráðuneyt-
inu.